Morgunblaðið - 22.04.1976, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRIL 1976
+
Faðir okkar. ÁSBJÖRN STEFÁNSSON,
læknir
Hraunteigi 9,
lézt þarm 2 1, apríl Börnin.
t
Eiginmaður minn, faðir, og tengdafaðir,
HJÁLMAR A JÓNSSON,
Víðihvammi 3,
varð bráðkvaddur að heimili sinu 1 5 þ m
Þórurrn G. Thorlacius.
Guðfinna Hjálmarsdóttir, Ingibergur Vilhjálmsson.
Eiginmaður minn
SIGURÐUR TÓMASSON,
Frumskógum 6, Hveragerði,
lést þriðjudaginn 20 apríl
Jónasína Þ. Guðnadóttir.
t
Sonur minn
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON,
Hrauni, Tálknafirði,
andaðist í Borgarsjúkrahúsinu 1 6 apríl Fyrir hönd systkina og annarra
vandamanna
Ólafía Indriðadóttir.
t
Móðir okkar
ÞÓREY UNA FRÍMANNSDÓTTIR,
Vogabraut 34,
andaðist í sjúkrahúsi Akraness 1 7 þ.m. Jarðsett verður frá Akranes-
kirkju laugardagmn 24 þ m kl 1 1 30 f.h.
Börnin.
+ Bróðir minn.
FRIOÞJÓFUR LÁRUSSON,
Eksihlíð 20A
sem lést 1 4 apríl, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 23
apríl kl 3 e h Fyrir hönd systkina og vandamanna. Valur Lárusson
Eiginmaður minn
SIGURÐUR ÁGÚSTSSON,
fyrrv. alþ.maður,
sem andaðist að heimili sínu Skólastíg 1 þann 19 þ.m. verður
jarðsettur frá Stykkishólmskirkju n.k laugardag 24 apríl
Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hins látna kl 2 s d
Ingibjörg Helgadóttir.
Aukaferð frá BSÍ á laugardag kl 7.30 árdegis
t
Þökkum mnilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður tengdaföður, afa og langafa,
HELGA HJÁLMARSSONAR,
Kárastíg 14.
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki sjúkrahúsi
Vestmannaeyja fyrir góða umönnun i veikindum hans
Fyrir hönd barna, tengdabarna. barnabarna og barnabarnabarna,
Sigrfður Sigurðardóttir.
t
Þökkum innílega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður og tengdamóður
SIGURBJARGARHELGADÓTTUR,
Mávahlfð 44
Jóhannes Ormsson,
Anna Jóhannesdóttir, Karl Þorleifsson,
Pálína Jóhannesdóttir, Sígurður M. Jónsson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Hinrik H. Hansen,
Helga Jóhannesdóttir, Jóhannes Björnsson.
Minning:
Sigríður Þórðar-
dóttir, húsfreyja,
Drumboddsstöðum
Fædd 7. október 1910
Dáin 12. aprfl 1976
Sesselja Sigríður Þórðardóttir
var fædd 7. október 1910 að
Hörðuvöllum f Hafnarfirði. Hún
var ein af 12 systkinum og eru 7
þeirra á lffi, systir og 3 bræður
hér á landi og 3 systur giftar og
búsettar i Bandaríkjunum. Sigrið-
ur var dóttir hjónanna Sólveigar
Bjarnadóttur frá Sólmundar-
höfða á Akranesi og Þórðar Ein-
arssonar frá Nýlendu í Garði.
Fluttust þau hjón til Hafnarfjarð-
ar 1906 og gerðist hann ljósavörð-
ur 1907. Þau voru kunnir og
merkir Hafnfirðingar.
Sigriður var tvígift. Með fyrri
manni sínum átti hún 2 syni, Ólaf
Rafn Guðmundsson, sem andaðist
árið 1972, á besta aldri. Eftirlif-
andi kona hans er Þorbjörg Erna
Óskarsdóttir og áttu þau átta
börn. Og Einar Guðmundsson,
kvæntan Magdalenu Eiríksdóttur.
