Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 Sambandið hefur framleiðslu á flíkum úr íslenzkri ull og nýju gerviefni 800 börn samein- ast gegn reykingum 1 GÆR var haldinn fundur I framhaldi af starfsemi sem farið hefur fram f nokkrum skólum borgarinnar undanfarnar vikur og mánuði I baráttu gegn reyking- um. Starfsemi þessi hófst seint á sfðasta ári í Breiðholtsskóla með því að framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags Reykjavfkur heim- sótti skólann fyrir hönd félagsins en áður hafði hann rætt við skóla- stjóra og kennara 6. bekkjar um að reyna nýjar leiðir f baráttu gegn reykingum barna og ungl- inga. I ramráði við skólann var svo gerð áætlun um sérstaka fræðslu f 6. bekk f þvf skyni að efla sem mest þekkingu skóla- barna á skaðsemi reykinga og efla áhuga þeirra á að halda sér frá tóbaksnautninni. Einnig var miðað við að nemendur 6. bekkj- ar gætu tekið að sér að fræða yngri skólasystkinin sfn um þessi mál og hvetja þau til að forðast reykingar. Skólarnir sem þátt tóku í þessari starfsemi voru Álftamýr- ar-, Árbæjar-, Breiðholts-, Hlíða-, Framhald á bls. 23 Fundað um Reykja víkurflugvöll Sjálfstæðisfélögin umhverfis Reykjavíkurflugvöll efna til al- menns fundar um flugvöllinn, stöðu hans og framtíð i Kristalsal Hótel Loftleiða í kvöld kl. 20.30. Á fundinum munu Hilmar Ölafsson, forstöðumaður Þróunarstofnunar Reykjavikur- borgar, Leifur Magnússon, aðstoðarflugmálastjóri, og Ölafur B. Thors, forseti borgarstjórnar, flytja framsöguerindi og enn- fremur mun borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, mæta á fundinum. Mun hann síðan sitja þar fyrir svörum ásamt frum- mælendum. Launasjóður rithöfunda INDRIÐI G. Þorsteinsson rithöf- undur mun ræða um lög um launasjóð rithöfunda á fundi I Félagi íslenzkra rithöfunda I kvöld kl. 8.30. Fundarstaður er Hótel Esja. FÆRÐ er víðast hvar góð á land- inu og I gærmorgun var Norður- leiðin fær alveg austur um, allt til Vopnafjarðar um Sléttu. Hins vegar gerðist það á hádegi I gær, að skyndilega skall á bylur á Holtavörðuheiði og rofnuðu þá samgöngur við Norðurland. Ekki var farið að ryðja leiðina I gær- kvöldi heldur beðið þar til ástand og horfur skýrðust betur. Að öðru leyti gætti helzt ófærð- ar á Snæfellsnesi. Þar var verið Hárgreiðsla og harð- fiskur hækka VERÐLAGSSTJÓRI hefur heim- ilað hárgreiðslumeisturum að hækka gjaldskrá sfna um 5.25%. Þá hefur einnig verið veitt heim- ild til að hækka harðfisk um 22% og hækkar þvf 100 gramma pakk- inn af harðfiski úr kr. 184 í 225 kr. að ryðja Fróðárheiði í gær en ófært var um Kerlingarskarð. Aft- ur á móti var fært um Heydal og þaðan áfram með norðanverðu nesinu allt til Ólafsvíkur og Hell- issands. Einnig var um Heydal fært i Dalina og þaðan áfram allt til Króksfjarðarness. Ekki höfðu borizt fregnir til vegaeftirlits um færð á vegum kringum Patreksfjörð. Heiðarveg- ir eru flestir ófærir á Vestfjörð- um en fært var milli Flateyrar og Þingeyrar og eins út frá Isafirði til bæði Bolungarvíkur og Súða- víkur. Þá var i gærmorgun fært allt til Hólmavíkur eða þar til Holtavörðuheiði lokaðist. Agæt færð var um Norðurland og út frá aðalveginum þar var bæði fært til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Mjög góð færð var einnig víðast hvar á Austfjörðum. Þangað var fært að sunnanverðu allt til Egilsstaða, og fært er um bæði Fjarðarheiði og Oddsskarð. Þorpin