Tíminn - 22.05.1965, Page 12
12
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
TlMIWN
LAUGARDAGUR 22. maí 1965
Frjáls-
íjjróttamót í
Stykkishólmi
Þrjú innanhúsmót í frjálsum
íþróttum voru haldin í Styklds-
hólmi í apríl. Skólamót MiSskólans
í Stykkishólmi 11. aprfl, innanhús-
mót H.S.H. 15. aprfl og innanfélags
mót Umf. Snæfells 29. aprfl.
Beztu afrek í einstökum grein-
um urðu þessi:
Langstökk án atr.
Sigurður Hjörleifsson f.M. 3.16 m
Guðbjartur Gunnarss., Í.M. 3.09 m
Sigurjón Halldórss, Grf 3.04 m
Eyþór Lárentsínusson, Snf.
3.00 m
Þrístökk án atr.
Sigurður Hjörleifss., Í.M. 9.35 m
Sigurjón Halldórss., Grf. 8.92 m.
Guðbjartur Gunnarss, Í.M. 8.86 m.
Sigurður Kristjánsson St. 8.72 m
Hástökk án atr.
Eyþór Lárentínusson, Snf. 1.50 m.
Friðrik Alexanderss, f.M. 1.45 m
Öm Alexandersson, Vík 1.30 m
Sigurður Hjörleifsson f.M. 1.30 m
Hástökk með atr.
Sigurður Hjörleifsson, f.M. 1.70 m
Sigurþór Hjörleifss., Í.M. 1.70 m
Sigurður Björgvinss., Snf. 1.65 m
Eyþór Lárentínuss., Snf. 1.65 m
Hástökk með atr., stúlkur.
Rakel Ingvarsdóttir, Snf. 1.35 m
Sesselja G. Sigurðard., Snf. 1.35
Svala Lárusdóttir, Snf. 1.30 m
Kristín Lárusdóttir, Snf., 1.25 m.
Afrek Sigurðar og Hrefnu í lang
stökki án atr. eru ný héraðsmet.
Körfuknatttleiksmót H.S.H., hið
fyrsta í röðinni, fór fram í íþrótta
húsinu í Stykkishólmi 1. maí. Þrjú
lið tóku þátt í mótinu, frá Umf.
Snæfelli í Stykkishólmi, Umf.
B'ramnaio a bls. 13
KR-ingar fögnuðu sigri í Reykja
víkurmótinu í knattspyrnu í fyrra
kvöld eftir sigur gegn Val, 2:1.
Eftir leikinn var þeiin afhentur
Reykjavíkurbikarinn og sést Ellert
Schram, fyrirliði, halda honum
hátt á lofti. Við hlið hans standa
þeir Hreiðar Ársælsson, Bjami
Felixsson og Þorgeir Guðmuuds-
son, og sigurgleðin leynir sér ekki.
Ekkert félag hefur hlotið Reykja-
víkurmeistaratitil oftar en KR,
þetta elzta knattspymufélag Rvík-
ur, en Vesturbæjarliðið hefur unu
ið titilinn í 22 skipti aljs. —
Langstökk án atr., stúlkur.
Hrefna Jónsdóttir, Snf. 2.41' m.
Signý Bjarnadóttir, Helg. 2.38 m
Sesselja G. Sigurðard., Snf. 2.32 m
Rakel Ingvarsdóttir, Snf. 2.20 m
SIGURGLEÐI
Nú fer að líða að þvf, að Cassius Clay, öðru nafnl „Muhammad Ali'* og Sonny Liston mætist í einvíginu um
heimsmeistaratttii { þungavigt, en n. k. þriðjudag er áformað, að leikur þeirra fari fram. Eins og áður
hefur komið fram, er Cassius mjög sigurviss, en Liston hefurlífið látið frá sér heyra. Myndin hér að ofan var
tekin nýlega af Casstus Clay fyrir framan æfir.gabúðir hans, en þangað hleypur hann okki mörgum að.
Á skiltinu stendur „upptekið fyrir Muhammad Ali“, en því nafni vill kappinn láta nefna sig.
Keppnin í 1. deilti
hefst á sunnudaginn
Fram leikur á Akureyri og Skagamenn í Keflavík.
Alf—Reykjavfk. — íslandsmótið í knattspyrnu hefst samtímls á
tveimur stöðum á sunnudaginn, Akureyri og Keflavík. Fram leik-
ur á Akureyri gegn heimamönnum í 1. deild og Skagamenn sækja
Keflvíkinga heim. Báðir leikimir hefjast klukkan 16.
Mikill spenningur er ávallt um
leiki í 1. deild, hvort sem um er
að ræða fyrstu leikina eða þá
síðustu, því hvert stig er dýrmætt.
Ekki er ætlunin að spá neinu fyrir
um leikina á sunnudag. Eflaust á
Fram við ramman reip að draga
á Akureyri, en Akureyringar hafa
æft vel að undanförnu og sýndu
góða leiki gegn Þrótti nýverið.
Leikinn á Akureyri dæmir Einar
Hjartarson. — Leikur Keflvíkinga,
núverandi íslandsmeistara, og
Skagamanna ætti að geta orðið
mikill baráttuleikur og verður
eflaust um jafna viðureign að
ræða. Leikurinn, sem fram fer á
Njarðvíkurvellinum dæmir Grétar
Norðfjörð.
