Morgunblaðið - 25.03.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976
Reagan sigraði
ðvænt í N-KaróHnu
Ford er þó hinn gunnreifasti
Washington 24. inarz. Reuter. Ntb. AP.
GERALD Ford Bandarfkjaforseti kvaðst taka þvf með stillingu enda
þðtt Ronald Reagan, fyrrverandi rfkisstjóri hefði borið sigurorð af
honum f forkosningunum í Norður-Karolfna f gær. Ford sagði: „Eg hef
vaknað að undanförnu til gleðilegri daga en þessa miðvikudags, en ég
vissi að mjðtt yrði á mununum f þessum kosningum og vonaðist til að
munirinn yrði mér i hag. Svo fðr ekki, en samt er ég sannfærður um að
ég hlýt útnefningu flokks mfns f Kansas City f ágúst.“
Ronald Reagan hlaut um það bil
53% atkvæða en Ford fékk um
45%. Reagan fagnaði ákaft sigri
sínum, sem var honum mjög mik-
ilsverður, þar eð ella hefði hann
að öllum líkindum verið úr leik
sem líklegt forsetaefni repúblik-
ana og var því spáð að hann
myndi draga sig í hlé biði hann
enn einn ósigurinn.
Jimmy Carter sigraði hjá demó-
krötum og fékk um 54%, en síðan
I þeim forkosningum sem þegar
hafa farið fram hefur Ford fengið
fleiri atkvæði en Reagan og var
útkoman töluvert áfall fyrir for-
setann. Munu ýmsir hafa talið að
Ford væri nokkurn veginn viss
um sigur í Norður-Karólína og
þar af leiðandi hafi ýmsir stuðn-
ingsmenn Fords látið hjá líða að
mæta á kjörstað. Af'tur á móti-
hafa fylgismenn Reagans lagt gíf-
urlegt kapp á að bæta stöðu hans
og var mikil kjörsókn á þeim
svæðum, sem vitað var að fylgi
Reagans var hvað traustast.
Reagan kampakátur
Fréttastofur láta að því liggja
að gagnrýni Reagans á Kissinger
sem hann hefur haldið uppi
ósleitilega, hafi fallið í góðan
jarðveg hjá mörgum kjósendum í
Norður-Karólínu.
Ansjósuaflinn um
50 þús tonn á dag
Carter: Ég verð nr. 1.
kom George Wallace með tæp
35%. Þykir mönnum nú sem
Wallace hafi sáralitla möguleika
til að hljóta útnefningu demó-
krata og hinir miklu sigrar Cart-
ers, sem er fyrrverandi ríkísstjóri
í Georgiu, hafa aftur á móti orðið
til að treysta hann verulega í sessi
sem vænlegan frambjóðanda
demókrata.
Lima, Perú 24. marz.
Kinkaskeyti til Mbl. fráAP.
ANSJÓSUAFLI Perúmanna
er nú orðinn að meðaltali
50 þúsund tonn á dag, að
því er heimildir AP-fréttastof-
unnar hermdu í dag en röskun
varð á veiðunum vegna þriggja
daga verkfalls sjðmannanna.
Afli þessi er talinn góður afJ
þeim sem gleggst fylgjast með
málum, enda þótt tekið sé fram,
að aflinn i ár kunni að verða
undir þeim 4.5 milljón tonnum,
sem stjórnvöld spáðu að myndu
koma á land.
Rússar „ryksjúga”
hvert hólfið af öðru
— segir forystumaður sjómanna í NA-Englandi
Skarðaboríí - -24. marz — Reuter
TOM Mainprize, formaóur
félags brezkra sjómanna,
sem veiða á miðum við
norður- og noróaustur-
strönd Bretlands, sagði í
dag, að sovézkir togarar
ynnu nú markvisst að því
að ,,ryksjúga“ miðin úti
fyrir Yorkshire.
Mainprize staðhæfði, að
það yrðu endalok brezks
ERLENT
sjávarútvegs, ef Bretar
lýstu ekki yfir 100 mílna
fiskveiðilögsögu.
