Morgunblaðið - 25.03.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1976
Hornbanki að Reykjafjarðarál:
72% aflans þriggja og
fjögurra ára þorskur
DAGANA 15.— 17. mars s.l. var
r/s Hafþór við þorskrannsóknir á
svæðinu frá Hornbanka að
Reykj af jarðarál. Leiðangurs-
st jóri var Ólafur K. Pálsson fiski-
fræðingur.
Auk athugana á eigin afla var
mældur þorskur um borð f átta
togurum á þessu svæði.
Niðurstaða af mælingum úr
fjórum togurum 15. mars s.l. var
eftirfarandi (meðaltal):
CM %
Undir 34 cm 14.2
43—54 cm 50.5
55—70 cm 30.0
yfir 70 cm 5.3
undir 50 cm 44.1
Af þorski undir 50 cm var
meðalafli 947 fiskar á togtíma
Aðfaranótt 17. mars var afli
mældur úr tveimur togurum á
sömu slóðum en heldur grynnra
og var samsetning aflans þannig
(meðaltal):
CM %
Undir 43 cm 6.7
43—54 cm 47.3
55—70 cm 36.0
yfir 70 cm 10.0
Undir 50 cm 31.1
Meðalafli af þorski undir 50 cm
var 628 fiskar á togtima.
Loks var hálfum sólarhring
siðar mældur þorskur úr tveimur
togurum á þessum slóðum og var
samsetningþessi (meðaltal):
Cm %
Undir 43 cm 26.0
43—54 cm 52.1
55—70 cm 19.3
yfir 70 cm 2.6
undir 50 cm 59.0
Meðalafli á togtíma af þorski
undir 50 cm var 286 fiskar.
Hér er að mestu leyti um að
ræða fisk þriggja og fjögurra ára
gamlan og námu þessir tveir
árgangar (1972 og 1973) alls 72%
aflans.
Samkvæmt rannsóknum r/s
Hafþórs var meginútbreiðsla
þriggja ára þorsks á svæðinu frá
Hornbanka að Reykjafjarðarál og
allt norður að 67° n.br. Fjögurra
ára fiskur var mest á svæðinu frá
Hornbanka að eiginlegum
Reykjafarðarál og því á tak-
markaðra svæði.
í tillögum Hafrannsóknastofn-
unarinnar frá 13. október s.l. var
þetta svæði skilgreint „við-
kvæmt“ á tímabilinu apríl-júní og
talið að loka þyrfti því á þeim
tíma, ef ekki væri komið á stöðugt
og sveigjanlegt eftirlit. Gögn voru
Enska
knatt-
spyrnan
ENGLAND sigraði Wales 2:1 i
vináttuleik í Wrexham í gær-
kvöldi, en hann fór fram i til-
efni 100 ára afmælis welska
knattspyrnusambandsins. 8
nýliðar voru méð enska lands-
liðinu og tveir þeirra skoruðu,
Rey Kennedy Liverpool og
Peter Taylor, Crystal Palace.
Alan Curtis, Swansea skoraði
mark Wales.
í 1. deild gerði Derby jafn-
tefli við Stoke á heimavelli 1:1.
Alan Bloor gerði mark Stoke
en Bruce Rioch mark Derby úr
víti. Leikurinn var harður og
áður on 28 mínútur voru liðnar
voru báðir varamenn komnir
inná og litlu síðar fór dómar-
inn útaf meiddur og línuvörð-
ur tók við dómgæzlunni!
— Irving
Framhald af bls. 2
lýsti rikjandi ástandi sem nánast
óleysanlegu „Það er mjög alvar-
legt,“ sagði Irving um málið „Ég
hef séð hvað deila um hafsvæði
getur gert fólki heitt í hamsi og
það svo að mál blandsast inn í sem
ekkert koma við fiskveiðum. Sem
stendur er málið í algerrri sjálf-
heldu."
þá ekki fyrirliggjandi um ástand-
ið á svæðinu í janúar-mars.
1. Línu sem dregin er í 50°
réttvísandi frá Horni.
2. 20°20’ n.l.
