Morgunblaðið - 08.10.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKT0BER 1875
Loftur Baldvinsson hef-
ur selt fyrir 37 millj. kr.
FRA þvf að sfldveiðar hðfust í
Norðursjó f aprfl sl. hafa íslenzku
sfldveiðiskipin aflað alls 10.165
lestir, sem seldar hafa verið fyrir
407 millj. kr. og meðalverð fyrir
hvert kg af sfld er kr. 40.04. Á
sama tíma f fyrra höfðu skipin
hins vegar selt alls 26.358 lestir
fyrir 711.7 millj. kr. og þá var
meðalverð pr. kg kr. 27.00.
I síðustu viku seidu síldarskip-
in alls 20 sinnum f Hirtshals og
Skagen, aflamagnið var alls 678.3
tonn og fyrir það fengust 40.3
millj. kr. og meðalverðið var þá
kr. 59.46. Hæstu heildarsölu
vikunnar fékk Ásberg RE en skip-
ið seldi 66 lestir fyrir 5.1 millj. kr.
og meðalverðið var einnig það
hæsta í vikunni eða kr. 77.49.
Frá því að síldveiðarnar hófust
í vor eru eftirtalin þrjú skip hæst:
Loftur Baldvinsson EA hefur selt
1.018 lestir fyrir 36.9 millj. kr. og
meðalverðið er kr. 36.30, Súlan
EA hefur selt 851.9 lestir fyrir
36,7 millj. kr. og meðalverðið er
kr. 43.17 og Hilmir SU hefur selt
726.1 lest fyrir 29.4 millj. kr. og
meðalverðið er kr. 40.49.
Höfn í Hornafirði:
Milljónatjón er gamla kaup-
félagið skemmdist af eldi
MIKIÐ tjón varð f eldsvoða á
Höfn f Hornafirði f fyrrakvöld, en
þá kom upp mikill eldur f gamla
kaupfélagshúsinu, en þar er
verzlun á neðri hæð en á efri hæð
eru skrifstofur Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga. Enn hefur
ekki verið hægt að taka skrifstof-
ur né verzlun f notkun á ný og
nokkur tfmi mun Ifða, þangað til
það verður hægt að fullu. I gær
var ekki búið að meta tjónið en
ljóst er að það nemur milljónum
kr.
Fréttaritari Mbl. á Höfn sagði
að það hefði verið um kl. 20.30 í
fyrrakvöld, að ræstingakona, sem
hefði verið að þrífa skrifstof-
urnar, hefði orðið vör við að reyk
lagði inn á þær. Gerði hún
slökkviliðinu strax viðvart og er
það kom á staðinn, kom í ljós, að
mestur eldur var við bakdyr húss-
ins. Ennfremur var eldur í lager-
herbergjum, sem eru beggja
vegna við dyrnar. 1 öðru var
mikið af málningarvörum, en I
hinu alls konar vörur, t.d. báta-
flugeldar. Vatni var dælt á þessa
staði og tókst fljótlega að ráða
niðurlögum eldsins, og var
slökkvistarfi að fullu lokið um kl.
22.30.
Skemmdir af völdum eldsins
urðu miklar, lagerherbergin eru
að mestu ónýt og ennfremur
komst eldurinn lítillega fram í
verzlunina, einnig urðu miklar
skemmdir af reyk og vatni f öllu
húsinu.
Hermann Hansson, kaupfélags-
stjóri á Höfn, sagði þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann, að tjónið skipti vafalaust
milljónum króna. Verzlunin yrði
opnuð á ný á næstu dögum.
Verið væri að þrífa húsið og mála
það, sem hægt væri að mála strax.
Reynt yrði að taka skrifstofurnar
í notkun mjög fljótt, en enn ætti
eftir að koma rafmagni á hluta
hússins og simakerfið væri f
megnasta ólagi.
Gamla kaupfélagshúsið á Höfn
var reist á árunum 1936—37.
Lýst eftir vitnisburði
undirokaðra kvenna
BLAÐINU hefur borizt fréttatil-
kynning frá „kvennadómstóli"
sem stofnaður mun hafa verið
með ráðstefnu 50 kvenna frá Bóli-
vfu, Puerto Rico, Kanada, Saudi-
Arabfu, Mexiko, Bandaríkjunum,
Belgfu, Hollandi, Irlandi, Bret-
landi, Noregi, Svfþjóð, Dan-
mörku, Portúgal, Spáni, Italíu,
Austurrfki, Sviss og Frakklandi.
Ráðstefnan var haldin f París og
var tilgangurinn að miðla upplýs-
ingum um afbrot og yfirgang
gagnvart konum og að skipu-
leggja alþjóðlegan kvennadóm-
stól, þar sem afbrotamál verða
kynnt, tekin til umræðu og af-
staða mörkuð, eins og segir f
fréttatilkynningunni.
Þátttakendur sögðu frá réttar-
skerðingu kvenna i heimalöndum
sínum og var samþykkt að skipta
afbrotunum í fimm málaflokka:
1. Líkamlegt ofbeldi og kynferðis-
afbrot (sifjaspell, nauðgun og
skækjulifnað).
