Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 19

Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 19 Fréttabréf frá Þórshöfn Varla fengist bein úr sjó - Nýtt frysti- hús, en hráefnisskortur sýnilegur Þórshöfn 12. mars. Veturinn hér um slóðir hefur verið með eindæmum góður allt frá áramótum. Suðlæg átt hefur lengst af verið ríkjandi og borið til okkar hlýtt loft. Snjó hefur sjaldan sett niður og þá i engum teljandi mæli og er það andstætt því sem var hér á sama tíma i fyrra, þegar allt var á kafi í snjó. Varla er hægt að segja að vegir hafi teppst og snjómokstur því verið sáralítill. Vegurinn vestur um meðfram ströndínni hefur lengst af verið vel fær öllum bíl- um, en Axarfjarðarheiðin, sem styttir leiðina um 70 km teppist í fyrsta snjóföli á haustin, enda er vegurinn þar grafinn niður um V4 metra og þannig hefur hann verið síðan hann var gerður fyrir um það bil hálfri öld. Eigi að síður er þessi vegur fjölfarinn þá þrjá mánuði, sem hann er fær á árinu. Þó hefur núverandi samgöngu- málaráðherra sennilega aldrei ekið þennan veg, því það má furðulegt teljast að í öllum þeim vegaumbótum, sem átt hafa sér stað á undanförnum árum að aldrei skuli hafa verið hreyfð hönd né fótur til að lagfæra veginn yfir Axarfjarðarheiði. Til- tölulega litlu þyrfti þó til að kosta svo þessi vegur yrði nothæfur 2—3 mánuðum lengur á ári hverju í venjulegu tíðarfari, kannski þyrfti ekki nema sem svaraði andvirði eins lengdar- metra af Borgarfjarðarbrúnni til þess. MIKIÐ AFLALEYSI En nóg um það við höfum meiri áhyggjur af ýmsu öðru. Fyrst og fremst er það aflaleysið. Það er skemmst frá því að segja að varla hefur fengist bein úr sjó, síðan róðrar hófust upp úr áramótun- um. Tveir bátar, 40 og 50 tonn að stærð hafa róið með-þorskanet og afli þeirra hefur verið þetta frá hálfu tonni og upp i þrjú tonn, þegar netin hafa legið 2—3 nætur. Nú hefur annar þeirra gefist upp á þessu, vonum seinna, og flutt net sín á ný mið út af Suðausturlandi og mun hann leggja afla sinn á land á Horna- firði. Einn bátur, Borgþór, hefur róið með línu og hefur afli hans verið enn lélegri en netabátanna. Fleiri bátar hafa ekki byrjað róðra, vegna þessa ástands, en tveir bátar hafa nýlega verið seld- ir héðan burtu, Skálavík, 48 tonn, var seld til Eyrarbakka og Litla- nes, 16 tonn, var selt til Seyðis- fjarðar. BINDA VONIR VIÐ GRASLEPPUNA En nú þegar þorskurinn ætlar að bregðast svona, bínda sjómenn allar sinar vonir við grásleppuna og undirbúa komu hennar af kappi. Sæmilegt verð mun fást fyrir hrognin úr henni i vor eða 32—33 þúsund kr. fyrir tunnuna uppsaltaða Allir minni bátarnir munu stunda grásleppuv iiðar í vor, og jafnvel sumir þeii stærri lika. Þessi veiðiskapur hefur oft gefið sjómönnum r.iikið í aðra hönd, en honum fylgir þó ságalli, að hann skapar litla sem enga atvinnu í landi og mun því land- verkafólk sjá fram á verulgt at- vinnuleysi eftir sem áður, þótt grásleppuveiði verói góð í vor. NYTTFRYSTIHÚS Um miðjan apríl næstkomandi verður hið nýja frystihús okkar fullgert og tilbúið til að taka á móti fiski. Þetta hús er mjög vandað að öllum búnaði og unnið hefur verið af kappi við það að undanförnu og ekkert til sparað. Eigandi þessa nýja húss er Hraðfyrstistöð