Skyldi svæði þessu lokað um
óákveðinn tíma, en Hafrann-
sóknastofnunin myndi fylgjast
með ástandi fisks á svæðinu eftir
því sem framast væri hægt.
Sama dag gaf Sjávarútvegs-
ráðuneytið út tilkynningu um lok-
un svæðisins.
— Frétt
Framhald af bls. 2
„Síðustu sex vikurnar hafa
farið fram leynilegar samninga-
viðræður íslenzku ríkisstjórnar-
innar og hinnar brezku. Við- i
ræðurnar hófust vegna þrýstings !
frá Atlantshafsbandalaginu og
hafa eitt eða fleiri aðildarlönd
bandalagsins annazt mála-
miðlun.“
Þá bar fréttamaðurinn ónafn-
greinda heimildamenn sína fyrir
því að íslenzka ríkisstjórnin hefði
verið beitt þrýstingi að undan-
förnu, ásamt hótunum um að sagt
yrði frá samningaviðræðunum
opinberlega. Sagði fréttamaður-
inn, að þetta hefði íslenzka
stjórnin ekki staðizt.
Síðar í fréttinni var vakin
athygli á upplýsingum brezkra út-
gerðarfyrirtækja um að tíðinda-
lítið hefði verið á miðunum frá
þvi að viðræðurnar hefðu hafizt.
Danska sjónvarpið sagði þá að
viðræðurnar mundu halda áfram
á fundi utanríkisráðherra
Norðurlandanna í Stokkhólmi í
gær, en „eðli viðræðnanna sam-
kvæmt er ekkert hægt að láta
uppi um efni þeirra", sagði
danska sjónvarpið að lokum.
— Argentína
Framhald af bls. 1
hún hét því nýlega að efna til
kosninga i desember n.k., en
kosningar áttu að fara fram á
næsta ári.
Eftir handtökuna á flugvellin-
um var María Estella flutt að
heimili sínu í borginni Olivos,
sem er við rætur Andesfjalla.
Áreiðanlegar heimildir í Madr-
id hermdu í dag, að spænska
stjórnin hefði fengið orðsendingu
um, að Maria Estella Peron kynni
að koma til Spánar um næstu
helgi. Um leið kom fram, að ekk-
ert væri því til fyrirstöðu, að hún
fengi að koma til landsins. Tals-
maður argentínska sendiráðsins í
Madrid kvaðst ekki vilja tjá sig
um þetta atriði að sinni.
Aður en Peron-hjónin sneru
aftur til Argentinu árið 1973
bjuggu þau um 13 ára skeið i húsi
sinu í Madrid. Húsið er enn i eigu
Maríu Estellu Peron og er talið að
þar muni hún setjast að, fái hún
að fara frá Argentínu.
— Romm
Framhald af bls. 32
740 krónur, tvöfalt Bacardi-
romm i gosi mun kosta 810
krónur, tvöfalt brennivín i gosi
mun kosta 580 krónur og ein-
faldur Campari (6 cl) i vatni
mun kosta 240 krónur.
— Hátíðnitæki
Framhald af bls. 32
ugt um þessi tæki og hefði ekki
veitt neina heimild til þess að þau
yrðu notuð.
Eftir að stjórn íslenzkar réttar-
verndar hafði gert ráðuneytinu
grein fyrir þeim upplýsingum,
sem fyrir lágu, óskaði dómsmála-
ráðherra eftir því að ráðuneytið
kannaði málið þegar í stað og byði
tveimur fulltrúum félagsins að
fylgjast með rannsókninni.
Við rannsókn þessa máls kom
m.a. fram, að ofangreind tæki
voru notuð í tveimur fangelsum.
Annað tækið hefði verið teiknað
og smíðað hér á landi og pantað af
yfirlögregluþjóni staðarins, en
hitt tækið var af erlendri gerð.
Kom fram að erlenda tækið hafði
verið fyrirmynd að hinu íslenzka.
1 framhaldi af þessum og öðrum
niðurstöðum málsins hefur dóms-
málaráðuneytið ritað öllum
lögreglustjórum og forstöðu-
mönnum fangelsa bréf, þar sern
bönnuð er notkun hljóðtækja af
þessu tagi i fangaklefum."
