Morgunblaðið - 25.03.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976
Líklega hætt
við innflutn-
ing á smjöri
,,ÞAÐ bendir allt til þess að ekki
verði um neinn smjörinnflutning
að ræða að þessu sinni," sagði
Óskar Gunnarsson hjá Osta og
smjörsölunni í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Oskar sagði að smjörskorturmn
virtist ekki eins tilfinnanlegur og
talið var i fyrstu Mjög mikið hefði
verið keypt að undanförnu og neyt-
endur ættu þvi að vera vel birgir
Sagði Óskar að þær fréttir bærust
nú frá mjólkurbúunum úti á landi
að mjólkurmagmð væri heldur að
aukast Einhver smjórframleiðsla
væri'hjá öllum búunum og bærist
Osta og smjörsölunni smjör sem
dreift væri jafnharðan í búðir ..Það
má búast við þvi að knappt verði
með smjor fram i miðjan apríl en ég
á alls ekki von á tilfmnanlegum
smjörskorti.’ sagði Óskar að
lokum
Innbrot hjá
einstæðum
INNBROT var framið í Traðar-
kotssund 6 í fyrrinótt. Voru tölu
verðar skemmdir unnar á hurð
um í húsinu, en þar hafa nokkur
samtök skrifstofur. Engu var stol-
ið nema 10 þúsund krónum frá
Félagi einstæðra foreldra. Áður
hefur verið brotizt inn hjá FEF, og
síðan hafa stjórnendur félagsins
gætt þess að hafa sem allra
minnst verðmæti geymd í skrif-
stofunni.
Lögreglan:
••
Okumenn láti
sjúkraliðið um
sjúkraflutninga
ÞAÐ BAR til í Hafnarfirði á laugar-
daginn. að ekið var á. 7 ára telpu
við gangbrautarljósm við Reykjavík
urveg I stað þess að kalla til sjúkra
lið fór okumaður bifreiðarinnar.
sem á stúlkuna ók, með hana til
heimilis hennar Þar voru þá engir
hcima. en um síðir gat ökumaður-
mn fundið föður stúlkunnar og tók
hann við henni Síðar kom í Ijós. að
stúlkan var með sprungu á höfuð
kúpu og hefði auðvitað átt að flytj-
ast á slysadeildina með sjúkrabíl Er
að sögn lögreglunnar aldrei nóg-
samlega oft brýnt fyrir ökumönnum
að fara ekki sjálfir að annast sjúkra-
flutninga. heldur láta sjúkraliðið
um það
Togarar landa
á Akranesi
Akranesi 24 marz
TOGARINN Víkingur AK 100 kom
úr veiðiferð í morgun og er nú verið
að landa úr honum 1 10 lestum af
þorski í gær og fyrradag var land-
að úr Haraldi Böðvarssyni AK 1 2
samtals 1 30 lestum og úr Krossvík
AK 300 samtals 100 lestum af
blönduðum fiski Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan hefur tekið á
móti 1 6 900 lestum af loðnu það
sem af er vertíðar Þorskanetabátar
liggja við land vegna óveðurs og
Akraborgin gengur ekki á milli
Akraness og Reykjavíkur vegna
mikils sjógangs og hvassviðris af
vestri
—Júlíus
Vont veður
á miðunum
SLÆMT veður var á miðunum
undan Austfjörðum í gær og varla
veiðiveður. 25 brezkir togarar
voru við landið og tveir voru á
leiðinni hingað. 10 skip voru tog-
urunum til aðstoðar
Ljósm. Friðþjófur.
Flugvélar Air Viking:
120 milljón króna
tilboðunum tekið
Vélarnar metnar á 60 milljónir
SKIPTAFUNDUR I þrotabúi Flugfélagsins Air Vikings var haldinn
sfðdegis I gær. Að sögn Unnsteins Becks, skiptaráðanda, samþykkti
fundurinn að taka þeim tveimur tilboðum, sem fyrir lágu í vélar
flugfélagsins. Var annað tilboðið frá Olfufélaginu hf I þá einu vél, sem
nú er í flughæfu ástandi, og hljððaði það upp á 60 milljónir króna. Hitt
tilboðið var frá Samvinnubankanum hf. I hinar tvær vélarnar og var
það einnig 60 milljónir króna, svo samtals eru vélarnar þrjár keyptar á
120 milljónir. Eins og fram kom I frétt I blaðinu I gær, voru
flugvélafræðingar dómkvaddir til að meta verð vélanna þriggja
til sölu. Mátu þeir vélarnar samtals á 60 milljónir króna og var
skiptingin 10, 20 og30 milljónir.
