Morgunblaðið - 08.10.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKT0BER 1975
27
— Mexicostjórn
Framhald af bls. 1
hagslögsögu sem nær yfir 200
mllur frá ströndum landsins, en
tekur ekki til siglinga yfirflugs og
kaballagningar."
Síðan sagði Echeverria: „Þetta
felur I sér full yfirráð okkar yfir
auðlindum alls Kaliforníuflóa.“
Gert er ráð fyrir að hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna
hefjist 29. marz á næsta ári.
— Spánn
Framhald af bls. 1
ann kom í gærkvöldi til Madrid,
sendiherra Vestur-Þjóðverja er
væntanlegur á morgun, miðviku-
dag, og sá brezki sfðar í vikunni.
Alls voru 16 sendiherrar kvaddir
heim. Enn er hiti f mönnum á
Spáni vegna mótmæla erlendis
gegn aftökunum. I dag varð
tengdasonur Francos, de
Villaverde markgreifi að leggjast
inn á sjúkrahús eftir að hann
lenti í slagsmálum við hollenzka
ferðamenn sem hrópuðu slagorð
gegn einræðisherranum á
veitingastað einum á Costa del
Sol.
I dag voru níu menn, sem taldir
eru félagar í ETA-hreyfingu
Baska, handteknir f Bilbao á
Norður-Spáni, sakaðir um að hafa
átt aðild að sprengjutilræðum við
lögreglumenn.
Fleiri en 15 fyrrum valdamenn
i tékkneska kommúnistaflokkn-
um, þ.á m. 2 fyrrum ráðherrar,
mótmæltu í dag f bréfi til
Lubomir Strougals forsætisráð-
herra, aftökunum á Spáni, og
leggja um leið til að lýst verði yfir
sérstökum pólitísku frelsisári f
Evrópu. Þá yrði „ekki einn ein-
asti pólitískur fangi eftir f
fangelsum Evrópu. Við skorum á
tékknesku rfkisstjórnina að taka
fyrsta skrefið í þess átt.“
— Portúgal
Framhald af bls. I
en einnig f mótmælaskyni gegn
einkaeign f iðnaðinum yfirleitt.
Yfirmaður norðurfylkis portú-
galska hersins, Veloso, sem fyri
er getið, er í nánum tengslum við
hægfara herforingjana niu sem
komu Goncalves úr embætti, og
tók við embætti sínu fyrir mán-
uði. Þá lýsti hann því yfir að hann
hygðist koma á aga í hernum að
nýju, en róttækir vinstri menn í
hópi óbreyttra hermanna hafa
unnið að því að draga úr agaher-
ferð Veloso.
I verkfalli stáliðnaðarmanna í
dag sáust á lofti spjöld með
áletrunum á borð við: „Ef
borgarastéttin vill borgarastríð,
þá erum við tilbúnir til að
berjast!"
Utanríkisráðherrar Efnahags-
bandalagslandanna ræddu f dag
við Ernesto Melo Antunes, utan-
ríkisráðherra Portúgala f Luxem-
burg, og ákváðu að veita Portúgöl-
um meir en 75 milljón sterlings-
pund í efnahagsaðstoð nú þegar.
Einnig mun EBE sjá Portúgölum
fyrir matvælum og Iyfjum vegna
flóttamannastraumsins frá
Angóla og veita aðstoð við
lántöku hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum og Alþjóðabankanum til
að reyna að snúa hinum óhag-
stæða viðskiptajöfnuði landsins
við. Antunes sagði í dag, að
greiðslujöfnuðurini> myndi í ár
verða óhagstæður um 500 milljón
sterlingspund og efnahagslffið
kynni að lamast, t.d. kynni inn-
flutningur á nauðsynlegum
neyzluvörum að stöðvast ef ekki
væri að gert.
— Nautakjöt
Framhald af bls. 28
nautakjöti einungis f gegnum
verslanir en hingað til hafa bænd-
ur sjálfir selt beint til neytenda
töluvert magn á hverju ári. Gunn-
ar sagði erfitt að fullyrða um
hversu mikið magn væri selt
beint en ætla mætti að það væri
milli 300—400 tonn á ári. Þegar
kjötið hefur verið selt með þess-
um hætti hafa bændur ekki feng-
ið lögboðin gjöld greidd í sjóði
landbúnaðarins og hefur það m.a.
komið í veg fyrir rétt þeirra til
lána.