2. Valdbeitingu viðvíkjandi barn-
eignum (glæpamennsku við
fóstureyðingar, vönun gegn vilja,
ógreiðan aðgang að getnaðarvörn-
um eða alls engan).
3. Yfirgang innan fjölskyldunnar
(undirokun, ólaunuð heimilis-
störf, mismunun í meðferð fjöl-
skyldu-, trygginga- og skattalaga).
4. Fjárhagslega þvingun (undir-
launun, skort á atvinnumöguleik-
um, litla vörn gegn uppsögnun).
5. Stjórnmálalega, trúarbragða-
lega og/eða hugmyndafræðilega
undirokun (stjórnmálalegt
ófrelsi, skort á frelsi til að stofna
félagasamtök o.s.frv.).
Þá segir í fréttatilkynningunni,
að dómstóllinn sé hugsaður sem
hvatning til að ná jafnrétti kynj-
anna hvar sem er í heiminum, og
vilji dómstólshópurinn ná til
kvenna, sem sjálfar hafa orðið
fyrir andlegu og líkamlegu of-
beldi I eða utan hjónabands,
nauðgunum, mismunun í vinnu
eða menntun, smánarlegri með-
ferð í réttarsal eða af völdum
lögreglu. Segir, að dómstóllinn sé
bundinn þagnarskyldu og verði
nöfn ekki birt nema með leyfi
sendanda.
Umboð kvennadómstólsins hér
á Iandi annast Katrín Didriksen,
nemi í þjóðfélagsfræði. Mbl. sneri
sér til Katrínar til að inna hana
nánar eftir málavöxtum.
Sjálf sagðist hún ekki hafa
verið á ráðstefnunni í París, held-
ur hefðu aðilar í Noregi beðið
hana að sjá um ísland í þessu
sambandi. Sömu aðilar annast
málarekstur kvennadómstólsins í
Sovétríkjunum, Islandi og Nor-
egi. Katrín sagði, að nú væru
fjórar eða fimm konur komnar í
starfshóp vegna kvennadómstóls-
ins og álitu þær það vera hlutverk
sitt að upplýsa þær konur, sem
kynnu að snúa sér til þeirra, um
vandamál þeirra, þ.e. skjólstæð-
inganna.
Hún sagði ennfremur að starfs
hópurinn væri um þessar mundir
að leita að tveimur konum, sem
gæti sagt frá persónulegri reynslu
sinni á fundi, sem kvennadóm-
stóllinn hyggst halda f Briissel í
desembermánuði n.k. Katrín bað
blaðið um að koma því á fram-
færi, að þær konur, sem hugsan-
lega ættu erindi á fundinn f
Brilssel hefðu samband við sig
skriflega, en heimilisfang hennar
er Bárugata 7, Reykjavík.
Frá blaðamannafundinum með aðstandendum Bréfaskðlans: f.v. Stefán ögmundsson, Danfel Guðmunds-
son, Bolli Thoroddsen, Þórunn Valdimarsdðttir, Sigrfður Thorlacius, Axel Gfslason og Sigurður A.
Magnússon. (Ljðsm. Mbl. Br.H.)
Starfsemi Bréfaskólans endurskipulögð:
Framburðarkennsla af
snældum ineðal nýjunga
• BREFASKÓLINN er nú f
þann veginn að hrinda af stað
nýjungum f kennsluaðferðum
skðlans, jafnframt þvf sem fitjað
er upp á ýmsum nýmælum'varð-
andi sjálft námsefnið. Skðlinn
hefur hingað til aðeins verið
bréfaskðli, en nú er að hefjast
framburðarkennsla f tungumála-
námi með notkun segulbands-
snældna eða kassetta. Með snæld-
unum fylgja kennslubækur með
textum á viðkomandi máli og
skýringum á ensku, sem þýddar
eru á fslenzku og staðfærðar f
sérstakri bðk. Nú þegar býður
skðlinn upp á slfka kennslu í
ensku, sænsku, þýzku og
spænsku, og danska útgáfan er á
leiðinni. Fyrir þá sem lengra eru
komnir verður svo boðið upp á
rússnesku, frönsku og ftölsku
með enskum leiðbeiningum ein-
göngu. Á blaðamannafundi þar
sem nýjungarnar voru kynntar
kom m.a. fram að samkvæmt
bandarfskri könnun eiga menn að
geta náð mjög gððum tökum á
viðkomandi máli með þessum
hætti á sex mánuðum ef námið er
stundað reglulega hvern dag.
Hingað til hefur sem kunnugt
er öll framburðarkennsla bréfa-
skólans farið fram gegnum út-
varpið, og svo verður áfram í sum-
um þessara mála, en ekki öllum.
Með þessari snældukennslu telja
forráðamenn skólans jafnframt
að nýir möguleikar skapist fyrir
þá sem ekki hafa tök á að notfæra
sér útvarpskennsluna. Einnig
væri hentugt fyrir hópa að sam-
einast um eitt sett af snældum.
