Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 29
29 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976 VELVAKAIMDI Velvakandi svarar i sima 10-100 kl 14—15, frá mánudegi til föstu- dags 0 Mjólkurskortur — sjálfsbjargar- viðleitni Guðrún og Kristín skrifa i fram- haldi af bréfi um mjólkurskort- inn og lætin að ná sér i dreytil, þegar hún kom: Við erum víst ekki fædd með kristilegt hugarfar, og ekki erum við fædd sósialistar. Við erum fædd með sjálfsbjargarviðleitn- ina að veganesti frá náttúrunni. Verkföli eru ekki kristileg og ekki frá náttúrunni, en þau eru dæmi um sjálfsbjargarviðleitni. Fáir borgarbúar vita hvað það er að þurfa að fara í fjósið kvölds og morgna alla daga, gefa og heyja. Borgarbúi er duglegur er hann nælir sér i mjólk, jafnvel er hana skortir. (Misdreifing mjólk- ur er lítið magn barst þ.e.: s.st. var ónóg mjólk s.st. afgangs, olli miklu um sögurnurnar af vona fólkinu,) Hafið þið nokkurn tima lesið lýsingar af Leningrað umsáturs- áranna? Ungir feður börðu niður gamalt fólk til þess að stela skömmtunarseðli þess. Þjóðfé- Iagsólga kemur niður á þeim sem ekki taka þátt i leiknum. En ein björt hlið er á mjólkur skortinum (fyrir fleiri en safa- og gos- drykkjaframleiðendur): Við sjá- um, hve gott er að hafa mjólk, nóga niðurgreidda mjólk. „Roskinn maður“ sagði Velvak- anda að hann vorkenndi fólki sem var duglegt að krækja sér i nóga mjólk er hörgullinn var. Guð vor- kennir því eflaust líka. Björn Jónsson vorkennir ekki þeim sem þyrstir í mjólk. Jafnvel ekki fá- tæku verkamannabörnunum. 0 Nútímatónlist — gömul tónlist Nonni skrifar: Það var þetta með hina sönnu tónlist, sem einn ágætur bréfrit- ari talaði um i siðasta laugardags- blaði, þar sem hann bar mikið lof á tónlistarkynningu Atla Heimis Sveinssonar tónskálds i útvarpi. I tónlistarkynningu þessari rekur Atli sögu og þróun klassískrar tónlistar. Nú er þróunarsaga Atla komin að háþróaðri nútimatón- list, sem er alþýðufólki mjög tor- melt. í okkar stressaða og sturlaða nútíma leiðir það af sjálfu sér að þeir sæki hugmyndir um geð- brigði og athafnir einnig i sam- timann. Og svo eru það áhrif tónlistar. Ég leyfi mér að segja að áhrif svo kallaðrar nútíma tónlistar séu ekki heppileg fyrir fólk, sem að loknum vinnudegi vill slappa af og allt bendir til að peningarnir hafi lent i höndum þeirra Morg- uninn eftir réðust þeir inn í hvert hús, þar sem einhver bjó sem þeir grunuðu um að vera i samtökun- um. Þeir gerðu lika árás í hús Herault læknis, húsið yðar. Lækn- irinn var i burtu og tókst að koma tii hans boðum svo að hann færi ekki heim. Hann fór siðan huldu höfði. Ian Richardsson var skot- •nn þegar hann reyndi að komast undan. Móðir yðar og Madeleine komust einnig undan, en Made- leine hafði orðið fyrir skoti og lézt nokkru sfðar. Herault læknir sagði mér það. — Rg sá nafn lan Richardsson á minnismerkinu í garðinum, sagði David. — en nafn Madeleine Her- ault er ckki þar. — Ég veit ekki hvernig á því stendur, sagði Marcel. — Kannski er það bara yfirsjón. Ég held fað- ir hennar hafi dáið áður en minn- ismerkið var reist. Kannski var það líka vegna þess að hún dó I raun óg veru ekki 1 átökunum, heldur siðar, þó svo það væri af völdum þýzkrar byssukúlu. Það voru svo margir skotnir um þetta leyti. Þjóðverjarnir voru brostnir á taugum og þrálátur orðrómur og leita á náðir draumkenndrar fortfðar. Því af eigin reynslu get ég sagt að miðdegistónleikarnir í útvarpinu gera mann syfjaðan og sljóan, en eftir að hafa hlustað á Atla Heimi er maður hreint i rusli. Svo raunsæ er hans tónlist. Svo er það þetta orð „nútíma- tónlist". Er það ekki of afstætt til þess að geta verið nafn yfir til- tekna tegund tónlistar? Persónu- lega finnst mér það vera orð yfir alla tegund tönlistar? Persónu- lega finnst mér það vera orð yfir alla tónlist samtímans. Því ekki að kalla tónlist þetta NÝ- KLASSÍSKA tónlist, sem i ald- anna rás getur svo flokkast undir klassíska tónlist almennt. Það er skemmst frá að segja að mér fannst lof ofangreinds bréf- ritara dálítið öfugmælakennt svo mér datt