Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976 29 VELVAKAIMOI Velvakandi svarar i scma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags. 0 Menningar- starfsemi? eða hvað? Arni Helgason skrifar: Oft heyrum við í fjölmiðlum tilkynningar um að atvinnurekst- ur verði stöðvaður ef ekki eru strax gerð skil á söluskatti. Virð- ast innheimtustofnanir rikissjóðs harðar í horn að taka i þessum efnum ef marka má þessar til- kynningar. Er það ekki nema sjálfsagt því að söluskattur er fé sem atvinnurekandi á ekki heldur rikissjóður. Ekki þurfa háar upp- hæðir að vera í vanskilum til að lokun sé beitt. Hins vegar bregður nú svo und- arlega við að Klúbburinn í Reykjavík sem skuldar milljónir og aftur milljónir í söluskatt og er sekur fundinn um söluskattsvik virðist undanþeginn þessum ákva'ðum. Líklega er hann að dómi yfirvalda slik menningar- stofnun að þjóðþrifastarfsemi hans má ekki ieggja niður. Þannig er þá koniið réttlæti á Islandi. Það er sem sé ekki sama hver á i hlut. Þessari „menningar- stofnun" verður að halda opinni upp á gátt. Og hverjar eru svo afleiðingarnar? Ekki er langt síðan na’rri því var búið að ganga að einum dauðuni þar og auðvitað mörgum hálfdauðum. Sjálfsagt finnst mönnum ekkert vit í að reyna að vinna að heilbrigðu þjóð- lífi þvi að þessa „þjóðþrifastarf- semi" styðja þeir af öllum mætti, sumir með því að ganga þessar sömu slóðir, aðrir með afskipta- leysi og þögn. ,,Sá sem ekki er með mér er á móti mér,“ stendur þar. Kannski er þessi nýstárlega söluskattsinnheimta bending til annarra um að flýta sér hægt með greiðslur til hins opinbera, ekkert liggi á. Það sannaðist áþreifanlega í verkfallinu hvert er sterkasta óm.enningaraflið með þjóð vorri. Það þurfti ekki einu sinni að opna áfengisútsölurnar til að fangelsin fylltust og slysávarðstofan einnig. Vfnveitingahúsin sáu fyrir þvi og það fremur rausnarlega. Þar eru þa'i' heilna'mu lindir sem ungir og gamlir eiga að teyga af. Þar á að vaxa gróandi þjóðlíf. Þaó var .v’on að veitingamennirnir með sakleysissvipinn va'ru ekki með hýrri há þegar þeir voru stöðvaðir i iðju sinni. Að hugsa sér ef þetta verkfall hefir riú orðið til þess að einhver hefir hætt að fleygja fé sinu i vinveitingamenn en notað það þess i stað til hagsbóta sér og sinum. 0 Spurningar til Húsnæðis- málastjórnar Guðmundur Jóhannsson skrifar undir fyrirsögninni „Nokkrar spurningar til Húsnæð- ismálastjórnar rikisins": 1 náð og miskun bið ég þig Velvakandi góður að koma eftir- farandi til skila. Ymsar orsakir liggja oft til þess að maður tekur sér penna i hönd, en það sem dró ský frá augum mér að þessu sinni var það er nú skal frá greina. Málavextir eru þeir að ég var beðinn aö nálgast vottorð af ýmsum gerðum til Hús- næðismálastofnunar ríkisins. sem höfðu fylgt lánsumsókn til stofn- unarinnar. Umsókn þessi hafði ekki uppfytlt eða samræmst regl- um stofnunarinnar hvað há- marksstærð íbúðar snerti til að hljóta náð fyrir augum hennar (svo fáránlegar sem þær reglur nú eru og er kapituli útaf fyrir sig) og því fengið synjun um fyrirgreiðslu á láni. Nú ætluðu uirisækjéndur þeir er áttu hlut að máli að endur- heimta þá eign sem þau töldu sig og telja sig eiga þ.e. fyigigögn umsóknarinnar s.s. veðbókarvott- orð, fokheldisvottorð ofl. til notk- unar i annarri lánastofnun og spara sér með því ba'ði fyrirhöfn og útgjöld því flest þessara gagna kosta peninga og verður af því einu vart dregið i efa hvers eignarrétturinn er. En viti nienn, það lá ekki eins laust í hendi og a'tla mátti að fá hér umrædd vott- orð og af sumum fékkst aðeins ljósrit. sem að sjálfsögðu dugðu ekki íyrir þá lánastofnun sem veitti fyrirgreiðslu i þessu tilfelli. An frekari málalenginga eru eftirfarandi spurningar lagðar fyrir forsvarsmenn tíér um ra'ddrar stofnunar. 