Morgunblaðið hafði samband
við Baldur Möller ráðuneytis-
stjóra í gærkvöldi og spurði hann
um þetta mál. Kvað Baldur hér
ekki um raunveruleg fangelsi að
ræða, heldur fremur nætur-
gistingarstaði á tveimur litlum
stöðum.
Baldur sagðist telja það algjör-
an barnaskap af viðkomandi
lögreglumönnum að hafa sett upp
slík tæki. Hér væri um að ræða
taltæki, sem sónn væri hafður á,
og væri ekki hægt að kalla þetta
raunveruleg pvntingartæki. Kvað
hann aldrei neinar kvartanir hafa
borizt frá viðkomandi stöðum —
en hinu væri ekki að leyna að
mönnum gæti liðið illa undir
svona hávaða.
— I einu tilfellinu róaði sónn-
inn ekki fangann, en það mun
hins vegar kaffi, sem maðurinn
fékk á eftir, hafa gert.
Vegna þessa máls höfum við nú
sent öllunt lögreglustjórum og
yfirmönnum fangelsa bréf, sem
kveður á um, að svona læknisað-
ferðir séu ekki vel þegnar.
— 20% hækkun
Framhald af bls. 32
irspurn eftir góðri vöru i Banda-
rikjunum og nú er svo komið, að
hjá okkur er frekar að verða skort
ur á þorski en að við sitjum uppi
með hann i birgðageymslum. Að
vísu hefur maður heyrt um góða
þorskflaka- og blokkarfram-
leiðslu i Danmörku og Noregi í
vetur og það á eftir að koma i ljós
hvaða áhrif sá fiskur hefur á
markaðinn, en yfirleitt er mest
flutt inn af fiski í apríl, mai og
júní.“
Guðjón sagði að menn bæru
nokkurn kvíða í brjósti fyrir því,
að á sama tíma og fiskur hækkaði
f verði, þá lækkaði kjöt og þvi
gæti farið svo að fiskhækkanir
yrðu ekki miklu meiri í bráð.
Hinu mætti heldur ekki gleyma,
að of ör hækkun væri okkur
hættuleg og við brennt okkur illi-
lega á því.“ En þessa stundina
biðum við eftir meiri og vaxandi
framleiðslu heima á Islandi, þvi
það má engu skakka um að við
getum fullnægt eftirspurninni —
og eðlilega hjálpaði verkfallið
heima ekki til.“
— Formaður
Framhald af bls. 2
vettvangi hljóðvarpsins.
Með beztu kveðjum og óskum
um skjót svör.
Kjartan Gunnarsson,
formaður Stúdentafélags
Háskóla Islands.
Fyrrverandi formaður óskaði
nýkjörnum formanni allra
heilla
I fréttatilkynningu frá
nýkjörinni stjórn Stúdenta-
félags Háskóla Islands um aðal-
fundinn segir m.a.:
„Að loknu stjórnarkjöri voru
lagabreytingar á dagskrá. Ekki
reyndist, vegna óláta, óróa og
óspekta unnt að ljúka af-
greiðslu þess dagskrárliðs og
neyddist fundarstjóri til að
fresta fundinum, er uggvænt
var að til enn alvarlegri óspekta
kynni að koma.
Hin nýkjörna stjórn mun
boða til framhaldsaðalfundar
til þess að ljúka við dagskrá
fundarins. Að öðru leyti mun
hin nýkjörna stjórn hefja störf
nú þegar.
Að gefnu tilefni vegna frá-
sagna af fundi þessum í nokkr-
um dagblaðanna vill stjórnin
taka fram að til aðalfundarins
var löglega boðað og hafði ekki
verið hreyft neinum andmæl-
um við því. Þá var stjórnarkjör-
ið og fyllilega löglegt enda var
þvi ekki mótmælt og óskaði
raunar fyrrverandi formaður
nýkjörnum formanni allra
heilla í starfi í augsýn allra
fundarmanna. Hvað varðar
frestun fundarins vill stjórnin
taka fram að ástandið á fundin-
um var orðið slikt að óhugsandi
var að fundarstörf gætu farið
fram með góðri reglu og
ákvörðun fundarstjóra um
fundarfrestun var þvi bæði rétt
og óhjákvæmileg. Þá telur
stjórnin að hún hafi tekið við
störfum þegar í stað að loknum
kosningunum og mun miða
störf sín og aðgerðir við þann
skilning."
