Morgunblaðið - 29.08.1975, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.08.1975, Qupperneq 32
IGNIS FRYSTIKISTUR RAFTORG SIMI: 26660' RAFIOJAN SIMI: 19294 VALD POULSEN HF FENNER REINSKÍFUR OG REIMAR Suðurlandsbraut 10, Sfmi 38520 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÍJST 1975 Loðnuveiðam- ar hefjast á ný Nótaskipið Árni Sigurður frá Akranesi mun halda til loðnu- veiða fyrir Norðurlandi f kvöld og um helgina er gert ráð fyrir að rannsðknaskipið Arni Friðriks- son haldi á þessar slóðir. Gera menn sér nú vonir um, að feitari og stærri loðna fáist á þessum miðum en fyrir nokkrum vikum þegar þessar veiðar voru reyndar. Einar Árnason útgerðarmaður Árna Sigurðar sagði i samtali við Morgunblaðið i gær, að þeir ætl- uðu að reyna við loðnuna á ný og vonuðust til að fá fallegri og feit- ari loðnu i þetta sinn. Ennfremur sagðist hann búazt við að þeir fengju einhvern styrk til þessara veiða, þar sem verðið fyrir Ioðn- una væri það lítið að það stæði engan veginn undir útgerðar- kostnaði. Jakob Jakobsson fiskifræð- ingur sagði þegar Morgunblaðið hafði samband við hann, að nú væri í athugun að senda .rann- sóknaskip á loðnumiðin úti fyrir Norðurlandi. Gert væri ráð fyrir, að Árni Friðriksson færi upp úr helginni og yrði fram undir 15. september, en þá þyrfti skipið að fara til sfldarrannsókna. Sagði Jakob að nú ætti loðnan að vera stærri og feitari en fyrr f þessum mánuði og í júlf, er skipin reyndu Ioðnuveiðar. Maður týndur á MeðalfeUsvatni ÓTTAZT er að maður hafi drukknað í Meðalfellsvatni í gærkveldi, er bát hvolfdi þar með þremur mönnum. Tveir mannanna björguð- ust, en hinn þriðji týndist og var hans leitað í allt gærkvöld, unz myrkur skall á. Hafði hann þá ekki fundizt. Slysavarnafélagið var í gærkveldi með frosk- menn við vatnið, sem leit- uðu hins týnda. Jeit átti að hefjast aftur str ý* í birt- ingu í dag. Óljósar fréttir höfðu í gær borizt vegna þessa slyss, sem mun hafa orðið um klukkan 18.30. Mun báturinn hafa sokkið. Fyrir myrkur í gær var búið að ganga, umhverfis allt vatn- ið, en án árangurs. SKÁKDROTTNINGIN — í tifefni af hinum glæsilega sigri Guðlaugar Þorsteins- dótturá Norðurlandamótinu í skák á dögunum lét Skák- samband íslands útbúa arm- band úr silfri sem gjöf handa Guðlaugu. Afhenti Þráinn Guðmundsson varaformaður Skáksambandsins Guðlaugu armbandið á heimili hennar í gær. Armbandið hefur Bárð- ur Jóhannesson gullsmiður teiknað og smíðað og er það samsett úr fimm silfurplöt- um. Á þeim eru merki Skák- sambandsins, upphleypt mynd af drottningu, tákn um skákdrottninguna Guðlaugu og áletrun um sigur Guðlaug- ar á mótinu. Myndin sýnir Guðlaugu með þá tvo gripi sem hún á til minja um mót- ið, bikarinn og armbandið, og á minni myndinni sjást þau Þráinn og Guðlaug. Búvara haekkar á mánudag Hækkun mjólkurvara 7-20% Leitt að bendla kirkjuna við rekann „ÞETTA er bölvuð sending og leiðinlegt að þurfa að bendla kirkjuna við svona sendingu," sagði Jónas Einarsson kaupfé- lagsstjóri á Borðeyri þegar Morgunblaðið spurði hann í gær hvort hvalurinn, sem rak á land á Borðeyri, hefði verið nýttur eða hvort Gilsbakka- kirkja f Hvítársíðu hcfði gert tiikall til rekans, en sam- kvæmt fornum skilmála á kirkjan allan reka á Borðeyri og vfðar f Hrútafirði. Jónas sagði, að það kostaði mörg þúsund krónur að fjar- Framhald á bls. 18 Landbúnaðarvörur hækka allverulega á mánu- dag. Verð til bænda hækk- ar samkvæmt verðlags- grundvelli frá júnf- verðinu um 13,67%, en verðið til neytenda mun hækka allmismunandi og er það vegna áhrifa niður- greiðslu á smásöluverði. Mjðlkurvörurnar munu t.d. hækka frá um 7% og f rúmlega 20%. Hins vegar Góður enda- sprettur hjá Guðmundi London 