Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 22

Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976 Hert viðskipta- bann á Rhódesíu KEPPINAUTAR — Þeir Henry Jackson og Jimmy Carter takast í hendur þrátt fyrir að þeir eru nú að verða helztu keppinautarnir um útnefningu Demókrataflokksins í forsetaframboð. Carter og J ackson að verða einir um hituna? Sameinuðu þjóðunum 7. apríl — Reuter ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti einróma í gærkvöldi að herða efnahagslegar refsiaðgerðir þær gagnvart Rhódesíu sem verið hafa í gildi frá árinu 1968. Öll 15 aðildarlönd ráðsins stóðu að ályktuninni sem gildir jafnframt fyrir öll aðildarlönd Sameinuðu þjóðanna í heild. Henni er sérstaklega ætlað að torvelda innflutning og útflutning Rhódesíu. Þetta nær til vestur-þýzkra, japanskra og franskra bifreiða sem að undanförnu hafa fundið sér smugur inn í Rhódesíu, út- flutnings á krómgrýti til Banda- ríkjanna sem átt hefur sér stað þrátt fyrir bannið og þá er í ályktuninni ákvæði sem ætlað er að koma í veg fyrir að alþjóðleg fyrirtæki eins og t.d. gistihúsa- keðjur og bílaleigur séu með starfsemi i Rhódesíu. Rhódesiskum fyrirtækjum hefur hingað til tekizt að verulegu leyti að hrista af sér verstu áhrif við- skiptabanns Sameinuðu þjóðanna en talið er að þessi nýja samþykkt muni verða þeim mjög þung I skauti. William Scranton, sendi- herra Bandaríkjanna hjá S.Þ., sagði við umræðurnar i Öryggis- ráðinu m.a. að rikisstjórn Fords forseta væri staðráðin í að stöðva innflutning á krómi frá Rhódesíu til Bandarikjanna og kvað hann ríkisstjórn Rhódesiu vera ólög- mæta. Hingað til hefur Banda- ríkjaþing neitað að stöðva innflutning þennan. New York 7. apríl — Reuter HENRY Jackson, öldunga- deildarþingmaður, vann forkosningar demókrata í New York og Jimmy Cart- er vann í Wisconsin í gær og þykja úrslitin sýna að enn er Demókrataflokkur- inn án ótvíræðs forystu- manns í kosningabarátt- unni. En hinn naumi sigur Carters í Wisconsin er tal- inn taka af allan vafa um að hann nýtur víðtækara fylgis en búizt var við í Karen Quinlan: Dómnum ekki áfrýjað Trenton, New Jersey, 7. apríl. Reuter SAKSOKNARINN í New Jersey í Bandaríkjunum sagði í dag að hann ætli ekki að áfrýja niður- stöðunni um að leyft verði að taka öndunarvél Karen Anne Quinlan úr sambandi, en sú vél hefur haldið líftðru I stúlkunni, sem hefur legið i dái í tæpt ár. Þar með er rutt úr vegi síðustu hindrun fyrir því að Karen Anne fái að deyja, en foreldrar hennar hafa barizt fyrir því að leyft yrði að taka vélina úr sambandi þar sem sannað er að stúlkan hafi enga lífsvon. Engu að síður hafa læknar þeir sem annast stúlkuna rétt til að áfrýja úrskurðinum, en flestir þeirra eru á þeirri skoðun að hún verði að fá að deyja og segja að heili hennar sé svo skemmdur að engin batavon sé. Er þvi ekki búizt við aðgerðum af þeirra hálfu. Verkfall hjá NATO Briissel 7. apríl Reuter HIÐ 1200 manna starfslið í aðal- stöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brússel hóf í dag tveggja daga verkfall til að ýta á eftir kröfum um hærra kaup. Þetta er önnur vinnustöðvunin í 26 ára sögu bandalagsi* en hin fyrsta var 18. marz s.l. er starfsliðið hóf haráttu sína fyrir kauphækku > vegna hakkunar