Tíminn - 22.05.1965, Side 2
2____________________________ TI9VIINN ________________
a——wwwn1wa—i—miwiwi!wm*iff&bumxiiiwimiirniniifimn iiihmimu»iiiim> ■ ■"'■» hm ■>
Eriksen segir af sér sem
leiðtogi Vinstri f lokksins
NTB-K AUPM ANN AHÖFN,
föstudag.
Vinstrablaöið „Vestkysten",
staðfesti í dag þann orðiróm,
sem verið hefur á kreiki síð-
Erlk Eriksen
ustu dagana, að Erik Eríksen,
fyrrverandi forsætisráðherra
Danmerkur. muni segja af sér
sem leiðtogi næst stærsta
flokks Danmerkur, Vinstri
flokksins. Mun hanm gera þetta
vegna vaxandi andstöðu innan
flokksiins.
Blaðið, sem alltaf hefur ver-
ið nátengt Eriksen, harmar það
í forystugrein í dag, að Erik-
sen ætli að segja af sér, en
kvaðst jafnframt skilja hvers
vegna hann gerir það.
— „Hann hefur ekki fengið
nauðsynlegan stuðning við
stefnu sína. Heldur hefur verið
unnið gegn honum, bæði ljóst
og leynt, á slíkan hátt, að það
hefur verið bæði erfitt og sárs-
aukafullt fyrir hann“ — skrif
ar Vestkysten.
Orðrómurinn um að Erik
Eriksen ætli að segja af sér
eftir um 40 ára stjórnmálastarf,
var umræðuefni fjögurra stór-
blaða í dag, þ.e. Politiken, Jyl-
landsposten, BT og Ekstrablad-
et. Blöðin sögðu, að ástæðan
til þess, að Eriksen hefur ákveð
ið að segja af sé formennsku
flokksins og þingflokksins sé
einfaldlega, að hann er svo til
eini maðurinn í Vinstriflokkn-
um, sem vill sameina flokkinn
þriðja stærsta flokki Danmerk-
ur, íhaldsflokknum. Jyllands-
posten birti í dag niðurstöður
á athugun á skoðunum þing-
manna Vinstri flokksins á slíkri
sameiningu. Voru 25 þingmenn
af þeim 36, sem Vinstri flokk-
urinn hefur á þingi, spurðir. 16
svöruðu því til, að þeir væru al-
gjörlega á móti slíkri hugmynd,
einn var með, en hinir átta
kváðust ekki enn hafa myndað
sér endanlega skoðun á mál-
inu.
Erik Eriksen er 62 ára gam-
all. Hann var forsætisráðherra
í samsteypustjórn Vinstri
flokksins og íhaldsflokksins ár-
in 1950 til 1953, og hann var
forseti Norðurlandaráðs árin
1953—’'54, 1956—’'57 Og 1961—
’62. Hann fór fram á það fyrir
tveim árum að fá að draga sig
til baka sem formaður flokks-
ins, en hélt þó áfram vegna á-
kafrar hvatningar. Síðan hefur
hann oft falað við nánustu vini
sína um, að hann sé orðinn
leiður á stjórnmálum og að
þörf væri á nýjum mönnum í
stjórn flokksins.
LAUGARDAGUR 22. mai 1965
Mæðradagurinn
er á sunnudag
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Mæðradagurinn er á sunnudag-
inn, og í tilefni hans mun Mæðra
styrksnefnd selja sín árlegu
mæðrablóm, litla tvílita rós, og
ef vel á að vera þurfa konumar
í Mæðrastyrksnefndinni að geta
selt allar þær 20 þúsund rósir,
sem þær hafa á boðstólum, því
ágóðinn rennur allur til uppbygg-
ingar og rekstrar mæðraheimilis-
ins að Hlaðgerðarkoti í Mosfells-
sveit, en væntanlega verður haf-
izt handa i sumar um byggingu
viðbótarálmu með 10 herbergjum
fyrir heimilið samkvæmt uppruna
Iegri teikningu að því.