Þórsþafnar h/f, og ég ræddi í dag við Helga Jóna- tansson framkvæmdastjóra um húsið. Kvaðst Helgi vera ánægður með þetta nýja hús og hversu vel hefði gengið að drífa það upp, en yfir þessu öllu saman hvíldi þó dimmur skuggi, því hráefnisþörf hússins væri mun meiri en okkar bátafloti gæti afkastað og kvaðst hann ekki enn sjá, hvernig ráðið yrói fram úr því vandamáli. HRAEFNISSKORTUR FYRIRSJAANLEGUR Á sl. hausti áttum við kost á að fá keyptan frá Noregi skuttogara af heppilegri stærð, en stjórnvöld synjuðu um leyfi til slíkra kaupa. Mörgum finnst harla einkenni- legt, að hið opinbera skuli veita fýrirgreiðslu til byggingar þessa frystihúss, en setur um ieið fótinn fyrir þá einu ráðstöfun sem gerir rekstur þess mögulegan. Utlit er vægast sagt mjög ískyggilegt sagði Helgi, hráefnis- þörf hússins mun verða um 5000 tonn á ári, en það er útilokað að þeir bátar, sem hér eru núna, geti fullnægt henni. Kvaðst hann ekki sjá aðra eða betri lausn á þessu vandamáli, en að fenginn yrði skuttogari, sem legði afla sinn hér upp. Þó að stjórnvöld landsins hefðu sett strik yfir allan inn- flutning á þessum skipum þá teldi hann fullkomlega réttlætanlegt að hér yrði gerð undantekning, því að við lægi bókstaflega líf þessastaðar. Þá kvaðst Helgi hafa gert þingmönnum kjördæmisins grein fyrir þessu vandamáli. Hið nýja frystihús er 2000 fermetrar á einum gólffleti og kostnaður við byggingu þess nemur um 150 milljónum króna. Afkastageta þess verður 35—40 tonn á dag miðað við 10 tíma vinnu. NYTT skip og bygginga- FRAMKVÆMDIR Aðrar framkvæmdír eru þær helstar að verið er að endur- byggja sundlaug staðaríns, en hún var lokuð allt síðastliðið ár vegna þess að búningsklefar hennar voru orðnir ónothæfir. Seint á siðasta ári var stofnað hlutafélag sem ber heitið Langa- nes h/f. Hlutafélag þetta er í eigu aðila hér á Þórshöfn og er nú verið að smíða fyrir það stálfiski- skip á Seyðisfirði. Skipið verður um 100 tonn að stærð og væntan- lega verður það afhent í maílok næstkomandi. Á vegum hreppsins verða byggð fjögur íbúðarhús í sumar. Þetta eru hin svonefndu Siglufjarðar- hús, en þau eru smíðuð í eining- um á Siglufirði og verða síðan reist og sett saman hér. Þá er í smíðum eitt ibúðarhús á vegum einstaklings. O.Þ Iðnskólinn á Akureyri 70ára Vegleg afmælishátíð Akureyri, 13. mars. Iðnskólinn á Akureyri tók fyrst til starfa 20. nóvember 1905, og var 70 ára afmælis skólans minnst með hátíðarsamkomu í skólasaln- um í dag. Hún var jafnframt vígsluhátíð skólahússins. Mjög margir gestir voru viðstaddir há- tíðina, en meðal þeirra voru Vil- hjálmur Hjálmarsson mennta- málaráðherra, Stefán Ölafur Jónsson deildarstjóri og tveir fyrr- verandi skólastjórar Iðnskólans, þeir Sveinbjörn Jónsson og Jó- hann Frímann. Halldór Arason, formaður skólanefndar, setti samkomuna og bauð gesti velkomna, en siðan flutti skólastjórinn, Jón Sigur- geirsson, ágrip af sögu skólans í 70 ár og stýrði eftir það samkom- unni. Formaður byggingarnefnd- ar hússins, Bjarni Einarsson bæj- arstjóri, lýsti ferli byggingarmáls- ins í stórum dráttum og afhenti síðan Jóni Sigurgeirssyni skóla- stjóra húsið til afnota með tákni gullins lykils. Jón Geir Ágústson byggingarfulltrúi, sem teiknaði húsið og hefir verið