Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
Jón Magnússon, stórkaupmaður, flytur erindi sitt, Viðskiptaleg-tengsl við umheiminn. — Við borðið
sitja: Júlfus S. Ölafsson, framkvæmdastjóri, formaður undirbúningsnefndar, Þorvarður Elfasson, fram-
kvæmdastjóri, Gunnar Snorrason, kaupmaður, fundarstjóri ráðstefnunnar, og Jónfna Þorfinnsdóttir,
ritari. — Ljósm.: Öl. K.M.
Ráðstefna Sjálfstæðis-
manna um verzhmarmál
September-
sýningin á
Kjarvalsstöðum
F.I.M., félag íslenzkra lista-
manna, hefur sótt um að fá
Kjarvalssalinn á Kjarvalsstöð-
um vegna haustsýningar fé-
i lagsins í september og sam-
þykkti hússtjórn þaó.
Þá hefur verið ákveðið að
Gunnarí Hannessyni, ljös-
myndara, verði leigður salur-
inn en tinn ekki endanlega
ákveðinn. Kn listráð hefur'
mælt með háðuni erindunum.
Okumaður Blazier
bifreiðar tali
við lögregluna
FÖSTUDAGINN 12. marz
klukkan 23.10 var grárri Mer-
eedes Benz fölkshifreið ekið á
Ijösastaur á mötum Sogavegar
og Réttarholtsvegar. Maður
sem var á staðnum og talaði
við lögregluna þegar hún kom
þarna er vinsamlegast heðinn
að hafa samhand við slysa-
rannsöknardeild lögreglunnar
i sima 11160. Maður |>essi var á
hrúnní Blaz.ier-jeppabifreið.
Ekki vitað
hvenœr svars
er að vœnta
IIARALDIIR Kröyer sagði i
viðtali við Mbl. í ga’r að sendi-
ráð Islands i Washington hefði
fengið upplýsingar uni það hjá
utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna að heiðni Islendinga um
Asheville-hála. va-ri í athugun
hjá viðkómandi aðilum. Har-
altlur sagði að útilokað væri að
segja, hvena-r svar va‘ri vænt-
aniegt — sendiráðið hefði að-
eins verið látið vita, að búast
ma'tti við að það ta-ki einhvern
tíma að fá svar.
Tilfellin
í rœktun
MUSATAUGAVKIKIBROÐ-
IRINN, sem vart varð í einu
þriggja heimavistarhúsa
Heyrnleysingjaskölans er i
ræktun, að því er Bragi Olafs-
son, aðstoðarborgarlæknir
tjáði Mhl. i gær og er niður-
staðna að vænta innan tíðar.
Kins og getið var í Mhl. í gær
hefitr skólahaldi verið slitið
um óákveðinn tíma og jafn-
framt hefur húsið. sem þetta
kom upp í, verið einangrað.
Samninga-
fundir
SAMNING AFUNDUR var
haldinn í gær milli samninga-
nefndar sjómanna og fulltrúa
skipafélaganna Sjómannasam-
handið hóf fund klukkan 10 í
ga'rmorgun, en hann var frem-
ur stuttur og áttu aðilar að
koma aftur um klukkan 15.
Fulltrúar k’armannasambands-
ins áttu síðan að sækja fund.
sem boðaður var klukkan 16. A
fundinum var farið yfir kröfur
félaganna og reynt að sætta
aðila — að því er Torfi Hjart-
arson sáttasemjari sagði blað-
inu.
Samningafundur var mílli
flugvirkja og samninganefnd-
ar Flugteiða í fyrrinttt. liklci
tókst samkomulag og sagði
Torfí Hjartarson að viðræð-
urnar hefðu gengið mjög stirð-
lega.
Fulltrúaráð sjálfsta‘ðisfélag-
anna í Keykjavík hefur efnt til
ráðstefnu sem hófst í ga“r á hótel
I.oftleiðum. Nefnist ráðstefnan
Hvað er framundan í verzlun
landsmanna en þ:ið er spurning
sem gerist áleitin nú á timum,
þegar innflulningshöft birtast á
ný, verðlagsákva‘ðum og verðlags-
eflirliti er beitt á óva'gri hátt en
áður og verzlunarárferði almennt
fer versnandi segir í kynningu
ráðstefnunnar.
Til að leíta svars við þessari
spurningu hafa sjálfstæðisfélögin
í Reykjavík efnt til þessarar ráð-
stel'nu. Verður fjallað um sex
meginmálaflokka en þeir eru:
Viðskiptaleg tengsl við umheim-
inn, fjármál og afkoma verzlunar,
fræðslumál verzlunar, skattamál
og þjönusta er verzlun innir af
hendi fyrir hið opinhera,
verzlunarþjónusta i Reykjavík og
fjármangsstreymi verzlunar. Er
þannig fjallað um helztu málefni
sem varða ver/.lun og stjórnmál
sameiginlega og einnig er ætlunin
að vekja athygli á þýðingu
verzlunar fyrir þjóðarheildina.