Sala mæðrablómsins hefst kL
10 á sunnudagsmorguninn og
verða blómin afgreidd í öllum
barnaskólum borgarinnar, og
einnig í ísaksskóla og Vesturbæj-
arskólanum við Öldugötu. Mæðra-
rósin mun kosta 15 krónur.
Starfsemin að Hlaðgerðarkoti
mun hefjast upp úr 20. júní næst
komandi, en þar voru í fyrra 50
mæður með 120 börn sín auk 25
Framhald á 14. síðu.
NÝ GERÐ AF RÚSSNESKRI
LANDBÚNADARBIFREIÐ
KJ-Reykjavík, föstudag.
Ný gerð af rússneskum land
búnaðarbíl er nú komin til
landsins, og er hann all frá-
brugðinn hinum eldri í útliti,
þótt undirvagninn sé mikið til
sá sami.
Bíll þessi er frambyggður, ög
einna líkastur frambyggðúm
sendiferðabíl í útliti, en undir-
vagninn er þó allur annar
og sterkari, þar sem Þetta er
fjögurra drifa bíll. Vélin er
á milli framsætanna, og gott
útsýni er úr ökumannssætinu.
Dyr eru aftast á bílnum, en
hæglega má setja dyr á hlið
hans, og eins er leyfilegt að
setja glugga á hliðarnar án
þess að bíllinn hækki við það
í tollflokki, því lér er um að
ræða landbúnaðarbíl, sem kjör
inn er til fjallaferða, og akst
urs 'á veglaysum, fyrír þá
sem áihuga hafa á slíku.
Bíl þennan nefna Rússarn-
ír UAZ-450, og hefur hann ver
ið til reynslu hjá verksmiðjun
um í nokkur ár áður en hann
var settur á almennan markað.
Má segja að undirvagninn sé
allur sá sami og á hinum vel
þekktu GAZ-landbúnaðarbílum
sem verið hafa í notkun hér
á landi um nokkurra ára skeið.
Dekkin eru þó stærri, og eins
er mælaborðið allt annað og
smekklegra útlits. UAZ-450 er
4.35 m. á lengd, 1.94 á breidd,
hæð er 2.05 m., fjarlægð milli
öxla 2.30 m. Breidd milli hjóla
1.43 og hæð undir lægsta punkt 1
er 21 cm Hámarkshraði er g
uppgefinn 90 km. og eyðsla á
100 km. 14 lítrar. Hann er með
þriggja gíra kassa, háu og lágu
drifi og framdrifi að sjálfsögðu.
Bifreiðar- og landbúnaðarvél
ar, Suðurlandsbraut 14, flytja
inn þennan bíl eins og aðra
rússneska bíla, og veita allar
nánari upplýsingar um hann.
Verðið er áætlað 153 þúsund
krónur, og má telja Það mjög
hagstætt, þar sem hér er um
að ræða mikinn bíl, sem hægt
er að nota á margan hátt.
sé a8 ferSlnnl upplagSur fjallabíll.
Firmakeppm Fáks
er á sunaudaginn
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
Hestamannafélagið Fákur efnir
til sinnar árlegu firmakeppni á
skeiðvellinum við Elliðaár næst
komandi sunnudag, og hefst
keppnin klukkan 15 síðdegis.
Hér er ekki um að ræða kapp-
reiðar, heldur er þetta stórkost-
leg góðhestasýning, þar sem um
240 gæðingar verða sýndir. Verð-
ur öllum hestunum riðið inn á völl
inn og um hann í byrjun, og í
fararbroddi verður Sigurður Ólafs
son hinn kunni hestamaður og
söngvari á Glettingi sínum, sem
er sonur hinnar frægu Glettu.
Gæðingunum verður síðan riðið
eftir skeiðvellinum einum og ein-
um og mun þá dómnefnd, sem
skipuð er félögum úr Hestamanna
félaginu Herði, dæma gæðingana,
og ekki aðeins þá heldur og líka
alla framkomu knapans og hvern-
ig hann ber sig að við hestinn.