Af öðrum nýjungum má nefna
að notað verður t.d. nýtt námsefni
í bókfærslu og íslenzkri málfræði,
en með öllu námsefni skólans
fylgir sérstakur bæklingur um
námstækni. Á döfinni er jafn-
framt fjögurra daga námskeið í
hópefli (grúppudýnamik), sem
Gunnar Árnason, sálfræðingur,
mun annast og er ætlað fyrir leið-
beinendur námshópa.
A leiðinni er nýtt námsefni í
stærðfræði, og þá er í bígerð að
reyna að vekja upp leshringi, en
slíkt form er mjög algengt I sam-
svarandi skólum á Norðurlönd-
um. 1 því sambandi munu koma
út leiðbeiningar eftir Óskar Hali-
dórsson og Njörð P. Njarðvík við
Islandsklukkuna og Gísla sögu
Súrssonar. Þá hafa verið lögð
drög að því að sarps konar leið-
beiningar komi út við bækurnar
Vistkreppa og náttúruvernd eftir
Hjörleif Guttormsson, Manneskj-
an er mesta undrið eftir Harald
Ólafsson, Handbók um félagsstörf
eftir Jón Sigurðsson og einnig
hefur verið talað um svipaðan
leiðbeiningabækling við bók
Ólafs R. Einarssonar um sögu
verkalýðshreyfingarinnar. Höf-
undar bókanna semja leiðbein-
ingarnar. Fjöldi annarra hug-
mynda er uppi, og m.a. er Björg-
VÉLSKIPIÐ Hilmir SU kom til
Fáskrúðsfjarðar f fyrradag eftir
að hafa verið við sfldveiðar í
Norðursjó sfðan 18. ágúst sl. og á
þessu tfmabili seldi skipið fyrir
22 millj. fsl. kr. Þegar skipið kom
f heimahöfn voru skipverjar
teknir fyrir smygl. Gðssið sem af
þeim var tekið voru fjðrir kassar
af léttu ölu, 8 flöskur af sterku
vfni, sem þeim var gefinn kostur
á að kaupa á nú á 2900 kr. stykkið,
barnahjól og eitt bílakassettu-
tæki. I áhöfn Hilmis eru 14 menn.
VETRARSTARF Félags
einstæðra foreldra er að hefjast
og verður fyrsti fundur haustsins
að Hótel Esju fimmtudagskvöldið
9. okt. og hefst kl. 21. Umræðu-
efni er „orsakir hjðnaskilnaða
séðar af sjðnarhóli prests og lög-
fræðings“. Sr Sigurður Haukur
Guðjðnsson og Guðrún Erlends-
dðttir lögfræðingur flytja stutt
framsöguerindi og svara sfðan
spurningum fundarstjðra og
gesta. Tekið er fram að nýir
félagar eru velkomnir á fundinn.
Félagið heldur flóamarkað á
Hallveigarstöðum þann 18. októ-
ber og eru félagar beðnir að
leggja fram liðsinni sitt með því
að gefa varning. Flóamarkaðs-
nefnd hefur að undanförnu einn-
ig safnað nýjum varningi hjá
fyrirtækjum.
vin Haraldsson að semja nýja bók
um auglýsingagerð, Kjartan Guð-
jónsson að undirbúa námskeið í
teikningu og námefni er i endur-
skoðun, siglinga- og mótorfræði
og námskeið í búvélum er einnig í
undirbúningi. Þá má loks geta
þess að ætlunin er að hin vinsæla
Framhald á bls. 18
Einn skipverja bátsins sagði í
samtali við Mbl. að þeim þætti
þetta nokkuð hart. Sem dæmi
mætti nefna, að það hefði verið
unglingspiltur sem hefði átt bíla-
kassettutækið og hefði verið eina
stykkið sem hann hefði haft með
sér. Yfirvöld yrðu vart vinsæl í
augum unglinga með slíkri fram-
komu, sem þarna hefði verið.
Nú væri svo komið að þótt sjó-
menn væru að heiman svo
mánuðum skipti mættu þeir ekki
færa neitt með sér heim.
Jölakort félagsins eru að fara í
vinnslu í Kassagerð Reykjavíkur
eins og áður og verða gefnar út
3—4 nýjar tegundir.
1 félagsbréfi sem er nýlega
komið út er skýrt frá því að tölu-
vert hefur verið unnið að undir-
búningi byggingarmála FEF og
hefur stjórn þess hafið viðræður
við Húsnæðismálastofnunina um
væntanlega fyrirgreiðslu og
gerðar hafa verið frumteikningar
af húsunum.
Þá mun fjáröflunarnefnd FEF
taka á ný til óspilltra málanna við
sölu trefla í félagalitum, þegar
Islandsmótið i handbolta hefst á
næstunni. Treflar voru seldir á
vegum FEF á allflestum leikjum
1. deildar í knattspyrnu í sumar
og gekk mjög vel.
Seldi fyrir 22
millj. á 6 vikum
Prestur og lögfræðingur
fjalla um orsakir skilnaða
— á fundi FEF á fimmtudagskvöld