Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
53
VELVAKANDI
Velvakandi svarar i síma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
% Eru ekki allar
vikur
umferðarvikur
Ragnhildur Konráðsson kom að
máli við Velvakanda og vildi
koma þeirri fyrirsp.urn á fram-
færi, hvort ekki væru allar vikur
umferðarvikur. Hún sagðist álíta,
að ekki væri nóg að taka viðbragð,
eins og gert var hér um daginn, og
láta þar við sitja.
Ragnhildur hafði ýmislegt við
framgöngu lögregluþjóna að at-
huga þegar um er að ræða eftir-
litsstörf þeirra i umferðinni. Hún
sagðist tvívegis hafa horft upp á
greinileg brot á umferðarreglum i
siðustu viku. í bæði skiptin hefðu
lögregluþjónar verið viðstaddir
og séð það, sem fram fór, en þeir
hefðu látið það afskiptalaust.
Þá sagói Ragnhildur: ,,Við um-
ferðargæzlustörf þarf að hafa
augu á hverjum fingri, og það
þarf að byrja á þvi að hafa strangt
eftirlit með þvi að reglum sé
hlý-tt. lika þegar um er að ræða
yfirsjónir, sem i fljótu bragði
virðast smávægilegar. Varla fer
maður svo út fyrir dyr, að ekki
gefi að líta bifreiðar, sem lagt
hefur verið á ólöglegum stöðum,
og virðist þá einu gilda þótt auð
bilastæði séu í grenndinni."
# Jólaljós í
kirkjugörðum
borgarinnar
Hringt var frá skrifstofu
kirkjugarðanna i Reykjavík
vegna óskar, sem fram hefur kom-
ið hér í dálkunum, um að borgar-
yfirvöld létu setja upp jólatré i
kirkjugörðunum. Var auglýst, að
þessa dagana væri stjórn kirkju-
garðanna einmitl að Iáta koma
fyrir jólatrjám og jólalýsingu í
görðunum.
% Faðirvorið
verðilesið á
morgnana
Kolbeinn Guðjónsson, Skúla-
götu 52, hringdi. Kvaðst hann
hringja fyrir hönd allmargra til
að óska eftir þvi að farið verði
með Faðirvorið i hugvekjustund-
inni i útvarpinu á morgnana.
• Styðjum
Landhelgisgæzluna
„Við lslendingar erum ósam-
mála um flesta hluti og verðum
það trúlega framvegis.
Eitt er það þó, sem allir virðast
vera sammála um. Það er að efla
beri Landhelgisgæzluna. Verður
tll Noregs eoa Danmerkur og þá
slyppi hún við réttarhöld og fang-
elsi og gæti reynt að byrja nýtt Iff
... Ilún hafði dregíð plankana af
gröfinni f flýti, en það var eins og
Ifkamleg áreynslan hefði gert
hana klárari f kollinum og þegar
Barbara kom hafði hún fyrir
löngu ákveðið að hætla við þetta
ógeðslega áform sitt. Hjördís
skildi á samtalinu að Barbara var
enn ekki viss um hvað hún ætti að
ásaka hana fyrir.
Hún gortaði af þvf að hún hefði
dagbók Arnes undir höndum og
bréfið frá mér f veskinu sfnu og
hún staðhæfði að lögregluforing-
inn hefði sagt að hægt væri að
komast að þvf á hvers konar ritvél
það væri skrifað, en hún væri
ekki alveg viss um hvernig hún
ætti að tengja þetta tvennt sam-
an: það sem ég hafði skrifað um
stefnumót f kirkjugarðinum á
Þorláksmessu og svo dauða Arn-
es. Og ég hugsaði nteð mér að
gæti ég nú þrifið af henni hand-
töskuna og náð í þennan ólukku
miða hefði hún ekki nokkur
minnstu tök á þvf að sanna að ég
hefði haft nokkur samskipti við
Arne. Eg reyndi að slfta frá henni
töskuna, en hún hélt fast á móti
ekki hjá því komizt að kaupa flug-
vél til þeirra hluta, flugvél, sem
kosta mun mikið fé.
