Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 1
32 SÍÐUR 66. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Solzhenitsyn segir Bretum til syndanna: „Þið sýnið óviðjatnanlega dirfsku gagnvart íslandi!” ALEXANDER Solzhenitsyn kom í gærkveldi fram í BBC 3, þar sem haft var við hann viðtal. í viðtal- inu var Solzhenitsyn ómyrkur í máli um Breta og skammaði þá blóðugum skömmum fyrir utan- ríkisstefnu þeirra. Máli sínu til stuðnings nefndi hann deilu Breta og íslendinga og framferði Breta gagnvart þjóð, sem ekki einu sinni hefði bolmagn til þess að svara þeim í sömu mynt. Kvað hann Bretland nú ekki vera meiri bóg í alþjóðamálum en t.d. Uganda. Kvað hann Breta jafnvel dýpra sokkna en Uganda. Brezka blaöið Daily Mail birti i gær hluta úr þessu viðtali og er þessi frásögn Mbl. byggð á upplýsingum um viðtalið, sem þar komu fram. Solzhenitsyn sagði í þessu viðtali að Bretar væru ekki meira virði en t.d. Rúmenia. „Bretar eru þjóð, sem þjáist af sjálfsblekkingu, og er þjóð, sem er minna virði en Rúmenía eða Uganda. Bretar eru þjóð með reynslu, en styrkur hennar og viljafesta er að þorna upp. Slikt hefur ekki gerzt í jafn rikum mæli með nokkurri annarri þjóð.“ sagði Alexander Solzhenitsyn. Síðan sagði rússneski rithöf- undurinn: ,,í um 20 ár hefur rödd Breta ekki heyrzt á þessari jörð okkar. Persónueinkenni þeirra eru horfip og ferskleiki þeirra er að dvína." í talsvert löngu máli ásakar svo Solzhenitsyn Breta fyr- ir að vera ávallt fyrsta til þess að viðurkenna harðstjórnir, hversu langt sem þær eru i burtu. Þá minntist rithöfundurinn á ísland og sagði m.a.: „Þegar þið urðuð leiðir á einhverjum hlut," sagði Solzheitsyn biturlega, „og ákváðuð að staðfesta hreysti ykkar i augum umheintsins og endurheimta sjálfsvirðingu ykkar, þá sýnduð þið óviðjafnan- lega dirfsku gagnvart Islandi, gagnvart Spáni — löndum sem ekki gátu svarað isömu mynt." Þá ræddi Alexander Solzhenitsyn um þá viðburði, er Sovétrikin sendu skriðdreka inn i Austur-Berlin, Búdapest og Prag. Þá létu Bretar ekki svo lítið að kalla sendiherra sina heim. Það gerðu þeir heldur ekki, þótt her- fangar væru drepnir i Suðaustur- asíu. En þegar 5 hryðjuverka- menn voru drepnir i Madrid, þá var brezki sendiherrann sam- stundis kallaður heim. Þá barst Mbl. i gær fréttaskeyti frá Reuter-fréttastofunni, þar sem skýrt er frá viðtalinu við Solzhenitsyn. Hann segir sam- kvæmt Reuter, í viðtalinu við BBC, að sovézka þjóðfélagið, sem „hafi verið deyft i hálfa öld af lygum," búi þó enn yfir ákveðinni getu til þess að skilja hina raun- verulegu merkingu hlutanna. Hins vegar hafi „þjóðfélög, sem aðgang hafa að upplýsingunt af öllu tagi, skyndilega fallið i dásvefn, eins konar múgblindu". Sjálfsblekking Vesturlanda væri 10 sinnum hraðvirkari en þróun i átt til upplýsinga í Aust- urlöndum. „Þetta er það sem næstum sviptir mannkynið allri von um að forðast megi alheims- hrun." Rithöfundurinn sagði, að þar til hann hefði komið til Vest- urlanda „hefði ég aldrei getað imyndað mér, hversu Vestur- landabúar hafa í gifurlega ríkum mæli viljað blinda sjálfa sig á ástandinu i heimsmálunum." Hann líkti lífi á Vesturlöndum við lífið i Rússlandi fyrir 1917, rétt áður en byltingin varð. „Það sem við sjáum er ávallt hið sama, fullorðið fólk beygir sig undir skoðanir barna sinna, yngri kyn- slóðin lætur glepjast af grunn- hyggnum, gagnslausum hug- myndum, prófessorar eru hrædd- ir við að vera gamaldags. . . almenn samúð með byltingarsinn- uðum öfgaöflum." Solzhenitsyn sagði að á Vesturlöndum gæti enginn sem væri á leið til flug- vallar verið viss um að hann yrði ekki skotinn niður „af ein- hverjum „baráttumanni" fyrir