Unnsteinn Beck sagði, að nú
næmu lýstar kröfur i þrotabú Air
Vikings um 170 milljónum króna.
Auk þess hefði Samvinnubankinn
ekki iýst 77 milljónum, sem væru
ógreiddar af ábyrgðum, sem
bankinn gekk i og Alþýðubankinn
hefði ekki lýst 31 milljón króna
kröfu. Þetta eru því samtals tæp-
ar 280 milljónir króna. Innköll-
unartími er 4 mánuðir, og gæti
eitthvað verið ókomið af kröfum.
Þegar Mbl. spurði Unnstein um
greiðsluskilmála, sagði hann að
ráð væri fyrir því gert að Sam-
vinnubankinn greiddi vélarnar
með veðskuldum, sem hann hefur
Framhald á bls. 31
Frederick Irving:
„Landhelgisdeilan
í algerri sjálfheldu
Washington 24. marz. Fhnkaskeyti tii Mbl. fráAP.
ÖLDUNGADEILDARNEFND um erlend samskipti
mælti í dag með útnefningu Fredericks Irvings, sendi-
herra á Islandi, í starf aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og færi hann með hafréttar- og umhverfismál.
Staðfesting á útnefningu öldungadeiidarinnar mun
fylgja í kjölfarið innan tíðar.
Eitt helzta verkefni Irvings í mílna lögsögu Bandarikjanna,
nýja starfinu verður að koma í sem miða að því að halda erlend-
gildi hinum nýju lögum um 200 um fiskimönnum frá veiðum áþví
Frétt danska sjónvarps-
ins úr lausu lofti gripin
— segir leynilejíar samningaviðræður hafa farið fram í London
SAMKVÆMT frétt frá frétta- Olsen af frétt danska sjónvarps-
ritara Morgunbiaðsins í Kaup- ins:
mannahöfn, Lars Olsen, sagði Framhald á bls. 31
frétlaritari danska útvarpsins og
sjónvarpsins I London í danska
sjónvarpinu I gær, að öruggt væri
að samkomulag væri á næsta leiti
svæði. Irving hefur verið banda-
rískur sendiherra á Islandi und-
anfarin ár, á sama tíma og Island
hefur átt í tveimur svokölluðum
,,þorskastriðum“ við Bretland
vegna fiskveiðiréttinda. Irving
Framhald á bls. 31
Frederick Irving
Ummæli
Ólafs Jó-
hannessonar
dæmd ómerk
I GÆR var dæmt í
Borgardómi Reykjavík-
ur í máli, sem Þorsteinn
Pálsson ritstjóri Vísis og
fleiri höfðuöu gegn Ólafi
Jóhannessyni dómsmála-
ráðherra vegna um-
mæla, sem ráðherrann
viðhafði í þættinum
„bein lína“ í útvarpinu.
Voru þrenn tiltekin um-
mæli ráðherrans dæmd
ómerk þ.e. þau ummæli
sem stefnendur fóru
fram á að yrðu ómerkt.
Voru það eftirtalin um-
mæli. 1. .. „heldur auð-
vitað sú Mafía, sem
stendur bak við þessi
skrif “... 2. „Það er Visis-
mafían“. 3. „Já, þaó
horfir þannig frá mínu
sjónarmiði, að þaö sé
glæpahringur, sem æ
ofan í æ kemur meó að-
dróttanir, rangar, íminn
garð.“ Þá var ráðherr-
ann dæmdur til að
greiða þeim Þorsteini
Framhald á bls. 31
I þorskastríðinu og að sl. hálfan
mánuð hefðu leynilegar
samningav iðræður farið fram
milli íslenzku og brezku ríkis-.
stjórnarinnar í London.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér er
frétt þessi úr lausu lofti gripin.
Engar leynilegar viðræður hafa
farið fram milli brezkra og
íslenzkra st jórnvalda.
