Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 1

Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 1
78. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Spinola póli- tískt dauður” — segir Azevedo, forsætisráðherra Portúgals Azevedo — pólitisk mistök verða ekki leiðrétt yfirheyrður af lögreglunni í Sviss, þar sem hann hefur dvalið, og dómsmálaráðu- neytið þar segir að honum verði vísað úr landi ef fréttin í Stern reynist rétt, þar eð dvalarleyfi hans í Sviss hafi verið bundið því skilyrði að hann tæki engan þátt í stjórn- málum af neinu tagi. A blaöamannafundinum í dag sagði Azevedo forsætisráðherra, að hægri öflin ættu enga mögu- leika lengur á að ná völdum í Portúgal á ný. ,,Við skulum gleyma þessum draugasögum," sagði hann. „Ég þekki Spinola mjög vel og mér þætti leitt ef hann yrði niðurlægður. Hann á mörg stórkostleg hernaðarafrek að baki, en hann hefur líka gert hræðileg pólitísk mistök. Það er hægt að bæta fyrir hernaðarleg mistök, en hins vegar er ekki einu sinni unnt að leiðrétta minnstu mistök sem gerð eru á pólitískum ferli. Eg held að Spinola sé póli- tískt dauður,'* sagði Azevedo for- sætisráðherra. Spánn: Sex fanganna leika enn lausum hala Madrid 7. apr. Reuter ENN voru ófundnir f kvöld sex af þeim 29 föngum, sem komust á braut úr rammgerðu fangelsi f Segovia á mánudag. Mjög um- fangsmikil leit stendur yfir um þveran og endilangan Spán. Flest- ir voru handsamaðir f gærkvöldi eftir skotbardaga við lögreglu, lét þá einn fanganna Iffið og tveir særðust. Tveir karlmenn og ein kona, sem útveguðu föngunum vopn eftir flóttann og óku þeim til Baskahéraðsins Navarro, hafa einnig verið handtekin. F'angarnir eru í aðskilnaðar- samtökum Baska. Þegar þeir sluppu voru þeir á fangaklæðum einum. Sumir voru kaldir og hraktir og virtust hafa villzt er þeir voru að reyna að komast yfir landamærin til Frakklands. Gáfu sumir sig fram við lögreglu mót- spyrnulaust. Það hefur styrkt stöðu innan- ríkisráðherrans Manuels Fraga hversu fljótt hefur gengið fyrir sig að ná flestum fanganna aftur. Þá segir i Spánarfréttum að stöðugt aukist þrýstingur á ríkis- Framhald á bls. 23 DREKKHLAÐINN AÐ LANDI — Vestmannaeyjabáturinn Frár kom að landi í gær með rúmlega 60 tonna afla, sem hann fékk austur af Eyjum. Sjá nánar frétt á baksíðu. Vinarborg 7. apríl. Reuter — NTB JOSE Pinheiro de Azevedo, forsætisráðherra Portúgals, sem verið hefur í opinberri heimsókn í Austurríki, sagði þar á blaðamannafundi í dag að hann gæti vel trúað því að frétt vestur-þýzka tímarits- ins Stern um að Antonio de Spinola, fyrrum Portúgals- forseti, hefði reynt að afla sér vopna og fjárhags- stuðnings í V-Þýzkalandi til valdaráns í Portúgal, væri á rökum reist. En hann taldi hins vegar að Spinola væri „pólitískt dauður“. Spinola var í dag (Ljosm. Mbl. Sigurgeir) Valdabaráttu lokið í Kína í bili: Teng sviptur öllum stöðum — og Hua gengur nú næstur Mao Peking 7. apríl Reuter. AP. NTB. MIÐSTJORN kínverska kommúnistaflokksins skipaði í dag Hua Kuo- feng forsætisráðherra landsins og fyrsta varaformann flokksins, að tillögu frá Mao Tse-tune formanni. að því er fréttastofan Nýja Kfna skýrði frá sfðdegis. Þar sagði einnig að Teng Hsiao-ping hefði verið sviptur öllum ábyrgðarstöðum sínum en hann þótti um nokkra hríð líklegasti arftaki Chou