Árið 1938 fluttist Sigriður að
Drumboddsstöðum í Biskupstung-
um og giftist Þorgrími Þnrsteins-
syni bónda þar. Þeirra sonur er
Ormar, kvæntur Sigríði Magnús-
dóttur.
Það var árið 1957, að ég og eldri
bróðir minn, Hallgrímur, komum
til sunardvalar að Drumbodds-
stöðum. Næsta sumar bættist
frændi okkar, Hallgrimur Geirs-
son í hópinn. I kjölfarið fylgdu
síðan systkini á báða bóga.
Ég minnist þessa tímabils sem
alskemmtilegasta hluta bernsku
minnar. Kemur þar margt til, t.d.
skemmtilegir búskaparhættir og
staðhættir, en þó fyrst og fremst
persónulegt atgervi þeirra Sigríð-
ar og Þorgrims.
Sigríður var dökkhærð og brún-
eyg, augnatillitið bjart og hlýlegt.
Að eðlisfari var Sigriður glað-
lynd, en jafnframt . stolt og átti
ríka sjálfsvirðingu. Veikindum
sínum tók Sigríður með æðruleysi
og hugarró, sem var i samræmi
við trausta skapgerð hennar.
Ég mun ætíð minnast hennar
með virðingu, og þakklæti fyrir,
hve vel hún reyndist okkur systk-
inunum þau sumur, sem við
dvöldumst á Drumboddsstöðum.
Um leið og ég og foreldrar mín-
ir vottum Þorgrimi og öllum að-
standendum okkar innilegustu
samúð, þá veit ég, að bræður mín-
ir, Hallgrímur og Gunnar Snorri,
sem nú eru erlendis, gera slíkt
hið sama. Páll Gunnarsson.
Þann 12. april síðastliðinn lést á
Landspítalanum í Reykjavik frú
Sigríður Þórðardóttir húsmóðir á
Drumboddsstöðum i Biskupstung-
um.
Við systkinin kynntumst fyrst
Sigríði heitinni og eftirlifandi
eiginmanni hennar, Þorgrimi
Þorsteinssyni, þegar við ung að
árum dvöldum í fyrsta skipti að
heiman sumarlangt á heimili
þeirra að Drumboddsstöðum.
Þetta sumar varð upphafið að
mörgum ógleymanlegum sumrum
í sveitinni, við starf og leik. Frá
þessum tíma eigum við ljúfar
minningar og dýrmæta reynslu.
Sigríður átti mörg áhugamál.
Hún las mikið og hafði sérstaka
unun af ferðalögum. Gripu þau
hjónin hvert tækifæri sem gafst
til ferðalaga um landið og nutu
sumardvalarbörnin góðs af því. A
sínum yngri árum dvaldi Sigríður
árlangt í Englandi og fyrir nokkr-
um árum átti hún ánægjulega
dvöl hjá systur sinni í Bandaríkj-
unum. Hún var jafnvíg á enska
tungu og danska og kom sú tungu-
málakunnátta mörgum erlendum
ferðamanninum á óvart.
Sigríður var fáguð kona og
glæsileg og tók hverju sem á gekk
með reisn og þolinmæði. Erfið
veikindi og stranga sjúkdómslegu
bar hún með þeim kjarki og ró-
semi sem alltaf einkenndu störf
hennar og lifsviðhorf.
Við teljum það mikla gæfu að
hafa fengið að alast upp í sveit-
inni undir handleiðslu Sigríðar.
Það eru ekki öll börn sem fá tæki-
færi til að komasl burt frá ys og
þys borgarlífssin og þaðan af sfð-
ur á heimili eins og Sigrfðar og
Þorgríms. Þau voru heilsteypt
hjón og samrýmd og þess fyllilega
umkomin að miðla öðrum af ein-
stökum mannkostum. Þessa urð-
um við aðnjótandi á okkar upp-
vaxtarárum og það er lán sem
ekki verður þakkað eins og ber.