28. ágúst. Einkaskeyti til Mbl. frá AP GUÐMUNDUR Sigurjónsson náði sér vel á strik í lokaumferðum hafði í gær ekki verið gengið frá útreikningum á verðlagningu kjötsins, þar sem slátur- og heildsölu- kostnaður hafði ekki verið ákveðinn, svo og smásölu- álagning. Nýmjólk og smjör hækka mest samkvæmt verðút- reikningunum eða um 20%. Skyr, sem ekki er nið- urgreitt, hækkar minnst eða um 7%. Ostar hækka alþjóðlega skákmótsins f London með því að vinna tvær skákir. í morgun vann hann Bretann Jeff Horner í skák þeirra úr níundu umferð, sem tvfvegis hafði farið í bið. I elleftu og síðustu umferð vann Guðmundur svo Ástralíu- meistarann Max Fuller eftir 41 leik. Tony Miles heimsmeistari unglinga í skák frá Bretlandi Framhald á bls. 18 45% lækkun nautakjöts Dilkakjöt er á þrotum FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað- arins hefur auglýst nýtt verð á ungnautakjöti. Felur það f sér 45% lækkun frá fyrra verði al- gengustu flokka. Gildir þetta nýja útsöluverð aðeins f hálfan mánuð, frá n.k. mánudegi 1. sept- ember til 14. september. Verðið gildir aðeins ef kjötið er keypt f 'heilum og hálfum skrokkum eða fjórðungur úr skrokk. Það gildir ekki ef minna magn er keypt eða unnið nautakjöt, svo sem hakk. Ekki mun fullákveðið hverníg þessari Iækkun verður mætt, en rætt hefur verið um að leggja verðjöfnunargjald á nýja fram- leiðslu þessa hausts til að mæta henni, og munu bændur þvf vænt- anlcga bera lækkunina að mcstu. Að sögn Agnars Guðnasonar er ástæðan fyr>r þessari lækkun sú, að miklar jirðir eru nú til af ungnautakjöti eða 380 tonn. Reiknað er með að 200 tonn verði seld á þessu útsöluverði. Kjötið Framhald á bls. 18 um 8 til 9%. Verð þetta, sem rikisstjórnin hefur þegar samþykkt að sögn Gunnars Guðbjartssonar formanns Stéttarsambands bænda, tekur gildi á mánu- daginn kemur, hinn 1. sept- ember. Eins og áður segir hækk ar verðið til bóndans um 13,67%, sem þýðir að mjólkurlítri til bóndans hækkar um 6,62 krónur og hvert kg kjöts í 1. verð- flokki hækkar um 47,70 krónur. Landbúnaðairáðu- neytið gegn meiri inn flutningi heyköggla EINS og skýrt var frá f blaðinu f gær hefur Samband fsl. sam- vinnufélaga ákveðið að flytja inn frá Danmörku 500 tonn af gras- kögglum. t blaðinu f gær kom fram f samtalf við Gísla Theódórs- son aðstoðarframkvæmdastjóra innflutningsdeildar SlS, að ástæðan fyrir þessum innflutn- ingi væri hversu erfiðiega hefði gengið að afla heyja f surnar. Morgunblaðið ræddi í gær við Hauk Jörundsson skrifstofustjóra i landbúnaðarráðuneytinu og spurði hann, hvort ráðuneytið hefði haft einhver afskipti af þessum innflutningi. Hann sagði, að ráðuneytið hefði ekki vitað um þennan innflutning fyrr en búið var að semja um kaupin og ekki hefði verið hægt að gera neinar ráðstafanir gagnvart þessum farmi. Þó bannað sé að flytja inn til landsins hey eða hálm nema undir ströngu eftirliti gildir ekki eða hálm nema undir ströngu eftirliti gildir ekki það sama um grasköggla, því að þeir eru verksmiðjuframleidd vara, sem hituð hefur verið upp við framleiðsluna, og er innflutn- Framhald á bls. 18 Hefur óskað viðtals VESTUR-Þjóðverjar höfðu enn ekki mótmælt víraklippingum varðskips er Mbl. hafði samband við utanrlkisráðuneytið í gær. Hins vegar hafði sendiherra Þjóð- verja óskað viðræðu við utanrfkis- ráðherra, en ekki var ljóst hvert erindi hans yrði, mótmæli eða ef til vill að ræða um dagsetningu viðræðna milli þjóðanna. Hörður Helgason, skrifstofu- stjóri, sagði í gær að ekki hefðu verið ákveðnir dagar fyrir viðræð- ur við aðrar þjóðir en Breta, en eins og áður hefur komið fram hefjast viðræður við Breta 11. september næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.