Morgunblaðið - 18.03.1976, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1976
Rwkjavílarnint í hoðpigu eitir 20 ára hlé:
Sveií SR sigraði
REYKJAVIKURMEISTARAMOT í 3x 10 km skíðaboðgöngu var haldið
við Sktðaskálann I Hveradölum slðastliðinn laugardag. Sigurvegari
varð sveit Skíðafélags Reykjavfkur, en 1 henni voru þeir Páll Guð-
björnsson, Matthfas Sveinsson og Ingólfur Jónsson. Þess má geta að
um það bil tveir áratugir eru nú liðnir frá þvf að sfðast var haldið
Reykjavfkurmót f þessari grein.
I 2. sæti i keppninni var sveit Skíðadeildar Hrannar, en þriðja varð
b-sveit Skíðafélagsins. Verðlaunaafhending fór nú fram i fyrsta skipti
á hinum nýja verðlaunapalli Skíðafélags Reykjavíkur. Sæmilegt veður
var til keppni og var Skarphéðinn Guðmundsson göngustjóri, en
Haraldur Pálsson brautarstjóri.
KR-ingar í sérílokki
í liðakeppni í borðtennis
KR-IN(iAK hafa mikla yfirburði í flokkakeppninni í
borötennis sem nú er vel á veg komin. Ekkert liö á
möguleika á aö ná KR-ingum í meistaraflokki, en í
flokki unglinga gætu Koflvíkingar náö aö ógna veldi
KR-inganna.
STAÐAN f flokkakeppni tslands-
mótsins í borðtennis er nú þessi:
Karlaf lokkur:
KR 8 8 0 0 48:14 16
Keflav. 6 4 11 32:19 9
Gerpla 8 3 1 4 27:36 7
Örninn 4 2 0 2 18:14 4
Akranes 5 1 0 4 14:26 2
Víkingur 9 r 0 8 21:51 2
Unglingar: KR 7 7 0 0 21:3 14
Keflav. 6 5 0 1 15:4 10
Örninn 6 2 0 3 8:9 4
Gerpla 7 2 0 5 7:15 4
Víkiitgur 6 0 0 6 1:21 0
Islendingar og Norðmenn kepptu í júdó hér á landi f síðasta mánuði
og lauk viðureigninni með fra-knum sigri íslenzku júdómannanna.
Meðfvlgjandi mvnd sýnir Gísla Þorsteinsson leggja annan andstæðing
sinn, en Gísli vann báðar glímur sínar. (Ljósm. Jóh. Ilcðinsson).
ísfirðingar í fyrsta
skipti meðal keppenda
á Islandsmótinu í júdó
Íslandsmótiö í júdó hefst á laugardaginn og verður Jxá
keppt í öllum þyngdarflokkum karla en þeir eru fimm
að tölu. Þátttaka í mótinu er mjög mikil og eru skráöir
keppendur frá sex félögum. Þess má geta aö tsfirðingar
veröa nú í fyrsta skipti meðal keppenda á meistaramót-
inu f Júdó.
Allir beztii júdómenn landsins
verða meðal keppenda, m.a.
munu allir Islandsmeistararnir
frá þv; í fyrra reyna að verja titla
sína að þessu sinni. Þeir eru Svav-
ar Carlsen JFR. Benedikt Pálsson
•JFR, Sigurjón Kristjánsson .JFR.
fíalldór Guðbjörnsson JFR og Jó-
hannes Kristjánsson UMFG. Það
verður þó ekki auðvelt fyrir alla
þessa kappa að verja titla sína.
Má í því sambandi nefna sterka
júdómenn sem til alls eru líklegir,
t.d. þá Gísla Þorsteinsson Ar-
manni, Viðar Guðjohnsen Ar-
manni, Omar Sigurðsson UMFK
og Sigurð Pálsson JFR
Ætla má að úrslitín í þessu móti
ráði miklu um það hverjir verða
valdir til að keppa fyrir Islands
hönd á Norðurlandamótinu 1976,
en það verður í Gautaborg í næsta
mánuði.
Keppnin hjá köriunum á
laugardaginn verður í Iþróttahúsi
Hagaskólans og hefst klukkan
14.00. A sunnudaginn verður svo
keppt í þyngdarfiokkum kvenna
og fer sú keppní fram í æfingasal
JFR að Brautarholti 18 og hefst
klukkan 14.(X).
Lyftingamót
Reykjavíkurmót í lyftingum
verður haldið mánudaginn 5.
apríl. Þátttökutilkynningar þurfa
að berast til Ölafs Sigurgeirsson-
ar formanns Lyftingadeildar KR í
síma 19484 fyrir 29. marz. Þátt-
tökugjald er 500 krónur á kepp-
anda.
