Morgunblaðið - 08.04.1976, Síða 21

Morgunblaðið - 08.04.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 21 ?.*0'cÆS Jean Paul Sartre: „Stoðunum hefur í raun verið kippt undan tilveru minni’ ’ Jean Paul Sartre Countat segir í upphafi að orð- rómur hafi verið á kreiki síðasta ár um þverrandi krafta hans og leitar eftir svörum hans við því. Sartre: Ég get ekki látið eins og allt sé i sómanum; ég hef orðið fyrir nokkrum áföllum á síðustu tveimur árum. Eg fæ þrautir i fæturna, ef ég geng meira en kíló- metra í einu. Ég glími einnig við of háan blóðþrýsting, en verst af öllu er, að ég fékk blæðingu inn á vinstra augað — góða augað mitt eins og ég hef kallað það, því að á hinu missti ég sjón þegar ég var þriggja ára. Þó sé ég mun ljóss og skugga og greini liti, dauflega að vísu. Þar af leiðir að ég get hvorki lesið né skrifað. Að sjálfsögðu gæti ég skrifað, en ég sé ekki það sem ég skrifa. Og lestur er óhugs- andi. Með þvl að ég hef verið sviptur getu til að lesa get ég í rauninni ekki starfað lengur sem rithöfundur . . . En ég get þó talað. Og næsta verk mitt verður að vinna með hópi sjónvarps- manna að gerð nokkurra þátta um síðustu sjötíu og fimm árin í sögu Frakklands. Þannig er nú háttað Jíðan minni. En að öðru leyti er ég fær í flestan sjó. Ég sef vært á hverri nóttu og hugur minn er jafn vakandi og endranær og minni hef ég ekki tapað að neinu marki. En þar sem ég get ekki skrifað lengur hefur grundvallar- stoðunum verið kippt undan til- veru minni. Eg var. Ég er ekki lengur. Það mætti orða það svo. Ég býst við mér ætti ef til vill að finnast sem öll sund væru mér þar með lokuð. Af einhverri ástæðu er mér ekki svo innan- brjósts. Ég er ekki dapur né þung- lyndur þegár ég hugsa um hvað ég hef misst. — Uppreisnarkennd, segið þér? Hverju ætti ég að geta risið gegn. Nei, svona er þetta nú vaxið og það er ekki á mínu valdi að gera neitt í málinu og þvl ekki minnsta ástæða til að mæðast út af því. Ég hef átt mínar sáru stundir . . . ég neita þvi ekki . . . En ég hef margt sem ég get unað mér við. Ég fer i gönguferðir. Blöðin eru lesin fyrir mig. Ég hlusta á út- varpið og reyni að átta mig á hvað er að gerast á sjónvarpsskjánum. Allt er þetta iðja til þess eins að drepa tímann. Eitt verk hafði ég i lífinu. Ég skrifaði. Ég skrifaði um það sem ég hafði hugsað um áður. En þar sem þessi þáttur er ekki á minu valdi lengur verð ég að úti- loka hann. Aðspurður um hvort hann gæti ekki reynt að nota segulband, segir Sartre: — Gífurlegur munur er milli talaðs orðs og skrifaðs. Maður les yfir hvað eftir annað það sem maður skrifar, bograr yfir því og breytir, vegna þess að við fyrstu Franski heimspekingurinn, leikritaskáldið og fyrr- verandi vinstri spámaður með meiru er nú kominn á áttræðisaldur og nánast blindur orðinn. Engu að síður horfir hann fram til næstu tíu ára jákvæður í huga og væntir þess að fá enn um hrfð haldið nokkru af starfskröftum sínum. Hann átti nýlega langt samtal við franska rithöfundinn Michel Countat og birtist það í brezka blaðinu Observer, þar sem hann fjallar hreinskilnislega um ýmsa þætti lífs síns, víkur opin- skátt að heilsufari sínu og lýsir lífi sínu f samfylgd- inni með Simone de Beauvoir. Verða hér birtir endur- sagðir og lauslega þýddir kaflar úr samtalinu. sýn sér maður ekki hvað kann að vera bogið við setninguna eða hugsunina i henni. Ef ég tala inn á segulband stjórnar segulbandið