Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
23
stórbrotinn persónuleiki. Hann
var vinafastur, frændrækinn og
gestrisinn með afbrigðum. Hygg
ég að barátta unglingsáranna og
hinir fjölmörgu sigrar hans í lifs-
baráttunni hafi mjög mótað við-
horf hans. En svo stór sem hann
var i lund, þá átti hann i ríkum
mæli til að bera hlýju og hrif-
næmi. Kom það best fram i þvi,
hve barngóður hann var alla tið
og hve börn hændust að honum.
Og vissulega var hann einkar
fundvís á hinar björtu og jafnvel
skoplegu hliðar lifsins.
Jónas kvæntist árið 1947 eftir-
lifandi konu sinni, Maríu Frið-
leifsdóttur frá Hellissandi. Var
sambúð þeirra alla tíð mjög
einlæg og heimili þeirra einstakt
sakir myndarskapar í hvivetna.
Voru þau hjónin einkar samhent
við að byggja upp og fegra
heimilið og varð árangurinn eftir
þvi. Jónas var flestum mönnum
meira snyrtimenni. Var sama
hvort hann vann erfiðisvinnu á
sjó eða verslunarstörf í landi.
Handbragð hans og öll umgengni
var til sérstakrar fyrirmyndar.
Þau Jónas og María eignuðust
ekki börn en ólu upp Hjördísi
systur Maríu og gengu henni í
foreldra stað. Hjördis er gift
Guðmundi Gígju lögreglumanni
hér i borg.
Enda þótt burtköllun Jónasar
bæri svo brátt að og sár harmur sé
kveðinn að konu hans og nánustu
ættingjum, þá hygg ég að Jónas
hefði helst kosið að kveðja
þennan heim og leggja upp i ferð-
ina miklu á svipaðan hátt og raun
varð á. Hann féll óbeygður og
óbrotinn á besta aldri. Glaður og
reifur var hann til síðustu
stundar. Sáttur við lífið og fylli-
lega hamingjusamur eftir vel
unnið dagsverk. Þannig var hann,
þegar ég hitti hann síðast fyrir
fáeinum dögum. Hann ræddi af
brennandi áhuga um áætlanir
varðandi framtiðina, bjartsýnn og
alls ókvíðinn að vanda.
Eg og fjölskylda mín vottum
Mariu dýpstu samúð i hennar
mikla harmi og biðjum guð að
styrkja hana og leiða á ókomnum
árum.
Ástbjartur Sæmundsson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á I mið-
vikudagsblaði, að berast í sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu rnáli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
lfnubili.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Hvernig getur þú náð tökum
á markaðinum?
Stjórnunarfélagið gengst fyrir sölunámskeiði að Skipholti 37 mánud.
22. marz, þriðjud. 23. marz, miðvikud. 24. marz, fimmtud. 25. marz
og föstud. 26. marz kl. 1 5.00—1 9.00 alla dagana.
Fjallað verður m.a. um:
if Hvernig má finna nýja markaði?
if Hvernig má örva hugmyndir að nýjum
vörum?
if Hegðun kaupanda.
if Æviskeið vara
if Söluhvetjandi aðgerðir og beiting þeirra.
Leiðbeinandi er Bryjólfur Sigurðsson dósent.
Þátttaka tilkynnist í síma 82930.
Aðalfundur
Verzlunarbanka
Islands h/f
verður haldinn i Kristalssal Hótel Loftleiða,
laugardaginn 27. marz 1 976 kl. 14.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr.
samþykkta.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í afgreiðslu aðalbankans, Banka-
stræti 5, miðvikudaginn 24. marz, fimmtudag-
inn 25. marz og föstudaginn 26. marz 1976 kl.
9.30—12.30 og 13.30—16.00.
Bankaráð Verzlunarbanka íslands h/f
Þ. Guðmundsson, formaður.
e9ir>u
74.3r
Allar
veitingar
Bólstrarar —
Húsgagnaverzlanir
Höfum og erum að fá mikið úrval af
ÁKLÆÐUM
Heildsölubirgðir.
Davíð S. Jónsson og Co. h.f.
Sími 24-333.
Vönduð karlmannaföt
nýkomin
tækifæriskaup, kr. 10.975.00. Flauelsbuxurn-
ar eftirspurðu nýkomnar, verð kr. 2060.00.
Glæsilegar skíðaúlpur nýkomnar kr. 5000.00.
Terylenebútar kr. 670.00 í buxurnar (1.30 m).
Sokkar kr. 130.00, terylenebuxur og fleira
ódýrt. Opið föstudag til kl. 7 og laugardag til kl.
12 Andrés, Skólavörðustíg 22.
^ KVENNADEILD
—i i— Reyklavíkurd. R.K.Í.
Fræðsla um
sjúkravinastarf
Kvennadeildarinnar
hefst miðvikudaginn 24. mars kl. 20.30 I
kennslustofu Rauða kross íslands Nóatúni
21. Flutt verða erindi um eftirfarandi efni:
1. Rauði krossinn og
starfsemi Kvennadeildar
2. Störf í sjúklingabókasöfnum
Væntanlegum sjúkravinum er næstu daga
gefið tækifæri til þess að kynnast starfsemi
sjálfboðaliða í sjúklingabókasöfnum og sölu-
búðum, en fræðslunni lýkur 7. aprll með
erindum um:
1. Velferðarmál aldraðra
2. Framkomu í starfi
Væntanleg þátttaka tilkynnist í síma 28222
eða 14086 í siðasta lagi 22. mars.
Athugið:
Þær konur, sem fengið hafa skírteini sjúkra-
vina, eru ekki I starfi, en vildu leggja starf-
seminni lið nú, eru beðnar að hringja I sima
14086 eða 15205.
STJÓRNIN.
Blaðburðarfólk
AUSTURBÆR HAAHLIÐ
UPPL. í SÍMA 35408
Seljum meðan birgðir endast
STÖK BORÐST OFU BORÐ
á niðursettu verði
H.P. HÚSGÖGN
Grensásvegi 12