Morgunblaðið - 25.03.1976, Page 13

Morgunblaðið - 25.03.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 13 # Elmo R. Zumwalt flota- foringi, fyrrverandi yfir- maður bandaríska sjóhers- ins, segir í bók, sem kemur út i maí („On Watch"), að það sé skoðun Henry Kiss- ingers utanríkisráðherra að Bandaríkin séu á „nið- urleið*' og hann verði því að ná hagstæðum samning- um við Rússa. Hann segir að Kissinger sé „tvöfaldur í roðinu", hafi gert „tviræða" samn- inga við Rússa og tafið vopnasendingar til ísraels í striðinu 1973, en skellt skuldinni á James Schles- inger landvarnaráðherra Orðrétt segir Zumwalt samkvæmt minnisblöðum, sem hann ritaði eftir sam- ræður við Kissinger: „Hann heldur því ein- dregið fram að forsetinn meti þjóðina rangt. K. finnst Bandarík- in komin fram hjá sögulegum hápunkti eins og mörg fyrri voldug menn- ingarríki. Hann telur að Banda- rikin séu á nið- urleið og verði ekki örvuð til að sækja á bratt- ann. Hann segir það hlutverk sitt að telja Rússa á að veita okkur beztu skilmála, sem við getum fengið, þar sem Segir Banda- ríkin Aþenu... RússaSpörtu Zumwait aðmíráll Schlesinger Kissinger með Gromyko hliðholla Rússum. I Moskvu: telur söguna hann viður- kenni að hin sögulegu öfl séu hliðholl þeim. Hann segist gera sér grein fyrir að í ljósi sögunnar verði hann talinn í hópi þeirra, sem gerðu samninga hliðholla Rúss- um, en segir að bandaríska þjóð- in geti aðeins sjálfri sér um kennt, þar sem hana hafi skort þor og dug til að halda sínu striki gagnvart Rússum, sem séu „Sparta" miðað við okkur, sem séum „Aþena“.“ Zumwalt segir að Nixon forseti hafi ekki getað ein- beitt sér að nokkru vegna Watergate-málsins og völd- in farið til Kissingers og Alexanders Haigs hers- höfðingja. Hann segir að Kissinger hafi ekki viljað að Israel tapaði striðinu 1973, en hann hafi ekki viljað að Israel ynni úr- slitasigur. I desember 1973 samdi Zumwalt skýrslu um hernaðarjafnvægi, en Schlesinger landvarnaráð- herra sagði honum að gleyma henni. „Að af- henda slíka skýrslu í Hvíta húsinu þessa dagana væri eins og að skjóta sig i fót- inn. Forsetinn er með of- sóknarbrjálæði, Kissinger er með ofsóknarbrjálæði, Haig er með ofsóknarbrjá- læði." Harðllnumaðurinn Vasil Bilaksrm þjarmar að Husak. # Harðlínu- menn í Tékkó- slóvakíu eru til- búnir að láta til skarar skriða gegn Gustav Husak forseta og flokksleið- toga, þar sem þeim þykir hann of hikandi við að gera endanlega upp reikningana við frjálsly ndissinna að sögn diplómata f Prag og öðrum höfuðborgum f Austur-Evrópu. Herferðinni stjórnar Vasil Bilak, sem bauð sovézka herinn velkominn til Tékkóslóvakíu 1968 og hefur síðan barizt ósleitilega gegn Alexander Dubcek og stuðningsmönnum hans. Hann sakar Husak meðal annars um að leyfa ýmsum menntamönnum að fá aftur skjöl, handrit og bækur, sem öryggislögreglan tók frá þeim. Bilak heldur þvf fram að leiðtogarnir frá valdatfma Dubceks hafi verið landráðamenn og gefur í skyn að Husak hylmi yfir með þeim. Nú sfðast hefur Bilak haldið því fram að Dubcek hafi verið f slagtogi með CIA. Reiðastur er Bilak vegnaþess að fyrrverandi miðstjórnarfulltrúa, Zdenek Mlynar, hefur tekizt að smvgla úr landi skjali með tillögum um lausn á þeim vanda sem við hefur