mér en ég ekki þvi. Fyrst og fremst er ég skrifandi rithöf- undur og nú er of seint að söðla um. Hefði ég misst sjónina fertug- ur gæti verið að málið hefði horft öðruvísi við. Ég hefði ef til vill getað tileinkað mér aðra tján- ingartækni. En nú er það orðið of seint. — Kemur ekki illa við yður að geta ekki lesið? — Því get ég svarað neitandi. Sjálfur get ég ekki lesið, en ég læt lesa fyrir mig og fylgist meira eða minna með þvi sem kemur út af nýjum bókum. Simone de Beau- voir les fyrir mig. Simone les af- skaplega hratt. Ég læt hana átölu- laust halda sinum hraða og reyni að aðlaga mig hrynjandi lesturs hennar. Þetta útheimtir töluverða áreynslu. Við lok hvers kafla ræðum við efnið og skiptumst á skoðunum. En auðvitað er mér ákveðin áreynsla að þurfa að með- taka bók á þennan máta. — Simone segir í endurminn- ingum sinum 1957, að þér hafið farið að vinna með óhemju hraða, þegar þér gerðuð yður ljóst að kapphlaupið við tímann — kapp- hlaupið við dauðann, var hafið. — Það var um það leyti sem ég byrjaði að skrifa Critique de la raison dialectique og ég heillaðist af þvi verki. Vann stundum tiu tíma á hverjum degi og gleypti amfetamín til að geta haldið mér að verki. Töflurnar gerðu að verkum að ég gat hugsað og skrif- að mörgum sinnum hraðar en ég geri hvunndags. Um það leyti rauf ég tengsl mín við kommún- ista vegna Ungverjalands. Það voru ekki bein slit, heldur var samskiptum hætt ef svo má orða það. Fram til ársins 1968 fannst mér þó 'kommúnistar hljóta að vera boðberar vinstristefnunnar. Svo að mér var líkast að ég væri að fara í útlegð með því að hætta samskiptunum. Og margir héldu ég væri með þessu að færa mig yfir tií hægri. Svo var ekki. Mér fannst ég svífa í einhverju tóma- rúmi og það eina sem ég gat gert var að hugsa til enda það sem kommúnistar höfðu bannað mér að hugsa . . . Og að skrifa þessa. bók var í mínum huga að setja fram mínar eigin hugsanir, óháð- ar áhrifum kommúnistaflokksins. I henni bjó árás á kommúnista, en frá marxisku sjónarmiði. Ég leit svo á að kommúnistar hefðu fals- að marzismann. Ég er ekki viss um ég myndi orða það svo ef ég skrifaði bók um þetta núna. — Siðustu árin hef ég litið unnið. Eða síðan ég hætti við Falubert. Ég hafði unnið ötullega að þeirri bók. Nú veit ég að ég lýk því verki aldrei. En ég er ekki tiltakanlega ósáttur við það, meginkjarni þess sem ég vildi sagt hafa er i þeim þremur bind- _um, sem ég kom frá mér. Eg er ekki haldinn neinni innri spennu vegna þess mér finnst tíminn vera að hverfa mér. Ég hef komizt að þeirri niðurstöðu að sennilega hafi ég sagt allt sem mér var ætlað að segja. Hafi maður sætt sig við sjík málalok verður engin spenna lengur. Hitt — það sem óskrifað var — tel ég mér trú um að hafi ekki skipt máli. Það leita vissulega á mig hugsanir öðru hverju um efni sem ég vildi skrifa um, en síðan læt ég það róa. Vissi ég með sjálf- um mér að ég ætti mörg ár eftir ólifuð og hefði alla mína starfs- krafta væri afstaða mín önnur. Kannski á ég tiu ár ólifuð, það er gott og blessað. Ef ekki, verður það líka að vera gott og blessað. — Ég finn áþreifanlega til aldurs míns, vegna þess að ég er blindur. Nálgun dauðaní er óhjá- kvæmileg. Einu sinni fannst mér ég ver ódauðlegur — skynjaði ekki að ég myndi deyja. Nú veit ég og finn annað, þótt það þjaki mig ekki. — Finnst yður þér hafa verið misskilinn? Simone de Beauvoir og Jean Paul Sartre á