FYRRVERANDI stjórn Stúd-
entaféiags Háskóla Islands
hengdi i gærdag upp tilkynn-
ingu i Háskólanum, þar sem
aðalfundur félagsiús i fyrradag
er talinn ólöglegur og boðað er
til nýs aðalfundar hinn 1. apríl
n.k. Nýkjörin stjórn Stúdenta-
félagsins kom saman til fundar
síðdegis í gær og var þessi til-
kynning fyrrverandi stjórnar
þar m.a. til umræðu. Var á
fundinum gerð sú ályktun að
umboð fyrri stjórnar væri nið-
urfallið og því væri tilkynning-
in ólögleg og fundarboðið að
engu hafandi. Auk þess væri
nafn félagsins notað á ólögmæt-
an hátt i tilkynningunni. Enn-
fremur hefur núverandi stjórn
félagsins sent fyrrverandi for-
manni þess, Garðari Mýrdal,
simskeyti þar sem hann er kraf-
inn um gögn félagsins, en hann
hefur neitað að afhenda þau.
I tilkynningu fyrrverandi
stjórnar Stúdentafélagsins,
sem hengd var upp i Háskólan-
um i gær, segir að stjórnin telji
fundinn ólöglegan á þeim for-
sendum að dagskrá hafi ólög-
lega verið breytt, ekki hafi ver-
ið visað frá dagskrártillögum,
sem vísa hefði átt frá, ekki
hefði verið krafizt stúdenta-
skfrteina við innganginn og að
síðustu hafi atkvæðagreiðsla
ekki verið skrifleg. Sé því fund-
urinn óliiglegur og er boðað til
annars fundar fimmtudaginn 1.
apríl.
Nýkjörin stjórn Stúdentafé-
lags Háskóla Islands skipti með
sér verkum á fyrsta stjórnar-
fundi í gær. Kjartan Gunnars-
son, laganemi, er formaður,
Sigurður Helgason, sagnfræði-
nemi, varaformaður, Geir
Waage, guðfræðinemi, ritari,
Tryggvi Agnarsson, laganemi,
gjaldkeri, og Anna Jónsdóttir,
lyfjafræðinemi, meðstjórnandi.
— Ummæli
Framhald af bls. 2
Pálssyni, Ingimundi Sig-
fússyni, Guðmundi
Guðmundssyni og Þóri
Jónssyni 20 þúsund
krónur í málskostnað.
Kristjana Jónsdóttir
kvað upp dóminn. Ólafur
Jóhannesson mætti ekki
fyrir dóminn þegar mál-
ið var tekið fyrir né full-
trúi frá honum.
— Flugfélag
Framhald af bls. 2
gengið í ábyrgð fyrir og hvíla á
vélunum. Oliufélagið greiddi það
sem til kann að falla af skipta-
kostnaði, laun og aðrar forgangs-
kröfur og skal verðið vera greitt í
siðasta lagi þremur mánuðum
eftir að innköllunarfresti lýkur.
Morgunblaðið hafði í gærdag
samband við skrifstofu Flug-
félagsins Vikings og spurðist
fyrir um það hvernig hlutafjár-
söfnunin gengi. Var blaðinu tjáð
að hún gengi vel og væru komin
hlutafjárloforð fyrir rúmlega 75
milljónir króna.
— Loðnufrysting
Framhald af bls. 32
á 8000 lestum af frystri loðnu og
800 lestum af hrognum. Japanskt
skip, Icelander, hefur legið hér
undanfarna daga og lestað frysta
loðnu. Tekur það 1500 lestir af
framleiðslu SH. Annað japanskt
31
skip er væntanlegt I næsta mán-
uði.
