Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 15 ErMargrét Bretaprins- essa að skilia? Lundúnum — Hong Kong — 17. marz — Reuter — NTB. BREZKU blöðin Daily Express og Dailv Mirror sögðu frá því í dag, að Margrét prinsessa og Snowdon lávarður væru að skilja. og hefði Elízabet drottn- ing gefið samþykki sitt til þess. Blaðaskrif um skilnað hjón- anna hafa vakið mikla athvgli, en talsmaður brezku konungs- fjölskvldunnar hefur ekki vilj- að tjá sig um, hvort þau hefðu við rök að stvðjast eða ekki. Hann kannaðist hins vegar við, að málið hefði verið rætt innan fjölskvldunnar. Þá sagði tals- maður ensku biskupakirkj- unnar í dag, að biskupnum í Kantaraborg væri kunnugt um hjónabandserfiðleika prinsesv unnar og manns hennar. A fundi með fréttamönnum í Hong Kong í dag var Snowdon að því spurður, hvort blaða- fregnirnar hefðu við rök að styðjast. Svaraði hann því einu til, að undanfarin 15 ár hefði hann ekki rætt einkamál sín opinberlega, og hygðist ekki gera það í framtíðinni. Lávarð- urinn er á leið til Astraliu vegna sýningar, sem þar verður haldin á ljósmyndum. Eftir því var tekið, að prinsessan var hvergi nálæg þegar lávarður- inn lagði upp í ferðina frá Lundúnaflugvelli í dag. Brezka konungsfjölskyldan hefur ætíð verið andsnúin hjónaskilnaði. Elisabet drottn- ing er höfuð ensku biskupa- kirkjunnar, og á sinum tíma kom hún í veg fyrir hjónaband systur sinnar og Peters Towns- ends, á þeim forsendum, að Townsend hafði skilið við eigin- konu sina. Játvarður konungur, föðurbróðir þeirra systra, sá sig knúinn til að láta af konung- dómi í Bretlandi árið 1936 til að geta gengið að eiga Wallis Simpson, sem var fráskilin. Fyrir nokkrum árum fékk ná- frændi drottningar, jarlinn í Harwood, skilnað frá konu sinni, án þess að hún reyndi að koma í veg fyrir það. Sá hjóna- skilnaður var þó engan veginn sambærilegur við hugsanlegan skilnað Margrétar prinsessu og Snowdons lávarðar, þar sem prinsessan er fimmta í röð ríkisarfa Bretadrottningar. Drottningin er sögð óánægð með kunningsskap systur sinnar og Roddys Llewellyns, en þau hafa umgengizt að stað- aldri undanfarin ár. Llewellyn þykir fullfrjálslegur i hátterni, og hafa blöð jafnvel haldið því fram, að maðurinn væri hippi. Margrét er hálffimmtug að aldri, en Llewellyn er 17 árum yngri. Skilnaðarsögurnar fengu byr undir báða vængi þegar mynd var tekin af þeim þar sem þau voru að frílista sig á eyju í Karíba-hafinu fyrir nokkrum vikum. Margrét prinsessa og Snow- don lávarður gengu í hjóna- Framhald á bls. 18 Mynd þessi var tekin í trúlofunarveizlu Karls Gustavs XVI Svíakonungs og Silviu Sommerlath í síðustu viku. Brezka blaðaútgáfan þarfnast aðstoðar Lundúnum — 17. marz — Reuter. STJÓRNSKIPUÐ rannsóknar- nefnd skilaði 1 dag niðurstöðum sfnum um f jármálakrcppu brezku blaðanna 1 dag, ásamt til- lögum. sem verða mættu til bjarg- ar. 1 skýrslu nefndarinnar kemur fram, að fjárfesting 1 nýtfzku tæknibúnaði og fækkun f starfs- liði blaðanna er nauðsynleg, ef takast á að rétta