Morgunblaðið - 25.05.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976
37
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Bein lína
mun betri
Utvarpshlustandi skrifar:
Ég las í pistlum Velvakanda um
daginn skrif um beina linu og þaó
hversu erfiðlega spyrjendum
gengi að halda sig við efnið, þ.e.
beinar spurningar og ekkert mál-
æði. Nú vil ég lýsa ánægju minni
yfir því, að loks er að takast að
halda sköpulagi á þessum þætti,
fyrir vasklega framgöngu stjórn-
enda. Og líklega er fólk smám
saman að átta sig á að þessi
spurningaþættir eru ekki til að
koma skoðunum sinum á fram-
færi, heldur Ieita eftir svörum og
skoðunum ráðamanna á ákveðn-
um málaflokkum. Þannig var
spurningaþátturinn siðasti, þar
sem Gunnar Thoroddsen svaraði
að mestu málefnalegum hreinum
spurningum um iðnaðar- og orku-
mál og gaf skilmerkileg svör víð
þeim. Og stjórnendur héldu í
skefjum þessum fáu, sem reyndu
að vera með eitthvert annað röfl
um sig og sínar skoðanir. Ég
þakka fyrir það. Með þessu móti
varð ég miklu fróðari um ýmis
mál, sem ég hefi heyrt um óljósar
dylgjur, eða ranghermi.
0 Hjólreíðamenn
í umferðinni
Bilstjóri hringdi og bað Vel-
vakanda að koma því á framfæri
við hjólreiðamenn á umferðar-
götunum, að hættulegt er að þeir
hjóli úti á götunni. Einkum kvað
hann þetta hættulegt á götum,
eins og Skúlagötunni, en margir
þeirra kjósa að hjóla með sjónum,
sem er ákaflega skiljanlegt. Þar
háttar svo til, að gangstéttin er
lítið notuð af vegfarendum og
auð, og raunar nota hana flestir
hjólreiðamenn líka, án nokkurra
vandkvæða. En stöku maður
virðist halda að hann eigi að hjóla
úti i götunni og þá verður hadtan.
Ef maður á hjóli er í annarri
akbrautinni, sem þarna eru tvær
og umferð mikil, þá verður bíla-
röðin að víkja í sveig frá honum.
Við það lenda bílarnir úti í hinni
akreininni. Þeir koma hver af
öðrum fyrir eða utan í bílana, sem
þar koma og geta ekki séð hvað er
um að vera. Af þessu stafar hætta
mikil, því alltaf er þarna mikið
um bíla á báðum akreinum.
Hjólreiðamenn eru miklu
öruggari sjálfir og umferðar-
öryggið meira, ef þeir eru á gang-
sjéttinni. Þeir geta sér til ánægju
hjólað með sjónum þannig.
Erlendis er mjög algengt að gang-
stéttir á slíkum stöðum séu
beinlínis ætlaðar bæði fyrir reið-
hjól og fótgangandi vegfarendur
og þá stundum skipt með striki,
þar sem umferðin er mest. Vegna
mismunandi hraða eiga fótstignu
hjólin oftast betur heima með fót-
gangendum en bílum á 50—70 km
hraða. Þetta á auðvitað við þar
sem umferð fótgangenda er ekki
mjög mikil. Mundi t.d. ekki eiga
við á Laugaveginum. Það verður
að beita skynsemi á allar reglur
og taka tillit til aðstæðna.
0 Hestamenn í
Árbæjarhverfi
Árbæjarbúi skrifar:
Enn skrifa ég þér vegna hesta-
manna og umferðar um Árbæjar-
hverfið. Leitt væri, ef girða þyrfti
Árbæjarhverfið, svo hestamenn
gætu ekki riðið þar í gegn, vegna
þeirra fáu, sem ekki virðast skilja
að grasflatirnar eru garðar okkar,
sem þarna búum, en ekki afréttur
eða einskis manns land, sem
menn geta riðið yfir og rótað upp
með hestahófum. Hestamenn geta
ákaflega vel riðið þarna um og
það er meira að segja ánægja að
sjá þá fara um með fallega fáka.
En auðvitað er undanskilið að
þeir ekki riði yfir lóðirnar okkar
eða eftir ræktuðum grasflötum.
