Morgunblaðið - 08.04.1976, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976
Ætlum að sigra
— sagði þjálfari Portúgalanna
„Við höfum verið með þetta lið í
uppbyggingu í næstum tvö ár, og
ég vonast til að við sigrum í
leikjunum hér þótt ég viti að vísu
sáralítið um ísl. liðið. En umfram
allt leggjum við áherslu á drengi-
lega keppni og vonum að heim
sókn okkar verði ykkur til
ánægju " — Þetta sagði þjálfari
portúgalska landsliðsins á blaða
mannafundi á Hótel Esju f fyrra
kvöld þegar portúgalarnir voru ný-
komnir til landsins. Þjálfarinn sem
heitir Herminio Barreto er frá
Mosambik og vinnur eingöngu við
körfuboltaþjálfun.
Það kom fram hjá Herminio sem
hafði aðallega orð fyrir portúgölsku
fararstjórninni að við byltinguna í
Portúgal urðu nokkur þáttaskil í
íþróttalífi þar Sú stefna er nú
ráðandi varðandi uppbyggingu
körfuknattleikslandsliðsins í
Portúgal að mynda ákveðinn kjarna
ungra leikmanna sem hafa nú
reyndar hlotið mikla samæfingu þótt
þeir hafi ekki leikið mikið af lands-
leikjum á síðustu árum
,.Við leggjum nú á það áherslu að
leika vináttuleiki bæði heima og
erlendis. og höfum þegar áformað
marga landsleiki á þessu ári
Við fáum pólska landsliðið í heim-
sókn í júlí eða september, og ég vil
nota þetta tækifæri til þess að bjóða
ísl landsliðinu til keppni þá Einnig
eigum við von á Kúbu, Belgíu,
Frakklandi og fleirum Eftir u þ b
tvö ár munum við síðan gera upp
við okkur hvernig málin standa hjá
okkur varðandi landsliðið, hvort við
teljum okkur geta farið að taka þátt i
Evrópukeppnum o.þ.h. en það
ætlum við ekki að gera nema að við
getum gengið að því vísu að ná þar
góðum árangri "
Fyrir hálfum mánuði lék
portúgalska landsliðið 4 leiki við
búlgarska b-landsliðið og fóru
leikirnir fram í Portúgal
Portúgalirnir töpuðu öllum leikjun-
um naumlega, eða með 6 til 8 stiga
mun sem er nokkuð gott, því
búlgarir eru em fremsta körfubolta-
þjóð í Evrópu í dag En það kom
glögglega í Ijós hjá Herminio að þær
14 milljónir sem körfuboltinn fær í
ríkisstyrk á ári eru til þess ætlaðar að
byggja upp körfuboltann í Portúgal
frá grunni, og eru þeir t d að senda
hóp þjálfara til Frakklands og
Búlgaríu til að fara þar á námskeið
,,Nei við vissum nákvæmlega
ekkert um ísland áður en við
lögðum af stað að heiman Við
bjuggumst við miklum kulda þar
sem landið er svo norðarlega, við
vissum ibúafjöldann u.þ.b. og þar
með búið
Um körfuboltann hjá ykkur vitum
við nákvæmlega ekkert, en þó sýnist
mér á þeim upplýsingum sem ég hef
fengið hér að þið munið mjög
áþekkir okkur að getu En ég reikna
með að við sigrum samt
Þeir ísl. leikmenn sem voru
mættir á þessum fundi sögðust
reikna með að Herminio yrði fyrir
vonbrigðum í leikjum sipum hér, því
þeir væru ákveðnir í að sigra í
leikjunum, En hvort það tekst kemur
í Ijós í kvöld, og einnig í Njarðvíkum
á föstudag og laugardag gk.—
Halldór Guðbjörnsson með hinn
veglega verðlaunagrip sem hann
vann til með sigri í Tropicana-
keppninni.
Fyrsti körfnknaltleikslandsleiknr
íslanðs og Portúgal verðnr í kvöld
— sögðu íslenzku landsliðsmennimir
VIÐ ræddum við nokkra leik-
menn ísl. liðsins og forráðamenn
þess um væntanleg úrslit leiksins
í kvöld.