Hér fer á eftir frásögn I.ars
Leikrit
Odds
í BBC (3)
UTVARPSLEIKRIT eftir Odd
Björnsson verður flutt I BBG 3
í Bretlandi í næsta mánuði, en
BBC 3 stöðin þykir flytja úr-
valsefni. Er þetta I fyrsta sinn
sem stöðin flytur ieikrit eftir
fslenzkan höfund. Leikritið
sem heitir „Hvernig heiðvirður
kaupsýslumaður brýtur nef
yndislegrar eiginkonur sinnar í
viðurvist f jölda fólks,“ var flutt
I rikisútvarpinu fyrir einu ári,
en i verkinu eru 10 leikarar.
Benedikt Árnason leikstjóri
þýddi verkið á ensku, en hann
býr um þessar mundir í Lond-
on. I.eikst jóri er Jane Morgan.
Formaður Stúdentafélags Háskólans:
Krefur fréttastofu
hljóðvarps skýringa
— á fréttaflutningi af aðalfundi
KJARTAN Gunnarsson, nýkjörinn formaður Stúdentafélags
Háskóla Islands, hefur með bréfi til fréttastjóra hljóðvarps krafizt
skýringa á frétt, sem lesin var I fréttatfma hljóðvarps I fyrrakvöld,
þar sem staðhæft var án þess að geta heimildamanns að vafi léki á
því hvort kosning nýrrar stjórnar Stúdentafélagsins væri lögmæt.
I fréttatíma hljóðvarps kl.
19.00 í fyrakvöld var skýrt frá
kjöri nýrrar stjórnar Stúdenta-
félags Háskóla Islands en síðar
í fréttunum var lesin svohljóð-
andi frétt: „Þá var sagt frá því,
í fréttum, að Kjartan Gunnars-
son hefði verið kosinn for-
maður í Stúdentaféíagi Háskóla
Isiands. Vafi leikur á, hvort
kosningin, sem fram fór á fund-
inum í félaginu í dag, sé lög-
mæt, þar sem fundurinn leyst-
ist upp vegna sviptinga milli
hægri og vinstri manna. Fund-
inum var frestað." Eins og frétt
þessi ber meó sér staðhæfir
fréttastofa hljóðvarps, að vafi
leiki á lögmæti kosningarinnar
en ber engan aðila fyrir þeirri
staðhæfingu.
I bréfi nýkjörins formanns
Stúdentafélags Háskóla Islands
af þessu tilefni segir m.a.: „Af
þessum sökum vil ég fara þess á
leit vió yður, að þér greinið
heimildamann þessarar rang-
færslu, sem lesin var i frétta-
tima sem frétt og að þér gefið
skýringu áþví hvers vegna ekki
var leitað öruggari heimilda og
að þér gefið mér eða öðrum
aðstandendum Stúdentafélags
Háskóla íslands kost á að skýra
málið á vettvangi hljóðvarps-
ins.“
Brefið til fréttastjóra
hljóðvarps
Bréf formanns Stúdenta-
félags Háskóla íslands til
fréttastjóra hljóðvarps fer hér
á eftir í heild:
Reykjavík 24. mars 1976
Til fréttastjóra Hljóðvarps,
Skúlagötu 4, Reykjavík.
1 gærkveldi var mér tjáð, að í
lok 7-fréttatíma Hljóðvarpsins
þann dag hefði verið lesin
„frétt“ um það, að vafi léki á
lögmæti kosningar formanns og
stjórnar Stúdentafélags
Háskóla Islands, þann sama
dag. Það er alrangt, eins og m.a
má lesa i dagblöðunum í dag,
t.d. Þjóðviljanum, Tímanum og
Morgunblaðinu. Hvergi er efazt
um lögmæti kosninganna. Og
það var heldur ekki gert á fund-
inum svo vitað sé. Af þessum
sökum vil ég fara þess á leit við
yður, að þér greinið heimilda-
mann þessarar rangfærslu, sem
lesin var í fréttatíma, sem frétt,
og að þér gefið skýringu á þvi,
hvers vegna ekki var leitað
öruggari heimilda, og að þér
gefið mér eða öðrum aðstand-
endum Stúdentafélags Háskóla
lslands kost á að skýra málið á
Framhald á bls. 31