Morgunblaðið - 29.08.1975, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. AGUST 1975
Unglingakeppni FRI
um helgina og þrjár
síðustu greinar Mí
UNGLINGAKEPPNI Frjáls-
íþróttasambands Islands fer fram
á Laugardalsvellinum 30. og 31.
ágúst n.k., en þátttökurétt í móti
þessu eiga þeir unglingar sem náð
hafa beztum árangri í hinum
ýmsu greinum frjálsra íþrótta í
sumar. Keppt verður í þremur
flokkum — stúlkur, drengir og
sveinar. Eru keppnisgreinar eftir-
taldar:
Stúlkur: 100 metra hlaup, 200
metra hlaup, 400 metra hlaup, 800
metra hlaup, 100 metra grinda-
hlaup, hástökk, langstökk, kúlu-
varp, kringlukast og spjótkast.
Drengir: 100 metra hlaup, 200
metra hlaup, 400 metra hlaup, 800
metra hlaup, 1500 metra hlaup,
3ooo metra hlaup, 110 metra
grindahlaup, hástökk, langstökk,
þrístökk, stangarstökk, kúluvarp,
kringlukast og spjótkast.
Sveinar: 100 metra hlaup, 200
metra hlaup, 400 metra hlaup, 800
metra hlaup, 1500 metra hlaup,
100 metra grindahlaup, hástökk,
langstökk, þrístökk, stangarstökk,
kúluvarp, kringlukast og spjót-
kast.
Búizt er við að keppendur á
mótinu verði um 80 talsins,
allstaðar að af landinu og er sumt
af bezta frjálsíþróttafólki lands-
ins meðal þátttakenda, sérstak-
lega þó í stúlknaflokki.
Þá verður og keppt i þremur
greinum i Meistaramóti Islands.
Fyrri daginn fer fram keppni I
3000 metra hlaupi kvenna og
fimmtarþraut karla og seinni
daginn verður keppt í 3000 metra
hindrunarhlaupi.
Nánari upplýsingar um ungl-
ingamótið verða gefnar á skrif-
stofu FRl í dag milli kl. 17.00 og
19.00, og þar verður einnig tekið á
móti þátttökutilkynningum í
meistaramótsgreinarnar, en kepp-
endur í þeim þurfa að hafa látið
skrá sig a.m.k. klukkustundu áður
en keppnin hefst.
Köge í forystu í Danmörku
EFTIR 19 umferðir I dönsku 1. deildar keppninni f knattspyrnu hefur
Köge forystu og hefur liSið hlotið 26 stig, unnið 11 leiki, gert 4
jafntefli og tapað 4 leikjum. Holbæk, liðið sem Jóhannes Eðvaldsson
lék með fyrr í sumar, er i öðru sæti með 25 stig, hefur unnið 11 leiki,
gert 3 jafntefli og tapað 5 leikjum. í þriðja sæti er svo Esbjerg með 23
stig og B 1901, Vanlöse og KB hafa hlotið 22 stig. Er líklegt að þessi
lið muni berjast um Danmerkurmeistaratitilinn f ár, og Köge er þar
óneitanlega sigurstranglegast. Röð annarra liða í deildinni er sú. að
AaB hefur hlotið 21 stig, B 1903 20 stig, B 93 18 stig, Randers Freja
1 7 stig, Vejle 15 stig, Frem 15 stig, B 1909 13 stig, Fremad A 13 stig
og neðst er svo Slagelse með 11 stig. Efstu liðin í 2. deild eru Kastrup
með 29 stig, OB með 26 stig og Hvidovre með 23 stig.
Markhæsti leikmaðurinn f dönsku 1. deildar keppninni er Bjarne
Petersen, leikmaður með KB, og hefur hann skorað 15 mörk.
Og Malmö í Svíþjóð
AO loknum 18 umferðum i sænsku 1. deildar keppninni ! knattspyrnu
hefur Malmö FF forystuna og er liðið komið með 28 stig. Djurgaarden
er f öðru sæti með 26 stig og Öster f þriðja sæti með 24 stig. Röð
annarra liða í 1. deildinni er sem hér segir: Landskrona 21 stig, AIK
20 stig, Örebro 20 stig, Norrköping 18 stig, Atvidaberg 18 stig,
Hammarby 15 stig, Örgryte 14 stig, Halmstad 14 stig, Elfsborg 12
stig, GAIS 12 stig og Sundsvall 10 stig.
