Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 23
* MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976
23
Kaffibrennsla
— ekki bræðsla
VEGNA misheyrnar slæddist
prentvilla inn í frétt Morgun-
blaðsins í gær af bruna á
Akureyri, þar sem sagt var að
eldur hefði komið upp í kaffi-
bræðslu en átti að sjálfsögðu að
standa kaffibrennslu. Því er síðan
við að bæta að ekki varð þar veru-
legt tjón, og kemur rekstur kaffi-
brennslunar ekki til með að tefj-
ast að ráði vegna eldsvoðans.
— Hitaveitumál
Framhald af bls. 40
hinn syðra við boranir fyrir Hita-
veitu Revkjavfkur. Hitaveitu-
stjóri hefur látið svo um mælt, að
verði borinn hér syðra fluttur
norður muni það geta leitt til þess
að hætta verði við tengingu nýrra
dreifikerfa ellegar sé vatnsskort-
ur yfirvofandi á næsta vetri.
I umræðum um skýrslu iðnaðar-
ráðherra um málefni Kröfluvirkj-
unar í sameinuðu þingi í gær tók
ráðherra sérstaklega fram, að
hann hefði þá um morguninn átt
fund með fulltrúum frá Akureyr-
arkaupstað og sérfræðingum um
orkumál, þar sem rædd hefðu ver-
ið tilmæli Akureyringa um fram-
hald borana á varmasvæðinu á
Laugalandi. Væri nú verið að
kanna með hvaða hætti hægt væri
að koma til móts við óskir bæjar-
stjórnar Akureyrar og hefði ráðu-
neytið fullan skilning á könnun
þeirra hitaveitumöguleika fyrir
kaupstaðinn, sem nú væru í rann-
sókn. Ráðherrann bar til baka
þær fullyrðingar Braga Sigur-
jónssonar að hann hefði neitað að
ræða við forráðamenn Akureyrar-
kaupstaðar um þessi mál. Sjá nán-
ar um þessa umræðu á þingsiðu
blaðsins.
Morgunblaðið sneri sér til Jó-
hannesar Zöega, hitaveitustjóra,
og spurði hann hvort hugsanlegt
væri að Hitaveita Reykjavikur
gæti frestað framkvæmdum sín-
um svo að flytja mætti norður
borinn sem verið væri að vinna
með fyrir hana. Jóhannes svaraði
því til, að slikt kæmi ekki til
greina að mati forráðamanna
Hitaveitu Reykjavíkur og sagði að
samkvæmt áætlun ætti því verki
sem nú væri verið að vinna að
ekki að vera lokið fyrr en í októ-
bermánuði, og væri þarna um
brýnar framkvæmdir að ræða
Hitaveitustjóri sagði ennfrem-
ur, að ef borinn yrði nú tekinn af
Hitaveitunni þyrfti hún að stöðva
allar fyrirhugaðar tengingar eða
eiga yfir höfði sér vatnsskort þeg-
ar á næsta vetri. Bæði í Reykjavik
og nágrannabæjunum væri búið
að ljúka dreifikerfi að miklu
leyti, og nú væri lögð megin-
áherzla á að tengja húsin sem
væru með viðlagt kerfi eða kerfi á
loRastigi. Þetta hefði þvi í för með
sér, að verið væri að sóa fjármun-
um þar sem þessar framkvæmdir
kæmu ekki að notum og eins
verulega bið fyrir fólkið sem nú
væri komið með hitaveitukerfið
heim undir hús hjá sér.
Jóhannes sagði ennfremur, að
þetta væri það sem Hitaveitan
hefði sett fram sem lágmarksþörf
vegna næsta vetrar en i áætlun-
um hennar hins vegar hefði verið
gert ráð fyrir því að borinn héldi
áfram út þetta ár og allt næsta ár
á vegum Hitaveitu Reykjavíkur.
Sagði Jóhannes, að þessi þörf
stafaði aðallega að þvi að borinn
hefði verið látinn laus mest allt
árið í fyrra til borana í Kröflu og
víðar, þannig að á núverandi
virkjunarsvæði hitaveitunnar
hefðu ekki verið boraðar nema
tvær holur í fyrra. Nú væri lokið
tveimur holum frá því að borinn
kom aftur á miðjum vetri og verk-
ið sæktist fremur seint vegna
veðurfarsins. ,,Ef það á síðan að
fara að taka borinn aftur af okkur
núna, erum við ekki lengur með á
nótunum,“ sagði hitaveitustjóri.
