Tíminn - 22.05.1965, Síða 7
LAUGARDAGUR 22. maí 1965
TÍMINN
Ihaldið rís öndvert gegn
úrbótum í umferðamálum
AK, UeykjavíK, föstudag. — Þau
furðulegu tíðindi gerðust í borgar
stjórn Reykjavíkur í gærkveldi, að
íhaldið beitti sér með oddi og egg
gegn því, að boðað yrði til ráð
stefnu, sem fjallaði um umferða-
slys í borgitnni og varnir gegn
þeim, og til hennar kvaddir þeir
aðilar, sem mesta reynslu og sér-
þekkingu liafa í þessu mikla og
sívaxandi vandamáli. Má segja, að
skörin sé farin að færast upp í
bekkinn, þegar meirihlutinn í
borgarstjóm rekur svo skefjalausa
gereyðingarstyrjöld gegn öllum
nýtum tillögum minnihlutans, að
ekki má einu sinni samþykkja til-
löigur og sjálfsagðar tilraunir til
úrbóta í umferðamálum. — Eftir-
farandi tillögu Kristjáns Benedikts
sonar, borgarfulltrúa Framsóknar
flokksi'ns, vísaði íhaldið til svæf
ingar í umferðarnefnd gegn at-
kvæðum minnihlutaflokkanna.
„Borgarstjórn Reykjavíkur lítur
alvarlegum augum á hinn mikla
fjölda umferðaslysa í borginni og
telur að einskis megi láta ófreist-
að til að draga úr þeirri slysa-
hættu, sem umferðinni er sam-
fara. Því ákveður borgarstjór.’iin
að beita sér fyrir því, að haldin
verði á suniri komanda sérstök
ráðstefna, er eingöngu fjalli um
umferðaslys í borginni og varnir
gegn þeim. Felur borgarstjórn
umíerðanefnd að undirbúa ráð-
stefnuna og sjá um framkvæmd
hennar. Skal umferðanefnd leita
samstarfs við sem flesta þeirra
aðila, sem þekkingu og áhuga
hafa á þessu mikla vandamáli, svo
sem lögreglu, slysavarnafélaga,
tryggingafélaga, bifreiðaeftirlits-
ins, hinna ýmsu samtaka öku-
manna foreldrafélaga og samtaka
kennara. Æskii borgarstjórnin
þess, að til ráðstefnu þessarar
verði vandað eftir föngum, svo að
árangur megi verða sem mestur“.
í framsöguræðu sinni minnti
Kristján Benediktsson á það, að
hann hefði fyrir tveimur mánuð-
um flutt í borgarstjórn tillögu um
að auka umferðaeftirlit á götum
og byggja þar á þeirri ágætu
reynslu, sem fengizt hefði af slík
um ráðstöfunum á miklum um-
ferðadögum, t.d. í desember, en
það hefur komið í ljós, að umferða-
slysum fækkaði í des. tvö s.l. ár
vegna þessarar auknu vörzlu.
Kristján sagði, að sú tillaga hefði
fengið aðra afgreiðslu en hann
taldi æskilega. í þeim umræðum
hefði verið drepið á ýmis atriði
í sambandi við umferðina og kom
ið fram mikilvægar upplýsingar
um slysafjöldann og orsakir hans.
Kvaðst hann ekki vilja endurtaka
það allt nú en vísa til þess. Þó
vildi hann minna á þá staðreynd,
að árið 1961 hefðu umferðaróhöpp
verið nær tvö þúsund í Reykja-
vík en árið 1964 nær þrjú þúsund
eða um 8 á dag. Sýndi þetta þróun
ina samfara fjölgun bílanna. Þriðj
ungshækkun á þremur árum væri
óhugnanleg aukning.Þetta væri svo
ískyggilegt, að leita yrði allra ráða
til þess að stöðva þessa þróun. Um
ferðaráðstefna gæti án efa haft
heillavænleg áhrif. Þar munu
koma fram nýjar hugmyndir, ný
úrræði, er beita mætti í baráttunni.
Gísli Halldórsson hafði uppi ýms
ar úrtölur og lagði til að tillög
unni yrði vísað til umferðanefnd
ar. Hann taldi tölur þær, sem
Kristján hafði nefnt um umferða
slys á síðasta ári of háar og nefndi
aðeins tölu þeirra, sem orðið hefðu
fyrir bifreiðum og komst að þeirri
niðurstöðu, að þeim hefði farið
fækkandi. Vildi hann helzt fall
ast á, að önnur umferðaslys væru
ekki til og ekki taka með í reikn
inginn ökumenn eða farþega í
bifreiðum. Vakti þessi röksemda
færsla undrun manna. Taldi Gísli
að ekki þyrfti að leita eftir ráð
um, þau væru næg til í þessum
málum, og ástandið mundi frem
ur fara batnandi en versnandi.