Við í Árbæjarhverfi þurfum að
hafa okkar garða óskemmda eins
og aðrir.
Ég tek það aftur fram, að með
góðri umgengni komast allir fyrir
bæði við og hestamennirnir, ef
þeir bara vilja skilja, eins og flest-
ir þeirra raunar gera, að
reiðmennska inni í borg verður
að lúta vissum lögmálum. Þar
verður að ríða eftir götum. Nú vil
ég biðja þá um að ergja okkur
ekki meira en nauðsyn krefur,
svo ekki komi fram kröfur um að
beina þeim frá hverfinu.
Kannski væri rétt að leggja
reiðgötu þvert yfir Arbæjarhverf-
ið og girða beggja megin við hana
og leyfa eingöngu hesta eftir
henni. Hestamennirnir þurfa að
komast frá Elliðaánum og yfir Ár-
bæjarhverfið, fram hjá iðnaðar-
húsunum og siðan hafa þeir reið-
götu alla leið upp i Mosfellssveit
og meðfram sjónum. Það virðist
aðeins vera spottinn gegnum Ár
bæjarhverfið, sem veldur vand-
ræðum. Og þyrfti að taka málið til
meðferðar og leysa það. Um leið
og komin er byggð, þá auðvitað
geta reiðmenn ekki vaðið yfir
eins og þeim sýnist.
mætum tíma sfnum f að lögsækja
virtasta borgarann og hetju and-
spyrnuhreyfíngarinnar. Ég viður-
kenni að þessar staðreyndir
hljðma ljómandi vel og hægt væri
að valda hneyksli með þvf að gera
þær heyrinkunnar. En þó efast ég
um það. Eg er ekki svo rfkur að
fólk leggi fæð á mig. Ég er ekki
stjórnmálamaður. Eg er þeirra
maður — hér f þessum bæ og nýt
töluverðra vinsælda þótt ég segi
sjálfur frá. Eg á fáa óvini en
marga vini og suma býsna áhrifa-
mikla. Farið þér nú heim til Eng-
lands, M. Hurst og gleymið þessu
öllu. Þó svo að ég hefðí tekið
gullið — sem ég myndi aldrei
játa — hefði ég haft þrjátfu ár til
að fela slóð mfna.
— Hvernig vissuð þér um gullið
spurði Davíd.
Sekúnduþögn var f sainum áður
en hann svaraði og þó var þetta
hik nægilegt til að David vissi.
— Það fór fram rannsðkn eins
og ég sagði yður, sagði Marcel.
— Það var aldrei minnzt á gull-
ið I rannsókninni. Þetta var ein-
vörðungu rannsðkn til að reyna
að komast að þvf hvað hefði orðið
um peningasendinguna. Áfhend-
ing gullsins var aðskilið mál. Og
ef þér viljið breyta svari yðar og
HÖGNI HREKKVÍSI
„Þú ættir að sjá söngskrána í kvöld!“
Útboð
Hitaveita Suðurnesja óskar efti tilboðum í
lagningu dreifikerfis í Keflavík 1 . áfanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Htiaveitu
Suðurnesja, Vesturbraut 10 A, Keflavík og á
verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9,
Reykjavík gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja miðvikudaginn 9. júní kl 14.00.
MAHARISHl
MAHESH YOGI
MEIRA EN 400
REYKVÍKINGAR
iSka innhverfa ihugun
(Tanscendental Meditation techni-
que), tækni Maharishi Mahesh
Yoga.
Visindalegar rannsóknir meira en 200
háskóla og menntastofnana i fleirí en
20 löndum færa sönnur á gildi tækn-
innar fyrir andlegan og likamlegan
þroska einstaklingsins. Nýjar banda-
riskar tölfræðirannsóknir sýna, að þar
sem 1 % íbúa iðka tæknina, verður
stökkbreyting til batnaðar í borgarlífi.
Um þetta fjallar m.a almennur kynn-
ingarfyrirlestur a8 Hverfisgötu 18
(beint á móti Þjóðleikhúsinu), þriSju-
daginn 25. mai, kl. 21.00
iJKénwood
ÞUBRKABI
AuðvelduraSstaðsetia.
Auðveldurlnotkun.
AuðveldarÞvo«.d.g.nn.
hT.iþ..." „h
V2 425
Verð Vr.&&•