Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 7

Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 7 Skyldur stjórn- málamanna við hinn almenna borgara Framtíð lýðræðis og al- mennra þegnréttinda, í vestrænum skilningi þeirra orða, eru ofarlega í hugum milljóna manna um gjörvallan heim. Ekki mun verulegur ágreining- ur um það, að lýðræðið hefur þróast farsællegast í V-Evrópu og N-Ameríku og að Norðurlönd séu í þvi efni í fremstu röð. Þar hefur tekizt nokkurn veg- inn að tryggja allt i senn: valddreifingu í viðkom- andi þjóðfélögunum, frelsi einstaklinganna innan ramma þjóðfélagsins, fé- lagslegt öryggi og al- menna velmegun. Mörg brotalömin er að vísu á þjóðskipulagi þessara rikja og mörg skref óstigin i réttlætis og hagsældar átt. Það, sem skiptir þó meginmáli í þvi sambandi er, að skilyrði hafa skap- azt til jákvæðrar framþró- unar, án öfga og vafa- samra þjóðfélagssvipt- inga, er skapa fleiri vandamái en þau leysa. Framtíð lýðræðis í heiminum byggist e.t.v. fyrst og fremst á sam- stöðu og samtakamætti lýðræðisþjóða, einkum á sviði öryggis- og varnar- mála, en ekki siður á að- haldi í garð stjórnvalda i hverju landi fyrir sig. í þvi efni er kosningarétturinn mikilvægt vopn, sem leggur þegnunum á herð- ar mikla ábyrgð. Það er þessi þegnréttur, sem á að vera trygging þess, að stjórnmálamenn uppfylli skyldur sinar við umbjóð- endurna, hina almennu borgara. Skyldur og hlutverk stjórn arandstöðu . . Það hefur viljað brenna við í islenzkum stjórnmál- um, að stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn hafi mismunandi afstöðu til mála og mismunandi skilning á pólitiskri ábyrgð eftir þvi, hvort þeir eru i stjórn eða stjórnar- andstöðu. Það er að vísu hlutverk stjórnarandstöðu að veita löglega kosnum stjórnendum, hvort heldur er sveitarfélaga eða þjóð- félagsins, gagnrýnið að- hald, sem jafnframt þjón- ar þeim tilgangi, að al- menningur geti skoðað vandamál samtímans frá fleiri en einni hlið. Hin meginskylda stjórnarand- stöðu hefur því miður fall- ið í skuggann, að henni ber að setja fram rök- studda stefnumörkun og tillögugerð um úrlausnir, svo hinn almenni borgari hafi góða yfirsýn og dómsaðstöðu um þá til- tæku valkosti, sem hverju sinni eru fyrir hendi. Stjórnarandstaða hefur alltof oft fallið í þá gryfju að vera á móti öllu, sem stjórnvöld koma fram með, án þess að leggja fram rökstuddar tillögur um hvern veg skuli að hennar dómi snúast við viðkomandi úrlausnarefn- um. Þetta er að nokkru leyti sök okkar, hinna almennu borgara, sem eigum með dómsvaldi okkar að geta útilokað slíka hegðan stjórnmála- manna. Glöggt dæmi um sllkt ábyrgðarleysi stjórnmála- manna er afstaða minni- hluta borgarstjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætl- ana borgarsjóðs og borg- arstofnana fyrir skemmstu. Þeir sátu hjá við atkvæðagreiðslu við alla liði þessara áætlana, burt séð frá því hvers eðl- is þeir voru, án þess að leggja fram eina einustu breytingartillögu. Slík vinnubrögð og ábyrgðar- leysi eiga að hljóta harðan dóm almenningsálitsins. Stjórnarand- staðan á þingi Ef hinn almenni borgari væri spurður, hver væri stefna og tillögugerð stjórnarandstöðunnar á Alþingi i helztu viðfangs- efnum samtímans, t.d. varðandi vanda efnahags- lífsins, verðbólguþróunar, hallans á ríkisbúskapnum, versnandi gjaldeyrisstoðu þjóðarbúsins, erlenda skuldasöfnun og þjóðar- eyðslu umfram þjóðar- tekjur, vefðist honum tunga um tönn. Þessi stefnumörkun er sum sé alls ekki fyrir hendi. Stjórnarandstaðan hefur gjörsamlega brugðizt hlut- verki sínu að þessu leyti. Hún á þá afsökun eina, að sjáldan hefur sundurlaus- ari og sjalfri sér ósam- þykkari stjórnarandstaða verið til staðar í landinu. Engu að siður flutti þessi stjórnarandstaða van- traust á núverandi rikis- stjórn, án þess að hafa i handraðanum möguleika á myndun nýrrar ríkis- stjórnar, til að taka við stjórnartaumum, og án þess að hafa komið sér saman um markaða stefnu í þeim vandamál- um, sem við er að kljást. Þessi vantrauststillaga var engu að siður flutt í miðju landhelgisstríði við Breta og við meiri efna- hagsvanda en þjóðin hef- ur lengi átt við að stríða; þegar þjóðarnauðsyn krafðist i raun samstöðu og einingar um úrlausnir aðsteðjandi vanda. Slíkt ábyrgðarleysi er e.t.v. alvarlegasta brotalömin á íslenzku lýðræði i dag. ARNARFLUG Stjórn Arnarflugs hf. boðar til framhaldsstofnfundar laugardaginn 10. apríl kl. 2 í Þjóðleikhússkjallaranum. Tilefni fundarins er að ganga endanlega frá stofnun félagsins. Stjórn Arnarflugs hf. SÉRVERSLUN MEÐ SVÍNAKJÖT i Heildsala — Smásala lí SÍLD & FISKUR Bergstaóastræti 37 sími 24447 Páskaferö til Húsavíkur Brotttor 14. aprtl — 5 dagar Ferðir fyrir alla fjölskylduna til einhvers fegursta staðar þessa lands. Ver8 kr. kr. 1 5.200 - með ferðum og gistingu á Hótel Husavik. m/morgunmat. KYNNISFERÐIR í KELDUHVERFIÐ. Bátsferð i Flatey! Kvöldvaka. Árni Johnsen. 2. páskum, dansleikur i Víkurnaut. Heiðskjálf opið öll kvöld. Ferðaskrifstofan ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SÍMAR 26611 og 20100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.