Formaður dómnefndar verður
Pétur Hjálmsson ráðunautur. Að
lokinni þessari miklu góðhesta-
sýningu verður aftur riðið í fylk-
ingu um völlinn.
Aðgangur að firmakeppninni er
ókeypis og gefst þarna gott tæki-
færi til að skoða alla mestu gæð-
inga, sem eru í eigu Reykvíkinga.
Fákskonur munu selja happ-
drættismiða þennan dag, en dreg-
ið verður á annan í hvítasunnu,
hinum árlega kappreiðadegi Fáks.
Eru vinningar í happdrættinu
gæðingsefni og strandferð með
Eimskip.
Reinhard Lárusson formaður
firmakeppninefndar Fáks afhenti
í dag eigendum þeirra fyrirtækja
verðlaun, sem sigruðu í firma-
keppninni í fyrra. Málning h.f. í
Framnaló á 14 síðu.
LÍZT VEL Á MINKA-
RÆKT HÉR Á ÍSLANDI
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
f gær átti Tíminn tal við Alf
Lund, formann dönsku loðdýra-
ræktarfélaganna, en hann kom hér
við á leið sinnl til Grænlands.
— Á hvaða ferðalagi eruð þér
til Grænlands?
— Eg er að fara þangað á
vegum dönsku grænlandsverzlun
arinnar þeirra erinda að skrifa
bók um minkarækt í Grænlandi.
Þeir hafa áhuga á að koma á
fót minkarækt þar í landi, og
mun ég skrifa bókina á dönsku
sem síðan verður þýdd á græn-
lenzku og dreift tii þeirra sem
áhuga hafa á þessari atvinnugrein.
Eg mun dvelja í um hálfan mán-
uð, aðallega í Narssak og Þar um
kring þar sem eitt minkabú hef
ur þegar verið sett upp. Græn-
landsverzlunin mun þó ekki sjálf
standa fyrir búunum, heldur gefa
Grænlendingum möguleika á að
koma sér upp búum og reka þau
sjálfir.
— Hvað getið þér sagt okkur
um minkaræktina í Danmörku?
— Núna eru um 6 þúsund
minkabú þar og verða seld þar
minkaskinn í ár fyrir um 200
milljónir d kr Skinnin eru seld
á fjórum uppboðum sem haldin
eru ár hvert á vegum samtaka
okkar Mjög góð samvinna er á
milli Finnlands. Noregs. Svíþjóð
ar og Danmerkur um uppboðin,
og eru þau aldrei haldin samtím
is í tveim löndum svo skinnakaup
menn geta farið á mílli landanna
og verið á öllum uppboðunum.
Hvert skinn er selt á hundrað
krónur danskar að meðaltali, og
eru þau Þá ekkert verkuð, að-
eins þurrkuð. Eftirspurnin er
mikil, og fer mikill hluti skinn
anna til Bandaríkjanna, en
einníg til Þýzkalands og annarra
Evrópulanda.
— Hvernig er með fóðuröflun
til minkaeldis í Danmörku?
— Við þurfum um hundrað
milljón kíló af fiski í þessi 6000
bú, og nokkuð af því magni get-
um við fengið í Danmörku, en
stóran hluta þess verður að flytja
inn frá öðrum löndum. Við erum
því ekki eins vel settir með
minkafóður og þið hér sem haf
ið nóg af fiski. Og annað hafið
þið hér sem okkur vantar til-
finnanlega, en það eru landsvæði
fyrir minkabúin. Danmörk er lítið
land, og þéttbýlt, en hér hafið Þið
nóg landrými, og þess vegna skil
ég ekki í því hvers vegna þið
hafið bannað minkarækt.
— Hvað kostar góður minkur
til undaneldis í Danmörku?
— Góður minkur til undaneldis
kostar í Danmörku 250—300 krón
ur danskar, eða nærri tvö þúsrund
krónur íslenzkar
— Og yður lízt sem sagt vei
á minkarækt hér á landi?
— Já, ég held að þið hafið allt I
til þess að reka minkabú, og við
mundum mjög gjarnan verða Is-
lendingum til leiðsagnar við stofn
setningu búanna.
Alf Lund