Morgunblaðið - 18.03.1976, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
Alþingi í gær:
Skákleiðsögn í skól-
um og ríkisfjölmiðlum
Ný löggjöf um Búnaðarbanka Islands
Bankasfjórar
Búnaðarbanka þrír.
Halldór E. Sigurðsson
landbúnaðarráðherra
mælti í efri deild Alþingis í
gær fyrir stjórnarfrum-
varpi um ný lög fyrir Bún-
aðarbanka íslands; heild-
arlöggjöf, til samræmis við
lög annarra ríkisbanka og
breytta hætti í þjóðfélag-
inu. 1 lögunum er m.a. gert
ráð fyrir því að bankastjór-
um Búnaðarbankans verði
fjölgað úr tveimur í þrjá.
Nokkrar umræður urðu
ann), sem þingmenn
Alþýðubandalagsins hafa
sett sig á móti.
Aðstoðarsjóður
Efnahags- og
framfarastofnunar
Ólafur Jóhannesson við-
skiptaráðherra mælti fyrir
stjórnarfrumvarpi til stað-
festingar á aðild Islands að
aðstoðarsjóði Efnahags- og
framfarastofnunarinnar. 1
greinargerð meó frum-
Skákleiðsögn
í skólum
Ingvar Gíslason (F)
mælti fyrir nefndaráliti
um frumvarp Gylfa Þ.
Gíslasonar (A) um skák-
leiðsögn í skólum, þ.e. að
ráða íslenzka stórmeistara
í skák til kennslu og leið-
beiningar í skák í skólum
landsins, útvarpi og sjón-
varpi. Sagöi Ingvar aó þar
sem menntamálaráóherra
hefði nú, með samþykki
ríkisstjórnarinnar, ráðið
stórmeistarana Friðrik
Ólafsson og Guðmund
Sigurjónsson til þessara
starfa, hefði menntamála-
nefnd orðið sammála um
að leggja til að frumvarp-
inu verði vísað til ríkis-
stjórnarinnar. Gylfi Þ.
Gíslason (A) sagöist eftir
atvikum sammála áliti
nefndarinnar, en deildi
harðlega á meðferð þessa
máls, sem flutt hefói verið
á síðasta þingi, þá frestað
með sérstöku samkomulagi
milli sín og menntamála-
ráðherra, síðan legiö
óafgreitt (endurflutt í
haust) þar til nú og þá
afgreitt með ráðherra-
aögerð, án samráðs við sig,
sem flutningsmann frum-
varpsins. Taldi Gylfi þessa
málsmeöferð alla hæpna
mannasiði. Ingvar Gíslason
(F) sagði málið hafa fengið
eólilega og þinglega með-
ferð, þau atriði þegar
komin til framkvæmdar,
sem væru meginefni frum-
varpsins, sem hlyti að vera
aðalatriði málsins, fremur
en persónulegur metnaður
flutningsmanns.
um málið og tóku m.a. til
máls: Ragnar Arnalds (k),
Helgi F. Seljan (k) og
Albert Guðmundsson (S).
Viðskiptamenntun
á framhalds-
skólastigi
Stjórnarfrumvarpi um
viðskiptamenntun á fram-
haldsskólastigi, sem áður
hefur verið gerð grein
fyrir hér á þingsíðunni,
var vísað til 2. umræðu
og menntamálanefndar.