eftirlitsmað- ur með smíði þess af hálfu Akur- eyrarbæjar, lýsti húsaskipan og framtíðaráætlunum. Vilhjálmur Hjálmarsson Þrlr skólastjórar, talið fram vinstri: Sveinbjörn Jónsson, Jóhann Frfmann og Jón Sigurgeirsson. — Ljósm.: Sv.P. menntamálaráðherra flutti ræðu og bar fram heillaóskir til skól- ans, en Sveinbjörn Jónsson, fyrr- um forstöðumaður skólans og vildarmaður í hartnær hálfa öld rifjaði upp minningar frá þeim árum, þegar hann vann að endur- reisn skólans á erfiðleikaárunum upp úr fyrri heimsstyrjöldinni og kom upp húsi yfir hann i Lundar- götu 12, þar sem skólinn var til húsa 1927—1943. Ávörp og heillaóskir fluttu Sig- urður Óli Brynjólfsson, formaður skólanefndar Akureyrar, Bjarni Kristjánsson, rektor Tækniskóla Islands, og Guðbrandur Magnús- son, fulltrúi iðnnema, en þar að auki afhentu gjafir þeir Stefán Reykjalín, stjórnarformaður Slippstöðvarinnar h/f, Þór Sand- holt, skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík, Ingólfur Jónsson, for- maður Meistarafélags bygginga- manna á Norðurlandi, og Torfi Sigtryggsson, formaður Trésmíða- félags Akureyrar. Rausnarlegar gjafir bárust einnig frá Vélsmiðj- unum Odda og Atla, Sveinafélagi rafvirkja, Sveinafélagi járniðnað- armanna og Rafveitu Akureyrar. Heillaskeyti og blóm bárust víða að. Þjóðlagasöngflokkur undir stjórn Jóns Hlöðvers Askelssonar söng nokkur lög við mikla hrifn- ingu, en að lokinni athöfninni í sal skólans þágu gestir veitingar og skoðuðu hin vistlegu húsa- kynni. Iðnaðarmannafélag Akureyrar, sem stofnað var árið 1904, gekkst fyrir stofnun Iðnskólans, og voru aðalhvatamenn málsins þeir Jón Guðmundsson byggingameistari og Oddur Björnsson prentmeist- ari. Skólinn hóf starf í húsi Barnaskólans og var kvöldskóli eins og hann var allá tíð fram til 1955. Fyrsti skólastjórinn var sr. Jónas Jónasson frá Hrafnagili, en aðrir skólastjórar þar voru Adam Þorgrímsson og Lúðvík Sigurjóns- son. 1921 tekur Sveinbjörn Jóns- son við skólanum, sem fékk brátt inni í núverandi Menntaskólahúsi til 1927. Auk Sveinbjarnar veittu honum forstöðu Haukur Þorleifs- son og Halldór Halldórsson, þar til Jóhann Frímann tók við skóla- stjórn 1927, en hann stýrði skól- anum til 1939 og aftur 1942 til 1955. Jón Sigurgeirsson hefur verið skólastjóri 1939—1942 og frá 1955 til þessa dag. Eins og áður sagði var skólinn í eigin hús- næði i Lundargötu 12 1927—1943, Framhald á bls. 18 "MÁLASKÓLI“26908* 0 Lestrardeildir undir landspróf: 0 Enska £ Danska Q íslenzka 0 Stærðfræði 0 Kennsla hefst 1 . apríl. Auk þess kennum við landsprófsnem- endum eðlisfræði. -26908—HALLDÓRS- Alþingismenn (jg borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf- stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá klukkan 1 4:00 til 1 6:00 Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend- ingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa Laugardaginn 20. marz verða til viðtals Pétur Sigurðsson, alþingismaður Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi Gústaf B.^inarsson, varaborgarfulltrúi Gústaf Pétur Magnús VIÐTALSTIMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins \ Reykjavík Iðnskólinn á Akureyri. — Ljósm.: E. Sigurgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.