Morgunblaðið - 18.03.1976, Side 12

Morgunblaðið - 18.03.1976, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 Síra Gunnar Kristjánsson: Skipting kirkjunnar í fjölda kirkjudeilda hefur ævinlega verið öllum þorra kristinna manna þyrnir í augum. „Allir eiga þeir að vera eitt,“ sagði Kristur um lærisveina sína. Reyndar er ekkert athugavert við skoðanaágreining innan vissra takmarka, en kirkjusagan sýnir, að hann hefur oft farið út fyrir öll skynsamleg takmörk, valdið klofningi og jafnvel leitt af sér styrjaldir og veikt kirkjuna inn á við og út á við. I Nýja testament- inu sjálfu er jafnvel sagt frá skoð- anaágreiningi milli postulanna, Péturs og Páls. Þeir voru ekki á ejnu máli um það hvernig sætta skyldi ágreining milli hínna svo- kölluðu ,,gyðing-kristnu“ og „heiðin-kristnu". Og allir sem lesið hafa guðspjöllin, sjá að túlkun guðspjallamannanna er afar mismunandi á sjálfri per- sónu Jesú svo dæmi sé nefnt. klofningur tekur stuttan tíma en sættin langan. Enski biskupinn Stephan Neill, sem þekkir af eig- in raun hinar þrjátiu ára sameiningarviðræður kirknanna í Suður-Indlandi, þar sem fjöldi kirkjudeilda myndaði hina svo- kölluðu „Suðurindversku kirkju“ árið 1947, segir : „Hinn beiski sannleikur er sá að kirkjur geta ekki sameinast nema þær séu til- búnar til að deyja,“ vegna þess áð i sameinaðri kirkju eru lútherskir menn ekki lútherskir og kaþólskir ekki lengur kaþólskir, þ.e.a.s. þar sem sameining hefur fullkomlega náð fram að ganga en það er fjarlægt takmark Heims- ráðs kirkna. Arið 1948 er Heimsráð kirkna endanlega stofnað í Amsterdam af 351 fulltrúa 147 kirkjudeilda, Nafn hreyfingarinnar er gríska orðið OIKOUMENE, sem merkir „heimsbyggðin", það orð gefur og Dr. Philip Potter aðalframkvæmdastjóri Heimsráðs kirkjunnar. Heimskirkjan í deiglu Segja má, að kirkjan hafi verið óklofin fyrstu fjórar aldirnar, en upp frá því verður baráttan fyrir einingu hennar harðari enda hafði henni þá vaxið all verulega fiskur um hrygg og heimspóli- tískar deilur rutt sér leið inn í hana. Alvarlegur verður klofníngurinn þó ekki fyrr en árið 1054 þegar kirkjan klofnaði í austurkirkju og vesturkirkju Austurkirkjan er hin núverandi orþódoxa (= rétttrúnaðar) — kirkja i Grikklandi, Sovétrikjun- um og víðar. Vesturkirkjan er hin rómversk-kaþólska kirkja. Allar tilraunir til að jafna ágreining þessara kirkjudeilda mistókust enda meir í spilinu en guðfræði og trúarskilningur, þar blönd- uðust inn í deilur milli keisara- borganna Rómar og Konstan- tínópel. Varð þróun þessara kirkjudeilda all ólík og hefur austurkirkjan haldið mun betur sinni upphaflegu mynd, guðs- þjónustan íburðarmikil og seiðandi, kirkjurnar fullar af táknmáli i myndum og söngurinn fágaður og hreinsaður gegnum aldirnar. Rómverska kirkjan býr eianig yfir margslunginni messu og skreyttum kirkjum en mótun hennar hefur verið með öðrum hætti. 1 austri þurfti kirkjan að berjast við Islam (múhameðstrú) fyrr á öldum og kommúnisma á seinni tímum, í vestri breytilegar heimspekistefnur, iðnbyltingu og hefur það mótað hana með sínum hætti. Annar alvarlegur klofningur kirkjunnar verður á 16. öld, öld siðbótarinnar. Allir þekkja nöfn siðbótarmannanna: LUthers, Kalvíns, Zwinglis og Wesleys. Á þessum tíma verða hinar fjöl- mennu mótmælendakirkjur til, lútherska kirkjan, kalvínska kirkjan og meþódistakirkjan svo einhverjar séu nefndar. Fleiri kirkjudeildir áttu eftir að myndast, t.d. kvekarar, sjöunda dags aðventistar, bræðrasöfnuðir, baptistar