Nú skilst manni. að ríkissjóður
sé ekki mjög vel efnum búinn,
fremur en fyrri daginn, enda
mikil tízka að berja sér. Alla vant-
ar allt til alls.
Árið 1972 fór fram þjóðarsöfn-
un til kaupa á varðskipi. Oft er
vitnað í stofnun Eimskipafélags
íslands, sem almenningur tók
mikinn þátt I, af litlum efnum.
Fögur orð hafa fallið um út-
færslu landhelginnar og hin
erfiðu störf Landhelgisgæzlunnar
og eiga starfsmenn hennar skilið
lof og stuðning landsmanna.
Brúum nú bilið milli orða og
athafna. Opnum báeði munninn
og pyngjuna og látum eitthvað af
hendi rakna til kaupa á flugvél-
inni, þó það hrökkvi skammt.
Ég fullyrði að fjárhagur al-
mennings er ekki erfiðari nú en á
þeim tima, sem Eimskipafélagið
var stofnað.
Þetta er ekki hugsað sem
ölmusa, heldur sem tækifæri til
að sýna stuðning okkar i verki.
Tökum sem flest þátt i þessu,
þótt framlag hvers og eins sé ekki
mikið.
Við höfum nóg að rifast um í
þessu þjóðfélagi þó við reynum að
standa saman í þessu eina máli.
Vænti ég þess að dagblöðin sýni
þessu máli skilning og taki á móti
framlögum, ef einhver verða.
Elín Þorbjarnardóttir.".
0 Gæzluvistarsjóður í
vörzlu
stjórnarráösins
Halldór Kristjánsson skrifar:
„Af augljósu tilefni langar mig
til að biðja Velvakanda f.vrir eftir-
farandi pistil með þökk fyrir
þægileg viðskipti áður.
Henrik Jóhannesson birtist í
Velvakanda í dag og veður enn i
villu og svíma. Hann heldur og
fullyrðir að Góðtemplarareglan
hafi eitthvað með Ga'zluvistarsjóð
að gera. Svo er ekki. Stjórnar-
ráðið hefur hann i sinni vörzlu og
hann er ætlaður og notaður til að
ala önn fyrir drykkjumönnum
sem orðnir eru aumingjar.
Það er kannski ónotalegt að
vekja hér athygli á þeirri speki
Henriks að þessar milljónir, sem
rikið leggur i Ga'zluvistarsjóð
myndi sparast ef rikið sjálft
annaðist þessa sjúklinga. En hann
segir þetta og trúir því va'ntan-
lega.
Ég hef ekki gleymt að geta þess
hvernig templarar berjast fyrir
áfengissjúka, þó að það hafi farið
fram hjá Henrik. Þeir gera það
með þvi, sem mestu máli skiptir,
að mynda áfengislaust umhverfi,
áfengislausan mannfagnað, bind-
indisheimili. Ef fleiri kæmu þar
til liðs við okkur, væri minni
ógæfa á Íslandi. Og þá myndu
milljónir sparast.
9. október 1975
Ilalldór Kristjánsson."
53? StGGA V/ÖGA í VLVtmi
ylllav
SY\%S)I KoH/|,
S/U6A, VÁ
wni íg
A9 SYtítWA
\ $AN\<AHN ,
Wl.
V? KELLAVJ
sKyL\)/ KöH/1,
5166/1, VA
VAK9 £& A9
VAKA1IL
YIAFNA^-
FJAR9AK
Biauðbær
Veitingahús
símar 25090-20490
Ég er Tobbi,
kokkur í Brauðbæ
Auk vinsæla matseðilsins
okkar, þá bjóðum við ávallt
rétt dagsins og í dag er það:
Súpa Agnes Sorel
Hakkað buff Lindström með hvítum kartöflum og
blönduðu grænmeti.
Steiktur fiskur Choron.
Vertu velkominn í Brauðbæ.Tobbi
OPIÐTIL KL.10
GLÆSILEIKI - VANDVIRKNI
HAGSTÆTT VERÐ
S.V.A.I. - LAMPARNIR
KOMNIR AFTUR
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
'A
tF KELLAN
SKV/.'Ql K0H4
S1 &GA.VÁ
VAK. É&
mvmíiL
AmBvm