Hjá Gunnari kom fram að mæta
yrði samdrætti í sölu kindakjöts
hér innanlands með auknum út-
flutningi á því, en nægir markað-
ir eru fyrir kindakjöt og fæst
ágætt verð fyrir það. Á tveimur
síðustu árum hefur nokkurt magn
nautakjöts verið flutt út og hefur
fengist mjög lágt verð fyrir það.
Samkvæmt þeim útreikningum,
sem framkvæmdir hafa verið
vegna hugsanlegra niður-
greiðslna á nautakjöti, er gert ráð
fyrir að nautakjötsneysla hér inn-
anlands svari til þess magns, sem
slátrað er og ætti útflutningur á
nautakjöti þannig að verða úr sög-
unni.
Tillögur framleiðsluráðs og sex-
mannanefndar gera ráð fyrir að
skráð verði smásöluverð á fimm
flokkum beinsteika, gúllasi og
hakki; ef kjötið verður brytjað
smærra er verðlagning þess frjáls
milli kaupenda og seljenda.
Gunnar Guðbjartsson sagði það
ósk þeirra hjá framleiðsluráði að
tekin, yrði ákvörðun um niður-
greiðslur á nautakjöti sem fyrst
og fyrir næstu mánaðamót, þann-
ig að hægt yrði að selja nauta-
kjötsframleiðslu þessa hausts
með þessum hætti.
M.F.Í.K.
mótmæla
MENNINGAR- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna hafa lýst andúð
sinni á fjöldahandtökum, fangels-
isdómum og aftökum frelsisunn-
andi alþýðufólks á Spáni — eins
og það er orðað í fréttatilkynn-
ingu frá samtökunum. Skorar
fundur, sem haldinn var í samtök-
unum, á fslenzka alþýðu að láta í
ljós samúð sína með spænsku
verkafólki og vill að Islendingar
hætti skemmtiferðum til Spánar á
meðan ógnaröld stendur þar yfir.
— Stal nafni. .
Framhald af bls. 28
fréttaritari Morgunblaðsins
hefur eftir blöðum í Gautaborg,
sem skrifað hafa um málið, seg-
ir að Svíinn hafi undir hinu
fslenzka nafni hafið nýtt líf í
Gautaborg sem góður og gegn
borgari. Á þessu nafni hafi
hann t.d. fengið bankalán upp á
meira en hálfa milljón fs-
lenzkra króna, sem hann keypti
sér sfðan bát fyrir. Hann
gegndi og öllum sfnum opin-
beru skyldum og greiddi skatta
sína samvizkusamlega.
©TVÍFARINN
SEGIR TIL SlN
Auðvitað fór ekki hjá þvf
að Friðjón yrði hins
sænska „tvffara sfns var
sérstaklega með tilliti til þess
að samningur er milli íslands
og Svíþjóðar um að fyrir-
byggja tvfsköttun. „Þó var
það fyrst núna i ár að ég
fór að verða þess verulega
var að ýmislegt var ekki eins og
það átti að vera,“ sagði
Friðjón ennfremur. „Til
dæmis fékk ég ekki send fram-
talseyðublöð eins og gert er ráð
fyrir, og þegar ég' fór að spyrja
hverju það sætti, var mér tjáð
að það væri af því að ég byggi f
Svíþjóð um þessar mundir.
Sama sagan var þegar ég reyndi
að ná mér í veðbókarvottorð út
af bílnum mfnum — þá lenti ég
í töluverðu vafstri við að sann-
færa skrifstofuvaldið hér um
að ég hefði ekki sænskt
heimilisfang".
• GIFTINGIN
En það var fyrst þegar
Friðjón hinn sænski Valgeirs-
son ákvað að gifta sig, að allt
komst upp. Honum var ekki
kunnugt um að fyrra hjóna-
band hans var úr gildi svo að
hann ákvað að ganga f heilagt
hjónaband í Svíþjóð undir hinu
íslenzka nafni sínu. Reglum
samkvæmt var giftingarvott-
orðið sent hingað til lands og
þeir á Hagstofunni ráku upp
stór augu, þegar þeir urðu þess
áskynja að Friðjón Valgeirsson
var að kvænast öðru sinni —
meðan fyrra hjónaband hans
var í fullu gildi. Og starfsfólk
Hagstofunnar höfðu upp á Frið-
jóni Valgeirssyni hérlendis og
tóku hann tali.
