Morgunblaðið - 18.03.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
13
Bókmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
□ Jón Öskar:
□ KYNSLÖÐ KALDA
STRlÐSINS
□ 284 bls.
□ Bókaútg. Guðjóns Ö.
□ Rvík 1975.
KYNSLÓÐ kalda stríðsins —
hvaða kynslóð var það? Og
kalda stríðið — hvenær kemur
það inn i dæmið? Ef við tima-
setjum það frá stofnun Nató
1949 til dauða Stalíns 1953 og
kennum siðan við það kynslóð
þá sem á þeim árum sendi frá
sér fyrstu bækur kemur það
allt heim og saman við heitið á
þessari bók Jóns Öskars. Hún
segir einmitt frá blekbúskap
ungra og upprennandi skálda á
þeim sömu árum.
Þetta er í vissum skilningi
merkileg bók, bæði sálfræði-
lega og bókmenntasögulega.
Höfundur varpar fyrir borð
skáldgeðflækjum sinum sem
íþyngt hafa andans fleyi hans
allar götur síðan á umræddum
tímum. Það er heilmikil píslar-
saga. I öðru lagi segir hann frá
öðrum skáldum og gengi þeirra
í kalda striðinu og er það ekki
óálitlegt framlag til íslenskrar
bókmenntasögu. Hann brýtur
til mergjar efni tímaritsins Lífs
og listar sem á þessum árum
var helstur vettvangur ungra
skálda. Lika beinir hann endur-
skini minninganna inn á Lauga-
veg 11 þar sem ungir listamenn
og fylgifiskar þeirra sátu löng-
um, þömbuðu kaffi og biðu eft-
ir að tíminn liði. Hann drepur á
skipti sín við Mál og menning
þar sem ungir, róttækir höf-
undar töldu sig eiga sér skyld-
an stuðning. Síðast en ekki sist
ræðir hann á ýmsa vegu hvern-
ig nýja skáldskapnum var tek-
ið; eyðir t.d. miklu rúmi til að
rökræða grein eftir Halldór
Laxness er birtist í Lífi og list.
JónÖskar.
Heitt og
en þá grein telur hann hafa
verið mótdræga þeim ungskáld-
unum og hafa haft ærin áhrif.
Jón OsiTár er viðkvæmur,
metnaðargjarn og smámuna-
samur en jafnframt hreinskil-
inn og i besta skilningi mann-
legur rithöfundur. Allir marka
þeir eiginleikar svipmót þessar-
ar bókar. Einnig er Jón Oskar
furðulaus við laundrýldni sem
hingað til hefur verið nokkurs
konar þjóðlegt einkenni ís-
lenskra sjálfsævisöguritara.
Þetta eru minningar um tra-
fala, fyrirstöðu hindranir —
alltaf og alls staðar stendur eitt-
hvað í vegi fyrir skáldinu og
bægir því frá að njóta eigin
verðleika og þar með þeirrar
viðurkenningar annarra sem
því með réttu ber. Áhrifamenn
á bókmenntasviðinu eru annað-
hvort skilningssljóir eða fjand-
samlegir í garð nýju ljóðlistar-
innar — nema hvort tveggja sé.
Og ungu skáldin gera ekki nógu
vel hverju sem það nú er að
kenna. Og svo sem til að skerpa
dökkar útlinur myndanna skýt-
ur Jón Öskar inn i söguna frá-
sögnum af eigin óskaldlegri og
harla erfiðri lífsbaráttu á þess-
um árum, til að'tnynda kaupa-
vinnu austur í sveitum með allt
of söltum saltfiski fyrir veikan
maga. Þegar bók þessi hefur
verið lesin ofan í kjölinn og
efni hennar brotið til mergjar
verður niðurstaðan því þessi:
þó hér sé á ferðinni bókmennta-
sögulega athyglisvert verk er
þetta fyrst og fremst persónu-
saga — ævisaga í venjulegum
skilningi. Önnur skáld koma að
vísu mikið við sögu og talsvert
ræðir Jón Oskar um verk þeirra
sem eru að koma út á þessum
árum en — eftir á að hyggja —
fyrst og fremst vegna þess að
þau eru vinir hans eða kunn-
ingjar að því ógleymdu að þau
eru líka keppinautar hans.
Skáldskapurinn er hans hálfa
eða heila lif, hann lifir í skáld-
skap og fyrir skáldskap, bindur
allar framtióarvonir við gengi
sitt í skáldskap. Og hvi skyldi
þá annað vera honum hugstæð-
ara? Almennra sögulegra skil-
greininga á umræddum tímum
er því tæpast aó vænta framar
því sem hlutirnir snerta hann
beint eða óbeint persónulega.