heimili franska sendiherrans f Reykjavfk 1951 — Ékki misskilinn. Ekki f þeim skilningi sem skáld og rithðf- undar á síðustu öld voru miwkll- in. En ég hef ekki verið skiUnn nógu vel. Þegar ég var barn hafði ég tvennt að keppa að: skrifa atór- verk og verða frægur. Eg hef alltaf trúað að þetta yrði að veru- leika og því hef ég aldrei fundið frægðina í einu vetfangi. — Hvert verka yðar vonizt þér til að næsta kynslóð taki upp á sína arma? — Þau eru mörg. Ég vildi óska að verk mín lifðu og yrðu lesin áfram. — Enda þótt þér vísið á bug valdinu, getið þér þá ekki samt fallizt á að þér hafið haft töluvert vald? — Ég hef haft yfirmáta mikið vald. Vald kennarans. En vald kennarans einskorðast i reynd við að banna nemendum að reykja inni í skólastofunni. Ég hef miðl- að þekkingu og skoðunum og að mínum dómi er það ekki hið sama og búa yfir vaidinu. — Nú orðið lifi ég fjarska fá- brotnu lífi. Ég get ekki verið mikið á ferli. Aður skrifaði ég alltaf frá klukkan hálf tiu á morgnana og fram eftir degi og allt fram á kvöld. Þannig skrifaði ég. Nú eru þessar stundir tóm- jegri en áður. En ég reyni að fylla þær engu að síður. Ég hitti félaga mína og vini og ég ræði við sjón- varpsmennina. A kvöldin er Simone venjulega hjá mér og við röbbum saman og hún les fyrir mig. Siðari hluta kvölds förum við heim til hennar og við hlustum á tónlist og hún les upphátt og síðan geng ég til náða um hálf eitt leitið eftir miðnætti. — Tónlistin, fyrst við minnumst á hana, hefur alltaf skipt mig miklu. Fjölskylda min var músikelsk og ýmsir úr henni léku á hljóðfæri. Ég ólst upp í því andrúmi og fór að læra á píanó átta ára. Þegar ég var um tvítugt kenndi ég meira að segja á píanó. Aður fyrri lékum við stundum saman, fósturdóttir mín og ég, hún söng eða spilaði á flautu og ég lék undir með henni. Nú leik ég ekki lengur á píanó en ég hlusta meira á tónlist en nokkru sinni fyrr. Einu sinni samdi ég sónötu.. . ég er búinn að gleyma henni, en held hún hafi verið undir áhrifum frá Debussy. — Litið þér enn á yður sem boðbera existentíalismans? — Fáránlegt orð. Það valdi ég ekki. Þvi var skellt á mig og eng- inn talar um mig sem slikan mann í heimspekigreinum. — Hvern dáið þér mest af sam- tímamönnum? — Ég dái engan. Og ég kæri mig ekki um að vera dáður. Það á ekki að dást að mönnum. Þeir eru allir eins, allir jafnir. Mikilvægið liggur I því sem þeir gera. Virðing í hvers annars garð er það sem við skyldum krefjast hver af öðrum. — Umfram kærleikann? — Nei. Ast og virðing er tvær hliðar á sama raunveruleikanum. Þannig lit ég að minnsta kosti á það. — Það hefur verið sagt að þér séuð trúr í kærleika en hverfull I vináttu. Þegar ég segi þetta er ég aó hugsa um samskipti yðar við Albert Camus, sem fræg urðu. — Ég var aldrei andsnúinn Camus. Ég var á móti grein sem hann skrifaði og ávarpaði mig með drembilæti. Hann hafði fullan rétt til að svara skrifum mínum, en ekki á þann hátt sem hann gerði. Það vakti reiði mína. Við hittumst ekki oft, en hann deildi á mig í hvert sinn. Við áttum þó oft saman góðar stundir en við náðum aldrei verulegu sambandi vegna þess að hann kinokaði sér við að gefa af sjálf- um sér — sló um sig með slagorð- um og hleypti manni ekki að sér. Þannig skapast aldrei vinátta, þaðan af síður kærleikur. En virðing gæti skapazt á þann hátt ef verulegur jákvæður vilji er fyrir hendi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.