Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976 13 Karl Eiríksson: Athugasemd við grein prófessors Valdimars K. Jónssonar FYRSTA tilraun af hálfu Kröflunefndar til að ræða málefnalega um þessa um- deildu virkjun, kemur fram í grein prófessors Valdimars K. Jónssonar í Morgunblað- inu 6. þ.m., en umrædd grein er tilefni þess að undir- ritaður stingur niður penna. ( grein sinni, með undir- fyrirsögn VÉLATILBOÐ, segir Valdimar orðrétt: „Þorleifur segir að borist hafi tilboð í 8—16 MW vélar, en því hafi ekki verið sinnt. Sann- leikurinn er sá að ekkert slíkt tilboð barst enda ekki eftir því leitað, þar sem þörf var fyrir stærri vélar. Þessar upp- lýsingar hefði hann vel getað fengið frá Kröflunefnd í stað þess að hlusta á gróusögur úti í bæ, sem varla sæmir vísindamanni." Þarna fer prófessor Valdi- mar með rangt mál. Hið rétta er, að þ. 28. nóv. 1974 var haldinn fundur á skrifstofu Bræðranna Ormsson h.f. að Lágmúla 9, þar sem lagt var fram tilboð í vélar fyrir væntanlega Kröfluvirkjun, og var það tilboð í vélar af 16 MW stærð. Á fyrrgreindum fundi voru mættir eftirtaldir menn: Dr. Valdimar K. Jóns- son, prófessor — á vegum Verkfræðistofu Sig. Thorodd- sen. Páll Lúðvíksson verk- fræðingur — á vegum Kröflunefndar. Karl Ragnars verkfræðingur — á vegum Orkustofnunar. Dipl. Ing. Zenker — á vegum AEG- KANIS. Dipl. Ing. Buchgrab- er — á vegum AEG-KANIS. Ásgeir Höskuldsson tækni- fræðingur — á vegum Br. Ormsson h.f. Karl Eiríksson framkv.stj. — á vegum Br. Ormsson h.f. Tæknilegar upplýsingar þessa tilboðs voru sérstak- lega útskýrðar fyrir próf. Valdimar og tók hann einmitt með sér af fundinum til- boðið ásamt þeim upp- lýsingum. Knútur Ottested verkfræð- ingur, frkv.stj. Laxárvirkjunar aflaði sér einnig tilboðs, í 3 og 6 MW gufuhverfil, sem hann óskaði eftir að fá að festa kaup á. Ekki hef ég trú á, að próf. Valdimar hafi ver- ið ókunnugt um það mál. Einnig vil ég taka fram að á ofangreindum fundi lá fyrir orkuspá fyrir Norður- og Austurland, sem byggð var á upplýsngum Rafmagns- veitna ríkisins og Laxárvirkj- unar og var vélastærðin mið- uð við þá þörf sem þar kom fram. í von um að þessi alvar- legu mál verði rædd á málefnalegum grundvelli í framtíðinni, vaknar sú spurning hvort almenningur geti sætt sig við annað en að ýmsum ítarlegum greinum og útreikningum sem fram hafa komið á undanförnum mánuðum, sé svarað. Vil ég taka dæmi: Orkumálaráðherra, Gunn- ar Thoroddsen, sagði á Al- þingi 7. þ.m. að 1 miljarður væri orðinn tískufyrirbæri þannig væri talað um 1 millj- arðs rekstrarhalla á Kröflu, 1 milljarðs kostnað við laxa- stiga f Laxá. Skildist mér að hér væri um rangar tölur að ræða. Það er ekki nóg að segja þær rangar, krefjast verður að hinar réttu tölur verði birtar. Sömuleiðis er ekki hægt að sætta sig við, að spurningar sem Knútur Ottested setti fram í hógværri grein i dagbl. Vísi fyrir mörg- um mánuðum sé enn ósvar- að eða aðeins afgreiddar með því að tala um rugling í kollinum á honum. Stjórnmálamenn verða að gera sér Ijóst, að það er ekki hægt lengur að komast hjá þvi að svara þeim fyrirspurn- um og útreikningum sem fram hafa komið í umræðum og skrifum um Kröfluvirkjun. Sömuleiðis er það vanvirðing við dómgreind almennings, að álíta að það réttlæti ranga fjárfestingu í raforkumálum, sem nemur u.þ.b. milljarða tug, þótt formaður Kröflu- nefndar Jón G. Sónes hafi ekki tekið leigu fyrir skrif- stofuhúsnæði nefndarinnar á Akureyri. Á meðan tölulegum rökum margra mætra manna er ósvarað, verður að álita að öll ákvarðanataka i þessu máli hafi verið í meira lagi handa- hófskennd og geti valdið ófyrirsjáanlegum útgjöldum almennings. — vegna Kröfluvirkjunar Fósturheimili Fósturheimili óskast fyrir þroskaheftan dreng utan af landi, sem dvelja mun í Lyngási frá kl. 8 árdegis til kl. 5 síðdegis. Nánari uppl gefur Guðgeir Ingvarsson, félags- ráðgjafi í síma 28544. Einstakt tilboð ^Oáhlha Glæsileg TOSHIBA stereo-samstæða með öllu tilheyrandi fyrir aðeins 120.890 kr. Htoshiba 100 ÁRA í tilefni 100 ára afmælis Toshiba (Tokyo Shibaura Electric Co„ Japan) getum við boðiS þessa glæsilegu sam- stæSu á aSeins kr. 1 20.890. AthugiSl ASeins er um tak- markaS magn aS ræSa. SM 3000 samstæðarr saman- stendur af: Útvarpstæki með langbylgju, miðbylgju og FM- bylgju. 16 watta magnara, reim- drifnum plötuspilara með þung- um, renndum diski Armurinn er vökvalyftur. V Casettu segulbandstækið er bæði fyrir upptöku og afspilun i stereo 2 styrkleikamælar eru á tækinu og 3ja stafa teljari. 2 stórir hátalarar fylgja með og eru 2 hátalarar i hvoru boxi. Árs ábyrgS. GreiSsluskilmálar: útborgun 60.000. siSan 20.000 á mánuSi EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10 A Simi 1-69-95 — Reykjavik myndavélin frá Kodak hefir farið sigurför um heiminn Þetta er skemmtileg og nytsöm gjöf, sem heldur áfram að gleðja — aftur og aftur margar gerði W fyrirliggjandi einhver þeirra hlýtu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.