BILLY Haydock, sem ráðinn hefur veriö þjálfari 1. deildariiðs Víkings, kom til
landsins á mánudaginn. 1 fyrrakvöld var fundur meö leikmönnum Víkings og enska
þjálfaranum og smellti RAX þá þessari mynd af. Var ekki annað að sjá en vel færi á
með Englendingnum og knattspyrnumönnum Vfkings, enda ekki við öðru að búast.
Fyrsta æfingin var svo f gærkvöidi, þrekæfing í Baldurshaga.
Ungu risarnir til Tyrklands innan skamms:
Sá stœrsti í hópnurn er
2J7moger€imáiistoekka
ELDRA unglingalandslið fslands f körfuknattleik heldur senn utan til þátttöku f
Evrópukeppni unglinga (juniora) í körfuknattleik, og er ferðinni heitið til Tyrk-
lands. Þar leikur fsland f riðli með Tyrklandi, fsrael, Tékkóslóvakfu, Englandi og
Finnlandi.
HINN hávaxni Pétur Guðmundsson hefur leikið 15 unglingalandsleiki
fyrir tslands hönd og hefur þvf mikla leikreynslu að baki eins og fleiri
leikmenn unglingalandsliðsins f körfuknattleik. (AP-mynd).
Það lið sem tekur þátt í þessu
móti fyrir tslands hönd er skipað
nær öllum þeim sömu piltum sem
kepptu á Evrópumeistaramóti
unglinga (cadetta) i Grikklandi
fyrir ári siðan, en þar náðu pilt-
arnir mjög athyglisverðum
árangri. Þeir unnu þar m.a. lið
Austurríkis, Englands og Skot-
lands, en töpuðu naurhlega mörg-
um leikjum, m.a. fyrir frökkum
sem eru mjög hátt skrifaðir f
körfuknattleik í Evrópu.
Það er því ekki að ástæðulausu
að miklar vonir eru bundnar við
þessa ferð liðsins til Tyrklands,
og ein af meginastæðunum fyrir
þeirri bjartsýni er sú að piltarnir
hafa fengið mikla keppnis-
reynslu. Sumir þeirra hafa leikið
15 unglingalandsleiki, og margir
eru þeir meðal sterkustu leik-
manna liða sinna í 1. deild.
Piltarnir hafa æft mjög vel
undir stjórn þeirra Gunnars
Gunnarssonar og Kristins
Stefánssonar í allan vetur, og auk
þess verið ólatir í sambandi við að
afla fé til fararinnar. Slikt er
höfuðforsenda þess að févana
samband eins og K.K.Í. geti sent
lið ár eftir ár í jafnkostnaðarsam-
ar ferðir og þessi er, en strákarnir
hafa verið boðnir og búnir að gera
hvað sem fyrir þá hefur verið
lagt, og drjúgar upphæðir hafa
runnið f sjóð þeirra.
Upp úr mánaðamótunum
kemur Pétur Guðmundsson heim
til íslands í leyfi frá námi sínu, og
mun hann æfa með liðinu og fara
með því til Tyrklands. „Big man“
eins og Pétur er kallaður í skóla
þeim sem hann nemur við í
Bandaríkjunum hefur leikið 15
unglingalandsleiki og er örugg-
lega í hópi efnilegustu miðherja í
Evrópu í dag. Það er erfitt að
henda reiður á stærð hans, því að
hann er ekki hættur að stækka
enn samkvæmt þeim fregnum
sem við höfum fengið af honum
frá Bandaríkjunum. En sam-
kvæmt síðustu ,,tölum“ mun
piltur vera 217 cm á hæð, og fer
vel með það allt saman. Þarna er
framtfðarmiðherji okkar á ferð-
inni. og vonandi gefst fsl. körfu-
knattleiksáhugamönnum kostur á
að sjá hann í leik áður en hann
heldur utan með unglingalands-
liðinu. gk-.
Iþróttamiðstöð-
in á Laugarvatni
Frestur til að senda inn um-
sóknir um dvöl í íþróttamiðstöð
ISf á Laugarvatni rennur út 26.
þessa mánaðar. Verður síðan
gengið frá úthlutun til einstakra
aðila um næstu mánaðamót. Allt
að 60 manns geta dvalist samtímis
í Iþróttamiðstöðinni og dvalar-
kostnaður verður 1150 krónur á
sólarhring fyrir hvern þátttak-
anda.
Sisu sigraði
SISU sigraði í úrslitaleik
dönsku bikarkeppninnar í körfu-
knattleik, en mótherji liðsins í
þeim leik var Falcon, en það lið
varð bikarmeistari í Danmörku í
fyrra. Úrslit leiksins urðu 79—70
fyrir SISU, eftir að staðan hafði
verið 43—39 í hálfleik.