í hug að skrifa nokkur orð um tilverurétt þessarar tón- listar gagnvart gamalli klassiskri tónlist, þó ekki sé ég eldheitur aðdáandi hennar. Klassiskur tónlistarflutningur ríkisútvarpsins einskorðast und- antekninga-laust við gömlu stóru skáldin og flest þau gömlu stóru skáld hafa frá upphafi leitast við að túlka hljóð úr náttúrunni svo sem fuglasöng, regn o.fl. Einnig hafa þeir reynt að túlka athafnir og ýmis geðbrigði mannskepn- unnar. Allt telst til náttúrunnar hversu tvírætt sem það er, jafnvel eggja- skerinn þinn og kartöflupottur- inn þinn eru náttúrulegir hlutir og á hvort tveggja geturðu spilað. Þar sem náttúruleg hljóð á borð við fuglasöng verða æ sjaldgæf- ari i nútima þjóðfélagi er ekki óeðiilegt að nú-klassisk tónskáld leiti ejcki langt yfir skammt og sæki fyrirmyndir sínar og hug- myndir til samtímans. Að lokum vil ég spyrja þig i öðru máli Velvakandi góður. Ný- lega rakst ég á auglýsingu i Morg- unblaðinu, sem var eitthvað á þessa leið: Dömur! . . . Loksins: (vöruteg. ...) ..PERFUMIÐ" sem angar eins og skógur i vor- regni. Eg leyfi mér að halda að „perfumið-' eigi hér að koma i stað orðsins „ilmvátnið" sam- kvæmt enskri orðabók. Er það verjandi að dagblöð láti slíkar fá- viskulegar og ósmekklegar slettur blómgast þó ekki sé nema í aug- lýsingum? 0 Þriðji maður- inn aftur Kvikmyndaunnandi bað Vel- vakanda að koma því á framfæri að sjónvarpið endursýndi kvik- myndina „Þriðji maðurinn" með Orson Welles áður en hún fer af landi burt. Þetta er orðin sigild mynd og sjónvarpið gerði það á sínum tíma að endursýna góðar myndir. Þær eru nú orðnar svo fáar, að ekki ætti að vera erfitt að framfylgja því. Semsagt hér er framborin ósk um endursýningu á „Þriðja manninum“. Lesendur hafa komið að máli við Velvakánda og lýst ánægju sinni með kvikmyndina í barna- tímanum á laugardögum, um hana Pollyönnu. Börnin lifa sig svo inn í hana, að á fleirum en einu heimili setti að þeim grát og ekka i síðasta þætti, sem lauk með þvi að Pollýanna lá meðvitunar- laus — eða dáin eins og þau héldu — eftir slys. En óneitanlega er nokkuð langt fyrir börn að biða í héila viku eftir þvi að vita hvort Pollyanna er dáin. Frá því sjónar- miði endaði síðasti kaflinn ekki mjög heppilega. En hún sem sagt dó ekki — heldur slasaðist illa, ef einhver vill geta sagt barni sínu það. HÖGNI HREKKVÍSI Aðalfundur Club Mallorca verður haldinn í félagsheimili Vals við Hlíðar- enda ÞRIÐJUDAGINN 23. MARZ kl. 20.30 Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Stjórnin ( Alumanation ÁLÞEKJA í stað bárujárnsklæðingunnar fyrir nýtt sem gamalt Ál-þekjan, sem hefur slegið í gegn I Banda- ríkjunum og víðar og í Evrópu. Ál-þekjan er þakklæðning sem kemur í stað bárujárns- klæðningar, og hana þarf ekki að mála og ekki er hætta á, að þessi þekja fjúki af þótt mikið blási. Geri einnig við sprungur. Vinnuaðferð: Lagður er á þakið asfalt pappi 3 — 5 m.m. þykkur, skeyttur saman með álgirði, þéttnegldur og lagt í alco- hesivi (undirlímsefni) borið á Four Seasons þéttefni sem er kalt, fljótandi efni, sem inniheldur ASFALT GILSONIT og „FIBERED ALMINIUM" og OLÍUR, sem harðna ekki um of. í FOUR SEASONS er lagt gler-trefja motta. Frágangur á steyptum köntum og útventlum er sam- kvæmt algildri reglu hérlendis. Þar sem þessi klæðning er borin yfir allan flötinn, er ekki um nein samskeyti að ræða, og minnkar því hitakostnaðurinn, þar sem það er mjög góður hita-einangrari. ÞETTA EFNI BRENNUR EKKI, EFTIR AÐ ÞAÐ HEFUR VERIÐ BORIO Á. ATHUGIÐ Húseigendur um land allt, sem eiga eftir aS gera fokheld hús sín, eru minntir á að leita tilboSa i tlma, Þar sem rannsóknir á rannsóknarstofum erlendis hafa leitt í Ijós, aS klæSning þessi þolir vel seltu og jarSvegssýru og rySgar ekki og er klæSning þessi kjörin [ sjávarplássum. Að lokum: 1. 1 0 ára ábyrgð á efni og vinnu. 2. Málning er óþörf. 3. Álþekjan ryðgarekki. 4. Verkið unnið af fagmönnum, sem numið hafa í Bandaríkjunum. Upplýsingar gefnar i sima 20390 milli kl. 1 9 — 20 á kvöldin. VÖRUNAUST S.F.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.