„Hagstofan ætlaði í fyrstu
ekki að trúa mér,“ sagði
Friðjón.
„Þeir spurðu mig í þaula um
það hvort ég hefði ekki gift mig
þarna úti í Svfþjóð í ágúst,
hvort ég hefði ekki verið þar á
ferð um þetta leyti og svo fram-
vegis. Það var ekki fyrr en ég
hafði lagt fram vottorð frá yfir-
boðurum mínum í Tollgæzlunni
um að ég hefði verið í vinnu
þennan tiltekna dag, sem gift-
ingarvottorðið frá Svíþjóð kvað
á um, að mér tókst loks að sann-
færa þá“.
• AFHJUPAÐUR
Málið var sent héðan út til
hinnar sænsku þjóðskrár, og
Friðjón hinn sænski Valgeirs-
son var afhjúpaður. Hefur
hann nú verið ákærður fyrir að
nota fölsk persónuskilríki. Þá
er þess og getið, að hann hefur
ekkert frétt af fjölskyldu sinni
frá þvf að hann hvarf fyrir tíu
árum, en ekki greina sænsku
blöðin frá því hvernig nýju
konunni varð við, að maður
hennar skyldi eftir allt vera að-
eins venjulegur Svíi en ekki
Islendingur.
— Lögreglumenn
Framhald af bls. 28
menn og konur og spunnust mikl-
ar umræður um verkfallsréttinn
og kröfuna um hann opinberum
starfsmönnum til handa. Að sögn
Gísla Guðmundssonar sýndist
flestum, sem tóku til máls, hér
vera um réttlætismál að ræða. I
fundarlok fór fram leynileg könn-
un á skoðunum fundarmanna í
þessu máli.
— Verkfall
Framhald af bls. 28
kennarar og yrðu meðhöndlaðir
sem slfkir. Samþykktu það allir
nema fulltrúi launadeildar fjár-
málaráðuneytisins, sem neitaði að
viðurkenna kennarana sem félaga
í Félagi menntaskólakennara.
Sagði Hjálmar Arnason, að-ljenn-
ararnir liðu ekki að á þá yrði litið,
sem annars flokks kennara og
menntaskólann, sem þeir ynnu
við þá sem annars flokks skóla.
Launamismunurinn, sem mynd-
ast við þessa deilu skiptir hvern
og einn kennara talsverðu máli,
auk þess sem þeir lfta málið einn-
ig frá öðrum augum en fjárhags-
legum.
Eftír kennarafundinn, þar sem
samþykkt var að fella niður
kennslu, voru nemendurnir, sem
málið varðar, kallaðir saman f
samkomusal skólans og þeim gerð
grein fyrir samþykkt kennar-
anna. Eftir að nemendurnir höfðu
rætt málið f sínum hóp, sam-
þykktu þeir að standa við bakið á
kennurunum og gerðu svohljóð-
andi samþykkt:
„Sameiginlegur fundur
menntaskólanema við Flensborg-
arskóla samþykkir einróma stuðn-
ing við réttlátar launakröfur
kennara skólans og fordæffiir um
leið óraunhæfar aðgerðir viðkom-
andi ráðuneyta gagnvart kennur-
um, þar sem þeir eru álitnir
annars flokks menntaskólakenn-
arar við annars flokks mennta-
skóla. Nemendur samþykkja að
mæta ekki til náms fyrr en viðun-
andi lausn hafi fengizt á málinu,
því að menntaskólanemendur
Flensborgarskóla sætta sig engan
veginn við að útskrifast sem
annars flokks stúdentar.“
Morgunblaðið leitaði í gær um-
sagnar Höskulds Jónssonar, ráðú-
neytisstjóra í fjármálaráðuneyt-
inu, á aðgerðum kennaranna.
Hann sagði að ráðuneytið hefði í
gær fengið ákaflega lauslegar
spurnir af vinnustöðvun kennar-
anna. Skólastjóri Flensborgar-
skóla hafi hringt til fjármálaráð-
herra og ættu þeir með sér fund
um málið í dag. Ályktun funda
vegna fnálsins kvað hann ekki
haf a borizt ráðuneytinu.