Bjarni Magnússon hjá Islenzku
umboðssölunni tjáði blaðinu að
hjá frystihúsum á vegum fyrir-
tækisins væri búið að frysta 950
lestir upp í 2000 lesta samning,
sem búið var að gera við Japani.
Japanskt skip er væntanlegt 10.
april til að lesta fyrsta loðnu frá
Islenzku umboðssölunni.
Loks fékk Morgunblaðið þær
upplýsingar hjá Ölafi Jónssyni
hjá sjávarafurðadeild SlS, að í
Sambandsfrystihúsunum væri
búið að frysta 850 lestir upp í
2000 lesta samning, sem búið var
að gera 500 lestir af því fara með
japanska skipinu Ieelander til
Japans nú í vikunni en afgangur-
inn seinna.
— Vegirnir
Framhald af bls. 3
Bílarnir ætluðu að halda
áfram áleiðis til Akureyrar í
gær.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá Veðurstofunni i
gær að spáð væri allhvössu eða
hvössu af suð-vestan á morgun
eða svipað og verið hefur.
Lægðin er norð-vestur af land-
inu og grynnist hún hægt og
hreyfist lítið.
— Solzhenitsyn
Framhald af bls. 1
ekki vorið viss um að kornast á
leiðarenda. „En hermdarverka-
mennirnir geta verið öruggir —
almenningsólitið óbyrgist lif
þeirra. að málstaður þeirra
komist á framfæri og að þcir
verði i þokkalegu varðhaldi, þar
til að því kemur. að aðrir
hermdarverkamenn koma og
bjarga þeim. '
Um vaxandi völd kommúnista
sagði Solzhenitsyn: „A hverju ári
falla nokkur lönd til viðbótar í
hendur þeim og verða stökkpallar
i va'ntanlegri heimsstyrjöld og
allur umheimurinn stendur og að-
hefst ekkert. . . Og hvað nieð
Evrópu i dag? Hún er ekkert
annað en sal'n leiktjalda úr
pappa. Allir eru að semja við hver
annan til þess að komast að þvi
hvernig verja megi sem minnstu
fé til varnarmála og eiga þannig
meira eftir i líl'sgæðakapphlaup-
ið.“ Solzhenitsyn sagði að bæði
austur og vestur „sttoðu á barmi
mikilla sögulegra þjó-
félagssviptinga, flóðs, sem gleypa
mun siðmenninguna og valda
timamótum.....Við erum algjör-
lega föst i neti dýrkunar okkar á
öllu því sem er skemmtilegt,
þa'gilegt og efnislegt."
— Smábátahöfn
Framhald af bls. 3
föll haldi sér. Verður einnig
tekið tillit til þessa við lagningu
tveggja stórra holræsa, sem
þarna verða. En samkvæmt að-
alskipulagi Reykjavíkur er fyr-
irhugað að leggja tengibraut i
framhaldi af Kleppsmýrarvegi
-yfir Elliðaárvog og mundi sú
tengibraut koma til með að
ákvarða að nokkru leyti stærð
hafnarinnar i framtíðinni.
— Rhódesía
Framhald af bls. 15
yfir i dag, að ekki yrði gefizt fyrir
innrásaraðgerðum þjóðernissinn-
aðra skæruliða. Sagði talsmaður
stjórnarinnar, að yfirmenn hers-
ins væru þess fullvissir að hægt
yrði að standa gegn slikum inn-
rásaraðgerðum næsta árið, hversu
fjölmennt lið skæruliða sem
kynni að ráðast inn i landið.
The Rhodesian Herald, sem er
helzta dagblað landsins, sagði í
dag, að Ian Smith hefði ekki átt
um annað að velja en að hafna
skilyrðum þeim, sem brezka
stjórnin setti fyrir afskiptum sín-
um af málefnum Rhódesíu, en í
þeim felst, að efnt verði til
kosninga með þátttöku þeldökka
meirihlutans innan tveggja ára.
Telur blaðið Breta hafa sett
upp of hátt verð fyrir aðstoð sína
við að miðla málum, og vanmeti
þeir greinilega öryggi i innan-
landsmálum og styrk stjórnar-
innar i Rhódesiu.