En Jón Öskar er glöggur höf-
undur. Og vitanlega gekk flest
hið sama yfir hann og jafnaldra
hans i skáldskapnum á þessum
kalt
árum. Þess vegna má draga
ýmis almenn dæmi af þessari
sögu hans. Sumir tímar eru
hallkvæmari skáldum en aðrir.
Ar kalda stríósins voru ýmissa
orsaka vegna fremur óhagstæð
skáldum, ekki aðeins ungu
skáldunum (eins og álykta
mætti af frásögnum Jóns
Oskars) heldur einnig eldri
höfundum sem voru full-
harðnaðir og stóðu þegar á
gömlum merg viðurkenningar
og álits. Steinn Steinarr mælti
víst fyrir munn margra þegar
hann sagði: „við lifum á
erfiðum tímum.“ Timana skorti
festu. Skáldin leituðu að formi
og efni. En leitin gekk erfið-
lega. Og margir lifðu og skrif-
uðu stefnulaust, fóru úr einu í
annað, gutluðu við eitt í dag og
annað á morgun, létu útgef-
endur og áhrifamenn í bók-
menntum þvætta sér út í alls
kyns kauplaust snatt í von um
að stritið bæri einhvern ávöxt
síðar. Jóni Oskari er ekki
láandi þó hann nú sendi þessu
öllu kveðju með litlum söknuði.
Peningaleysi hans er ekki kapí-
tuli út af fyrir sig heldur í
samræmi við annað, orsök og
afleiðing í senn. Á þessum ár-
um töldu skáld sáluhjálpar-
atriði að komast út fyrir land-
steinana, helst til Parísar. Sú
útþrá togaði í Jón Öskar eins og
aðra. En farareyri skorti. Þetta
voru hálfgerð kreppuár.
Kannski var viljinn ekki heldur
nógu sterkur. Það er eins og
hann sé alls staðar að leita ein-
hvers en finni ekki. En áttu
timarnir ekki einhverja sök á
athafnaleysinu? Örugglega
Það verðmætamat hafði líka
fest í vitund þjóðarinnar á
striðsárunum að skáldskapur
væri ekki arðvænleg atvinnu-
grein. Og var út af fyrir sig
kórrétt athugað.
Verðuglega minnist Jón
Oskar Lífs og listar. Hins vegar
hefði hann mátt útlista betur að
þar með gerði Steingrimur Sig-
urðsson úrslitatilraun til að við-
halda almennum og þá býsna
rótgrönum áhuga á bókmennt-
um oglistum með alþýðlegum
hætti, skapa bein og persónuleg
tengsl milli listamannsins
annars vegar og hins almenna
borgara hins vegar, t.d. með
líflegum viðtölum. „Slúður-
fréttadálkar" Lífs og listar
(eins og Jón Oskar orðar það,
auðsjáanlega af takmarkaðri
virðing) voru annað og meira
en slúður. Þeir voru nauðvörn
listarinnar, tilraun til að sigra
nýjan og ismeygilegan en jafn-
framt ósýnilegan keppinaut
með vopnum hans sjálfs. I
andartakinu var þetta kannski
ekki svo augljóst og meðvitað.
En þetta kom allt á daginn
síðar. Þegar Lif og list hætti að
koma út var ekki annars staðar
að finna frásagnir í lðttum dúr
af þvi sem var að gerast f
menningarlífinu frá degi til
dags. Atómskáldin urðu nú
nokkurs konar loftandar fyrir
sjónum almennings, fjarri líf-
inu. Athyglin tók í sivaxandi
mæli að beinast að íþrótta-
stjörnum og dægurlagaköpp-
um.
Það voru þeir sem komu út úr
kalda stiðinu sem sigurvegarar
yfir Jóni Öskari og allri hans
kynslóð. Og þess hafa skáld og
listamenn mátt minnast og
verða varir allt fram á þennan
dag.
Italskar kven- mokkasíur
úr mjúku leðri og með
slitsterkum sólum
Teg. 20
Litir:
brúnt eða svart leður.
Verð kr. 4.875 —
Stærðir nr. 36—41.
Teg. 21
Litur:
antikrautt leður
Verð kr. 4.875 —
Stærðir nr. 36—41.
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti v/ Austurvöll, sími 14181.
Verzlunar- skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði
Rey kjavíkurvegur Hafnarfirði
Húsið er í byggingu. Selst fokhelt með tvöföldu gleri. Möguleiki á að kaupa hluta
úr hverri hæð. Byggingaraðili Knútur og Steingrímur h.f. Nánari upplýsingar
veittar á skrifstofunni.
AK.I.YSINCASIMINN KR: é
JRorflimblnbiti
*
Arni G. Finnsson hrl.f
Strandgötu 25, Hafnarfirði, sími 51500