Þess má geta, að ákveðið hefur
verið, að leikur Vals og KR í 1.
deild, sem fram átti að fara í
fyrrakvöld en var frestað, fari
fram 4. júní n.k.
VormótÍRá morgun
Fyrsta opinbera frjálsíþróttamót
ið hér í Reykjavík á þessu sumri,
Vormót ÍR fer fram á Melavellin
um á morgun, sunnudag og hefst
kl. 14. Keppni í sleggjukasti hefst
þó hálftíma fyrr eða kl. 13,30.
Keppt verður í eftirtöldum grein
um á mótinu að þessu sinni: 100 m
400 m, 800 m, 3000 m, 4x100 m.
boðhlaupi, langstökki, hástökki,
sleggjukasti, kringlukasti, kúlu-
varpi, , 100 m. hlaupi kvenna og
100 m. hlaupi sveina, þ.e. pilta,
sem eru fæddir 1949 eða síðar.
Þátttaka er allgóð í mótinu,
keppendur eru um 50 m.a. frá
Reykjavíkurfélögunum þremur,
KR, Ármanni og ÍR og auk þess
frá nokkrum utanbæjarfélögum.
Frjálsíþróttamenn hafa náð
ágætum árangri á innanfélagsmót
um í vor, en hæst ber að sjálf-
sögðu hið glæsilega íslandsmet
Jóns Þ. Ólafssonar í hástökki, 2.10
m. Jón keppir á morgun, og verði
gott veður, er ekki gott að segja
nema hann bæti metið enn, því
að Jón stökk vel yfir 2,10 m. á
dögunum. Auk Jóns eru flestir
beztu frjálsíþróttamenn landsins
meðal þátttakenda, Guðmundur
Hermannson, sem varpað hefur
kúlu 16,25 m. er í mjög góðri æf-
ingu nú og ýmsir eru þeirrar
skoðunar^ að hann muni gerast
nærgöngull við íslandsmet
Husebys frá 1951, en það er 16.74
m. Allir beztu lang- og millivega
lengdarhlauparar keppa, svo sem
bræðurnir Kristleifur og Halldór
Guðbjörnssynir, Agnar Leví o.fl.
ALDREIBETRI!
Heimsmeistarakeppnin í þunga-
vigt í hnefaleiknum verður n.k.
þriðjudag milli Cassius Clay og
Sonny Liston og frá æfkigabúðum
Liston hefur komið sú tilkynning,
að fyrrverandi heimsmeistari hafi
aldrei verið betri — og nú i miklu
betri æfingu, en þegar hann tap-
aði fyrir Clay í fyrra. Liston vegur
nú 97 kíló, en mun léttast eitt-
hvað fyrir þriðjudag. Hann boxar
sex lotur á dag gegn tveimur æf-
ingafélögum — lotu minna en
Clay, sem einnig æfir hlaup mjög
— hleypur minnst fimm km. á
dag. Clay hætti æfingum í gær, og
mun nú einbeita sér að taktiskum
hliðum leiksins.
PUNKTAR
Hin eiginlega vertíð frjáls-
íþróttamanna hefst á sunnudag-
inn með Vormóti ÍR. Frjáls-
íþróttamenn okkar hafa verið í
mikjum öldudal síðustu árin, og
sárafáir áhorfendur fylgzt með
frjálsíþróttamótunum. Sem bet
ur fer virðast frjálsíþróttir nú
vera á uppleið aftur og væntan
lega eiga þær eftir að skipa
veglegan sess að nýju. Þegar
ég tala um, að frjálsíþróttirn-
ar séu á uppleið aftur, á ég
ekki endilega við, að hér séu
að spretta upp frjálsíþrótta-
menn á heimsmælikvarða, þótt
t.d. Jón Þ. Ójafsson hafi náð
glæsilegum árangri fyrir nokkr
um dögum, heldur aðallega það
að almennur áhugi unglinga á
frjálsíþróttum fer vaxandi. í
hópi þessara unglinga eru mörg
•kemmtileg efni, sem náð hafa
ágætum árangri, þótt enn sé
ekki um nein „stjörnuafrek"
að ræða. „Stjörnuafrekin" eru
heldur ekki alltaf aðalatriðið,
heldur hitt að um skemmti-
lega og jafna keppni sé að
ræða. Það er nokkuð, sem okk
ar ungu frjálsíþróttamenn geta
boðið upp á, þess vegna eru
líkur fyrir þvi, að áhorfendum
að frjálsíþróttamótum fari fjölg
andi.
Stjórn Frjálsíþróttasambands
íslands hefur markað hyggi-
lega stefnu með því að einbeita
kröftum sínum að unglinag-
starfinu, ckki einungis hér í
Reykjavík, heldur um land allt.
Slíkt starf krefst þrautseigju
og tíma, en það borgar sig.
Næsta skref hjá frjálsíþrótta-
forystunni verður svo að vera
skipiflagning frjálsíþróttamót-
anna, en þvi miður hafa þau
verið of illa skipulögð og geng-
ið of hægt fyrir sig. Þessu ætti
að vera auðvelt að kippa f lag.
Og þegar svo er komið, að hægt
verður að bjóða upp á skemmti
Iega og jafna keppni á vei
skipulögðu móti. þurfa íslenzk-
ar frjálsíþróttir engu að kvíða
— alf.