framfærslu- kostnáðar. Þó að það neiti að hefja vinnu e.r starfsliðið engu að siður til sfaðar í aðalstöðvunum og að sógn alsmanns þess myndi það hef ja stórf ef alvarlegt ástand skyndilega í i , ssturs og vesturs. upphafi og getur aflað sér atkvæða bæði í hinum íhaldssömu Suðurríkjum og frjálslyndari Norður- ríkjum. Sigur Jacksons í New York var ekki eins glæsilegur og hann hafði sjálfur vonað. Hann hlaut 104 fulltrúa á flokksþingið, fulltrúi frjálslyndra, Morris Udali, varð annar með 72, en Carter fékk 51. í Wisconsin varð Udall einnig annar með 36% atkvæða en Carter var með 38%. Ford forseti vann auðveldan sigur í forkosningum repúblíkana i Wisconsin, en hann tók ekki þátt í kosningunum í New York. Velta stjórnmálaskýrendur því nú fyrir sér hversu lengi eini keppinautur forsetans um útnefningu Spánskir landhelgis- br jótar við Noreg repúblíkana, Ronald Reagan, þrauki í nánast vonlausri keppni. Udall varð fyrir verulegum von- brigðum með lokaúrslitin í Winsconsin. Hann gekk til sængur i gærkvöldi eftir að háfa lýst því yfir við stuðningsmenn sína að hann væri himinlifandi yfir að hafa nú loks sigrað i for- kosningum. „Við erum komin í leikinn," sagði hann fagnandi. Þegar hann vaknaði morguninn eftir hafði svo endanleg talning fært Carter sigurinn, þótt naum- ur væri. Er talið líklegt að barátt- an um útnefningu demókrata verði nú að mestu einvígi milli Carters og Jacksons, þótt svo kunni að fara að Hubert Hump- hrey skjótist inn í keppnina áður en yfir lýkur. Rússneskum togara sleppt Boston, 7. apr. Reuter. RlJSSNESKUM togara var leyft að sigla úr höfn i Boston í dag eftir að sovézka stjórnin hafði fallist á að greiða landhelgissekt að upphæð 401 þúsund dollara, en togarinn var staðinn að ólögleg- um humarveiðum á svæði sem Bandarfkjamenn telja sig eina mega veiða á samkvæmt alþjóða- lögum. Togarinn var tekinn þann 10. marz og fluttur til hafnar. Afli hans var þá 28 kíló af humar. A skipinu er 90 manna áhöfn. Hammerfest Noregi, 7.apríl. Ntb. Reuter. NORSKT varðskip færði í gær til hafnar í Hammerfest í Noregi tvo spánska togara sem voru að veiðum innan við tólf mílna fisk- veiðimörk Noregs. Lögregla sagði að skipstjórarnir hefðu verið dæmdir til að greiða um eitt þús- und sterlingspund hvor en út- gerðarfyrirtæki skipanna voru dæmd til að greiða um tiu þúsund sterlingspund og afli var gerður upptækur. Skipin munu ekki fá leyfi til að láta úr höfn fyrr en trygging hefur verið sett fyrir greiðslum þessum. Togararnir tveir voru staðnir að ólöglegum veiðum á friðuðu svæði suður af norðurströnd Nor- egs fyrr á þessu ári, að því er heimildir segja. Yfirmenn skip- anna hafa báðir borið að þeir hafi misreiknað sig, og þeir hafi ekki af ásetningi verið fyrir innan 12 mílna mörkin. Hughes jarðsettur Houston 7. apríl Reuter HOWARD Hughes var jarðsettur i Houston I Texas f dag og voru örfáir nánir ættingjar viðstaddir, svo og hópur lögreglumanna sem hafði það verk helzt að stugga blaðamönnum og forvitnum veg- farendum frá. Hughes var graf- inn við hlið foreldra sinna f fjöl- Tilboð Healeys fær kuldalegar móttökur London 7. apríl Reuter — AP fjarlagafrumvarp brezku ríkisstjórnarinnar sem Denis Healey, fjármálaráð- herra, kynnti f gær hefur vald- ið miklu f jaðrafoki í