En-lais. Fljótlega eftir lát Chou hófst þó andróður gegn honum. Teng hefur verið sakaður um að vera hand- bendi heimsvaldasinna og sóknin gegn honum hefur herzt mjög upp á sfðkastið. Fréttaskýrendur telja einsýnt að úrslitum hafi ráðið þær miklu óeirðir sem urðu á torgi hins himneska friðar á mánudag en fréttastofur í Kína hafa sagt frá þvi að þar hafi verið að verki fylgismenn Tengs. Þessar ákvarðanir þykja ein- hverjar hinar athyglisverðustu í 26 ára sögu Kínverska alþýðulýð- veldisins og gefa eindregna bendingu um að hin róttækari öfl innan flokksins hafi borið sigur af hinum sem hægfara voru en ljóst megi vera að þeir hafi þó orðið að fallast á ákveðna málamiðlun. Þá var skýrt frá þvi í fyrsta skipti I dag að meira en eitt hundrað verðir og öryggisliðar hefðu særzt, sumir mjög alvarlega í átökunum á mánudag, sem Stonehouse gengur úr Verkamannaflokknum London 7. apríl. Reuler. BREZKI þingmaðurinn John Stonehouse, sem frægur varð er hann reyndi að setja á svið andlát sitt fyrir hálfu öðru ári, og skaut John Stonehouse síðan upp kollinum i Astralfu, hefur sagt sig úr brezka Verka- mannaflokknum. Þcssi ákvörðun hans gerir það að verkum að Jam- es Callaghan situr uppi með minnihlutastjórn, þar sem eins atkvæðameirihluti stjórnarinnar varð að engu f gær við andlát Brian O’Malley, hcilbrigðisráð- herra. Stonehouse kvaðst ekki ætla að segja af sér þingmennsku heldur sitja áfram í Neðri málstofunni sem óháður þingmaður og gaf í skyn að hann kynni að greiða atkvæði gegn stjórninni. Hann sagðist grípa til þessa ráðs vegna þess að hann vildi flýta fyrir að almennar kosningar yrðu haldn- ar. Hann sagði að England hefði ekki efni á þvi að næsta tvö og hálfa árið til viðbótar sæti þar við Framhald á bls. 23 Hua er nú annar mestur valda- maður í Kfna kölluð eru „skipulögð and- byltingariðja”. Samkvæmt fréttum hafa forsprakkarnir verið handteknir en fyrir þeim hafi vakað að breyta núverandi kerfi í Kina og stuðla að þvi að Teng héldi áhrifum sínum. f'rá- sögn af átökunum var lesin upp skömmu eftir að sagt var frá þvi að Teng hefði verið sviptur öllum Teng hefur öðru sinni verið varpað út í kuldann. sínum stöðum, en hann var meðal annars aðstoðarforsætisráðherra og forseti herráðsins. Þar var lýst mjög fjálglega hetjulegri fram- göngu varðliða sem hugdjarfir hefðu gengið á hólm við and- stæðingana sem hefðu safnazt saman á torginu. „Allmargir glæpamenn voru handteknir, svo Framhald á bls. 23 Bandaríska utanríkisráðuneytið um frétt NTB: Engar líkur á mála- miðlun Kissingers „ÉG hef ekki heyrt þessa frétt áður og ég get ekki staðfest þetta,“ sagði Trettner, blaðafulltrúi bandarfska utanríkisráðunevtisins, er Morgunblaðið bar í gær undir hann frétt NTB-fréttastofunnar um að Henry Kissinger, utanrfkisráðherra Bandarfkjanna, mundi að öllum Ifkindum reyna að miðla málum f fiskveiðideilu lslendinga og Breta á ráðherrafundi NATO f Ósló í maf. „Ég veit ekki til þess að uppi séu neinar ráðagerðir um málamiðlun Bandarfkjanna f deilunni," sagði Trettner. „Auðvitað verður fiskveiðideilan vafalaust rædd á þessum fundi, en það hefur verið viðhorf Bandarfkjastjórnar að Islendingar og Bretar reyndu að finna sjálfir lausn á deilunni og ég veit ekki til þess að þetta viðhorf hafi breyst.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.