Glæsilegu útihuröirnar frá
BOR DÖRREN AB
eru mest seldu útihurðirnar
á noröurlöndum
[ mtmrn' 1 \» J&H
TIL SÝNIS í SÝNINGABÁS OKKAR NO 1 8
Á KAUPSTEFNUNNI í LAUGARDALSHÖLL
VALD. POULSEN!
SUUUKLAND5BRAUI 10 — : 3B520 - 31142
FÆREYSKU F ULLTRtJARNIR á fundi samstarfsnefndarinnar: Sverre T. Hansen, Liggjas Joensen
og Erhardt Næss.
FUNDI SAMSTARFSNEFNDAR
Iþróttasambandanna norrænu
lauk í Reykjavfk f gær. Fundinn
sóttu um 40 manns, formenn,
stjórnarmenn og starfsmenn
fþróttasambandanna á Norður-
löndunum. Var þetta f annað
skipti, sem nefndin þingar á Is-
landi, en f fyrra skiptið mætti
nefndin til fundar f Reykjavfk
1963.
Fjallað var um ýmis mál á
fundinum, en eitt fyrsta málið
sem um var fjallað var aðild Fær-
eyinga að samstarfsnefndinni.
Mæltu Danir fyrir tillögunni, sem
síðan var einróma samþykkt. Á
fundinum lágu frammi skýrslur
frá íþróttasamböndunum og urðu
miklar umræður um starfsemina í
hverju landanna. Almannaiþrótt-
ir, eða trimm, voru ofarlega á
baugi og mikið rætt um hvernig
helzt mætti fá fólk til að iðka
íþróttir eða útivist. Kom greini-
lega fram á fundinum að á
Norðurlöndunum er almennt
mikil aukning í þátttöku almenn-
ings í íþróttum og margvfslegri
útivist.
Á fundinum var dreift skýrslu
um vaxandi afskipti Evrópuráðs-
ins í Strassburg af íþróttamálum
og viðleitni ráðsins til að koma á
auknum samskiptum milli land-
anna í íþróttum. Lýstu fundar-
menn ánægju sinni með hve
Evrópuráðið lætur sig sífellt
meira varða þessi mál. Hins vegar
kom fram á fundinum megn
óánægja með skipan Alþjóða
Ólympíunefndarinnar og rætt var
um nauðsyn á að taka til endur-
skoðunar skipan hennar og starfs-
hætti. Norðurlandaráðið var
sömuleiðis til umræðu og voru
fundarmenn óánægðir með
hversu lítinn skerf íþróttirnar
fengju . úr norræna menningar-
málasjóðnum. Síðastliðin ár hafa
1500 umsóknir komið til sjóðsins
og þar af hefur 445 verið sinnt. Af
þeim fjölda hafa aðeins 2 umsókn-
ir um styrki til fþróttamála hlotið
jákvæða meðferð hjá sjóðnum.
Þess má geta að Frjálsíþrótta-
sambandið islenzka fékk í fyrra
styrk frá sjóðnum vegna Kalott-
keppninnar, en bæði KSl og ISl
hefur verið neitað um styrk vegna
íþróttasamskipta við Norður-
löndin.
Unglingaíþróttir skipa stöðugt
stærri sess f samskiptum Norður-
landanna. Fléttuðúst skóla-
íþróttirnar mikið inn í umræð-
urnar um unglingaíþróttir og kom
í ljós að á flestum Norður-
Iöndunum eru starfandi sérstök
sambönd fyrir íþróttir í skólum
og hefur ISl hug á að stofna til
sérsambands, sem hefði skóla-
íþróttir á sinni könnu.
Meðan á fundinum stóð þáðu
fulltrúar boð menntamálaráð-
herra, borgarstjórnar Reykja-
víkur, IBR og Flugleiða. I gær
fóru fundarmenn f kynnisferð
austur fyrir Fjall og komu m.a.
við á Austurkoti í Flóa og brugðu
sér í útreiðartúr.
BANKASTRÆTI 9 — SÍMI 1-18-11
Nýkomið
Dömudeild: Herradeild:
Danskar pilsdragtir Finnsk föt
Röndóttar
rúllukragapeysur
Flauelsbuxur
Enskar
terelynebuxur
Enskir skór
7 gerðir,
háir og lágir
Opið til kl. 10 í kvöld
Lokað á laugardögum