Morgunblaðið - 08.04.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976
3
Sinfónían flytur Sálumessu Verdis
í dag verða 14. áskriftar-
tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands haldnir i
Háskólabíói og hefjast að
venju kl. 20.30. Sinfóníu-
hljómsveitin og Fíl-
harmóníukórinn standa
saman að þessum tónleik-
um en á efnisskrá að
Karsten Andersen
þessu sinni er Sálumessa
Verdis. Stjórnandi
þessara tónleika er
Karsten Andersen en
söngstjóri Fílharmóníu-
kórsins er Jón Ásgeirs-
son. Einsöngvarar eru
Fröydis Klausberger,
Rut Magnusson, Magnús
Jónsson og Guðmundur
Jónsson.
Sálumessuna samdi
Verdi í minningu þjóð-
skálds ítala, Alessandro
Manzoni, og er verið sam-
ið 1874. Er verkið sagt af
mörgum bezta ópera
Verdis.
I þessum tónleikum
taka þátt um 200 manns.
Eru í Sinfóníuhljóm-
sveitinni um 65 hljóð-
færaleikarar, um 120
manns eru í Fíl-
harmóníukórnum auk
Um 200 manns taka þátt í flutningnum
einsöngvara. Sálumessa
Verdis var áður flutt af
þessum sömu aðilum árið
1968 en þá stjórnaði
Róbert Abraham Ottós-
son flutningnum.
Verkið verður endur-
> tekið á laugardaginn á
sama stað en miðasala er
í bókaverzlunum Lárusar
Blöndals og Sigfúsar
Eymundssonar.
Minni hækkun
byggingarvísitölu
Á blaðamannafundi sem Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins efndi til fvrir skömmu kom
m.a. fram að vfsitala byggingar-
kostnaðar hefur hækkað mun
minna á fyrsta ársfjðrðungi þessa
árs en á sama tfma f fyrra. Þá var
einnig hækkun byggingarvfsitölu
á sfðasta ársfjórðungi liðins árs
óveruleg. Vfsitalan er nú reiknuð
samkvæmt nýrri aðferð sem RB
vann að á sl. ári. Vísitala bygging-
arkostnaðar er reiknuð út árs-
fjórðungslega og er grunnvfsital-
an sett sem 100 stig.
A fundinum kom einnig fram
að eftirlit og þjónusta er megin-
hluti starfsemi stofnunarinnar og
að rannsóknir væru ekki nema
um 25% starfsins. Væri þörf fyrir
miklu víðtækari og meiri rann-
sóknastarfsemi og hjá nágranna-
þjóðunum væri margfalt meira fé
lagt í slíka rannsóknastarfsemi en
hér á landi og væri rannsókna-
starfsemi áreiðanlega langöflug-
asta tækið sem við hefðum til
sparnaðar.
Þá sagði Haraldur Asgeirsson
forstjóri RB að það takmarkaða
fjármagn sem stofnunin fengi ylli
því að vandinn við val verkefna
væri miklu meiri þar sem velja
þarf viðfangsefni sem líklegt er
að gefi góða raun.
nVir Otreikningar bygg-
INGARVÍSITÖLU
Sá nýi máti sem nú er við hafð-
ur við útreikninga á vísitölu bygg-
ingarkostnaðar er unninn í sam-
vinnu við Hagstofu Islands. Vísi-
talan sem notuð hefur verið til
þessa er að vísu góð að sögn Har-
alds, en engan veginn fullnægj-
andi. Það er t.d. óeðlilegt að end-
urgreiðsla á rikisskuldabréfum
miðist við hækkun gatnagerðar-
gjalda í Reykjavík, en þar stendur
vísitöluhúsið.
Grunnvisitalan sem nú er sett
er miðuð við 100 stig. Siðasta árs-
fjórðung ársins 1975 hækkaði hún
í 101 stig en fyrsta ársfjórðung
þessa árs hækkaði hún i 105 stig.
Vísitölur eru nú gefnar upp fyrir
7 þætti byggingarkostnaðar auk
fleiri undirflokka. Þættirnir eru
undirbygging, yfirbygging, frá-
gangur yfirbyggingar, innrétting-
ar, útbúnaður, ytri frágangur^og
annað. Veigamestur er þáttur yf-
irbyggingar og nemur hann um
27% af heildarvísitölunni. Þessi
þáttur er víða erlendis mun
hærri. Þá eru einnig visitölur inn-
réttinga og frágangs við yfirbygg-
ingu stór þáttur eða 19% og um
24%. Þetta er víða erlendis mun
lægra, oft 15%.
Astæðurnar fyrir að ekki er
eins mikil hækkun á byggingar-
vísitölu í ár og á sama tima I fyrra
eru aó ekki hafa verið eins miklar
hækkanir á efni á erlendum
markaði og spenna á innlendum
byggingarmarkaði hefur verið
minni. Sú hækkun á vísitölu bygg-
ingarkostnaðar sem orðið hefur á
þessu ári er fyrst og fremst vegna
nýrra kjarasamninga.