— Norrænn
Framhald af bls. 19
starlsliði mun sjá um daglegan
rekstur. Aðsetur bankans
verður i Helsingfors, en þar er
engin samnorræn stofnun fyrir.
Nú er að störfum sérstök
nefnd, sem vinnur að undir-
búningi stofnsetningar og upp-
hafsstarfsemi bankans. Gert er
ráð fyrir að nefnd þessi skili
till. sínum til ráðhn. Norður-
landa fyrir 15. mai næst-
komandi en á fundi ráðhn.
seinna í þeim mánuði er ráð-
gert að taka endanlegar ákvarð-
anir um stofnsetningu bankans.
Forsenda þessa er að sjálfsögðu
að þjóðþingin hafi veitt full-
gildingarheimildir.
— Allt eftir
Framhald af bls. 40
Vertíðin hefur annars gengið
vel hjá Frá. „Við erum búnir að
vera í mánuð og við erum með
235 tonn. Eg er alveg bærilega
ánægður með það, það er ekta
hlutur úr því.“
Öskar var nýlega að gera
verulegar endurbætur á bátn-
um, fá nýja og stærri vél og
sitthvað fleira, svo að við
spurðum hann hvort hann væri
ekki langt kominn með að fiska
upp í þann kostnað. „Nei, ekki
aldeilis, „svaraði Öskar, „það
vantar nú mikið upp á það,
þetta voru nú bara litlar 23
milljónir sem kostaði að endur-
bæta hann.“
Öskar sagði um fiskiríið, að
mjög tregt væri núna kringum
eyjarnar hjá netabátunum, en
þeir hefðu verið að fá austur
með og einnig trollbátarnir.
Vertíðin í fyrra gekk vel hjá
Frá, að þvi er Óskar sagði. Þá
var báturinn með 468 tonn eftir
vertiðina, sem þykir mjög gott
hjá 5 manna áhöfn, að sögn
Óskars. Á þessari vertið eru
hins vegar 6 menn á bátnum.
— Stonehouse
Framhald af bls. 1
völd veik rikisstjórn, sem yrði
nánast að berjast fyrir lífi sínu
frá degi til dags.
Enda þótt Verkamannaflokkur-
inn hafi þá undir helmingi þing-
sæta i Neðri málstofunni tekst
stjórninni oftast nær að ná um
það bil 40 atkvæða meirihluta i
atkvæðagreiðslum með stuðningi
frá stjórnarandstöðuhópum. En
Ihaldsflokkurinn hefur þegar
ógnað meirihlutaaðstöðu Verka-
mannaflokksins í ýmsum mikil-
vægum nefndum þingsins, en
kveðið er svo á um að þessar
nefndir skuli endurspegla valda-
hlutföllin í þinginu.
John Stonehouse kemur fyrir
rétt siðar í þessum mánuði, en
hann hefur verið ákærður fyrir
þjófnað, samsæri og svik og
pretti. Ef hann verður dæmdur
sekur sagði Stonehouse i dag að
hann gerði sér ljóst að hann yrði
að segja af sér þingmennsku.
— 800 börn
Framhald af bls. 2
Laugarnes-, Mela- og Vogaskóli.
Ekki vannst tími til að hrinda
þessari starfsemi af stað i fleiri
skólum en þetta hefur náð til um
helmings skólabarna í Reykjavík.
Þá söfnuðu börnin i þessum
skólum viljayfirlýsingum þar sem
þau lýsa yfir þeim vilja sinum að
byrja ekki að reykja og vilja
styðja hvert annað í því áformi.
Þá vilja þau vinna að því að hafa
áhrif á aðra unglinga i sama
markmiði og vinna á n\óti öllum
hugmyndum um að reykingar séu
finar eða álitsaukandi og stuðla
að algeru tóbaksbindindi.
Undir viljayfirlýsinguna
skrifuðu yfir 800 börn í
Reykjavfk.
