Morgunblaðið - 08.04.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 08.04.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 15 einnig gera ráó fyrir auknum stuðningi Indókínarikjanna við mótspyrnuhreyfinguna, sem kommúnistar ráða í Thailandi. Þar með getur komið upp sú staða, að Thiland eigi i beinum átökum við kommúnistaríkin í Indókína. Óvíst er hvort önnur Asíu- ríki vilja dragast inn í átökin. Asean er ekki hernaðarbanda- lag. Hins vegar eru hreyfingar, sem kommúnistar ráða, einnig athafnasamar í hinum aðildar- löndunum og verið getur að þeim verði umhugað um að láta til skarar skriða gegn kommúnistum í Indókína áður en þeir færa sig upp á skaftið. Þvi er ekki hægt að útiloka hættu á nýju striði i Suðaustur- Asíu, þó að nokkur tími geti liðið þar til það brýzt út, kannski fimm ár. Hermenn kambódfsku byltingarstjórnarinnar. við harða línu hennar hefur aukizt eftir því sem starfsemi andstæðinga stjórna þessara landa hefur aukizt. Kosningar fara fram í Thai- landi 4. mai og geta ráðið miklu um framtiðarþróunina í þessum heimshluta. Kosninga- baráttan hefur verið blóðug og að minnsta kosti einn foringi sósíaldemókrata og nokkrir foringjar bænda og stúdenta hafa verið myrtir, en hægri- mönnum er spáð sigri. Ef þeir sigra ekki má búast við að her- inn taki völdin. NÝTT STRlÐ? Hver sem niðurstaðan verður má gera ráð fyrir auknum stuðningi Thailendinga við Svörtu kobraslöngurnar. Þá má Kissinger hefur gagnsókn: „Mesti vandi utanríkisstefnu okkar er simdrungin heima fyrir” UTANRlKISSTEFNA Henry Kissingers er orðin að kosn- ingamáli í bandarfsku forseta- kosningunum. Kissinger hefur sætt æ harðari gagnrýni að undanförnu úr ýmsum áttum, — einkum þó frá andkommún- fskum harðlfnumönnum á borð við Ronald Reagan úr flokki repúblíkana og Henry Jackson úr flokki demókrata, sem telja að „detente“stefna Kissingers gagnvart Sovétríkjunum hafi beðið skipbrot, og þá ekki sfzt með tilliti til Angólamálsins. Kissinger hefur nýlega snúizt til varnar gegn þessum ásök- unum, — nú sfðast í Dallasræð- unni þar sem hann hótaði Kúbumönnum gagnaðgerðum Bandaríkjanna ef þeir hefðu enn í frammi hernaðaríhlutun erlendis. 1 harðorðri ræðu í Boston nýlega gerði Kissinger ennfremur grein fyrir helztu sjónarmiðum sínum varðandi utanríkisstefnu Bandarfkjanna og fara hér á eftir brot úr þeirri ræðu: „Þjóðinni er enginn greiði gerður með yfirlýsingum sem gefa ýkta mynd af styrkleika Sovétríkjanna og veikleika Bandaríkjanna . . . Styrkleiki Sovétríkjanna er mjög ójafn; veikleiki og vandamál Sovét- kerfisins eru æpandi mikil . . . Sovétríkin standa okkur og bandamönnum okkar langt að baki. . .“ „Við höfum reynt með sam- vinnu við Sovétríkin að bægja frá skugga kjarnorkustyrj- aldar, — með því að koma á samkomulagi um einstök vandamál eins og Berlinar- málið . . . og viðræðum um tak- mörkun kjarnorkuvopgta . . . Og við höfum beitt okkur fyrir samvinnu á efnahagssviðinu og öðrum sviðum . . . Þessi þróun þarf að vera gagnkvæm. Hún mun ekki Hfa af stöðugar til- raunir til einhliða ávinnings annars aðilans. Einkum og sér í lagi getur hún ekki lifað af fleiri Angólamál." „Engin stefna mun á skjótum tíma, — ef það verður þá nokk- urn tíma unnt —, eyða sam- keppni og ósamræmanlegum hugmyndafræðilegum ágrein- ingsefnum Bandarikjanna og Sovétríkjanna. . .“ „Mesta vandamál utanríkis- stefnu okkar er sundrungin heima fyrir. Það sem utanríkis- stefna okkar þarf mest á að halda er þjóðarsamstaða og að menn vakni til vitundar um það á ný að í utanríkisstefnu sam- einast þjóðin út á við.