o.fl. Með iðnbyltingunni og auknum búferlaflutningum fólks fer hugsunin um sameiningu kirkju- deildanna fyrst fyrir alvöru að gera vart við sig. Og á 19. öldinni verða til nokkrar alþjóðlegar kristilegar hreyfingar, sem voru óháðar krikjudeildum, sem dæmi má nefna K.F.U.M. (1855) og Kristilegu stúdentahreyfinguna (S.C.M) (1895). En rætur núverandi Heimsráðs kirkna (oft nefnt á okkar máli Alkirkjuráðið) má rekja til kristniboðsakursins þar sem kristniboðar fundu sárt til þessa klofnings kirkjunnar augliti til auglitis við framandi trúarbrögð og margir spurðu sjálfan sig, hvort þeir væru raun- verulega færir um að boða Krist eins og ástandið væri i eigin her- búðum, þar sem Kristur var marg- klofinn. Leiddi þetta til alþjóð- legrar kristniboðaráðstefnu í London árið 1878 og síðar i Edin- borg árið 1910. Heimildir frá þessu tímabili — og síðar — sýna, að sameining kirkjudeilda er býsna erfitt mál og tekur oft langan tíma; aðskilnaður og til kynna að hér er ekki aðeins hugsað um kirkjuna og hennar innri einingu heldur kirkjuna í tengslum við heiminn. Tilgangur OIKOUMENE er og tvíþættur, þ.e. að vinna að sýnilegri einingu kirknanna annars vegar og hins vegar að vinna að sameiginlegum verkefnum út á við. Grundvallar- formúla Heimsráðsins var upphaflega þannig: „Heimsráð kirkna er samfélag kirkna, sem viðurkenna herra okkar Jesúm Krist sem Guð og frelsara“ Fyrri hluti A þriðja allsherjarþinginu í Nýju Dehli, 1961 var formúlunni breytt og er hún nú þannig: „Heimsráð kirkna er samfélag kirkna, sem játa Jesúm Krist sem Guð og frelsara samkvæmt Ritningunni, og leitast því við að framkvæma sameiginlega köllun sina til dýrðar Guði, föður, syni og heilögum anda." Fjölmennustu kirkjudeildirnar eru nú orþódoxa-kirkjan, lútherska kirkjan, baptistar, öld- ungakirkjan (presbyterianar) meþódistar, anglikanar og kongregationalistat. Islenzka þjóðkirkjan er og aðildarkirkja að Heimsráðinu. Rómverskkaþólska kirkjan sem er sú langfjöl- mennasta i heiminum, hefur ekki ennþá gerzt aðildarkirkja en. tekur mikinn þátt í störfum Ráðs- ins m.a. með viðvarandi við- ræðum við aðrar kirkjudeildir í höfðustöðvum Heimsráðsins í Genf og með því að senda nokkra áheyrnarfulltrúa á allsherjar- þingin. Nú eru aðildarkirkjurnar 286 með um 500 milljónum ein- staklinga. Heimsráðið er f stuttu máli þannig uppbyggt að æðsta vald þess er i höndum allshejarþings sem haldið er á 7 ára fresti, þar er stefnan mörkuð, þar eru og hinir sex forsetar valdir og miðnefnd, sem í eru 130 fulltrúar. Miðnefnd- in kemur saman til fundar einu sinni á ári, þess má geta, að fjórði hluti hennar eru konur. Fram- kvæmdastjórn sér um fram- kvæmd hinna ýmsu mála. Aðal- framkvæmdastjóri er blökku- maðurinn Dr. Philip Potter, prestur frá Jamaica, en forseti miðnefndar er indverski félags- fræðingurinn dr. M.M. Thomas; á nýafstöðnu þingi var kosinn í hans stað fyrir næsta tímabi! anglikanski erkibiskupinn í Kanada, Edward Walter Scott. Starfsfólk Heimsráðsins í Genf er á þriðja hundrað en auk þess starfa á vegum þess hundruð manna í milli 40 og 50 löndum. Aó þessu sinni var allsherjar- þingið haldið í Nairobi, höfuð- borg Kenya, 23. nóvember til 10. desember s.l. Var það haldið í hinni glæsilegu ráðstefnuhöll, sem kennd er við Jomo Kenyatta, forseta Kenya. Fulltrúar voru 741 frá 271 kirkjudeild, þar af var fimmti hlutinn konur, tíundi hluti var undir þrítugsaldri og átta af hverjum tíu höfðu ekki áður tekjð þátt í