— Rússar semja
Framhald af bls. 13
Samningurinn hefur ekki verið
birtur, en talið er að þar sé sleppt
yfirlýsingum um baráttu fyrir
sameiningu Þýzkalands.
Talsmaður aðalandstöðuflokks
stjórnarinnar, Kristilega demó-
krataflokksins, kallaði nýja samn-
inginn „skripaleik" sem væri'sett-
ur á svið að austur-þýzku þjóðinni
fornspurðri.
Bonn-stjórnin sagði að nýi
samningurinn breytti í engu rétt-
indum og skyldum fjórveldanna í
Þýzkalandsmálinu. Stjórnin sagði
að nýi samningurinn hefði ekki
áhrif á samninga hennar við Aust-
ur-Þjóðverja og Rússa.
— Fjölmörg
Framhald af bls. 3
iðnaðarins svo sem skattamál,
tollamál og verðlagsmál. Enn-
fremur verður fjallað um marg-
vísleg önnur málefni og má þar
nefna útflutnings- og markaðs-
mál, innkaup opinberra aðila, iðn-
löggjöfina o.fl.
Þetta er í fyrsta sinn sem iðn-
þing er haldið eftir all miklar
breytingar, sem gerðar voru á
skipulag Landssambands,
iðnaðarmanna fýrir tveimur ár-
um. M.a. er nú í lögum Landssam-
bandsins gert ráð fyrir lengri og
meiri undirbúningi þingsins en
áður hefur verið og er iðnþing nú
haldið annað hvert ár.
Rétt til þingsetu eiga um 140
fulltrúar víðs vegar að af landinu.
— Reyndu að
Framhald á bls. 27
sagði að athæfi þetta væri ekki
gert með vilja eða vitund
flokksstjórnarinnar.
Formaður járniðnaðar-
mannasambandsins, Bertil
Lundin, sagði í dag að sam-
bandið hefði gefið 75,000 krón-
ur til Sósíaldemókrataflokksins
í Finnlandi, og hefði átt að
verja upphæðinni til upplýs-
ingastarfsemi meðal finnskra
járniðnaðarmanna, bæði I Finn-
landi og Svíþjóð, og taldi
Lundin að þessu upphæð hlyti
að vera hluti af peningunum
sem smygla átti úr landi. Einn
Finnanna sem yfirheyrður var
á flugvellinum hefur skýrt frá
því að öll upphæðin, 244,800
kr., væri gjöf til sósíal-
demókratísku kosninganefnd-
arinnar í finnska járniðnaðar-
mannasambandinu. Fjármála-
stjórinn, sem að sögn Finnana
afhenti þeim peningana, er
hins vegar á fundi i Japan.
Sænsk stjórnvöld rannsaka nú
málið og verður metið hvort
ákæra verður lögð fram og
peningarnir innkallaðir aftur.
Þá sagði fjármálastjóri
finnska járniðnaðarmannasam-
bandsins, Pentti Kymensalo,
sem er sósiaidemókrati, að sam-
band hans ætti ekki fulltrúa á
flokksþingi sænskra sósial-
demókrata í Stokkhólmi, og
formaður sambandsins, Sulo
Penttilæ, sagði að samstarf
norrænna járniðnaðarmanna
væri eingöngu innan ramma
verkalýðsfélaganna.
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Svæðamóti Sovétrikjanna er
nú lokið og urðu úrslit þau, að
fjórir ungir skákmeistarar urðu
efstir og jafnir og tryggðu sér
þannig farseðla á millisvæða-
mótin. Þessir fjórir voru: V.
Savon, Ju. Balashov, V.
Ceskovsky og B. Gulko. Allir
eru þessir menn þekktir I skák-
heiminum, Savon er fyrrver-
andi skákmeistari Sovétríkj-
anna og tók þátt I millisvæða-
mótinu i Petropólis 1973. Bala-
shov er einnig stórmeistari, en
minna þekktur utan Sovétríkj-
anna. Þeir Ceskovsky og Gulko
eru báðir tillitslausir, en þó
mjög öflugir skákmeistarar.
Ceskovsky er raunar nýjasta
stjarna Sovétmanna vakti fyrst
verulega athygli fyrir 2—3
árum. Boris Gulko vakti ungur
athygli er hann komst í úrslit á
skákþingi Sovétríkjanna 1965.
