Morgunblaðið - 10.07.1976, Page 5
Endirinn skyldi
í upphafi skoðu.
Athugið áður en þið leggið af stað: öll öryggistæki, s.s
stýri, hemla og hjólabúnað, einnig olíu, loftþrýsting
hjólbörðum, kælivatn, rúðuþurrkur og rúðusprautur.
Algengasta bilun í ferðalögum er í rafkerfinu. Hafið
helztu vara.hluti með ykkur, s.s. kerti, kveikjulok,
kveikjuhamar, platínur og þétti. Takið einnig viftureim
með. Gerið ykkur grein fyrir burðarþoli bílsins og varizt ^
að ofhlaða hann. fi/ÍY
Það sem sízt má þó vanta í ferðina er góða ferðaskapið.
Ökuhraðinn.
í 49. gr. umferðarlaganna segir m.a.: „ökuhraða skal
ávallt miða við gerð og ástand ökutækis, staðhætti, færð,
veður og umferð og haga þannig að aksturinn vafdi ekki
hættu eða óþægindum fyrir aðra vegfarendur, né geri
þeim óþarfa tálmanir.
Óeðlilega hægur akstur er því talinn óæskilegur, enda
valda svokallaðir „lestarstjórar” mikilli hættu á þjóöveg-
um. Hverjum þeim, sem verður var við að bílalest safnast
fyrir aftan hann, er skylt að hleypa þeim bílum þegar
fram fyrir sig, eins og lýst er í sérstökum kafla hér á
síðunni.
50. gr. umferðarlaganna fjallar um ökuhraða. Kynnið
ykkur hana vel.
En hvað vinnst með auknum ökuhraða?
Svörum því með auðskildu dæmi:
Milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar er 10 km leiö.
Spurning: Hvað vinnst mikill tími með því að auka með-
alhraðann á þessari vegalengd?
Svar: frá 60—70 vinnast 86 sek
frá 70—80 vinnast 64 sek
frá 80—90 vinnast 50 sek
frá 90—100 vinnast 40 sek
frá 100—110 vinnast 33 sek
Er hraðaaukningin þessara sekúndna virði?
Framúrakstur.
Framúrakstur er með hættulegri og erfiðari athöfnum
sem framkvæmdar eru í umferóinni. Margt þarf að vega
og meta á svipstundu, s.s. vegalengdir, eigin hraða og
hraða mótaðilans, útsýnisfjarölægð o.m.fl.
Sem dæmi má nefna að sé ekið á 80 km hraða fram úr bíl
á 60 km hraða þá þarf sá ökumaöur sem það gerir að
fullvissa sig áður um að engin hindrun sé á veginum á
næsta 350 metra kafla og að enginn bíll sé að koma á
móti á 700 metra kafla framundan!
Bill A
80 km/klst
= 22 m/sek
Óryggisfjarlægó fyrir framurakstur 50m
Aekur 50+40m lengra en B við fraViúrakStur = 90 m.
90 m : 5,5m/sek (hraðamismunur) = framúrakstur
varir i 16 sek. x 22 m (hraði A) = 350metrar.
Hins vegar skiptir það mestu máli að ökumaður fremra
bílsins sinni því bæði fljótt og vel þegar hann verður var
við að hinn vill komast fram fyrir. Honum ber að draga
mjög úr ferðinni, jafnvel stanza, og víkja svo vel sem
kostur er út á hægri vegarbrún.
Bíll B
60 km/klst Hraðamismunur nemur 5,5m/sek
= 16,5m/sek
Öryggisfjarlægó eftirframúrakstur 40m
Verðlaunagetraun
I haust gengst Umferðarráð fyrir verðlaunagetraun urr
umferðarmál, sérstaklega þjóðvegaakstur. Spurninga
verða úr því efni sem hér birtist, svo og úr öðru efni serr
birt verður í dagblöðum í sumar.
Heildarverðmæti verðiauna mun nema kr. 400.000.—
Fylgist því með frá byrjun.