Agnar Friðriksson: ,,Mér sýnist
það liggja nokkuð ljóst fyrir, að
við megum eiga von á jöfnum og
skemmtilegum leikjum. Við höf-
um æft vel að undanförnu og and-
inn innan liðsins er mjög góður.
Við ætlum okkur ekkert annað en
sigur í þessum leikjum — hvað
sem portúgalski þjálfarinn
annars segir. Ef ég ætti að skjóta
á úrslit í leiknum í kvöld myndi
ég segja 87:84 okkur í vil, ég veit
að það verður ekki mikill mun-
ur.“
Kolbeinn Pálsson fyrirliði:
„Við göngum til þessara leikja
með sama hugarfari og við erum
vanir, þ.e. við erum ákveðnir í því
að berjast eins og ljón og gefa allt
okkar, og ef vel tekst til og við
náum góðum leik eigum við að
hafa nokkra möguleika á sigri. Ég
treysti á góðan stuðning
áhorfenda, þeirra hlutur í Iands-
leikjum sem leiknir eru á heima-
velli getur verið stór — jafnvel
munað 10—15 stigum fyrir okkur
ef við fáum góðan stuðning
þeirra.“
Þjálfararnir: Þeir voru ekki
beint fúsir til að tjá sig um mögu-
leika okkar, þjálfararnir Kristinn
Stefánsson og Birgir Birgis.
Þó fengum við það út hjá þeim
að þeir eru ánægðir með undir-
búning ísl. liðsins fyrir þessi átök.
„Ef vel tekst til, og leikaðferðir
okkar sem við höfum verið að æfa
ganga upp, þá vinnum við,“ sagði
Kristinn og Birgir bætti við:
„Portúgalski þjálfarinn er nokk-
uð viss um sigur sinna manna,
ættum við ekki að segja að við
séum nokkuð sama sinnis um það
að okkar menn vinni þessa leiki."
Eins og fyrr sagði hefst leikur-
inn í kvöld kl. 20.30, og verður
það eini leikurinn sem fer fram í
Reykjavík, hinir leikirnir verða í
Njarðvíkum annað kvöld kl. 20 og
á laugardag kl. 14.
FRÁ úrslitaglfmunni I Tropicana-keppninni. Halldór Guðbjörnsson og
Sigurður Pálsson eigast við. Ljósm. J.Ö.H.
Halldór sigraði í
opna mótinu eftir
skemmtilega keppni
Mánudaginn 5. april s.l. var i
fyrsta sinn háð hér á landi júdó-
keppni í opnum flokki, þar sem
einungis kepptu júdómenn létt-
ari en 70 kg. Framleiðandi Tropi-
cana á Islandi gaf verðlaun móts-
ins, en ætlunin er að halda slíkt
mót árlega.
Keppnin var geysihörð og mik-
ið um tvisýnar viðureignir eins og
oft er þegar hinir léttari júdó-
menn eigast við. Margir ungir og
efnilegir júdómenn komu fram í
þessari keppni og vöktu verð-
skuldaða athvgli. Þó fór svo, að
lokum, þegar lokið var keppni í
riðlum, að hinir reyndustu kom-
ust í fjögurra manna úrslitin. Til
úrslita kepptu þeir Halldór Guð-
björnsson og Sigurður Pálsson og
sigraði Halldór örugglega eftir
mjög snarpa viðureign. Gunnar
Guðmundsson, núverandi ls-
landsmeistari í léttmillivigt, gat
ekki keppt að þessu sinni vegna
meiðsla.
Fjórir fyrstu menn í keppninni
urðu:
1. Halldór Guðbjörnsson, JFR
2. Sigurður Pálsson, JFR
3. Jóhannes Haraldsson, UMFG
Eysteinn Sigurðsson, A
Halldór varð því fyrstur manna
til að vinna hinn glæsilega Tropi-
cana-bikar sem keppt er um á
þessu móti.
Tveir landsliðsmannanna, Jón SigurSsson og Agnar FriSriksson í baráttu. i
kvöld sameinast þeir um aS berja á Portúgölum.