frelsi eins eða annars". Gangi maður eftir götu, getur maður Framhald á bls. 31 Herinn tók völdin í Argentínu Æsingalaust í landinu □------------------------------□ Sjá grein á bls. 15 □------------------------------□ Buenos Aires 24. marz — Reuter—AP. HERINN í Argentlnu steypti Maríu Estellu Peron, forseta landsins, af stóli iaust eftir há- degi í dag. Þegar þriggja manna sendinefnd hersins var á leið til Maríu Estellu til að krefjast af- sagnar hennar, yfirgaf hún stjórnarbygginguna I þyrlu. Skömmu sfðar var hún handtek- inn á flugvelli við höfuðborgina, og er talið vfst að hún hafi ætlað að flýja land. Þegar hermenn um- kringdu Mariu Estellu til að handtaka hana dró hún upp skammbyssu, en fékk ekki ráð- rúm til að beita henni þar sem hún var skjótlega afvopnuð. Talið er að henni verði leyft að leita hælis áSpáni. Þrfr yfirmenn hersins lýstu þvf yfir í athöfn, sem var sjónvarpað, að þeir færu nú með öll völd f landinu. Hafa þeir heitið þvf að koma á röð og reglu f landinu, en að auki hafa þeir afturkallað um- boð þings og byggðastjórna, sett dómara við æðsta dómstól lands- ins af, og bannað starfsemi stjórnmálaflokka og verkalýðs- hreyfingar fyrst um sinn. Við athöfnina hvatti herstjórn- in þjóðina til að sýna stillingu og kvað byltingu hafa verið nauðsyn- lega til að binda enda á öngþveiti það sem ríkt hefur að undan- förnu. Ekki varð vart við átök í sam- bandi við valdatöku hersins, að öðru leyti en þvf að einu sinni kvað við skothvellur í mið- borginni. Þá hafa starfsmenn f fjórum vélaverksmiðjum i Cordoba boðað sólarhringsverk- fall til að mótmæla byltingunni. I Buenos Aires var talsvert um það að leitað væri i bflum og á vegfarendum. Þá voru hermenn á verði viða í borginni og var þetta eina vfsbendingin um að eitthvað óvenjulegt væri á seyði. Orðrómur um að stjórnarbylt- ing væri á næsta leiti hefur verið á kreiki vikum saman, þannig að byltingin kemur ekki á óvart. Hefur ringulreið ríkt á flestum sviðum í landinu — og er árleg verðbólga nú um 475%. Herstjórnin hefur skipað átta manna bráðabirgðaráðuneyti, sem skipað er herforingjum ein- vörðungu. Þá hefur stjórnin einn- ig skipað fulltrúa í byggðastjórn- um til bráðabirgða. Braziiíu-stjórn hefur látið loka landamærum sínum þar sem þau liggja að Argentínu, og farþegar, sem ætluðu frá Rio de Janeiro til Buenos Aires í dag, hafa ekki fengið fararleyfi. Jorge Videla, yfirhershöfðingi, Emilio Massera, yfirmaður flotans, og Orlando Agosti, yfir- maður flughersins, mynda her- stjórnina, sem svipti Mariu Estellu völdum. Þeir hafa lýst því yfir, að herstjórnin muni í öllu fara að landslögum og virða mannréttindi, um leið og haldið verði uppi reglu i landinu. Fyrir þremur mánuðum lagði Videla yfirhershöfðingi mjög að rikisstjórn Argentínu að gera við- hlítandi ráðstafanir vegna meintrar fjármálaspillingar stjórnarinnar. Þá hefur forsetinn fyrrverandi hvað eftir annað vísað á bug kröfum um að hún segði af sér og setti af þá sam- starfsmenn sína, sem einkum hafa verið ásakaðir fyrir fjár- málaspiilingu. Eina svar hennar við þessum kröfum var yfirlýsing um að hún mundi ekki gefa kost á sér til endurkjörs, auk þess sem Framhald á bls. 31 AP-simamynd Stjórn hersins f Argentfnu, sem steypti Marfu Estellu Peron af stóli f gær. Frá vinstri: Orlando Agosti, Emilio Massera og Jorge Videla. Monty látinn London, 24. marz. Reuter MONTGOMERY marskálkur, sigurvegarinn f orrustunni um El Alamein f heimsstvrjöld- inni og vfirmaður brezka liðsaflans, sem barðist gegn Þjóðverjum eftir innrásina f Normandf, lézt f morgun 88 ára að aldri. Sjá grein á bls 16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.