— Mildur vetur
Framhald af bls. 2
óhætt að segja, að veðrið hér
um slóðir hafi i allan vetur ver-
ið einmuna gott, varla hefur
snjó fest á jörðu og aldrei nein
ófærð sem hægt er að tala um,
og er þó fremur snjóþungt hér
alla jafnan," sagði fréttaritari
Mbl. á Vopnafirði. „Héðan er
gerður út einn togari, Bretting-
ur, og hefur hann undanfarið
verið á miðum fyrir sunnan
land. Hann mun nú vera kom-
inn til Reykjavikur vegna bil-
unar, en hversu alvarleg hún er
hef ég ékki frétt. Sé hins vegar
um verulega bilun að ræða mun
það fljótlega hafa alvarleg
áhrif á ástandið hér í atvinnu-
málum staðarins. Minni bátarn-
ir eru byrjaðir á grásleppu en
ógæftir hafa verið allt síðan og
lítið borizt á land.
Ekki er hægt að segja að
vinna sé nógu stöðug í frysti-
húsinu. Að vísu er verið að
vinna þar viku til hálfan mánuð
fyrst eftir að togarinn hefur
landað, en síðan er Vfenjulega
vikubið, þar til hann landar aft-
ur. Veitti ekkert af ö'ðrum tog-
ara, þegar nýja frystihúsið er
komið upp. Lítillega hefur ver-
ið unnið við það í vetur, og
raunar búið að taka hluta þess í
notkun, þar sem frystigeymslur
eru. Hins vegar lítur nú út fyrir
að framkvæmdir stöðvist á
næstunni vegna fjárskorts."
BORGARFJÖRÐUR eystri:
„Héðan er sáralítið að frétta,"
sagði sr. Sverrir Haraldsson,
fréttaritari Mbl. „Veðurfar er
fremur gott eins og er. Nýbúið
er að ryðja hingað um Vatns-
skarð og fóru þar bilar um í
gær, en ekki alveg hrakninga-
laust.
I atvinnulífinu er lítið um að
vera enda jafnan heldur dauft
um þennan árstíma. Tveir litlir
bátar róa héðan á rauðmaga, en
gæftaleysi hefur verið undan-
farið. Aðaltíminn er heldur
ekki alveg hafinn, en ýmsir eru
að taka til báta sína núna og
þeim ætti að fara að fjölga fljót-
lega. .
Vermenn hafa farið héðan á
vertíðina fyrir sunnan. Þetta er
töluvert stór hópur sem svona
fer á hverjum vetri, líklega
milli 15 og 20 menn, sem er
auðvitað töluverður fjöldi í
ekki stærra byggðarlagi. Þeir
koma siðan aftur þegar kemur
fram í maí og fara þá að búa
trillur sínar undir sumarið. Hér
er jafnan töluverð trilluútgerð,
alltaf í kringum 10 talsins, enda
rúmar ekki höfnin stærri báta.
Hér var búizt við að yrðu
hafnarframkvæmdir I sumar
líkt og á sl. sumri, en nú er víst
búið að skera niður alla fjár-
veitingu til þeirra. Þetta kemur
sér auðvitað mjög illa, því að
eins og er, þá er naumast hægt
að tala um neina höfn.“
BAKKAFJÖRÐUR: „Það er
þá fyrst frá því að segja, að
veðráttan hefur verið óvenju
mild í vetur en nokkuð storma-
samur, eins og oft vill verða í
sv-áttinni, sagði Sigmar Torfa-
son prófastur okkur. „En
það hefur verið snjólétt, og vel
fært um byggðarlagið, og það
segir kannski bezt söguna að
hér eru ferðir með skólabörn
daglega og enginn dagur hefur
enn fallið niður, þótt varla sé
hægt að kalla vegi hér beinlínis
nýtizkulega.
Yfirleitt er hér heldur dauft
yfir atvinnulífi á veturna. Þó er
nú grásleppuveiði lítillega haf-
in enekki aðráði vegna gæfta-
leysis. Líklega eru um 5—6
bátar byrjaðir núna, og sækja
stærri bátarnir undir Langa-
nes, þar eð grásleppan er ekki
gengin hér á grunnmið að ráði.
Fleiri eru síðan að búa sig til
veiða nú á næstunni. Ef að
líkum lætur verður hér tölur
verð smábátaútgerð þegar
kemur fram á sumarið.
— Sambandið
Framhald af bls. 2
voru meðal annarra viðstaddir
sýninguna blaðamenn frá nokkr-
um heimsþekktum tízkublöðum
og er þegar vitað að greinar um
íslenzku flíkurnar eru væntan-
legar I ýmsum af þessum blöðum.