Friðleifur Friðleifsson tók mjög í
sama streng og Gísli.
Kristján Benediktsson hrakti
glögglega tölublekkingar Gísla um
umferðaslysin og benti á, að
það væri ekki leiðin til góðs
árangurs í þessu válega vandamáli
að vera svona ánægður með á-
standið og fram hefði komið hjá
talsmönnum meirihlutans. Við
getum ekki sætt okkur við það,
sagði hann, að ástandið fari svona
hríðversnandi ár frá ári. Við get-
um ekki horft aðgerðalausir og
úrræðasnauðir á það, sem hér er
að gerast. Það leysir engan vanda
að lýsa yfir, að allt sé í lagi. Það
er fráleitt að fara að eins og
meirihlutinn í vetur, er hann lét
sig hafa það að fella tillögu um
aukna umferðarvörzlu í borginni,
þó að staðreyndir sýndu, hve góð-
an árangur það hefur borið.
Einar Ágústsson kvað gamla
sögu vera að gerast í afgreiðslu
þessa máls. Þegar íhaldið vildi
svæfa eitthvert nytjamál fyrir
minnihlutanum, þá væri viðbáran,
að ekki mætti ganga fram hjá
hinni eða þessari nefndinni, og nú
væri það umferðanefnd. En það
væri ekki til neins að vera með
nein látalæti eða yfirdrepsskap
um þetta. Tilgangurinn væri sá
einn að svæfa málið, losna við
það. Hér væri sífellt verið að
vísa tillögum minnihlutans til
nefnda, en það kæmi aldrei neitt
frá þeim aftur, nema helzt yfir-
lýsingar um að allt væri í stakasta
lagi og ekki þörf á aðgerðum, sem
tillögurnar fjölluðu um. Oftást
væru þær svæfðar og ekki á þær
minnzt framar.
Einar sagði, að tillagan um um-
ferðarráðstefnu væri þörf og brýn.
Enginn vafi væri á því, að hún
gæti orðið til gagns, væri vel til
henar vandað. Þar ’ mundu koma
fram góðar hugmyndir, og þeirra
væri þörf.
Að lokum var tillögunni um ráð-
stefnuna vísað til umferðanefnd-
ar með 9 atkv. gegn 6. Þess má
geta, að önnur tillaga um um-
ferðaráðstefnu hefur legið hjá
nefndinni í tvö ár og er þar sofn-
uð svefninum langa. Sýnir það,
hve rík ástæða var til að vísa
þessari tillögu til nefndarinnar
líka.
Vinnuskólinn veröur að
taka við 12 ára stúlkum
AK-Reykjavík, föstudag.
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins bar
fram nokkrar fyrirspumir um
Vinnuskóla Reykjavíkurborgar á
borgarstjórnarfundi í gærkveldi,
og svaraði borgarstjóri þeim.
Fyrsta spurníngin var um það,
hver væm helztu verkefni, sem
unnið yrði að í Vinnuskólanum í
sumar. Borgarstjóri sagði, að þau
væru margs konar, en nefna
mætti hirðingu garða, gróðursetn-
ingu, lagfæringar í Öskjuhlíð,
gæzlu á barnaleikvöllum, lagfær
ingu íþróttavalla, málnmgu vinnu
skúra, lagfæringu á skólalóðum og
svo ýmsa vinnu á Úlfljótsvatni.
Sem svar við öðrum spurning
um Kristjáns um Vinnuskólann,
sagði borgarstjóri, að undanfarin
•‘ rainhal ♦ Í> \ 4 <!>)»
Ráðstefaa á Hásavík um
EFNAHAGSMÁL, LANDBÚNADARMÁL OG BYGGDAÞRÚUN
Samband ungra Framsóknarmanna heldur ráSstefnu
fyrir NorSurlandskjördæmi eystra á Húsavík, dagana
26. og 27. meí, og hefst hún kl. 8.30 e..h
Framsögumenn verða:
Hjörtur Eldjárn Þórarinsson, bóndi, Tjörn, sem
ræðir um efnahagsmál,
Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, sem ræðir
um landbúnaðarmál,
Kristján Ingólfsson, skólastjóri, Eskifirði, sem
ræðir um byggðaþróunina.
Hjörtur Eldjárn
Halldór Pálsson
Krlstján Ingólfsson
ráðstefnu S.U.F.