rekstur blaðanna við. Segir ennfremur, að endur- bætur á rekstrinum séu þvf aðeins mögulegar, að til komi að- stoð hins opinbera og einkaaðila. Þá segir í skýrslunni, að ástæð- ur fyrir versnandi hag blaðanna séu einkum þær, að færri kaupi þau en áður og hagnaður af aug- lýsingum hafi minnkað verulega, auk þess sem kostnaður við vinnslu þeirra sé kominn upp úr öllu valdi. Nefndina skipuðu þrír menn. Þeir leggja til, að aðstoð við blöð- in verði háð samráði við nefnd, sem skipuð sé fulltrúum útgef- SAMPSON HAND- TEKINN Á KÝPUR Patty Hearst- málið á lokastigi San Francisco — 17. marz — Reutcr. Vitnaleiðslum í máli Pa- triciu Hearst á að Ijúka f dag og fær kviðdómur málið að <>11- um likindum til meðferðar á morgun. I gær var faðir Pa- triciu, Randolph Hearst, kall- aður til vitnis. Hann vísaði á bug staðhæfingum sálfræðings um, að hinni ákærðu hefði ver- ið uppsigað við fjölskyldu sína, og hefði framkoma henn- ar bent til þess, að hún væri komin á fremsta hlunn með að ganga í lið með pólitískum öfgasinnum. 1 dag kemur móðir sakborn- ingsins, Catherine Hearst, fyr- ir réttinn. Sjö konur og fimm karlar eiga sæti í kviðdómin- um, sem fella mun úrskurð í máli Patriciu Hearst. Nikósiu — 17. marz — Reuter NICOS Sampson, sem árið 1974 átti þátt i því að stevpa Makaríosi erkibiskupi af stóli og hélt völdum á Kýpur í átta daga var í dag handtekinn og ákærður fvrir hlutdeild sina f bvltingunni. Verði hann sekur fundinn, eru líkur á því, að hann verði dæmd- ur í lífstíðarfangelsi. Réttarhöld gegn Sampson eiga að hefjast 22. marz. Hann gekk í lið með Eoka- skæruliðahreyfingunni árið 1950 og tók virkan þátt í aðgerðum hennar gegn Bretum. Hann tók þátt í baráttu hreyfingarinnar fyrir því, að Kýpur yrði sameinuð Grikklandi. Sampson var fyrst handtekinn árið 1957 og var skömmu siðar dæmdur til dauða. Dómnum var síðar breytt í lífs- tiðarfangelsi, en árið 1960 var Sampson einn þeirra fjölmörgu, sem voru gefnar upp sakir i til- efni af þvi, að eyjan varð sjálf- stæð. „Détente” enn á undanhaldi Washington — 17. marz— Reuter Bandarfkjastjórn hefur frestað þremur fundum samstarfsnefnda bandarfskra og sovézkra sérfræð- inga um húsnæðis-, orku- og við- skiptamál vegna íhlutunar Sovét- rfkjanna f Angóla. Þá hefur vakið athygli, að f gær fóru út um þúfur viðræður um kaup Bandarfkja- manna á olfu frá Sovétrfkjunum vegna ósamkomulags um flutn- ingsgjöld. Enda þótt þessir atburðir séu ekki beinlínis tengdir, þykja þeir styrkja þá útbreiddu skoðun, að Framhald á bls. 18 Þegar Tyrkir gerðu innrás á Kýpur 1974, sagði Sampson af sér, og gegndi þá Glafkos Clerides for- setaembætti á eynni þar til Makaríos erkibiskup tók við emb- ættinu á ný í árslok. Síðan hefur Sampson ítrekað hvatt til þess í málgögnum sínum, að Kýpur yrði sameinuð Grikk- landi. Hann skrifar í blöðin Makhi, sem þýðir „barátta", og Tharros, sem merkir „hugrekki". Wilson á 60 ára afmælisdegi sín- um. enda og fulltrúum viðkomandi stéttarfélaga. Gerir rannsóknar- nefndin það