FYRSTI landsleikur Islands og
Portúgals i körfuknattleik fer
fram i Laugardalshöllinni í kvöld
og hefst kl. 20.30. Þetta verður
fyrsti leikurinn af þremur sem
portúgalarnir leika hér á landi en
hinir tveir hafa fram i Njarðvik á
morgun og laugardag.
Það er heldur lítið sem vitað er
um styrkleika Portúgals í körfu-
knattleik en þó er nokkuð Ijóst,
eftir þeim upplýsingum sem
fengust á blaðamannafundi með
portúgölunum i fyrrakvöld að
þeir eru mjög svipaðir okkur að
getu.
1 leiknum i kvöld hafa
Islendingarnir nokkra yfirburði í
hæð, þvi samkvæmt upplýsingum
portúgalanna er þeirfa hæsti
maður aðeins 1.95 m á hæð, en
a.m.k. þrír okkar manna eru
hærri, Jónas Jóhannesson 2,03,
Bjarni Gunnar 2,00 og Jón
Jörundsson l,97m. Sú staða að
okkar menn hafi vinninginn á
þessu sviði hefur ekki komið upp
í mörg ár í landsleikjum okkar.
En hvort það nægir okkur til
sigurs skal ósagt látið en óneitan-
lega gefur það nokkrar vonir.
Isl. liðið í leiknum í kvöld
verður þannig skipað:
Kolbeinnn Pálsson KR fyrirliði
Kolbeinn Kristinsson IR
Kári Marísson UMFN
Jón Sigurðsson Armanni
Guðsteinn Ingimarsson Ármanni
Gunnar Þorvarðsson UMFN
Þórir Magnússon Val
Birgir Jakobsson IR
Agnar Friðriksson IR
Jón Jörundsson IR
Bjarni Gunnar IS
Jónas Jóhannesson UMFN
Þetta lið mun leika alla leikina
þrjá, en undirbúningur liðsins
hfur staðið yfir í hálfan mánuð og
æft hefur verið daglega. gk.—
Liverpool náði QPR
LIVERPOOL náði Queens Park
Rangers að stigum í ensku 1.
deildar keppninni i knatt-
spyrnu I fyrrakvöld er liðið
vann öruggan sigur á heima-
velli sinum yfir Leicester City.
Reyndar var ekki nema eitt
mark skorað i leiknum og gerði
Kevin Keegan það, en Liver-
pool-liðið hafði yfirburði yfir
andstæðinga sina, en gekk illa
að finna leið í mark þeirra
enda „pakkaði“ Leicesterliðið
mönnum sinum í vörn. Eftir
þennan leik hafa bæði Liver-
pool og Queens Park Rangers
53 stig eftir 38 leiki.
Queen Park Rangers á einna
léttast prógramm eftir af topp-
liðunum, ef unnt er að tala um
að eitthvað sé léttara en annað í
ensku knattspyrnunni. Munar
mestu að liðið á aðeins eftir að
leika einn leik á útivelli, en
hins vegar þrjá á heimavelli.
Liverpool á eftir einn leik á
heimavelli og þrjá á útivelli,
Manchester United á eftir 3
heimaleiki og 3 útilciki og
Derby County á eftir 2 heima-
leiki og 3 útileiki.
I fyrrakvöld léku einnig
Middlesbrough og Norwich og
lauk þeim leik með sigri
Norwich 1—0.
Tveir leikir fóru fram í 2.
deild I fyrrakvöld. Chelsea og
Fulham gerðu jafntefli 0—0, en
Southampton sigraði botnliðið
Portsmouth á útivelli 1—0 og
var þetta þriðji sigur
Southampton á útivelli I vetur.
Hefur liðið hlotið 41 stig og er
sem stendur I fimmta sæti i 2.
deild, þannig að það á enn
smávon að vinna sér sæti í 1.
deild. Peter Osgood, Jim
McCalli og Jim Steel voru settir
út úr liðinu í fyrradag fyrir
agabrot.
Treysliim á stnðning áhorfenda