— Stóraukning
Framhald af bls. 2
an iðnað, sagði Erlendur á fundin-
um í gær. — Við viljum gjarnan i
samvinnu við stjórnvöld losna við
þessa agnúa, sem ég tel helzta
vera eftirfarandi.
— Það hefur mjög háð okkur
hversu dýru verði við þurfum að
kaupa orkuna, sem við notum.
Sérstaklega hefur þetta verið
slæmt eftir að olian hækkaði svo
mjög sem kunnugt er. Við viljum
að okkar iðnaður sitji við sama
borð og auðmagnsiðnaður hér á
landi. Við veitum fjölda fólks at-
vinnu, en stóriðnaðurinn notar
hins vegar mikið af orku. Ég get
nefnt sem dæmi að i Gefjun greið-
um við 4 krónur og 13 aura fyrir
kílówattstundiria, en stóriðjan
hér á landi greiðir 51 eyri fyrir
kwst.
— Opinber gjöld gera okkur
erfiðara um vik í sambandi við
útflutning. Söluskattur kemur
t.d. inn í verðmyndunina til út-
flutnings og eftir því sem okkur
reiknast til þá eru 3—3‘/6% af
verði þeirrar vöru sem flutt er út
söluskattur greiddur hér á landi.
Þetta er nauðsynlegt að hverfi,
sagði Erlendur.
— Aðild Islands að EFTA átti
að efla islenzkan útflutningsiðn-
að, en við teljum að þróunin hafi
ekki verið i þá átt hér á landi. |
Tollar af mikilvægum aðföngum
eru háir og við sitjum því ekki við
sama borð og þeir sem við kepp-
um við.
— Iðnaðurinn hefur hingað til
ekki fengið nægilega fjármálafyr-
irgreiðslu. Að visu hefur orðið
breyting hér á í rétta átt í seinni
tið, en þó ekki nægilega mikil. Þá
eru vaxtakjör hér afleit og ástæð-
an er sögð vera verðbólgan, en i
mér finnst einhvern veginn að
menn hafi gefizt upp við að leysa
þann vanda.
— Ég held að það þekkist
hvergi nema hér á landi að greiða
þurfi aðstöðugjöld af iðnaði til
útflutnings og fleira í sambandi
við skattamálin er okkur óhag-
stætt. I V-Þýzkalandi var t.d. til
skamms tíma greiddur útflutn-
ingsstyrkur í iðnaðinum.
— Að lokum vil ég svo nefna
menntamálin, sagði Erlendur. —
Ef íslendingur hefur áhuga á að
mennta sig í sambandi við ullar-
eða skinnaiðnað þá verður hann
að fara til annarra landa til að
komast á skóla þvi íslenzka
menntakerfið býður ekki upp á
slíkt. Þá er nauðsynlegt að hrinda
í framkvæmd aukinni starfsþjálf-
un i iðnaði, með þvi vex hæfni
iðnaðarfólksins og um leið gæði
vörunnar sagði Erlendur að lok-
um.
— Teng
Framhald af bls. 1
og þeir sem grunaðir voru sterk-
lega um græsku. Þegar þeir
horfðust í auga við hinn styrka
arm alræðis öreiganna — runnu
þeir af hólmi, blauðir og aumir“,
segir i tilkynningunni og bætt er
við að þeir hafi umyrðalítið af-
hent vopn sín og minnisbækur
sem þeir höfðu skrifað i hrakleg
ljóð i anda endurskoðunarsinna.
Áður hafi nokkrir stéttarfjand-
menn haldið ræður og flutt kvæði
og einn hafi meira að segja gengið
svo langt að bera óhróður á
formann Mao og hvatt til að and-
byltingarsamtökum yrði komið á
fót.
Þá lýsti fréttastofan baráttu
hermannanna við þá sem höfðu
komið sér fyrir bak við ýmiss
konar vígi á torginu og sagði að
varðliðarnir hefðu ekki verið
lengi að yfirirbuga þá.
1 dag var allt kyrrt við torg hins
himneska friðar, en varðmenn
voru þó á hverju strái. Var gæzla
stórefld um þáð leyti er útvarpið
las upp tilkynninguna frá mið-
stjórninni. Þá segir i Reuter-
fréttum að stúdentar hafi farið
um götur höfuðborgarinnar í
vörubílum og haft uppi háreysti
en ekki er tekið fram hverjum
þeir hafi verið að votta stuðning
sinn.