Við fráfall Sigríðar er þessi
kveðja okkar systkina fátækleg.
Sá sem mest missir er eftirlifandi
eiginmaður hennar, Þorgrimur.
Við vottum honum, Einari, Orm-
ari, tengdadætrum, barnabörnum
og öðru venslafólki samúð okkar.
Hallgrfmur, Kristfn,
Finnur og Áslaug.
Jarðarför
EYJÓLFS GESTSSONAR,
Húsatóftum,
fer fram frá Ólafsvallakirkju, laugardaginn 24. april kl 2 e h
Vandamenn.
t
Systir okkar
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 30,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. apríl kl 10.30
f.h. Blóm afþökkuð
Fyrir hönd systkina
Magndís Guðmundsdóttir.
+
Eiginmaður minn
GUNNLAUGUR B. KRISTINSSON.
mánagötu 20,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 24 apríl kl 10 30
f.h Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans, er
bent á Slysavarnafélag islands
Ragna Bjarnadóttir.
Á morgun verður til moldar
borin Sigríður Þórðardóttir frá
Drumboddsstöðum. Hún átti við
erfið veikindi að stríða hin síðari
ár, en bar þau afburða vel. Aldrei
var minnst á þau frá hennar hálfu
og áhugi hennar á hinum ýmsu
mönnum og málefnum var vak-
andi til hinstu stundar. Þegar
komið var i heimsókn til hennar á
sóttarsæng, var hún alltaf svo hýr
og skorti aldrei umræðuefni. Það
var ekki erfitt að lifa sig inn í,
þegar hún talaði, því að frásagn-
argáfa hennar var alveg sérstök.
Sigríði var gefið það, sem mörg-
um sögumönnum er ekki gefið, en
það var, að hún hafði alltaf tima
til þess að hlusta og taka þátt í lífi
annarra, bæði gleði og sorg.
Hetjuskapurinn í veikindunum
sýndi ekki bara styrk hennar og
þol, heldur líka æðruleysi. Slík
barátta hlýtur að reyna á alla
þætti manneskjunnar og aldrei
bugaðist hún. Styrkurinn sýnir
kannski best kosti hennar.
Húsmóðurstörfin fórust henni
vel úrhendi á Drumboddsstöðum.
Allt var mjög snyrtilegt og nota-
legt. Sigríður var mjög gestrisin
og þótti öllum gaman að koma
þangað. Hún var fljót að taka við
sér, þegar gesti bar að garði, og á
svipstundu var fullt kaffiborð til-
búið.
Jafnframt húsmóðurstörfum
var hún við útivinnu. Það lá
aldrei á liði Sigríðar. Á morgnana
stökk hún hress og kát fram úr
rúminu, gerði morgunleikfimi og
hafði gott lag á að koma öllum í
gott skap. Það var eins og glað-
lyndi hennar brysti aldrei. Þótt
hún ætti við erfið veikindi að etja,
þá varð henni oft hugsað til ann-
arra, sem áttu bágt, og örvaði þá.
Þegar henni var hrósað fyrir
dugnað sinn, svaraði hún af hóg-
værð, að það væri ekki henni að
þakka, því að Guð gæfi henni
styrk.
Oft er sagt, að barnahylli sé
mælikvarði á manngæsku. Það á
vel við um Sigríði, því að hennar
naut hún í ríkum mæli. Við systk-
inin og frændsystkini okkar eig-
um henni mikið að þakka. Hún ól
okkur að nokkru upp og gaf okk-
ur gott veganesti út í lífið, ekki í
orðum, heldur með fordæmi sínu.
Ég votta eiginmanni hennar,
sonum og öðrum vandamönnum
mfna innilegustu samúð.
Áslaug Gunnarsdóttir.
+
Faðir minn og bróðir okkar
GEIR JÓSEFSSON.
Frá Grímsey,
andaðist 1 5. apríl sl
Guðný Geirsdóttir
°g systur hins látna.
úllaraskreytingar
blómouot
Gróðurhúsið v/Sigtun'simi 36770