Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 12

Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976 * Utvegsmenn á Suðurnesjum: Vid erum rígmontnir I takmarkaöan tíma getum viö boöið Agfamatic 2000, vasamyndavélina á aðeins 9985 krónur HÉR ER UM 2285 KRÓNA VERÐLÆKKUN AÐ RÆÐA — GERI AÐRIR BETUR Við vitum að einhver kann að segja „þetta er dýrt". Við bjóðum þess vegna efasemdarmönnum að handleika vélina. Þeir komast að raun um það, að hér er um vandaða vöru að ræða, gerða úr hinum upprunalegu efnum — málmi og gleri. Ekki gerfiefnum, sem — fæst orð bera minnst ábyrgð En nú vantar rjómann á tertuna, og hér kemur hann Með vélinni fyglja: EIN LITFYLMA, TASKA, ÓL OG FLASHKUBBUR SEM SAGT: Vid erum rígmontnir FÆST í TÝLI, AUSTURSTRÆTI OG í LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUNUM UM ALLT LAND. Skagfirðingar eru ein syngjandi fjölskylda Bæ, Höfðaströnd, EKKI er hægt að segja annað en veðurguðir hafi verið Skagfirð- ingum hliðhollir í vetur, og man ég ekki eftir betra árferði þrjá fyrstu mánuði ársins síðan 1964, en þá sprungu sóleyjar út á tún- um í mars, og meðalhiti vetrar- mánuði hér var +3 gráður. I vetur höfum við Skagfirð- ingar stundum verið á milli veðra því að vestan og austan við fjall- garða hafa oft verið verri veður. Vel bílfært hefir verið um hér- aðið frá áramótum og sjaldan teppzt til Siglufjarðar, nú eru aðeins svellglottar á láglendi. Félagslíf hefir verið líflegt eins og að venju um þennan tima. I Fljótum er mjög margt af góðu félagshyggjufólki sem er samhent og fjölhæft til starfa, söngkraftar eru þar góðir. Spilamenn og leik- kraftar eru þar betri en gerist víða. Fljótafólk er nú að æfa leik- ritið Klerkar f klípu. Á Hofsósi er komið saman viku- lega, fólk úr 5 hreppum spilar þar bridge. Söngfélagið Harpa á Hofs- ósi, sem er áhugafplk um söng, einnig úr 5 hreppunraustan fjarð- ar, æfir nú af kappi undir stjórn Ingimars Pálssonar söngkennara á Hólum. Karlakórinn Heimir æfir í Varmahlið undir stjórn Árna Ingimundar, en báða þessa kóra raddæfir Anna Jónsdóttir frá Mýrakoti. Á Sauðárkróki er starfandi blandaður kór og svo eru allir kirkjukórarnir. Það má því næst- um segja að Skagfirðingar séu ein syngjandi fjölskylda. Lionsklúbburinn Höfði á Hofs- ósi starfar af áhuga. Vinnur hann að ýmsum góðum málefnum og þar á meðal safnar hann nú til tækjakaupa i læknastofu á Hofs- ósi. 13. marz hélt klúbburinn árs- hátíð sína, sem þótti takast mjög vel. Sáu félagsmenn um öll skemmtiatriði. Að undanförnu hefir inflúensa gengið hér yfir og hefir það komið sér mjög illa sérstaklega vegna frystihúsvinnu en þar hefir verið mjög mikið að gera þvi að togskipin hafa komið með full- fermi eftir viku veiðiferðir. Hús- mæður úr sveitinni hafa verið fengnar til vinnu og jafnvel komið til tals að fá starfskrafta frá unglingaskóla á Hofsósi. Sjómenn eru rétt að byrja að leggja fyrir rauðmaga og grá- sleppu, en afli er sáralítill ennþá. Hugur er þó í útgerðarmönnum að stunda þá veiði töluvert. Ölafur Þorsteinsson og félagar á Hofsósi hafa byggt hús á Hofsósi til móttöku og söltunar á hrogn- um. Nýlokið er uppgjörum skatt- framtala, og þó afkoma sé misjöfn þá virðast flestir komast vel af. En einhvern veginn finnst manni að þetta ár verði erfiðara að skila góðum rekstri. Breytingar eru framundan þar sem í undirbún- ingi er tankvæðing mjólkur í hér- aðinu. Huga menn nú frekar að einhæfum búrekstri, kúm eða sauðfé. Björn f Bæ. Lýsa stuðningi við frum- varp Fiskveiðilaganefndar (opinn krani) Kver borgar ? Húseígendatiygging borgar tjón á innréttingum, málningu, veggfóðri, flísum o.fl.