Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 7

Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 7 Að kynna málstað okkar erlendis í leiðara Timans i gær er fjallað um för þing- manna o.fl. til höfuð- stöðva Atlantshafsbanda lagsins i Brússel, m.a. til að kynna islenzk sjónar- mið í landhelgisátökunum við Breta. Þar segir m.a. ,,Fyrir Islendinga er þvi fátt þýðingarmeira en að forráðamönnum Atlants- hafsbandalagsins og Efna- hagsbandalagsins sé gert þetta Ijóst. Því var það gagnlegt, að tveir þing- menn Framsóknarf lokks- ins, þeir Gunnlaugur Finnsson og Stefán Val geirsson tóku nýlega þátt i för tiu manna sendi- nefndar til höfuðstöðva Atlantshafsbandalagsins og Efnahagsbandalagsins i Brussel, til að kynna forustumönnum þessara samtaka hugsanlegar af- leiðingar þorskastriðsins á utanríkisstefnu íslands. Af hálfu þessara manna var það mjog skelegglega túlkað, hverjar þessar af- leiðingar gætu orðið, og var það ekki sizt gert á fundi með Luns, fram- kvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins. Eftir þessar viðræður er for- ráðamönnum þessara samtaka tvímælalaust miklu Ijósara eftir en áð- ur, hver staða íslands get- ur orðið, ef Bretar halda þorskastriðinu áfram og ekki verður um meiri stuðning að ræða af hálfu þjóðanna i Atlantshafs- bandalaginu Þetta var einnig brýnt fyrir norskum stjórnmálamönnum, sem sendinefndin ræddi við i Osló. Það kemur hinsvegar ekki á óvart, þótt Þjóðvilj- inn hafi þetta á hornum sér, eins og annað í sam- bandi við þorskastriðið. Einn daginn krefst hann þess, að íslendingar noti Atlantshafsbandalagið og varnarsamninginn til að knýja fram úrslit i þorska- striðinu. Hinn daginn ris hann svo ofugur upp, þegar forráðamönnum Atlantshafsbandalagsins er kynnt þetta viðhorf íslendinga. Þetta er hinn venjulegi málf lutningur þeirra, sem stjórnast af annarlegum ástæðum. " Aldrei neitt á þessum mönnum að byggja Alþýðublaðið birtir i gær viðtal við einn af frumkvöðlum Alþýðu- flokksins, Guðmund R. Oddsson. Þar segir: ,, — Það hefur mikið tálgast utan úr Alþýðu- flokknum. Hver er skýring þin á þvi? — Skýringin er náttúr- lega fyrst og fremst sú, að þegar kommúnistarnir klufu sig út þá sögðust þeir vera allt annað en þeir voru. Þeir afneituðu kommúnismanum og blekktu þannig fólk. Þeir hafa nefnilega aldrei þor- að að meðganga kommúnismann. Svo, þegar annar klofn- ingurinn varð og Héðinn fer með sitt lið, þá trúði hann að hægt væri að vinna með Brynjólfi. Hann áttaði sig því miður of seint á þvi, að það var ekki hægt. Þessi klofning- ur var afskaplega mikil blóðtaka fyrir Alþýðu flokkinn. — Hvað um Hannibal? — Hannibal hefur aldrei verið annað en verkalýðssinni og það hef- ur aldrei verið neinn kommúnismi til i Hanni- bal. Hins vegar tel ég að það hafi verið ólán fyrir flokkinn þegar Hannibal var kosinn formaður. Það voru óvitar innan flokks ins sem stóðu að þvi. — Telur þú að Alþýðu flokkurinn hafi orðið veik ari fyrir það að vinna með kommúnistum? — Hann hefur yfirleitt ekki unnið með kommúnistunum. Það hafa menn klofið sig út úr flokknum til að vinna með kommúnistunum. En flokkurinn sjálfur hefur haldið sinu striki fyrir þvi. — Hvert var álit þitt á sameiningarmálinu svo- nefnda? — Það var eins og hver önnur della. Það var aldrei neitt á þessum mönnum að byggja. Þetta voru margreyndir hlutir, sem aldrei kom til mála, að hægt væri að fram- kvæma. Það hafa sjálf sagt verið þarna menn, sem voru einlægir i sam- bandi við þetta samstarf. En svo eru þarna menn sem ég hef ekki mikla trú á „Við viljum ekkert með þá hafa — það er allt og sumt.” Enn segir i viðtali Al- þýðublaðsins ,. — Telur þú að Al- þýðuflokkurinn hafi farið of mikið til hægri vegna of náins samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn? — Nei, það tel ég ekki. Hann hefur ekkert dregizt til hægri við það. Hann hefur barizt fyrir sinum málum og fengið mjög mörg þeirra fram. Hins vegar hlýtur að liggja i augum uppi, að i sam- vinnu við stærri flokk hlýtur sá minni ávallt að hafa verri aðstöðu. Aðal- atriðið er það að flokkur inn hefur komið sinum baráttumálum fram og mér er andskotans sama hvort það er ihaldið, fram- sókn eða kommúnistar sem aðstoða okkur við það ef með þarf. Hitt er svo annað mál að minni flokkur sem fer i sam- vinnu við stærri flokk tap ar hérumbil alltaf á þvi." Franskt k\ öld ÚTSÝNARKVÖLD ^Frönsk hátíð’’ Súlnasal, Hótel Sögu, sunnudag 28. marz n.k. Kl. 19.00 Húsið opnað Kl. 19.30 Franskur veizlumatur — Gigot d' agneau a'la Bretonne Franski matreiðslusnillingurinn Francouis Fons stjórnar matseldinni. Verð aðeins kr. 1 300.- , Kl. 20.30 Tízkusýning — Nýjasta strandfatatýzkan frá „Kerinu" sólgleraugu frá Christian Dior ofl. Fegurða rsamkeppni: UNGFRÚ ÚTSÝN, Ljósmyndafyrirsæta Útsýnar 1 976 — Síðasta tækifærið til þátttöku í keppn- inni. Allir keppendur koma fram um kvöldið og valdar verða 10 stúlkur til úrslita, sem allar fá verðlaun að verðmæti samtals um 500 þúsund krónur. Okeypis happdrætti Vinningur ókeypis ÚTSÝNAR ferð til Ítalíu eða Spánar. Aðeins fyrir gesti sem koma fyrir kl. 20.00. Ath. Allir gestir fá ókeypis kynningarvörur frá hinum heimsþekktu frönsku fyrirtækjum Nina Ricci, Carven og Pierre Cardin. Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi en ódýrri skemmtun Hátiðin hefst stundvislega og borðum ekki haldið eftir kl 1 9 30 Breiðfirðingaheimilið Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins h.f. verður haldinn í Tjarnarbúð mánudaginn 26. apríl 1 976, kl. 20.30 e.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Reikningar félagsins (1 975) liggja frammi hlut- höfum til athugunar 10 dögum fyrir fund á skrifstofu félagsins í Breiðfirðingabúð milli kl. 2 oq 3 e.h. „ . Stjormn. ViamböFq Fyrir ferminguna 12 manna matar- og kaffistell Matarstell 1 2 grunnir diskar 1 2 djúpir diskar 2 kjötföt 1 sösukanna 1 kartöfluskál Kaffistell 1 2 bollapör 1 2 desertskálar 1 sykursett 1 kökufat 1 kaffikanna Kr. 13.875— Kr. 8.850,— Pólsk postulínsstell hvít með gylltri rönd, Birgðir takmarkaðar. Gerið góð kaup Sendum í póstkröfu um allt land.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.