Síðan bar litið á Gulko unz
hann varð skákmeistari
Moskvu í fyrra. Allir eru þessir
meistarar ungir að árum, um
þritugt, og verður þvi gaman að
fylgjast með frammistöðu
þeirra. önnur úrslit urðu sem
hér segir: 5.—6. Gúfeld og Tai-
manov 8,5 v., 7.—9. Alburt,
Beljavsky og Holmoff 8 v., 10.
Vasjukov 7,5 v., 11.—12. Bron-
stein og Vaganjan 7 v., 13.—14.
Dvoretsky og Tukmakov 6 v.,
15. Romanishin 5 v„ 16.
Grigorjan 4,5 v. Eins og sjá má
var keppnin afar hörð, þar sem
aðeins einum og hálfum vinn-
ingi munar á 1. og 10. manni.
Gamla kempan D. Bronstein má
muna sinn fffil fegri. Hann var
þó ekki með öllu h&illum
horfinn í þessu móti og telfdi
m.a. skákina sem hér fer á eftir.
Hvftt: D. Bronstein
Svart: R. Holmoff
Kóngsbragð
1. e4 — e5, 2. f4 — Rf6,
(Þessi leikur er fremur sjald-
gæfur, en engan veginn slæm-
ur)
3. Rf3 — Rxe4,
(Eða 3. — exf4, 4. e5 — Rh5).
4. d3 — Rc5, . fxe5 — d5, 6. d4
— Rc6, 7. c4 — c6, 8. Rc3 —
Be7, 9. Be3 — 0—0, 10. Dd2 —
b6, 11. Bd3 — Ra6, 12. cxd5 —
cxd5, 13. Hdl — f5, 14. exf6 e.p.
— Hxf6, 15. 0—0 — Rac7, 16.
Re5 — Rf8, 17. Hfel — Bd7, 18.
Bc2 — Be8,19. Bb3 — Kh8.
(Báðir keppendur hafa nú
lokið liðskipan sinni. Hvítur
hefur augljóslega undirtökin í
stöðunni, riddarinn á e5 er
mjög sterkur maður, og svartur
verður stöðugt að gæta peðsins
á d5. Auk þessa á svartur í
nokkrum erfiðleikum með að
finna mönnum sínum heppi-
lega reiti).
20. Bg5 — He6, 21. Df2
(Hér kom einnig sterklega til
greina að leika 21. Bxe7 —
Hxe7, 22. Df4 — Rfe6, 23. Df3
og svartur getur ekki valdað
peðið á d5).
21. — Bf6, 22. Df3 — Hd6, 23.
Bf4
(23. Rg4 lítur vel út, en svartur
svarar því með 23. — Bh5).
23. — Rfe6, 24. Bg3 — Rg5, 25.
Dd3 — Bh5, 26. Hcl — Rce6,
(Svartur hefur óneitanlega náð
að rétta nokkuð úr kútnum, en
peðið á d5 er honum þó stöðugt
fjötur um fót).
27. Bc2
(Hótar h4).
27. — Dg8, 28. Bb3 — Dd8, 29.
Rb5
(Vinnur skiptamun, en barátt-
unni er þó ekki lokið, þar sem
svartur fær gott mótspil. Bron-
stein var nú að komast I mikið
timahrak).
29. — Hd7, 30. Rxd7 — Dxd7,
31. Rc7 — Bg6, 32. Dd2 — Hd8,
33. Rxe6 — Rxe6, 34. Bf2 —
Rg5, 35. Be3 — Re4, 36. De2 —
b5, 37. a3 — a5, 30. Hcdl — a4,
39. Bc2 — Be7, 40. Bf4 — b4,
41. axb4 — Bxb4, 42. Hfl — a3,
(Tímahrakinu er lokið og nú
gefur Bronstein skiptamuninn
aftur, en fær fyrir hann tvö peð
og gjörunnið tafl).
43. bxa3 — Rc3, 44. Dd2 —
Rxdl,
(44. — Bxc2, 45. Dxc2 — Rxdl,
46. axb4 var lítið betra).
45. axb4 — Rb2, 46. Bxg6 —
Rc4, 47. Dd3 — hxg6, 48. Dxg6
— Kg8, 49. h3 — He8, 50. Bg3
— He4, 51. b5 — Hxd4, 52. Hal!
og svartur gafst upp. Eftir 52.
— Db7, 53. ~~v~ Kh7, 54. Ha8 er
öll barátta vonlaus.