verið að strfða í Tékkóslóvakfu síðan innrásin var gerð. Mlvnar játar að vmis mistök hafi verið gerð á valdatíma Dubceks, en telur lausnina á núverandi vandamáium þá, að nokkur þau réttindi, sem Dubcek veitti, verði endurreist. Mlvnar heldur því einnig fram að stjórn Husaks grundvallist á mjög þröngum hóp flokksstarfsmanna, að almenningur hafi engin pólitfsk áhrif og að minnsta breyting geti kollvarpað kerfinu. Franski kommúnistaflokkurinn og sá ftalski munu hafa komizt vfir skjalið og talið er að það komi við sögu á fyrirhuguðum fundi æðstu manna kommúnista- flokka Evrópu. Þar sem flokkarnir reyna að komast í rfkisstjórn setur ástandið í Tékkóslóvakfu og brot Prag-stjórnarinnar á ákvæðum Helsinkisáttmálans um persónu- frelsi flokkana f vanda. Erlendir fulltrúar í Prag telja að Husak geri sér grein fvrir því að ástandið sé alvarlegt. ekki sízt vegna þess að „vorþíðan" 1968 sé eina revnsla meirihluta þjóðarinnar af stjórnmálum. En þeir segja að eins og nú sé ástatt geti Husak ekki hrundið árásunum sem á hann eru gerðar. Harðlínu- menn ógna Husak Dubcek: ný ásökun ~ 4- IÞROTTABLA ÐIÐ íþróttirogútilíf h í fyrsta tölublaði íþróttablaðsins 1 976 er fjallað um vetrarolympíuleikana sem fram fóru í Innsbruch í Austurríki í febrúar s.l., og eru forsíðumyndir blaðs- ins, sem eru í litum, frá leikunum, og m.a. af íslenzka keppnisfólkinu á þeim. Grein er um þátttöku íslendinganna í leikunum og viðtöl við þá og nefnist hún „Flest gekk að óskum í Innsbruch". Þá er fjallað um keppnisfólk á leikunum, ekki bara þaðsem sigraði heldur einnigþá sem gerðu sér ekki rellu yfir því að verða aftastir allra, eins og Grikkinn Koutsougiannis sem keppti í göngu.Fjallað er um hinn sérstæða persónuleika Ingemar Stenmark frá Svíþjóð, bandarísku stúlkuna Sheilu Young, Svisslendinginn Krienbuehl sem 47 sem ára sló mörgum við í skauta-| hlaupinu, Rosi Mittermaier, þjóðhetju Vestur-Þjóðverja, Gustavo Thoeni frá Ítalíu og fleiri. ★ í íþróttablaðinu er viðtal við Gísla Halldórsson, forseta ÍSÍ um stöðu íþrótta- hreyfingarinnar og nefnist það „Fjárskortur hamlar æskilegu íþróttastarfi". Rekur Gísli Halldórsson í viðtalinu helztu þætti íslenzks íþróttastarfs og kemur m.a. fram að nú eru um 55.000 virkir félagsmenn í íþróttahreyfingunni hérlendis. „Þið megið ekki gleyma því að ég er einstakur maður" er fyrirsögm greinar um sovézka kraftajötuninn Vasili Alexev, og kemur fram í grein þessari að honum er ýmis legt fleira til lista lagt en að glíma við lóðin. ^ Sigurdór Sigurdórsson> íþróttafréttamaður Þjóðviljans er kynntur í þættinum ..íslenzkir íþróttafrétta menn" ★ Grein sem nefnist „Þar sem mjaðmahnykkurinn er í mestu uppáhaldi" fjallar um ungar stúlkur sem tekið hafa að æfa þjóðaríþróttina, íslenzka glímu, sér til mikilla ánægju. it Margt annað efni er í blaðinu ★ íþróttablaðið er málgagn íþróttasambands íslands — fjölmennustu félagasamtaka á íslandi. Áskriftarverð er kr. 330, ársáskrift kr. 1 980. íþróttablaðið er eingöngu 'elt í áskrift. íþróttablaðið er lestrarefni allra þeirra er gaman hafa af íþróttum. I Til íþróttablaðsins Laugavegi 178 pósthólf 1193. j Rvík. Óska eftir áskrift. I Nafn Heimilisfang Simi IÍÞRÓTTABLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.