“ „Umheimurinn horfir á með forundran, —óvinir okkar með ánægju og vinir okkar með vax- andi ugg —hvernig Bandaríkin virðast stefna að glötun áhrifa sinna og eyðileggingu á því sem áunnist hefur í alþjóðamálum með látlausri svallveizlu ásak- ana. Stefna okkar í ýmsum mál- um, — i Afríku, við austanvert Miðjarðarhaf, í Latnesku- Ameríku, í samskiptum austurs og vesturs— er veikt með handahófslegum aðgerðum þingsins sem kann að taka ára- tugi að bæta fyrir. Leyniþjón- ustukerfi okkar hefur orðið fyrir alvarlegur áföllum vegna sífelldra, tillitslausra árása. Umheimurinn sér land sem er næstum því ófært um að koma fram með þeirri varfærni sem allri diplómatiu er nauðsyn- leg...“ „Ef einum hópi gagnrýnenda okkar tekst að grafa undan við- ræðum um vígbúnaðartakmark- anir og eyðileggja möguleikana á uppbyggilegri samskiptum við Sovétrikin, á meðan annar hópur sker niður varnamála- fjárveit;rgar okkar og leyn'- þjónustunnar og stöðvar það að Bandaríkjamenn veita ævintýramennsku Sovét- ríkjanna viðnám, þá munu þeir báðir í sameiningu að lokum eyða getu þjóð- arinnar til að framkvæma sterka, skapandi, hófsama ög skynsamlega utanrikisstefnu. Útkoman verður sú að Banda- ríkin verða lömuð þjóð, —burt- séð frá þvi hver sigrað í nóvem- ber. Og ef Bandarikin geta ekki átt frumkvæði, þá munu aðrir hafa það og við og allar frjálsar þjóðir heims munum greiða fyrir það dýru gjaldi.“ Um sfðustu helgi, var háð fyrsta Reykjanesmótið f tví- menningskeppni, en ætlunin er, að f framtíðinni verði það árlegur viðburður félaganna á Rey k j anessvæðinu. I þetta sinn voru mætt 24 pör, frá öllum félögunum á svæðinu (4). Úrslit urðu þau, að bræðurnir Hermann og Olafur Lárussynir sigruðu glæsilega, hlutu 380 stig. Þeir spiluðu fyrir hönd Ásanna í Kópavogi. Annars varð röð efstu para þessi: Stig Hermann Lár. — Ólafur Lár. 380 Ragnar Björnss. — Sævin Bjarnason 366 Bjarni Jóh. — Magnús Jóhannsson 366 Þórarinn Sófusson — Bjarnar Ingimarsson 356 Sævar Magnúss. — Hörður Þórarinsson 354 Ásgeir Magnúss. — Sigurður Sigurðss. 350 Keppnisstjórn og útreikning önnuðust Gestur Auðunsson og Ólafur Lárusson. Nýlega var haldinn stjórnar- fundur í stjórn Bridge- sambands Reykjaness um- dæmis (B:R:U), og varð sú breyting á, að Jón Gíslason verður formaður, Ólafur Lárus- son ritari, Gestur Auðunsson gjaldkeri og Grímur Thoraren- sen meðstjórnandi. XXX Frá bridgefélaginu Asarnir f Kópavogi Staða 6 efstu para, að 8 um- ferðum loknum, í „Butler" keppni félagsins. Stig Ragnar — Helgi 111 Jón — Garðar 107 Jón — Hallvarður 107 Þorfinnur — Gisli 105 Júlíus — Svavar 105 Ólafur — Ármann 104 Næstu 4 umferðir, verða spilaðar á mánudaginn kemur. XXX 30. mars sl. lauk sem kunnugt er Firmakeppninni og sigraði Slippurinn i Rvík. Spilaði Símpn Símonarson fyrir firmað og hlaut 123 stig. Úrslit i keppninni hafa enn ekki borist þættinum en verða vonandi birt fljótlega. A.G.R. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AlKiLYSINGA- SÍMINN ER: 22480 Vcrðlækkun Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju- vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega; Bergamo Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000 Staðgreiðsluverð í dag kr. 179.000 Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner’’ stíl. Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt. Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð SMIÐJUVEGI6 SÍMI44544 m KJÖRGARÐI SÍMI16975

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.