Hinn nýi valdamaður í Kína,
Hua Kuo-feng, sem nú gengur tvi-
mælalaust næstur Mao formanni,
er 56 ára gamall og er lítt þekktur
utan Kina. Hann var kjörinn i
miðstjórn árið 1968 og í sambandi
við valdaránstilraun Lin Piaos
skipulagði hann rannsóknar-
nefnd og stjórnaði störfum
hennar. Hann varð síðan foringi
Öryggisþjónustu landsins. Hann
þykir skipuleggjandi góður og
mikill landbúnaðarsérfræðingur
og prúðmenni hið mesta, en er þó
flestum enn óráðin gáta. Hann
hefur haft mjög takmörkuð sam-
skipti við útlendinga í Kína en
erlendir sendiherrar í Kína ljúka
á hann lofsorði og segja hann
vera mjög vel að sér um alþjóða-
mál.
ANNAÐFALLTENG
Teng Hsiao-ping hefur nú öðru
sinni verið sviptur öllum völdum
á stjórnmálaferli sinum.Upp úr
1960 var hann mjög voldugur en
varð síðan fvrir beittri gagnrýni
Rauðu varðliðanna i Menningar-
byltingunni og hvarf þá að mestu
af sjónarsviðinu og var álit flestra
að stjórnmálaafskiptum hans
væri með öllu lokið. En í april
1973 birtist hann á ný í hópi
æðstu manna Kína, og síðan
fór vegur hans svo vaxandi að
hann var talinn sjálfsagður arf-
taki Chou En-lais. En bersýnilegt
er að róttæk öfl i flokknum hafa
risið öndverð gegn honum og
hafið herferð á hendur honum
sem hefur nú lyktað á þann veg
að honum virðast nú bjargir allar
bannaðar i stjórnmálalífi Kina.
- Tilboð Healeys
Framhald af bls. 22
sterlingspunda virði þegar þau
væru sett í samband við skatta-
lækkunina og minnkun verð-
bólguþróunarinnar. I raun væri
um að ræða að meðaltali 6
punda hækkun á viku.
Eftir fund verkalýðsleið-
toganna og stjórnarinnar i dag
telja stjórnmálafréttaritarar
líklegt að framundan verði
mjög harðar samningavið-
ræður, en heimildir innan
stjórnarinnar segja að Callag-
han og samráðherrar hans séu
fremur bjartsýnir engu að
síður um farsælt samkomulag
að lokum.
1 dag rétti sterlingspundið sig
við á gjaldeyrismörkuðum eftir
miklar hrakfarir að undan-
förnu, og var 1,8685 dollarar,
en 1,8617 í gærkvöldi.
Stjórnarandstæðingar for-
dæmdu tillögur Healeys og
Margaret Thatcher, leiðtogi
Ihaldsflokksins, hafnaði þeim
þar eð með þeim væri rikis-
stjórnin að fela verkalýðsleið-
togum að ákveða skattatakmörk
fyrir alla landsmenn.
I flestum dagblaðanna voru
viðtökurnar einnig kuldalegar.
Málgagn kommúnista, Morning
Star, taldi tillögur Healeys
jafngilda því að miða byssu á
verkalýðssamtqkin. The Times
sagði í leiðara að í þeim fælist
ekkert minna en meiri háttar
stjórnarskrárbreyting. „I
heiminum í dag er algengt að
rikisstjórnum sé stjórnað af
herjum, en rikisstjórnir sem
eru undir stjórn verkalýðs-
félaga eru sjaldséðir fuglar."
Önnur blöð gagnrýna Healey
fyrir að hafa ekki reynt að
skera niður útgjöld ríkisins,
sem i ár verða 65,4 milljarðar
punda, svo og fyrir áætlaðan
fjárlagahalla upp á 12 milljarða
punda. En útbreiddasta blað
Bretlands, Daily Mirror,
fagnaði fjárlagafrumvarpinu
og kvað Healey hafa veitt
verkalýðssamtökunum það sem
þau hefðu alltaf viljað, „þ.e.
áhrif á efnahagsstjórnun ríkis-
stjórnarinnar á hæsta stigi," Þá
sagði Financial Times að verka-
lýðsleiðtogar hefðu fengið „gott
tilboð“.
t
Eigmkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma
INGRID SVEINSSON
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9 april klukkan
1 5 00
Asmundur Sveinsson,
Ásdis Ásmundsdóttir, Helgi E. Helgason,
Helga Jensen og barnabórn.