Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 5

Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 5 Vilhelmina Jónsdóttir og Eðvald Sigurjónsson frá Bakkagerði — Minning Með örfáum orðum langar mig að minnast þeirra elskulegu hjóna Eðvalds frænda mins Sigur- jónssonar og konu hans Vilhelm- ínu Jónsdóttur, sem lézt mánu- daginn 15. marz s.l. Eðvald lézt hins vegar 14. mai 1974. Ég á svo sannarlega margs að minnast og margt að þakka þeim, bæði sem barn og fullorðin. Hjartans þökk og virðingu færi ég þeim báðum. Vilhelmína var fædd á Hrafns- gerði í Fellum 8. jan. 1902. Foreldrar hennar voru þau hjón- in Rósa Hávarðardóttir frá Dala- tanga og Jón Pétursson frá Bessa- stöðum. Ársgömul var hún tekin í fóstur af hjónunum Guðríði Guðmunds- dóttur ljósmóður og Sigurði Höskuldssyni bónda á Múlastekk í Skriðdal. Með þeim fluttist hún á Reyðarfjörð 1908. en þau hjón bjuggu á Ósi. Eðvald föðurbróðir minn var fæddur 3. marz árið 1900 í Bakkagerði, en þar bjuggu foreldrar hans, þau hjónin Anna Stefánsdóttir og Sigurjón Gisla- son bóndi þar. Þar ólst Eðvald upp og þar var heimili hans lengstum. Þau Vilhelmína giftust 25. ágúst 1923, bjuggu fyrst áósi i nokkur ár, en síðan I Bakkagerði eins og áóur sagði. Þeim varð ekki barna auðið, en einn fósturson tóku þau, Gísla Arnfinnsson, sem lézt ungur. Eðvald frændi minn stundaði sjó, vann algenga verka- mannavinnu auk nokkurs búskapar. En lengst starfaði hann sem vélgæzlumaður hjá Rafveitu Reyðarfjarðar. Bæði voru þau hjónin unnendur ljóða og laga. Eðvald dáði Káinn mjög og hafði stökur hans jafnan á hraðbergi. Hann var mikill söngmaður, hrein og djúp bassarödd hans hljómaði i Reyðarfjarðarkirkju um áratugi. Hann var einnig safnaðarfulltrúi og í sóknarnefnd um fjölda ára. Hann var mikill áhugamaður um verkalýðsmál, einn af stofn- endum Verkamannafélags Reyðarfjarðarhrepps og fyrsti formaður þess. Það sópaði að þeim hjónunum í sjón og raun og bæði voru þau prýðilega greind. Vilhelmína var hin lífsglaða kona, vinföst og trygg. Hún var mikil dugnaðarkona, sérstaklega stundaði hún mikið prjónaskap og til hennar var leitað mikið áður fyrr og þá var ekki alltaf spurt um verkalaunin. Yndi hennar var að gera fólki greiða. Hún var einn af stófnend- um Kvenfélags Reyðarfjarðar, var þav áhugasamur félagi, sem lagði fram mikið og fórnfúst starf. Heiðursfélagi kvenfélagsins var hún seinni árin. En minnisstæðust eru mér þau bæði fyrir hin sérstöku barn- gæði þeirra Hins elskulega og ljúfa viðmóts þeirra við börn nut- um við systkinin i ríkum mæli og fyrir það ber að þakka alveg sér- staklega. Þetta átti aldrei að vera nein minningargrein í þeirri merkingu og svo sem vert væri. Eg kann ekki að þakka svo sem ég vildi. Aðeins einlæg hjartans þökk fyrir allt, sem þau voru mér og ekki siður börnunum minum. Þau elskuðu Valda frænda og Villu ekki síður en ég, enda voru þau þeim einstaklega góð. Eg veit að nú er hlýtt og bjart hjá þeim eins og ævinlega, meðan þau voru hér og allra góðu stund- anna er ljúft að minnast nú að leiðarlokum með hjartans þakk- læti fyrir allt. Birna IVIaríaGísladóttir. Hraðskákmót Suðurlands í Selfossi SKAKÞING Suðurlands 1976 var háð á Selfossi nú í febrúar og marz. í sameiginlegum meistara- og I. flokki voru 12 keppendur. Sigurvegari varð Magnús Gunnarsson Selfossi með 914 vinning, í 2j—3.sæti urðu Stefán Aðalsteinsson Hveragerði og Vil- hjálmur Þ. Pálsson Selfossi með 8 vinninga. Einnig var teflt i unglingaflokki. Þar voru 20 keppendur og varð sigurvegari Sigurður Jónsson Selfossi. Skák- samband Suóurlands sendi sveit í deildakeppni Skáksambands íslands og hefur sveitin nú lokið keppni og tryggt sér 3. sæti á eftir Skákfélaginu Mjölni í Reykjavík og Taflfélagi Reykjavíkur. Hrað- skákmót Suðurlands verður hald- ið í Iðnskólanum á Selfossi sunnu- daginn 28. marz kl. 14. Styðja Akraneskonur ALMENNUR skólafundur M.A., haldinn á setustofu heimavistar M.A. 15.—3. ’76, lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu verka- kvenna á Akranesi, og með þess- ari stuðningsyfirlýsingu fylgir 50 þúsund króna styrkur frá skóla- félagjnu Hugin, sem renna i verk- fallssjóð verkakvenna. Jafnframt vonum við að verkfallskonur nái fram fullum rétti og sigri í barátt- unni við vinnuveitendur. Skólafélagið Iluginn, Menntaskólanum, Akureyri ' bíllinn sem vekur öfund er med óven/u vel styrktu farbeaarvmi 128 er hér framh/ó/adr/fmn bíll, sem hentar sér/ega ve/ vid ís/enzkar adstædur 128 er féan/egur / 5 útgéfum 128 er vet hannadur bíH. sem gert hefur hann ad mest se/da Fiat bí/num. F/at 128 er gódur biH úti é vegum og einkar þæg/legur i borgarakstn Tvöfalt bremsukerfi FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI Davíð Sigurðsson hí SIOUMULA 35. SIMAR 38845 — 38888 RAFMÓTORAR GÍRMÓTORAR Eigum að jafnaði fyrirliggjandi: GÍRMÓTORA Vt—IVi hestöfl. 37, 57 og 68 sn./mín. 220/380 volt, 3ja fasa. VANALEGA VATNS- ÞÉTTA RAFMÓTORA V3—2 hestöfl 1 fasa. V2 —10 hestöfl 3ja fasa. 1 500 sn / mín. BINGÓ BINGÓ í TEMPLARAHÖLLINNI, EIRÍKSGÖTU 5, KL. 8.30 í KVÖLD. 24 UMFERÐIR, BORÐUM EKKI HALDIÐ LENGUR EN TILKL. 8. SÍMI 20010. Útvegum allar stæröir mótora og veitum tæknilega aðstoö FÁLKI N N' véladeild Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.