Hann sagði að um 130 sovézkir
togarar hefðu útrýmt fiskstofnum
með veiði í hólfum allt upp að 20
mílum frá ströndinni. Höguðu
Sovétmenn veiðunum svo, að
margir togarar veiddu saman I
hópi, allir með trollin úti í einu,
þannig að enginn fiskur væri
eftir í hólfinu þegar búið væri að
toga.
„Rússarnir hreinsa þannig
kerfisbundið hvert svæði og fara
svo í næsta hólf. Þá er ekkert
orðið eftír handa okkur. Þeir
haga sér eins og ryksugur og þeir
hafa engar áhyggjur af afla-
kvóta," sagði Mainprize.
Hann sagði að lokum: „Maður
séraldrei máva elta rússnesk skip.
Þeir reka fiskiðnað um borð og
fleygja aldrei úrgangstætlu,"
sagði Tom Mainprize.
Ansjósuveiðarnar eru stundað-
ar algerlega undir eftirliti og for-
sjá ríkisfyrirtækisins Pesca-Perú,
en þessi iðnaður hefur orðið fyrir
þungum búsifjum vegna þess að
ekki er ýkja langt um liðið síðan
ansjósan, sem veiðist við strendur
Perú, hvarf sem næst alveg um
tima. Var ansjósuiðnaðurinn í al-
gerum lamasessi í niu mánuði og
síðan komu til meiriháttar verk-
föll þegar veiðarnar skyldu hafn-
ar ánýjan leik í síðustu viku.
Erlendir sérfræðingar telja að
aðeins um það bil 320 af 600 skip-
um sem eru útbúin til þessara
veiða stundi þær nú og eru veið-
arnar stundaðar fimm daga vik-
unnar. A siðasta ári minnkuðu
gjaldeyristekjur Perú af fiski-
mjöli gífurlega vegna harðrar
samkeppni við sojabaunir sem
fóðurmjöl, og vegna takmarkaðr-
ar mjölframleiðslu landsins af
greindum ástæðum.
Embættismenn við Hafrann-
sóknastofnunina í Perú veittu
leyfi til að veiðar yrðu hafnar að
nýju fyrir fáeinum dögum. Sjó-
menn neituðu þá að byrja að
veiða og kvörtuðu undan færrí
leyfðum vinnustundum en á síð-
asta ári. Stjórnin lýsti því yfir að
tapazt hefði um 3.1 milljón doll-
ara á dag þá þrjá daga sem verk-
fallið stóð.
Líffræðingar ráð-
leggja þriggja
ára stöðvun síld-
veiða í Norðursjó
DANSKA blaðið Berliirgske
Tidende segir frá því að líf-
fræðingar mæli með nánast al-
geru banni við síldveiðum í
Norðursjó næstu þrjú árin, eða
þar til í september 1979, vegna
sfversnandi ástands sfldar-
stofnanna þar. Verður tillaga f
þessum dúr væntanlega lögð
fyrir Norðausturatlantshafs-
fiskveiðinefndina þegar hún
kemur saman til fundar í Lond-
on í sfðari hluta aprflmánaðar
en hún á að ákveða veiðikvóta
fyrir síðari helming ársins
1976.
Að baki þessari tillögu liggur
að stofninn hefur rýrnað á tíu
árum úr 2.2 milljónum tonna af
fullvaxinni síld og niður í 200
þús. tonn, að því er Popp Mad-
sen líffræðingur við Fiski- og
hafrannsóknastofnun Dan-
merkur hefur sagt í blaðinu.
Madsen á sæti í vinnunefnd
sem hefur sérhæft sig í könnun
á síldarsíofninum. Á fundi ný-
lega ákvað nefndin svo að
leggja til við þá sambandsnef nd
sem ákveður tillögur endanlega
fyrir fundinn í London, að
mæla með algerri friðun fram
til hausts 1979 eins og fyrr seg-
ir.
Popp Madsen segir að nefnd-
armenn geri sér grein fyrir að
tillagan um algera friðun muni
ekki þykja framkvæmanleg, en
allt kapp verði lagt á að halda
veiðunum í lágmarki.