1. Hver er réttur og hvaðan fa'r Húsna'ðismálastofnunin þann rétt ef til er, að neita að láta af hendi þau vottorð sem fylgja láns- umsókn, eftir að stofnunin hefur synjað um lán? 2. Til hverra hluta notar stofn- unin vottorðin eftir að hún hefur synjað um lán? 3. Na'gir henni ekki sjálfri ljós- rit af vottórðunum ef hún telur sig vegna einhverrar skráningar þurfa á þeirn að halda? Ætla verður að dömur þa'r. sem stóðu fyrir svörum, hafi haft fyrirma'li frá sinum yfirboðurum um að þessi afgreiðslumáti skyldi á hafður svo einkennilega sem hann nú hljómar i eyrum hinna vantrúuðu. Ég va'nti svars við framan- greindum spurningum og la't því þetta na'gja að sinni. Með fullri virðingu Guðmundur Jóhannsson. gerðist, hafði David gert sér grein fyrir að eitthvað var að gerast — án þess honum tækist að skilja dökka skuggann sem kom þarna með æsingshraða. Allt hafði gerzt á fáeinum andartökum og hann þakkaði forsjóninni fvrir að hafa brugðið við og á þann máta bjarg- að lífi beggja. — Guð mínn almáttugur! Hvað var eiginlega að gerast? hrópaði Helen upp yfir sig. Það hafði hjargað þeim að komast I fordyri hússins vegna þess að svo þröng var gatan að næsta óskiljanlegt var að blllinn skyldi ekki kremja þau við vegg- inn. — Þetta var bfll, sagði David. — Já, ég áttaði mig á þvi. Hvað var hann að gera hér. Það er öll bflaumferð bönnuð hér. Það mátti engu muna að hann dræpi okkur. Hún greip allt f einu f ermi hans. — Segðu ekki orð, sagði hún með öndina f hálsinum. — 1 guð- anna bænum segðu ekki neitt. Eg held ég fengi taugaáfall við svar- ið. — Þú hefur ekkert meiðzt? spurði David. HOGNI HREKKVÍSI „Burt meö þig!“ Hamborq Plaststampar með þéttu loki 35 lítra kr: 1485, 50 lítra kr: 2195. Tilvalin ílát til að salta í kjöt og til annarra heimilisnota. Sendum í póstkröfu. Laugav. 22 - Hafnarst. 1 - Bankast. 11 - Reykjavík BDSAHOLC Simi 12527 GLERVORUR syningarsalur Tökum allar gerðir notaðra bifreiða í umboðssölu Fiat 850 special árgerð '71 230 þús. Fiat 126 Berlína árgerð '74 500 þús. Fiat 126 Berllna ðrgerð '75 600 þús. Fiat 125 special árgerð '71 450 þús. Fiat 125 Berllna árgerð '72 550 þús. Fiat 125 P station árgerð '73 550 þús. Fiat 125 P árgerð '75 750 þús Fiat 124 station árgerð '73 550 þús. Fiat 127 3ja dyra árgerð '74 550 þús. Fiat 127 Berllna árgerð '75 700 þús. Fiat 128 Berlina árgerð '71 400 þús. Fiat 128 Berllna árgerð '73 550 þús. Fiat 128 Berlina árgerð '74 650 þús. Fiat 128 Berllna árgerð '75 800 þús. Fiat 128 Rally árgerð '73 650 þús. Fiat 128 Rally ðrgerð '74 800 þús. Fiat 128 Rally árgerð '75 950 þús. Fiat 128 Rally árgerð '76 nýr bill 1100 þús. Fiat 132 special árgerð '73 850 þús. Fiat 1 32 special árgerð '74 1. milljón Fiat 132 GLS árgerð '75 1 300 þús. Willys Wagoner árgerð '72 1350 þús. Citroen GS árgerð '72 650 þús Datsun 180 B '73 1380 þús. Toyota Corolla '72 650 þús. Hilmann Hunter '73 750 þús. Volkswagen Variant USA árgerð '71 600 þús. Volkswagen 1300 árgerð ‘67 100 þús. Renault TS árgerð '73 1450 þús. Austin Mini árgerð 74 550 þús. FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson h.f. SÍOUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.