Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 23

Morgunblaðið - 25.03.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 23 Þótt Jóhann kysi að láta af störfum við Sólvang aðeins 67 ára að aldri, var það ekki vegna þess. að hann hugðist þá hætta að starfa að málefnum aldraðra Tviefldur tókst hann á vií hugðarefni sitt með þeim árangri, að stofnað var Styrktarfélag aldraðra árið 1968. Jóhann var aðalhvatamaður að stofnun félagsins og formaður þess frá upphafi og til dauðadags. Með félagið sem bakhjall tókst Jóhanni að koma í framkvæmd mörgum mjög þörfum málefnum aldraðra hér í bæ. Síðustu ár ævi sinnar vann hann því mjög merkt starf á þessu sviði. Jóhann Þorsteinsson gerðist félagi í Rótarýklúbbi Hafnar- fjarðar árið 1953, en kynni okkar Jóhanns hófust, er ég gerðist félagi f klúbbnum níu árum siðar. Jóhann var ritari klúbbsins 1956—57, varaforseti 1957—58 og forseti klúbbsins var hann 1958—59. Eftirlifandi kona Jóhanns er Astrid Þorsteinsson. Þau hjónin eignuðust tvö börn, Ingigerði Maríu, sem gift er Reyni Guðna- syni, kennara, og dr. Kjartan, verkfræðing, sem kvæntur er Irmu B. Karlsdóttur. Eru þau bæði búsett í Hafnarfirði. Astrid, börnum hennar, tengda- börnum og barnabörnum votta ég dýpstu samúð mína. GIsli Jónsson Kveðja frá Styrktarfélagi aldraðra í Hafnarfirði. Merkur maður er horfinn af sjónarsviðinu, lífsstarfi er lokið. Fyrst sem fræðari hafnfirzkrar æsku um áratuga skeið og síðar sem forstjóri elliheimilisins Sól- vangs um árabil. Málefni aldraðra má segja að hafi itt hug Jóhanns Þorsteinssonar allan. Hann var upphafsmaður að stofnun Styrktarfélags aldraðra í Hafnar- firði og var formaður félagsins alla tíð frá stofnun þess árið 1968. Fyrir þetta félag vann Jóhann mikið og óeigingjarnt starf af eld- legum áhuga og verður formanns- sæti félagsins vandfyllt, að öllum öðrum ólöstuðum. Jóhann skipu- lagði samkomur fyrir eldri borg- ara Hafnarfjarðar í „Opnu húsi“ og mætti ávallt á þessum samkom- um sjálfur og talaði til fólksins með sinni alkunnu ljúfmennsku. Munu bæði samstarfsmenn hans og gestir „Opins húss“ sakna vinar í stað, því að Jóhann barðist af miklum dugnaði fyrir mál- efnum aldraðra og fyrir þessi óeigingjörnu störf mun merki hans ávallt rísa hátt. Stjórn Styrktarfélags aldraðra þakkar Jóhanni Þorsteinssyni fyrir störf hans mikil og merk í þágu félagsins og vottar eigin- konu hans og börnum dýpstu sam- úð. Lára Jónsdóttir. Þó að stöðugt standi, að ávallt megi falls vænta af fornu tré, hafði ég sízt búizt við því, að gam- all skólafélagi minn og vinur, Jó- hann Þorsteinsson kennari, ætti svo skammt ólifað, er fundum okkar bar síðast saman fyrir um það bil tveim vikum. Það var í sjúkrahúsi, þar sem hann hafði dvalið nokkra daga. Hann var að fá lausn þaðan og í þann veginn að hverfa aftur heim til sín á vit hjartfólginna ástvina Hann var glaður og reifur, hlýr og örvandi að vanda, þakklátur og sáttur við allt og alla. Þegar sá sem er burt kallaður snýr með sæmd heim frá lífsstarfi sínu, býr nokkur söknuður og þökk í huga. Söknuður af því að samvistum er lokið, — þökk fyrir allt gott, sem mætur maður hefur látið af sér leiða. Þó að við Jóhann værum sam- sýslungar, sáumst við ekki fyrr en í Flensborgarskóla, þar sem við urðum ekki aðeins bekkjarbræð- ur og sessunautar, heldur her- bergisfélagar. Fyrir það er ég þakklátur því að á betri félaga varð ekki kosið. Hann var glaðlyndur, strang- Léttir og liprir úr mjúku rauðbrúnu leðri og með slitsterkum sólum Verð kr. 4.995 Stærðir Nr. 35—46 Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, sími 14181 heiðarlegur, grandvar jafnt í stóru og smáu, hugsaði allt sitt ráð rækilegar en ungum mönnum er títt. Jóhann var góður námsmaður, enda ekki að furða þar eð saman fór skörp greind og alúð við námið. Af einstökum námsgrein- um rifun stærðfræði hafa verið honum hugleiknust, enda var hann rökrænn að gerð. Brátt kom það í ljós í skólalíf- inu að hann var félagsdrengur góður og einn nýtasti maður skólafélagsins, vel máli