Ráðstefnunni lýkur í dag með
panelumræðum. Mun Björn
Matthíasson stjórna umræðum
um fjármagnsstreymi verzlunar
en kl. 20.30 verða panelumræður
þar sem Geir Hallgrimsson, Gunn-
ar Thoroddsen, Matthías Á.
Matthiesen og Birgir Isleifur
Gunnarsson sitja fyrir svörum.
FTINDUR útgerðarráðs Bæjarút-
gerðar Revkjavíkur hefur falið
framkvæmdastjóra BÚR að
kanna afstöðu annarra togaraeig-
enda í Reykjavík til sameigin-
legrar fiskmóttöku í Revkja-
víkurhöfn og jafnframt að athuga
fjármögnunarmöguleika vegna
fyrirhugaðrar fiskmóttöku í
Bakkaskemmu.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjöri BUR, sagði í viðtali við Mhl.
í gær, að í fyrradag hefði verið
haldinn fundur með stjórn
Togaraafgreiðslunnar og togara-
útgerðarmönnum og þar kom
STJÖRN AIþjóðagjaldevrissjóðs-
ins samþykkti sfðastliðinn föstu-
dag að veita Islendingum vfir-
dráttarlán að upphæð li,5
milljón eininga af sérstökum
dráttarréttindum. Er hér um
jöfnunarlán að ræða en ekki
venjulegt yfirdráttarlán frá
sjóðnum. en slík lán eru notuð til
þess að vega upp á móti sam-
dra-tti í útflutningstekjum og
stvrkja stöðuna út á við. Heildar-
Þórir Einarsson stjórnar þessum
umræðum.
Að lokinni ráðsfcfnunni mun
nefnd taka saman helztu niður-
stöður og hirta þær. Einnig verða
þær kynntar þingflokki og
borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis-
flokksins.
SKUTTOGARI Fáskrúðsfirðinga,
Ljósafell SU, fór út í fvrrinótt
fullmannað, en eins og getið var í
Mbl. í ga*r neituðu 8 skipverjar að
fara, nema útgerðarfélagið lofaði
að skipið kæmi aftur inn sama
dag og verkfall væri boðað, þ.e. í
dag 18. marz. Þetta vildi útgerð
togarans ekki samþykkja og sagði
hún upp þessum 8 mönnum og
réð nýja menn í þeirra stað.
Samkvæmt upplýsingum Jón-
asar Haraldssonar hjá Lands-
sambandi ísienzkra útvegsmanna
sáu þrír hinna 8 skipverja, sem
upphaflega neituðu að koma ti!
skips sig um hönd. Voru þá ráðnir
á staðnum 5 menn til viðbótar,
auk manns í stað trúnaðarmanns-
fram eindreginn vilji á því að
Togaraafgreiðslan annaðist áfram
afgreíðslu allra togara, sem landa
i Reykjavík, þ.e. að togaralöndun
verði áfram á einni hendi. Hins
vegar sagði Einar að gömul áætl-
un skipulagsyfirvalda væri að
vesturhöfnin yrði fiskihöfn, en
þar er ekki sérstök aðstaða nú til
fisklöndunar. Var kosin nefnd til
þess að vinna að þvi að fá fram-
tíðaraðstöðu fyrir togarana og
bera fram tillögur til úrbóta í
þessum málum — með það fyrir
augum að flytja afgreiðslu togar-
anna í vesturhöfnina
andvirði þessa gjaldevrisláns er
2,3 milljarðar króna.
Islendingar hafa einu sinni áð-
ur tekið slíkt lán hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, en það var á
árunum 1967 og 1968. Lánið nú er
hálfur kvóti Islendinga, en hálfur
kvótinn var einnig notaður 1967
og 1968, er lánið v?r notað til þess
að fleyta Islendingum yfir þá
erfiðleika sem mynduðust vegna
verðfalls fiskafurða á Bandaríkja-
A þessari ráðstefnu gefst ein-
stakt tækifæri fyrir áhugafólk um
verzlun og neytendamál úr hópi
sjálfstæðismanna til umræðna urn
þessi mál og vill undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar sérstaklega
hvetja ráðstefnugesti til að taka
virkan þátt í störfum hennar.
ins á skipinu, sem taka þarf þátt í
samningaviðræðum. F'ór því
skípið á veiðar í fyrrinótt eins og
áður er sagt.
Verkfall mun nú skollið á viða á
Austfjörðum. Mörg skip voru á
sjó í gær, þann ig að ekki var farið
að reyna á hversu sammála
sjómenn eru verkfallsboðuninni,
sem víða mun ábótavant vegna
þess að ekki var nægilegur
frestur á boðun. Þá má og geta
þess að 70 sjómenn á Eskifirði,
bæði yfirmenn og undirmenn
höfðu fyrir nokkru undirritað
yfirlýsingu, þar sem þeir sögðust
ekki taka þátt í verkfallinu, þar
sem ekkert samráð hafði verið við
þá haft um boðun þess.