slíkri ráðstefnu. Samtals tóku þátt í þinginu um þrjú þúsund manns, þar af var fjöldi sérfræðilegra ráðgjafa og gestir, m.a. voru þarna fulltrúar helztu trúarbragða heims, vegna þess að eitt málið var samhand við önnur trúarbrögð og aðra hug- myndafræði. Hér verður drepið lítillega á nokkur atriði, sem eru reyndar valin þannig að þau gefi dálitla innsýn inn í það sem um er rætt og er að gerast í „heims- kirkjunni" ef svo má að orði komast. AFRlSKUR KRISTINDOMUR Nairobi, höfuðborg Kenya er eins og margar borgir í Afriku, borg mikilla andstæðna. Eftir tólf ára sjálfstæði hefur þessi þrettán milljóna þjóð stefnt hægt en örugglega í átt til betra mannlífs. Frelsishetjan, Jomo Kenyatta, er nú talin einn af ríkustu mönnum heims — um það má deila, hvort það er honum til lofs eða lasts. Aðstreymi sveitafólks er mikið til höfuðborgarinnar vegna þess að sveitirnar taka ekki við fleira fólki, og fátækt er mikil. Til þess að betlarar settu ekki blett á nafn forsetans var þeim ekið brott á vörubílum síðustu dagana fyrir þingið. Þannig er ástandið víða í Afríku; frelsishetjan verður auð- maður, nefna mætti Mobutu, for- seta Zaire (áður belgiska Kongo), o.fl. Nágrannaríki Kenya er Uganda, með leiðtogastól sinn set- inn af hinum vafasama Idi Amin. En nokkru sunnar er hið blæð- andi sár Afriku, S-Afríku lýðveld- ið, með kynþáttahatrið, sem teyg- ir klær sínar jafnvel inn fyrir dyr kirkjunnar. Kenya er kristið land, tala kristinna manna hefur vaxið úr 32% af íbúafjöldanum í 66% á 25 árum og fer hraðvaxandi; í þessu landi er Biblían metsölu- bók, yfir milljón eintök eru seld af Biblíunni eða hlutum hennar á ári. Og það sem er einna forvitni- legast við kirkjurnar er, að í Kenya eru um 150 „sjálfstæðar kirkjur", þ.e. þær hafa rofið sam- bandið við hinar vesturlenzku móðurkirkjur. Hér er áherzlan lögð á „afrískan kristindóm", afrískan lífsskilning, afríska tjáningu. Þær upplifa kristna trú sína í takt við sitt eigið menningarandrúmsloft, þess vegna vex þeim og mjög fylgi. Afríka er í fjölbreytileik menningar sinnar trúræn; trúar- líf er rauði þráðurinn í menningu hennar og sjálfsvitund. Og Afríka hefur öðlazt endurnýjaða sjálfs- vitund og nýja von, nýtt stolt: „Svart er fallegt, allt svart kemur frá Guði.“ Hvers vegna ætti Afríkubúi að skilja boðskap Krists á sama hátt og við? For- sendur hans til skilnings eru allt aðrar, hann hugsar á annan hátt, hann hugsar t.d. meir sem hópur en sem einstaklingur, þjóðfélags- skilningur hans er annar, mann- skilningur og heimsmynd sömu- leiðis af öðrum toga Afríka hefur ekki átt neinn heimspeking á borð við Kant, Kierkegaard eða Sartre, engan Darwin og engan Bach. Ekki er hún fátækari þess vegna. Hennar sögur og dans og söngur eru af eigin toga spunnin. Það sem er svart hjá henni er hvítt hjá okkur. Og nú þegar tímabil kristni- boðsins í sinni hefðbundnu mynd er á enda runnið, þegar afrískur kristindómur er búinn að finna sjálfan sig og þegar kirkjusókn á Vesturlöndum fer æ minnkandi, þá horfa vestrænir kirkjuleið- togar vonaraugum í átt suður. Gæti afrísk guðsdýrkun leyst okkar steinrunnu messugerð úr álögum? Gæti afrisk guðfræói lífgað við okkar pappirskenndu guðfræði? Gæti afrískur, kristinn mann- og þjóðfélagsskilningur gefið okkur nýtt mat á verðmæt- um, nýja skoðun á hráefnum, verksmiðjum, lúxus, fyllt ef til vill okkar innantómu belgi nýju vini? Er framtið kristindómsins ef til vill i Afríku? Þannig er spurt í hinum kristna heimi. KIRKJA