á NA-landi: Óven ju mildur vetur en deyfð 1 atvinnu FREMUR hefur verið dauft yf- ir atvinnullfinu í þorpum á norðausturhorni landsins. Grá- sleppuvertfðin hefur verið að ganga þar í garð, en er þó yfir- leitt ekki hafin að ráði vegna lélegra gæfta. Þó geta fbúar þessa landshluta yfirleitt ekki kvartað undan veðrinu, sem hefur verið hagstætt mestan hluta vetrar. RAUFARHÖGN: „Hingað komu góðir gestir sl. laugardag. Voru það barí- , tonsöngvarinn John Speigt og kona hans Sveinbjörg Vil- hjálmsdóttir, og héldu hér tón- leika. Á efnisskránni voru lög eftir innlenda og erlenda höf- unda. Tónleikarnir voru allvel sóttir og listafólkinu vel fagn- að. Hafi þau heila þökk fyrir komuna. Til að greiða fyrir þessari ferð listafólksins bauð sveitar- stjórnin fram fjárstyrk, ef á þyrfti að halda, og slík bak- trygging er mikill stuðningur meðan ekki starfar hér tónlist- arfélag en uppi er umræða um stofnun sliks félagsskapar. Fyr- irhugað er að starfrækja hér tónlistarskóla næsta vetur. Var nýlega gerð könnun á því hve margir vildu njóta þar kennslu. Samkvæmt henni lýstu 42 yfir áhuga á kennslu á ýmiss konar hljóðfæri, bæði börn og full- orðnir. Vænta má góðs af þess- um mikla áhuga íbúa hér, og vonandi verður framhald á heimsóknum listafólks menn- ingarlífi staðarins til eflingar. Af aflabrögðum eru þær fréttir helztar, að togskipið okk- ar, Rauðignúpur, hefur frá ára- mótum til síðustu mánaðamóta veitt 661 tonn, en annar landað- ur bolfiskafli báta er 40 tonn. Grásleppuveiði er byrjuð en lít- ið hefur veiðzt fyrr en síðustu daga. Er búið að verka I 132 tunnur. Hér var landað 14200 tonnum af loðnu og fengust um 2 þúsund tonn af mjöli og 1040 tonn af lýsi. Hefði ekki loðnan fengizt og togarinn aflað þetta má segja að hér hefði verið. mjög slæmt ástand í atvinnu- málum/1 símaði fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn, Helgi Ólafs- son, í gærkvöldi. VOPNAFJÖRÐUR. „Það er Framhald á bls. 23 Breiðari lína gefur aukna möguleika 11 11 IÐNAÐARDEILI) Sambands íslenzkra samvinnu- félaga mun á næstunni hefja framleiðslu til sölu innanlands og erlendis á flíkum unnum úr Islenzkri u 11 og gerviefninu NORMFiLLE. Það er fvrir tækið Du Pont, sem framleiðir þetta gerviefni og við tilraunir bæði heima og erlendis síðastliðið ár hefur blanda ullar og þessa gerviefnis gefið mjög góða raun. Þess má geta að Sambandið hefur fengið einkaumboð fyrir þetta gerviefni hér á landi. Þræðir þessa gerviefnis laga sig mjög vel að ullarþráðum þannig að flíkur úr blöndu af því og ull sýna fyrst og fremst þá eiginleika sem ullarflíkur hafa. Efnið er nýkomið á markaðinn og hefur það ekki verið kynnt enn i Evrópulöndum. Er Iðnaðardeild Sambandsins fyrsta fyrirtækið, sem notar það í fataiðnaói. Heildarsala allra fyrirtækja Iðnaðardeildar SlS nam á síðasta ári 3.100 millj. króna og af þeirri upphæð námu útfluttar vörur rúmlega 1200 milljónum króna. Starfsfólk í öllum verksmiðjum Sambandsins telur um 800 manns og vinnulaun, sem Iðnaðardeild Sambandsins greiddi voru '710 milljónir króna. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði Erlendur Einarsson for- stjóri Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga að fyrir dyrum væri nú stóraukið átak í iðnaði hjá Sambandinu. Staða Sambandsins Á blaðamannafundi hjá Sam- bandinu í gær sagði Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar m.a. að marg- háttaðar tilraunir hefðu farið fram á vegum Sambandsins á blöndu úr þessum efnum á síðast- liðnu ári. Blandan hefði m.a. þann kost að þvottur yrði allur mun auðveldari, flíkurnar væru á mörkuðum í A-Evrópu væri nú mjög sterk og þá sérstaklega I Sovétríkjunum. Vestan hafs væri ráðgert að herða mjög sóknina og myndi fyrirtækið Du Pont aðstoða við markaðsöflun þar. Þar væri meiningin að selja vörur úr hreinni islenzkri ull, sem sýndu vel séreinkenni ullarinnar, en einnig flíkur úr blöndu ullar og gerviefnis sem Du Pont fyrirtæk- ið framleiddi. — Því er ekki að leyna að við höfum rekið okkur á ýmsa agnúa í viðleitni okkar til að efla íslenzk- Framhald á bls. 23 léttari og mýkri en flíkur úr hreinni ull. Tilkoma þessarar blöndu stækkaði mjög verksvið íslenzkrar ullarframleiðslu og gæfi möguleika á aukinni fjöl- breytni. Dagana 17. —18. marz var haldinn í New Vork sýning á ullarvörum á vegum Iðnaðar- deildar Sambandsins. Sýningin var haldin í sýningarsal fyrir- tækisins Du Pont og i samvinnu við það fyrirtæki. Sýndur var alls konar fatnaður, bæði úr 100% íslenzkri ull og úr nýrri blöndu af gerviefninu Normelle og islenzkri ull. Tókst sýning þessi mjög vel og var mikill áhugi á henni, bæði meðal framleiðenda og kaupenda. 1 kjölfar sýningarinnar er þegar búið að gera sölusamning við bandarískt fyrirtæki að upphæð 360 þúsund dollarar og á næstu vikum eru fulltrúar frá tveimur stórum fyrirtækjum í Banda- ríkjunum væntanlegir til Akur- eyrar til viðræóna um kaup á ullarvörum frá Sambandinu. Þá Framhald á bls. 23 Hvað vilja Bretar í steinbítinn? AFLI Vestfjarðatogara var yf- irleitt góður í marzmánuði, en hins vegar hefur verið treg- ur afli hjá þeim undanfarið. Sæmilegur afli hefur verið hjá línubátunum á sama tíma, að þvf er Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri á Isafirði, tjáði okkur. „Vestfjarðatogararnir hafa allir verið fyrir sunnan land undanfarið," sagði Jón enn- fremur," þar sem hér hefur engan þorsk verið að fá og línubátarnir hafa eingöngu verið með steinbít núna. Svo að ég skil ekki alveg hvað Bretarnir hyggjast fyrir með þvi að vera að færa sig hingað á þessum tíma, því að stein- bítur hefur aldrei verið markaðsvara í Bretlandi. Hins vegar er mér ekki alveg kunnugt um hvar brezku togararnir munu halda sig, en mér þykir þó líklegra, að þeir verði á Barðagrunni heldur en úti á Hala. Ekki er gott að segja hversu mikilli truflun brezku togararnir valda hjá línubátum okkar, en þó held ég að togararnir hljóti að halda sig nokkuð dýpra en bátarnir. Og við erum svo sem vanir nábýlinu við Bretann á miðum okkar." Frá blaðamannafundi Sambandsins I gær, Hjörtur Eirfksson fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar, Erlendur Einarsson forstjóri Sam- bandsins og Eysteinn Sigurðsson. (Ljósm. ÖI.K. Mag.). Stóraukning fram- undan hjá Iðnaðar- deild Sambandsins HJA ullarverksmiðjunni Gefjun á Akureyri stendur nú fyrir dyrum mikil stækkun. Kcypt verður m.a. ný kembi- og spunavélasamstæða til viðbótar þremur sem fyrir eru. Byggð verða lagerhús og verksmiðju- hús. Aætlað er að þessar framkvæmdir kosti um 320 milljónir króna, en þeim verði lokið fyrir næstu áramót. Hjá gefjun verða unnir dúkar og garn, sem sfðar verður fullunnið til útflutnings hjá prjóna- og saumastofum um land allt. Holtavörðuheiði tepptist skyndilega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.