Ný verksmiðja
Coldwater
1 Boston
COLDWATER, fyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna í Bandarfkjunum, hefur ákveðið að byggja
fiskiðnaðarverksmiðju í Boston. Nýja verksmiðjan
mun standa við hlið frystigeymslunnar, sem fyrir-
tækið hefur byggt þar og verður tekin í notkun eftir
nokkrar vikur. 1 nýju verksmiðjunni, sem mun kosta
um 1300 milljónir fsl., verða teknar upp nýjar starfs-
aðferðir og gera forráðamenn Coldwater sér vonir um
að hægt verði að greiða hærra verð til framleiðenda
fyrir bragðið.
Nýja verksmiðjan á að vera
tilbúin eftir eitt ár. Rekstur
Coldwater hefur gengið mjög
vel það sem af er þessu ári og
fyrstu þrjá mánuði ársins jókst
sala fyrirtækisins um 36% mið-
að við sama tima í fyrra. Þetta
kom m.a. fram þegar Morgun-
blaðið ræddi við Þorstein Gisla-
son forstjóra Coldwaters, en
hann er staddur á Islandi um
þessar mundir.
Eins og áður hefur komið
fram var sala Coldwater yfir
100 milljónir dollara á s.l. ári.
Má búast við enn frekari
aukningu á þessu ári?
— Já, sala fyrstu þrjá
mánuði þessa árs hefur verið
36% umfram það, sem hún var
á sama tíma I fyrra.
— Nú er það vitað, að Cold-
water hefur verið í miklum
vexti undanfarið. Getur verk-
smiðjan annað slíkri aukningu
til lengdar?
— Nei, verksmiðjan i Cam-
bridge mun verða fullnýtt I
sumar, með uppsetningu á nýj-
um tækjum, sem verið er að
koma fyrir, og er framleitt I
henni allan sólarhringinn.
Aframhaldandi söluaukning út-
heimtir að verksmiðjan verði
stækkuð enn frekar. Við höfum
áformaó að sú stækkun eigi sér
stað i Boston. Þar höfum við
þegar byggt 5000 lesta frysti-
geymslu á lóð, sem félagið á við
höfnina.
Á næsta ári verður að byggja
þar nýja verksmiðju og að því
loknu verður húsakostur þar
Þorsteinn Gfslason
samtals 7500 fermetrar. Til
samanburðar má geta þess, að
verksmiðjan í Cambridge er
18000 fermetrar.
— Hver er áætlaður heildar-
kostnaður framkvæmda í
Boston?
— Hann er áætlaður 7.3
milljónir dollara eða að jafn-
virði 1300 milljóna króna,
þegar talið er bæði byggingar-
kostnaður, lóðakaup og endur-
bætur á hafnarmannvirkjum.
— Hversu gott útlit er fyrir
að reksturinn geti staðið undir
kostnaðinum?
— Það er mjög líklegt að
reksturinn verði arðbær, þar
sem áformað er einungis fram-
leiðsla þeirra tegunda, sem geta
gefið góðan áfrakstur. Vonazt
Kostnaðar-
verð 7,3 m.
dollara-
36% sölu-
aukning
fyrstu
þrjá mánuði
þessa árs
er til að þessi rekstur geti stuðl-
að að áframhaldandi hækkun
fiskblokka, þvi að beitt verður
nýjum framleiðsluaðferðum i
nýju verksmiðjunni, sem
væntanlega geta staðið undir
slikum verðhækkunum.
— Hvenær er áætlað að fram-
kvæmdum ljúki?
— Frystigeymslan er nú að
verða tilbúin og framkvæmdir
að hefjast vegna verksmiðjunn-
ar, sem munu væntanlega taka
eitt ár.
— Hvernig verða þessar
framkvæmdir fjármagnaðar?
— Að miklu leyti með lánsfé
og að nokkru leyti með eigin fé.
— Hefur rekstur félagsins
verið það arðbær i seinni tíð, að
það getur lagt fram eigið fé?
— Já, jafnframt þvi að borga
ávallt fullt markaðsverð til
framleiðenda á Islandi hefur
tekizt að byggja félagið upp. Sá
styrkleiki félagsins mun stuðla
mjög að bættum markaðsmögu-
leikum afurða okkar.
— Nú varð Coldwater fyrst
til að hækka verð á flökum í
haust og aftur þorskblokk núna
nýlega. Má búast við frekari
hækkunum í náinni framtið?
— Það er von til þess, að
einhverjar frekari hækkanir
verði, en alvarleg truflun vegna
veiðitakmarkana eða af öðrum
ástæðum gæti valdið verð-
lækkunum, þar sem hagkvæm
markaðsuppbygging krefst
stöðugleika i sölu.