Hrygningarstofn Norðursjáv-
ar síldarinnar var ekki nema
150 þús. tonn árið 1975. 1 ár
kemur fram nýr árgangur, en
sfldin hrygnir þegar hún er orð-
in þriggja ára, sem vírðist ætla
að verða nokkuð sterkur, en sá
árgangur, sem mun koma á ár-
inu 1977, virðist sá afleitasti
sem komið hefur. Við höfum
áhyggjur af þeirri gifurlegu
rýrnun sem hefur orðið á stofn-
inum og höfum reiknað út að
slæmir árgangar hafa komið
síðan stofninn fór niður fyrir
800 þúsund tonn,“ sagði Mad-
sen við Berlingske Tidende.
Hann segir að á síðustu sjö ár-
um hafi aðeins komið tveir ár-
gangar sem hafi náð því að vera
miðlungsgóðir, en allir hinir
hafa verið töluvert undir meó-
allagi og sumir langt undir því.
Madsen segir að menn verði að
velja á milli þeirra kosta að
takmarka með ströngum frið-
unaraðgerðum síldveiðar í
Norðursjó, en horfa ella upp á
að síldin hverfi gersamlega
Verði friðunartillögu þeirra
fylgt í megindráttum megi
vænta þess að stofninn nái sér
að nokkru og komist aftur í
kringum 800 þús. tonn, en eins
og nú sé komið blasi geigvæn-
leg hætta við og þvi megi ekki
biða með að grípa til róttækra
aðgerða
50 Nóbelsverð-
launahafar skora á
Kreml að láta Mik-
hail Shtern lausan
París — 24. marz — Reutcr
FIMMTlU Nóbelsverðlaunahafar
birtu í dag áskorun á sovézk
stjórnvöld um að láta Mikhail
Shtern lausan úr fangelsi. Hann
afplánar nú átta ára fangelsis-
dóm, og er gefið að sök að hafa
þegið mútur og haft í frammi
fjársvik. Shtern er iæknir og er
hann af Gyðingaættum.
Áskorun verðlaunahafanna
birtist í Le Monde, og þar segir
m.a: „Mikhail Shtern hefur helg-
að líf sitt þvi að lina mannlegar
þjáningar, en nú er verið að
murka úr honum lífið i
þrælkunarbúðum.“
1 fyrra fluttust tveir synir
Shterns frá Sovétríkjunum, og
segja Gyðingar í Moskvu, að of-
sóknir á hendur Shtern hafi átt
sér stað af þeirri ástæðu.
Meðal þeirra, sem undirrita
áskorunina, eru Samuel Beckett
og Jean Paul Sartre, sem hlaut
útnefningu sænsku akademíunn-
ar árið 1964, en hann neitaði að
veita Nóbelsverðlaununum við-
töku.
Sovétar okurkarlar, sem verzla með
dauðann — segja Kínverjar
Tokyo24. marz AP.
DAGBLAÐ Alþýðunnar í Pek-
ing birtir í dag grein þar sem
sovézkir leiðtogar eru sagðir
„okurkarlar, sem verzla með
dauðann", en í greininni er
fjallað um samskipti Egypta-
lands og Sovétríkjanna og látin
i Ijós mikil aðdáun á þeirri
röggsemi Egypta nýlega að
fella úr gildi vináttusamning
sinn við Sovétríkin. Þá er talið í
greininni, að sá atburður hafi
verið „sósíal-heimsvaldastefnu
Sovétríkjanna" mikið áfall.
„Eftir sem áður,“ segir þá í
greinínni, „eru Sovétríkin árás-
argjörn i eðli sínu, og sætta sig
ekki við ósigur. Sovézku sósíal-
heimsvaldasinnarnir munu
halda áfram að gera óskunda og
standa að skemmdarverkum í
Egyptalandi.'1
,JVIeð öflugum stuðningi allra
Arabaþjóða og allra þjóða
heims, gerir egypzka þjóðin so-
vézku endurskoðunarsinnun-
um erfiðara fyrir um allar að-
gerðir, og vinnur þannig sifellt
meiri sigra í baráttunni gegn
risaveldinu og zionismanum,"
segir Dagblað alþýðunnar.
Það gerist alltaf eitthvað
í þessari Viku:
Rætt um fermingu við séra Óskar J. Þorláksson og nokkur
Kristín á réttri bylgjulengd — Margrét að drukkna í loðnubréfum
~ Miá Danadrottningu