OG POLITlK I yfirlitsræðu sinni rakti fram- kvæmdastjórinn, Philip Potter, ástand heimsmála og stöðu kirkjunnar á hinum alþjóðlega vettvangi, skýrði hann frá fram- vindu heimsmála og verkefnum Heimsráðsins frá siðasta alls- herjarþingi í Uppsölum 1968. Stefnumörkun Uppsala þingsins hefur tíðum verið gagnrýnd af íhaldssömum kirkjudeildum fyrir að hafa mótazt um of af einhliða áherzlu á pólitískt hlutverk kirkjunnar, en hins vegar lagt litla áherzlu á einingu kirkjunnar og boðun orðsins út á við. Sterk- ast kom gagnrýni þessi fram á fjölmennu þingi í Lausanne í Sviss sumarið 1974. Sendi sú ráð- stefna frá sér svonefndan Lausannesáttmála, sem saminn var að mestu af enska prestinum John Stott — af þekktum kirkju- mönnum f Lausanne má nefna bandaríska prédikarann Billy Graham og enska blaðamanninn Malcolm Muggeridge. Var Lausannesamþykktin lögð fram á allsherjarþinginu sem undir- búningsskjal. I Nairobi má segja, að jafnvægi hafi verið fundið milli þessara tveggja viðhorfa. — Eitt þeirra mála sem Uppsalaþingið af- greiddi, var hið svonefnda „kyn- þáttajafnréttisprógramm". Eins og nafnið bendir til er þar fjaliað um kynþáttamisrétti í heiminum og kirkjurnar hvattar til að berjast gegn því. Heimsráðið gekk og rösklega fram í þessu máli svo og margar aðildar- kirkjur, t.d. hinar þýzku. I Þýzka- landi mætti prógramm þetta ekki alls staðar fullum skilningi, héldu andstæðingar þess m.a. fram, að kirkjurnar veittu skæruliðum og frelsishreyfingum í Afríku og S- Ameríku fé til vopnakaupa. Af þessum sökum sagði m.a. hinn þekkti blaðakóngur Axel Springer í Berlín, sig úr þjóð- kirkjunni og gekk í frikirkju. Springer greiddi offjár í kirkju- skatt þar sem kirkjuskattur er reiknaður prósentvís af tekjum i íyzkalandi. En þetta var yfirdrif- in gagnrýni, þar sem Heimsráðið hefur ekki viljað styðja vopnaða baráttu. En dæmið frá Þýzkalandi sýnir, að víða er skilningur býsna takmarkaður á hlutverki kirkjunnar. I yfirlitsræðu Potters kom fram að stjórnmálaástandið í heimin- um einkennist af magnleysi; al- þjóðlegar stofnanir hafatakmark- aða getu til þess að koma alþjóð- legum verkefnum í framkvæmd. Á matvælaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Róm mistókst að komast að samkomulagi um skipt- ingu fæðunnar á jörðinni og á mengunarráðstefnunni í Uppsöl- um tókst ekki að sameinast um raunhæfar aðgerðir. Þá nefndi hann og hið geigvænlega vígbún- aðarkapphlaup; þrjátíu árum eftir síðustu heimsstyrjöld er heimurinn nú alvopnaður og til- búinn til grimmilegri styrjaldar en nokkru sinni fyrr. Kirkjan verður að hafa áhrif á gang þessar mála, sem eru ráðin á hinu stjórnmálalega sviði i Washing- ton, Kreml, Peking, Bonn. Þar verður kirkjan að gera hlutverk sitt raunhæft. Heimsráðið hefur reynt að fara þessa leið svo sem með bréfaskriftum, samtölum og með því að vekja hinar ýmsu kirkjudeildir til átaka. Kirkjan hefur möguleika til þess að gegna þessu hlutverki, hún er alþjóðleg, óháð stjórnmálastefnum, hvort sem um er að ræða kapítalisma eða kommúnisma, hún er óháð kynþáttamismun og hafin yfir mismun kynjanna En allt er þetta henni viðkomandi. Hún er ekki kölluð til að boða eingöngu „trú“ í einhverjum óræðum skilningi, hún er miklu frekar kölluð til að starfa, vinna þau verk sem húsbóndi hennar Kristur, kallar hana til á hverjum tíma, og þau verk eru einmitt hvarvetna þar sem neyðin, misréttið, kúgunin, hatrið og von- leysið er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.