Allmiklar umræður hafa
orðið við frumvarpið, eink-
um fjárstuðning við sér-
skóla á sviði verzlunar-
menntunar (Samvinnu-
skólann og Verzlunarskól-
varpinu segir m.a.: ,,Kök-
stuðningur fyrir stofnun
sjóösins er sá, að olíuverð-
hækkanir hafi ekki svo
ýkja alvarlegar afleiðingar
fyrir aóildarríkin (OEGD)
sem heild, þar sem olíuút-
flutningslöndin muni aftur
yfirfæra fjármuni sína til
OEGD-landanna, en þetta
geti hins vegar komið
harkalega niður á einstöku
ríkjum. Munu þau eiga
kost á lánum úr sjóðnum
og þannig mætti koma í
veg fyrir, aó einstöku
OEGD-lönd grípi til hafta,
sem andstæð séu stefnu
stofnunarinnar í viðskipta-
málum, og kynnu aó hafa
alvarlegar afleióingar fyrir
alþjóðaviðskipti.“
Umræða um
utanríkis-
Stjórnarfrumvarp:
Erlend verðlaun
til íslenzkra lista-
manna ska ttfrjáls
MaUhías A. Mathiesen fjár-
málaráðherra mælti í neðri
deild Alþingis í gær fyrir
stjórnarfrumvarpi, þess efnis,
að erlend verðlaun, sem
íslenzkum listamönnum hlotn-
ast, skuli undanþegin útsvars-
og tekjuskattsálagningu (vera
skattfrjáls). Frumvarp þetta er
flutt í tilefni af tvenns konar
verðlaunum Norðurlandaráðs,
á sviði bókmennta og tónlistar,
er fé'llu í hlut Ölafs Jóhanns
Sigurðssonar rithöfundar og
Atla Heimis Sveinssonar tón-
skálds. Fordæmi eru fyrir
skattfrelsi af þessu tagi, t.d. er
Halldór Laxness hlaut Nóbels-
verðlaunin á sínum tíma. Sagði
ráðherra rétt vera að festa í lög
sem almenna reglu, að slíkar
erlendar verðlaunaveitingar
skuli skattfrjálsar.
Svava
Jakobsdóttir (k) tók undir orð
ráðherra, lýsti stuðningi
Alþýðubandalagsins við frum-
varpið, enda væri rangt, að
íslenzka ríkið hagnaðist fjár-
hagslega á heiðri, sem íslenzkir
listamenn áynnu sjálfum sér og
þjóðinni á erlendum vettvangi.
mál ákveðin
í þingsköpum
Gils Guðmundsson (k) flytur
frumvarp til laga, þess efnis, að í
þingsköp skuli tekin ákvæði um,
að utanríkisráðherra skuli fyrir
15. mars ár hvert leggja fyrir sam-
einað þing skýrslu um utanrikis-
mál. Umræða um skýrsluna skuli
fara fram innan tveggja vikna frá
því að hún er fram lögð. Verði
ákveðið að útvarpa umræðunni
eða hluta hennar; gildi þar um
almenn ákvæði um útvarps-
umræður.
Sagði Gils að sá háttur hefði
verið á hafður síðan 1969 að slík
skýrsla sé fram lögð og rædd.
Hins vegar hafi það oft dregist
fram undir þinglausnir og skýrsl-
an og umræðurnar því horfið í
þær annir, sem jafnan séu á síð-
ustu dögum þingsins. Rétt sé því
að tímasetja umræðu um utan-
ríkismál í þingsköpum þann veg
— að henni sé fullur sómi sýndur
og þjóni þeim tilgangi, sem slíkar
umræður um utanríkismál hafi í
flestum þjóðþingum.
Svipmyndir frá Alþingi
Þingmenn í þungum þönkum: Sighvatur Björgvinsson (A)
Geirþrúður Hildur Bernhöft (S) og Þórarinn Sigurjónsson (F).
(Ljósm. Mbl. Rax).
Jón Árnason (S) í góðum félagsskap starfskvenna í fatageymslu
þingsins.
Lúðvík Jósepsson (k), fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Ijær
Albert Guðmundssyni (S) hægra eyrað til að meðtaka einhvern
„íhaldsboðskap".
Eyjólfur Konráð Jónsson (S), sem nvlega var valinn fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins f sendinefnd Islands á hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna.
Gunnar Thoroddsen (S) iðnaðarráðherra hlvðir á umræður þing-
manna um ýmsar hliðar járnblendiframkvæmda að Grundartanga í
Hvalfirði.