Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 25

Morgunblaðið - 18.03.1976, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 25 Stúlkurnar þrengdu að popskrifaranum, því að hann hafði þó altént talað við átrúnaðargoðin. + Skozka hljómsveitin Bay City Rollers nvtur mikilla vinsælda í Danmörku. Fvrir skemmstu stormuðu fimmtlu ungir aðdá- endur hljómsveitarinnar inn á ritstjórnarskrifstofur Ber- lingske Tidende í Kaupmanna- höfn, allir I skozku pilsi og báru fyrir sér fána og piaköt. Stúlkurnar, þvf að allt voru þetta stúlkur á aldrinum 12—17 ára, þyrsti og hungraði eftir nýjum fréttum af átrúnað- argoðum sínum. Þær vildu ná tali af Sven Wezelenburg, pop- fréttamanni blaðsins, því að ef ekki er hægt að tala við draumaprinsana sjálfa er þá skömminni skárra að geta talað við þann, sem hefur talað við þá. Lisbeth segir að hún hafi safnað 1500 mvndum og 200 plakötum af drengjunum og vinkonurnar Gitte og Inge voru ekki heldur á flæðiskeri stadd- ar. A hljómleikum í Kaup- mannahöfn á síðasta ári tókst þeim að klippa bút úr buxum Woodvs, eins úr hljómsveit- inni. Annar ákafur aðdáandi er Inge, sem á gosflösku, sem sá vinsælasti I hljómsveitinni hef- ur drukkið úr. „Flaskan var hálffull þegar hann setti hana frá sér, og ég var I sæluvímu, þegar ég, í aug- sýn allra, hvolfdi afgangnum I mig,“ er haft eftir Inge. + Nei, það er ekki Ómar Ragn- arsson sem hér hefur brugðið sér I gervi Jóa útherja heldur sá litrfki rokkari Elton John. Á dögunum brá hann sér til Los Angeles til að taka á móti nýj- asta starfsmanni sínum, stór- stjörnunni Georg Best, sem nú hefur skipað sér I raðir Aztek- anna i Los Angeles, en þar á Elton John stóran hlut. „Það eru nokkrir ágætir strákar I lióinu,“ sagði Best um Aztek- ana, sem urðu þriðju I sinni deild, „en ætli okkur veiti af nokkrum i viðbót." Ástin dofnaði + Bandarískur maður, Dewey Simpson frá bænum Toledo, hefur krafist skaðabóta af nið- ursuðuverksmiðju I heima- landi sínu, og nemur bótakraf- an 2,5 milljónum bandaríkja- dala. „Hinn 16. janúar 1975 fann kona min, Lucille, dauða mús i dós innan um niðursoðna tómata. Hún fékk slæmt tauga- áfall, sem haft hefur i för með sér afdrifaríkar og varanlegar breytingar í för með sér á per- sónuleika hennar. Aður var hún t.d. hin ákafasta er við elskuðumst — en nú er hún hrædd og áhugalaus," segir hinn fokreiði eiginmaður. B'O'BB & B'O' VÖ2-//-»4‘ -5 /“G-MÚAJD “■ + Muhammad Ali sýndi það og sannaði i London ádögunum að hann hefur munninn fyrir neðan nefið. Blaðamaður spurði hann hvort hann gæti líka „hugsað hátt“ Og Ali svaraði honum með tæknilegu rothöggi: „Já, vissulega, en þó ekki á blaða- mannafundum. Þar verð ég að hugsa smátt af tillitssemi við blaðamenn." Leyniþjón ustan rak vœndishús + Breska leyniþjónustan rak tvö vændishús í Belfast, höfuð- borg Norður-Irlands, um tveggja ára skeið. Tilgangurinn með þessum rekstri var að afla upplýsinga hjá málsmetandi mönnum. Þetta kemur fram i grein i marshefti enska tima- ritsins Penthouse. Eftir því sem blaðið segir faldi levni- þjónustan mvndavélar og hljóðnema I vistarverum vænd- ishússins og voru öll tækin i sambandi bæði árin, sem starf- semi þessi stóð yfir, eða þar til frski lýðveldisherinn, IRA, lok- aði húsinu. Greinarhöfundur- inn heldur fram, að vændiskon- urnar hafi fengið sem svarar 180 þúsund isl. krónum f sinn hlut á viku fyrir að gangast undir þagnarskylduna. V al^ísgögijjÍ Vinsælu unglinga- skrifborðin aftur fáanleg t þrem lit- um. Verð aðeins kr. 21.250.— Vitjið pantana sem fyrst. Valhúsgögn, Ármúla 4, sími 82275. SJONVARPS BINGÓ Spjöldin i sjónvarps- bingóinu fást i eftirtöld- um verzlunum: H. Biering Laufavegi 6 Gevafoto Austurstræti 6 Gunnar * Asgeirsson Suðurlandsbraut 16 Verzl. Perlon Dunhaga 1 8 Póstsendum Skóverzlun Þóröar Péturssonar Krikjurstræti 8 v/ Austurvöll, simi 14181. Herradeild P£tÓ Austurstræti 1 4 Magnús Benjamínsson Veltusundi 3 Vörumarkaðurínn Ármúla 1 a Hljóðfærahúsið Laugavegi 96 Lúllabúð Hverfisgötu 61 Músik & Sport Hverfisgötu 25 Hafnarfirði Ennþá er hægt að vera með því eftir á að draga út ca 20 — 25 tölur. Eftirfarandi tölur eru komnar: 13. 27. 61, 24, 9, 71 . 8, 64, 14, 60. 19, 21, 2 . 6, 25, 4, 16, 68. 51, 44, 70, 1, 67, 75. 18, 28, 54. 56. 34, 66, 37, 50, 42, 58, 41 og 39 Næstu tölur birtast í sjónvarpinu á morgun Lionsklúbburinn ÆGIR EFÞAÐERFRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.