Morgunblaðið - 08.10.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÖBER 1975
11
Undanfarin þrjú ár hefur
Sjálfstæðisflokkurinn haldið
stjórnmálaskóla í Reykjavík.
I skólanum hefur verið
veitt þjálfun f ræðumennsku
og fundarsköpum svo og
fræðsla um félagsfræðileg og
stjórnmálaleg efni. Þátttaka I
skólanum hefur vérið mjög góð í
þau þrjú skipti, sem hann hefur
verið haldinn og þátttakendur
víðs vegar að af landinu. Nú hef-
ur verið ákveðið að skólahaldið
Þátttaka
og félagsmálum. Sérfræðingar á
hverju sviði flytja fyrirlestra og
annast um kennsluna að öðru
leyti".
Hver er megintilgangurinn með
slíku skólahaldi?
„I Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis-
flokksins er lögð megináherzla á
að veita þátttakendum aukna
fræðslu um stjórnmál almennt og
stjórnmálastarfsemi. Við
reyndum að veita nemendum
Þátttakendur I Stjórnmálaskóla Sjáfstæðisflokksins 1974.
i stjorn-
málastarfi krefst undirstöðuþekkíngar
— segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, skóla-
stjóri Stjórnmálaskóla
Sjálfstæðisflokksins
er stendur 13.—19. okt.
fari fram frá 13. — 19. október
n.k.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
hefur verið skólastjóri Stjórn-
málaskólans frá því hann hóf
starfsemi sína á nýjan leik árið
1972.
Morgunblaðið sneri sér í gær til
Vilhjálms og bað hann að gera
nokkra grein fyrir skólahaldinu.
Hann sagði
— „Skólinn hefst 13. október
n.k. og stendur í eina viku eða til
19. október. Kennsla hefst á
hverjum morgni kl. 9.00
og stendur til hádegis. Síðan
er byrjað á ný kl. 13.30
og haldið áfram til kl. 18.00.
Námsgreinar fjalla um helztu
viðfangsefni í stjórnmálum
500 þús. kr.
til náms í
snjóflóða-
fræðum
I SAMBANDI við snjóflóðasöfn-
un þá, sem Norðfirðingafélagið í
Reykjavík, Hjálparstofnun
kirkjunnar og Rauði kross tslands
beittu sér fyrir s.l. vetur, var
ákveðið að verja hluta vaxta af
söfnunarfénu eða allt að 500 þús.
kr. til náms í snjóflóðavörnum, að
viðbættum fargjöldum.
Styrkurinn verður veittur þeim
er styrkveitendur samþykkja til
að kynna sér snjóflóðavarnir í 4
mánuði, og þá einkum haft I
huga: A. Björgunaraðgerðir
vegna snjóflóða (umsækjendur
skulu hafa reynslu í björgunum).
B. Snjóflóðavarnir (um-
sækjendur skulu vera bygginga-
verkfræðingar eða bygginga-
tæknifræðingar). C. Snjóflóðaspá
eða sjóflóðafræði (umsækjendur
skulu vera veðurfræðingar eða
jöklafræðingar.)
Umsóknir skulu berast til skrif-
stofu Rauða kross íslands, Nóa-
túni 21, fyrir 20. nóvember n.k.
þar sem allar nánari upplýsingar
eru veittar. Ennfremur verður
styrkurinn auglýstur á síðum dag-
blaðanna á næstunni.
Al'GI.YSINGA-
SÍMLNN ER:
22480
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
meiri fræðslu um stjórnmálin en
þeir eiga kost á daglega og reynt
er að skyggnast dýpra í hug-
myndafræðilega og praktiska
þætti stjórnmálastarfseminnar.
Mikilvægur þáttur f skólahald-
inu er að þjálfa nemendur í að
koma fyrir sig orði og taka þátt í
almennum umræðum, en þjálfun
af því tagi er yfirleitt ekki að fá í
skólum landsins. Með þessu móti
viljum við gera fólk hæfara til
þátttöku í stjórnmálum og al-
mennu félagsmálastarfi".
Þarf það sjálfstæðisfólk, sem
áhuga hefur á skólahaldinu, að
vera flokksbundið eða eru sett
einhver skilyrði fyrir þátttöku?
„Nei, það eru engin sérstök skil-
yrði sett fyrir þátttöku í Stjórn-
málaskólanum. Skólinn er opinn
öllu sjálfstæðisfólki, hvort sem
það er flokksbundið eða ekki. Og
ástæða er til að árétta alveg sér-
staklega, að hann er opinn fólki á
öllum aldri“.
Ertu ánægður með skólahaldið
og árangur þess í þau þrjú skipti
sem skólinn hefur verið haldinn,
eftir að hann var endurreistur?
„Ég held, að óhætt sé að segja,
að skólahaldið hafi heppnazt von-
um framar og orðið þátttakendum
til mikils gagns. Þeir leiðbein-
endur og kennarar, sem flestir
hafa kennt við skólann frá þvf
hann var endurreistur, hafa sýnt
mikinn áhuga á þessu starfi og
stuðlað að því að gera allt skóla-
haldið skemmtilégt og frjálslegt.
Og ástæða er til að geta þess, að
kennarnir hafa innt allt sitt starf
af hendi í sjálfboðavinnu.
Fjölmargir nemendur þriggja
fyrri skóla hafa orðið mjög virkir
í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins
í sínum heimabyggðum og margir
tekið við forystustörfum.
Nú þegar hafa margir skráð sig
til þátttöku í skólanum og hvet ég
þá, er áhuga hafa til þess að gera
það sem allra fyrst,“ sagði Vil-
hjálmur að lokum.
í skólanefnd Stjórnmálaskólans
eiga sæti. Friðrik Sophusson, for-
maður, Guðni Jónsson, Hrönn
Haraldsdóttir, Lárus Ragnarsson,
Unnur Jensdóttir og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson.
Scandinavian
Bank
Limited
Okkur er ánægja að kynna
útibú okkar í Hong Kong sem
er einkaeign okkar
Scandinavian Far East Limited.
Bankinn mun annast: 1. útián í Euro-myntum
2. Samninga á milli banka um
lánsfjáröflun (syndication)
3. Lánsfjáröflun til sérstakra
framkvæmda (project finance)
4. Hverskonar gjaldeyrisviðskipti
Eigendur (með 1000 sknfstofur í Scandinavian Bank Limited
Skandinaviu).
Skandinaviska Enskilda Banken (Sweden)
Bergens Privatbank (Norway)
Den Danske Landmandsbank (Denmark)
Den Danske Provinsbank (Denmark)
Landsbanki Islands (Iceland)
Union Bank of Finland formerly Pohjoismaiden
Yhdyspankki Nordiska Föreningsbanken (Finland)
Skánska Banken (Sweden)
36, Leadenhall St., London EC3A iBH
Telephone: 01-709 0565. Telex: 883221 Scanbank.
Registered Number: 949047 London.
Hong Kong Subsidiary
Scandinavian Far East Limited, 2006 Hutchison House,
Hong Kong. Tel: 5-266306. Telex: HX 76400.