farinn, til- lögugóður og ósérhlífinn. Gagnfræðaprófi frá Flensborg lauk hann vorið 1922. Af lang- skólanámi varð ekki, þó að sízt skorti hann hæfileika til þess. En námi hans var ekki lokið fyrir því. Hann settist í Kennaraskól- ann síðar og tók kennarapróf 1927. Og enn jók hann við kennaramenntun sina með all- langri dvöl í Danmörku og Sví- þjóð. Aðallífsstarf Jóhanns var kennsla i Hafnarfirði. Fyrst rak hann þar einkaskóla fyrir smá- börn. Arið 1929 var hann skip- aður fastakennari við Barnaskól- ann, og loks frá 1949 varð hann kennari við Flensborgarskólann og kenndi einkum stærðfræði. Það var almannarómur, að Jóhann væri ágætur kennari, virtur vel af nemendum sínum sem samkennurum. Hann hélt uppi góðum aga í kennslustund- um, en var engu að síður vinsæll af nemendum. Eftir að hann hætti kennslu, kominn fast að sextugu, varð hann framkvæmdastjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði, fórst honum það vel úr hendi sem öll önnur störf. Naut hann almennra vinsælda á heimilinu. Jóhann kom mjög við margs konar félagsmál i Hafnarfirði. Hann naut mikils trausts meðal bæjarbúa Þeir vissu ofurvel, að hann níddist aldrei á neinu, er honum var tiltrúað. En um öll þessi störf munu menn mér kunnugri skrifa Jóhann kvæntist 1938 Astrid, f. Dahl, hjúkrunarkonu frá Vestur- ási í Svíþjóð. Höfðu þau kynnst i Tárna folkhögskola, þar sem bæði voru við nám. Var hjónaband þeirra til fyrirmyndar og heimili þeirra hlýtt og vistlegt. Þeim varð tveggja barna auðið. Börnin eru: Kjartan verkfræðingur, hámennt- aður í sinum greinum, kvæntur Irmu Karlsdóttur, frá Gautaborg, I gær kvöddum við hinstu kveðju einn af okkar ágætustu félögum, Sigþór Guðjónsson, bif- vélavirkjameistara, Miðtúni 86, Reykjavík. Sigþór var fæddur og uppalinn á Eyrarbakka, fluttist ungur til Reykjavíkur og átti heimili þar upp frá þvi. Hann hóf vinnu við bílaviðgerðir hjá Páli Stefánssyni sem þá hafði verkstæði í Kola- sundi. Hjá Páli vann hann þar til hlutafélagið Ræsir var stonfað en þá réðst hann þangað sem verk- stjóri. Þar vann hann allan þann tíma sem Ræsir rak verkstæðið, en eftir að Lárus Guðmundsson tók við rekstri þess, vann hann hjá honum meðan heilsan leyfði. Sigþór útskrifaði fjölda nemenda meðan hann vann hjáRæsi. Sigþór Guðjónsson var einn af stofnendum Félags bifvélavirkja 1935 og vann félaginu mikið og gott starf. Hann 'var lengi formað- ur prófnefndar í bifvélavirkjun, gjaldkeri eftirlaunasjfxls og endurskoðandi félagsins meðan heilsan leyfði. Öll þessi störf innti hann af hendi með prýði og einstakri trúmennsku. Að leiðarlokum þakkar Félag bifvélavirkja Sigþóri fyrir allt það sem hann lagði af mörkum og Ingigerður María, gift Reyni Guðnasyni, kennara i Hafnarfirði. Djúpa samúð votta ég eigin- konu Jóhanns og börnum við frá- fall óvenju góðs eiginmanns og föður, svo og öðrum hans nán- ustu. Guð blessi þig, vinur og alla ástvini þína. Sigurjón Guðjónsson. fyrir félagið, en hann hafði alla tíð mikinn áhuga á störfum félagsins og framgangi þeirra mála sem þar var að unnið. Persónulega þakka ég honum góða viðurkynningu og ágætt samstarf um áratuga skeió. Við vottum konu hans ogöðrum ástvinum okkar innilegustu samúð, en áfram lifir hjá okkur öllum minningin um góðan dreng sem genginn er. Sigurgestur Guðjónsson. Afmælis- og minningar- greinar \THVGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fvrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Minning: Sigþór Guðjónsson bifvélavirkjameistari ÞAÐER STAÐREYND Þeir, sem hafa Hiab-Foco krana á vörubílnum, hafa meiri möguleika á vinnu, þegar að þrengir. Hiab-Foco vörubílskrani eykur fjölbreytni í vinnu svo um munar. Það eykur vinnugleðina. Hiab 765 lyftir mest hvorki meira né minna en 4 tonnum. Kraninn getur teygt sig 8,3 metra, en samt lyft 725 kílóum. Hiab 765 vegur aðeins 1270 kg. Hiab 765 er krani, sem er ákaflega lipur í vinnu og þægilegur í stjórn. Varahlutaþjónusta Hiab-Foco er í sérflokki. Leitið upplýsinga í söludeild okkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.