að tillögu sinni, að samstarfsnefnd þessi starfi að staðaldri, og að umsóknir blaða um styrki verði skilyrðum háðar. Framhald á bls. 18 Austur-Þjóð- verjum úthýst Boiiii — 16. mar/ — Routor. V-ÞVZK vfirvöld neituðu i dag sendinefnd austur-þýzkra komm- únistaleiðtoga um leyfi til að koma til V-Þýzkalands. Fvrir- hugað var. að sendinefndin vrði viðstödd ársfund v-þýzka kommúnistaflokksins, sem hefst n.k. föstudag, Talið er, að Erich Honecker, formaður a-þýzka kommúnistaflokksins, hafi verið meðal þeirra kommúnistaleið- toga, sem ætluðu að taka þátt í ráðstefnunni. Litið er á þessa ákvörðun v-þýzkra stjórnvalda sem svar Bonn-stjórnarinnar við því, að í síðustu viku var þremur fréttamönnum frá V-Þýzkalandi neitað um leyfi til að vera við- staddir iðnaðarkaupstefnu. sem haldin er í Leipzig um þessar mundir. Talsmaður Bonn-stjórnarinnar hefur staðfest, að sendinefndin hafi óskað eftir lendingarleyfi fyrir farkost sinn síðar í vikunni. Trúa ekki að Wilson sé fullkomin alvara Bonn, 17. marz. Routcr. Vestur-þýzkt blað gaf í skvn í dag að Harold Wilson hefði sagt af sér til að láta vinstri arm Verkamannaflokksins hlýða aga og sagði að flokkur- inn kvnni að leita aftur til hans til að tryggja einingu. Frankfurter Allgemeine Zeitung segir: „Fólk trúir'því ekki að eins mikill bragðarefur og Wilson segi af sér... Er hon- um alvara eða hvað býr á bak við?“ Stuttgarter Zeitung lætur einnig i ljós efasemdir og telur „lítt sannfærandi" þær ástæður sem Wilson tilgreindi. „Er aðalástæðan til þess að hann segir af sér sú staðreynd að vinstri armur flokksins gerði að engu löngun háns til að halda áfram með þvi að kalía fram ósigur í atkvæðagreiðsl- unni í þinginu í siðustu viku?“ spyr blaðið. Frankfurter Rundschau iíkir Wilson við „hálíþreyttan og lítið eitt særðan Muhammád Ali sem skyndilega ljóstri því upp að hann hafi ekki áhuga á að halda áfram." Franska blaðið Le Monde segir að þjóðaratkvæðagreiðsl- an um aðildina að Efnahags- bandalaginu og samningarnir við verkalýðsfélögin um frið á vinnumarkaðnum hafi verið glæsilegustu afrek Wilsons. En blaðið segir að hann hafi verið máttvana í marga mánuði vegna vaxandi atvinnuleysis, þrálátrar verðbólgu, veikleika pundsins, óvissu í málefnúm Evrópu og vaxandi ofbeldis á Norður-Irlandi. Hins vegar segir Le Monde að einn af kostum Wilsons hafi verið sá að hann hafi haft vit á þvi að segja af sér því „kirkju- garðar sögunnar séu fullir af stjórnmálamönnum. .. sem töldu að þeir væru ómiss- andi.. .“ Frjálslynda blaðið Rand Daily Mail í Jóhannesarborg segir að engin breyting verði á afstöóu brezku st jórnarinnar til apartheid stefnunnar þótt Wil- son hætti. Blaðið segir að bar- átta hans gegn apartheid hafi gert hann að grýlu í augum margra S-Afríkumanna Blaðið Rhodesian Herald í Salisbury segir að stefna Breta gagnvart Rhödesíu breytist ekki þótt Wilson segi af sér. Þó telur blaðið að stefna Verka- mannaflokksins geti orðið sveigjanlegri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.