Bretlandi og almennt hlotið kuldalegar móttökur. Umdeildasta atciðið er tilboðið um allt að 930 milljón sterlingspunda niður- skurð beinna $katta á ári ef á móti kemur Ittforð af hálfu verkalýðshreyfihgarinnar um að takmarka hunahækkanir við 3%. Verkalýðssamböndin hafa frest til júnf n.k. til að taka afstöðu til þessa tilboðs og liklegt að kvödd vtrði saman sérstök ráðstefna f bví skyni. Healey sjálfur kallaði fjárlögin „næstum þvf hlutlaus*’og kvað þjóðina verða að takj, á sig þyngri tekjuskattsbyr«í ef verkalýðshreyfingin hafnar til- boðinu. Væru þessar tiliögur hans nauðsynlegar ef kona á verðbólgunni niður fyrir lf)% fyrir næsta vetur og draga úr atvinnuleysinu, sem er nú u>n 5,5%. Eftir fund verkalýðsleið. Denis Healey toga og stjórnarinnar I dag sögðu þeir fyrrnefndu að þeir yrðu að fá samþykki umbjóð- enda sinna fyrir frekari launa- takmörkunum, en myndu reyna að finna aðgengilega launastefnu. 3% launahækkunarþakið þýðir innan við 2 sterlings- punda hækkun á viku fyrir meðaltekjumann með um 60 pund á viku. Þegar i stað sögðu verkalýðsleiðtogar að þessar til- lögur gæfu þeim of litið svig- rúm til að semja um kjara- bætur fyrir launafólk. Len Murray, aðalritari brezka al- þýðusambandsins, sagói: „Ég vil ekki skuldbinda okkur til að ganga að þessu. Hr. Healey kann að verða fyrir vonbrigð- um. 3% veita ekki nægilegt svigrúm til að greiða úr launa- mismunun." Jack Jones, leiðtogi flutningaverkmanna, hafriaði tillögunum, og Hugh Scanlon, leiðtogi byggingarverkamanna, sagði þær vera „næstum óað- gengilegar“. Harðastur var þó Albert Spanswick leiðtogi sam- taka heilbrigðisþjónustu- fólks.sem nefncii tilboðið „fjár- kúgun". Healey sjálfur benti á að 3%- mörkin væru meir en 2 Framhald á bls. 23 skyldugrafreit 1 Glenwood- kirkjugarðinum. Fulltrúar frá hinum aðskiljan- legu fyrirtækjum Hughes eru komnir til Los Angeles til að taka ákvarðanir um rekstur dánarbús- ins. Þá hafa starfsmenn banda- rísku skattstofunnar hafið at- hugun á því, hvort úrskurða þurfi formlega og nákvæmlega hvort vélin sem Hughes var í, var yfir bandarisku eða mexikönsku landi, þegar Hughes gaf upp önd- ina. William Simon, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, óskaði eftir því að fingraför af líki Hughes yrðu send til skattstofunnar I Washington til að gengið yrði úr skugga um að allt væri með felldu og engin eftirmál yrðu. Biaðamanns leitað dyrum og dyngjum London, ö.apríl. Reuter. FYRIRSKIPUÐ hefur verið vfðtæk leit að þekktum brezkum blaðamanni, John Golding, sem er einn af ritstjórum Daily Mail, en hann hvarf frá heimili sfnu fyrir fimm vikum og hefur ekki spurzt til hans sfðan. Golding sást fara i bifreið frá heimili sínu þann 28.febrúar og segir lögreglan að Interpol hafi verið fengið til liðs. Lögregluheimildir segja að Golding hafi ef til vill haft i huga að setja á svið atburð sem hann ætlaði siðan að rita um bók. Sner- ist það um mann sem hvarf á dularfullan hátt erlendis, breytti um nafn og hóf nýtt líf. Flóttaleið hetjunnar var frá austurhluta Englands og til Hollands. Eiginkona Goldings segir að maður hennar hafi verið örþreytt- ur vegna mikils vinnuálags og hann hafi orðið að taka róandi töflur um hríð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.