Þá hafði Mbl. spurnir af þvf í
gærkveldi að Seyðfirðingar hefðu
ætlað að koma í veg fyrir að
Gullver kæmist á sjó, en við það
var hætt og mun skipið hafa siglt
út áður en til verkfallsins kom á
miðnætti síðastliðnu. A Horna-
firði mun LIU bíða og sjá hvað
setur, en verkfall þar er ekki
boðað fyrr en á miðvikudag 23.
marz. Ef hins vegar ekki yrði
breyting þar á, mun LlU leggja
málið fyrir Félagsdóm, en eins og
skýrt var frá í blaðinu I gær,
hefur verkfall verið boðað, en
síðan veitt undanþága frá því,
nema að því er varðar einn skut-
togara.
I gærkveldi var Hvalbakur
kominn inn á Stöðvarfjörð og
Brettingur á Vopnafjörð. A Hval-
baki neituðu skipverjar að halda
áfram veiðum og þvi hafi skip-
stjórinn orðið að hverfa til heima-
hafnar. Lítur LlU á þetta sem
markaði. Þá var þessi hálfi kvóti
tekinn í tvennu lagi, en nú er
hann allur tekinn í einu lagi.
Sigurgeir Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri í Seðlabankanum,
sagði að þetta jöfnunarlán skerti
ekki aðra lánamöguleika Islend-
inga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, þar sem það stæði algjörlega
óháð og utan við aðra lánastarf-
semi sjóðsins.
Svartolían
hækkar
í verði
SVARTOLlA hefur hækkað
mikið í verði síðan um áramót og
kostar nú hvert tonn af henni
17.080 krónur, en um áramótin
kostaði tonnið 3.519 krónur.
Önundur Asgeirsson, forstjóri
Olíuverzlunar Islands h.f., sagði
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann, að ástæðan fyrir þessum
hækkunum væri erlendar hækk-
anir, mikið gengissig síðan verk-
falli lauk og hækkun á innflutn-
ingstollum. Kvað hann markaðs-
verð á svartolíu hafa verið óeðli-
lega lágt í fyrra miðað við aðrar
tegundir olíu og þess vegna hefði
svartolian hækkað erlendis að
undanförnu.
Sífellt fleiri íslenzk skip brenna
nú svartoliu og hefur þessi hækk-
un komið mörgum útgerðarmönn-
um á óvart, en engu að siður er
enn mikill munur á verði á svart-
oliu og gasolíu. Hver lítri af gas-
olíu kostar nú kr. 29.05 frá bíl.
mjög alvarlegt lögbrot og mun
fylgja málinu fast eftir. I
merkingu sjómannalaga — sagði
Jónas Haraldsson — mun hér
vera um samblástur að ræða, en
það brot varðar varðhaldi eða
sektum. Auk þess geta skipverjar
orðið bótaskyldir útgerðinni
gagnvart því tjóni, sem af breytni
þeirra hlýzt — sagði Jónas.
Blástursaðferðin — myndin er
úr bókinni „Hjáip i viðlögum"
eftir Jón Oddgeir Jónsson.
Blés lífi í
2ja ára dreng
HÚSMOÐIR á Breiðdalsvík,
Gerður Benediktsdóttir, bjarg-
aði litlum 2ja ára dreng síðast-
liðinn föstudag frá drukknun
með því að blása i hann lífi
með . blástursaðferð. Hafði
drengurinn, Gauti Brynjólfs-
son, fallið í gryfju, sem full var
af vatni, en móðir hans, Krist-
ín Hauksdóttir, hafði náð hon-
um upp úr vatninu og var
hann þá meðvitundarlaus.
Atburður þessi gerðist á
Breiðdalsvik. Móður drengsins
hafði verið farið að lengja eftir
honum og öðrum dreng, sem
hafði verið að leik með Gauta.
Kom Kristín Hauksdóttir að
gryfjunni og stóð þá drengur-
inn á bakkanum og gat gefið
henni í skyn að sonur hennar
hefði fallið í vatnið. Ekki sá til
botns, en Kristínu tókst að
finna drenginn með því að
þreifa með hendinni niður i
vatnið.
I nærliggjandi húsi bjóGerð-
ur Benediktsdóttir og fór
Kristín þangað til þess að
hringja á hjálp. Gerður hafði
lært blástursaðferð og hóf hún
þegar lífgunartilraunir. Var líf
farið að færast í drenginn, er
frekari hjálp barst og má því
segja að konurnar hafi með
snarræði bjargað lífi þessa
litla drengs.
Fisklöndun verði
flutt í vesturhöfnina
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veitir
okkur 2,3 milljarða gjaldeyrislán
Ljósafell komst á sjó
Skipverjar á Brettingi og
Hvalbak neita að stunda veiðar