þ.h. Heimilistrygging borgar tjón á innbúi (húsgögnum, gólfteppum o.fl. þ.h.) Ábyrgðartrygging heimilistryggingar borgar tjónið á 3., 2.,l.hæð og í kjallara. Allt með því skilyrði þó að húseigenda- og heimilistrygging sé fyrir hendi - annars ekki. milli veiðigreina, og þá á kostnað hinna hefðbundnu vertiðarbáta, á svæðinu frá Stokksnesi að Látra- bjargi. En á þessu svæði hefur á vertíðum veiðst sá þorskur, sem best hefur dugað til fiskvinnslu, sökum stærðar og gæða, enda á stundum verið látinn bera uppi ýmsa kostnaðarþætti útvegsins í landinu. Fundurinn telur tillögur um netafjölda óraunhæfar og bendir á, í því sambandi, að útilokað er að gera út báta með svo fáum netum. Leggur fundurinn eindregið til að ákvæði um neta- fjölda, sem nú gilda, verði áfram gildandi. Hvað snertir tillögur um að net séu tekin upp fjóra daga um páska, þá telur fundurinn það koma til greina, ef allar aðrar veiðar á þorski yrðu bannaðar þessa daga á svæðinu. I þessu sambandi bendir fundurinn á að fjöldi báta hefur verið með net sín utan 25 mílna marka. Fundurinn vill sérstaklega minna á að útvegsmenn og sjómenn á Suðurnesjum, i Vest- mannaeyjum og víðar hafa hvað eftir annað bent á nauðsyn friðunarsvæða á hrygningarslóð- um þorsks við Suður og Suð- vesturland, ásamt því að þessir aðilar hafa stuðlað að ákvæðum um stækkun möskva í þorskanet- um. Það er álit fundarins að ákvæði þessu að lútandi ásamt stórauknum friðunarsvæðum á þeim slóðum, sem ungur þorskur heldur sig á, séu raunhæfustu aðgerðir til verndunar þorsk- stofninum og að með slikum að- gerðum yrði um stórvægilega skerðingu að ræða, á sókn í þorsk- stofninn, frá því sem átt hefur sér stað. 3. Varðandi dráp á smáum þorski og möskvastærð var eftir- farandi samþ.: Fundurinn harmar þau vinnu- brögð, sem átt hafa sér stað á hluta togaraflotans, í sambandi við gegndarlaust dráp á smáum þorski, og að allt tal skipstjórnar- manna, sem hér eiga hlut að máli, um lélegt hráefni úr þorskanet- um, er að dómi fundarins aðeins yfirklór, sem sæmir ekki íslensk- um fiskimönnum. Fundurinn tel- ur að það beri að skylda þessa menn til að koma með í land allan afla er á skip þeirra kemur, svo hægt sé að taka á málum þeirra á viðeigandi hátt. Fundurinn fagnar væntanlegri reglugerð um möskvastærðir veiðarfæra og krefst þess að nú þegar verði tekið upp strangt eftirlit um að reglunum verði fylgt. FUNDUR I stjórn og trúnaðar- ráði Útvegsmannafélags Suður- nesja tók nýlega til umræðu frumvarp fiskveiðilaganefndar, álitsgjörð tillögunefndar um stjórnun fiskveiða og fleira. Varð- andi frumvarp fiskveiðilaga- nefndar lýsir fundurinn yfir stuðningi við frumvarpið, þrátt fyrir að hann telji að gengið hafi verið fram hjá veigamiklum til- lögum Suðurnesjamanna til máls- ins. Hins vegar mótmælir fundur- inn þeim drætti, sem orðinn sé á því, að frumvarpið sé lagt fyrir Alþingi, og bendir á að í frum- varpinu felist margvfsleg atriði, sem enga bið þoli, svo sem ákvæði um skyndilokanir. Varðandi tillögur um stjórnun fiskveiða var eftirfarandi sam- þykkt á fundinum: Fundurinn lýsir furðu sinni á tillögum þeim, sem fram koma í álitsgjörð tillögunefndarinnar og þá sérstaklega vegna þeirrar mis- mununar, sem ætlað er að gera Skrifstofur okkar og umboðsmenn um land allt veita nánari upplýsingar um HEIMILISTRYGGINGUNA og þær endurbætur og nýjungar, sem gengu i gildi 1. januar 1976 SAMVINNUTRYGGINGAR GT ÁRMÚLA 3. SlMI 38500 . GAGNKVÆM TRYGGINGAFÉLÖG ERU SAMTÖK HINNA TRYGGOU SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFELAG UMUl lll'Ul tUUtt UU’U > • 1«, I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.