Morgunblaðið - 10.07.1976, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JULÍ 1976
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Aðalstræti 6. slmi 10100
Aðalstræti 6. slmi 22480.
hf. Árvakur, Reykjavlk.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1000.00 kr. á mánuði innanlands.
j lausasölu 50,00 kr. eintakið.
Vísindanefnd Nato, sem
stendur fyrir ráðstefnu um
umhverfismál í Reykjavík um
þessar mundir, var sett á legg
fyrir 18 árum Eins og fram
kom í máli framkvæmdastjóra
ráðstefnunnar, við opnun
hennar, eru starfsþættir vís-
indanefndarinnar í höfuðatrið-
um fimm: 1) veiting rannsókn-
arstyrkja, 2) veiting styrkja til
sérnáms og þjálfunar, sem
stjórnvöld í hverju landi út-
hluta, 3) veiting.ferðastyrkja til
eldri vísindamanna, 4) starf-
ræksla sumarháskóla, þar sem
eldri vísindamenn miðla þeim
yngri af þekkingu og starfs-
reynslu og 5) verkefnanefnd-
um á sviði haffræði, vistfræði,
samskipta sjávar og lofts, á
sviði kerfarannsókna og loks á
sviði mannlegra samskipta.
Fulltrúi íslands í visinda-
nefndinni, dr. Guðmundur Sig-
valdason jarðefnafræðingur,
gat þess í viðtali við Morgun-
blaðið sl. fimmtudag, að vís-
indanefndin hefði styrkt marg-
háttuð verkefni á íslandi. T.d.
væri jarðskjálftamælinganetið,
sem hér hefði verið sett upp,
mikið til fjármagnað með styrk
til tækjakaupa frá nefndínni,
svo og gróðurrannsóknir, sem
Yngvi Þorsteinsson hefði unnið
að, og raunar hefði fjöldi ís-
lenzkra vísindamanna hlotið
styrki frá nefndinni til einstakra
verkefna.
gæði mannlífsins; heldur í
þeirri víðu merkingu að við-
halda umhverfinu í heild: frjó-
semi jarðvegsins, jafnvægi
vatnsins, framleiðni plantn-
anna, erfðafræðilegri fjöl-
breytni; þ.e. verkhæfni hinnar
stórkostlegu náttúrulegu hring-
rásar, sem allt lif byggist á, þar
á meðal líf mannsins."
Þetta undirstöðuverkefni
þjóðanna tengist þeim viðblas-
andi vanda á næstu árum og
áratugum, að fæða ört vaxandi
mannkyn svo vel sé, án þess
að skerða eða skemma lífkeðju
þess umhverfis, sem við hrær-
umst í, og tilvera mannanna
grundvallast á. Fram kom í
erindi forseta ráðstefnunnar,
sem hér .var vitnað til, að
mannfjöldinn í heiminum
þess að auka nýtingu á frumaf-
rakstri jarðarinnar
Þeir hlutar jarðar, sem hafa
viðráðanlegt loftslag, nægar
vatnsbirgðir, frjósaman jarðveg
og eru lausir við umhverfis-
streitu, þ.e. tempraða beltið,
hefur þegar verið byggt um
árþúsundir. Og þar væri komið
að því hagnýta gildi, sem ráð-
stefnan hefði fyrst og fremst.
Meginverksvið og tilgangur
ráðstefnunnar væri að rann-
saka -og benda á leiðir um,
hvern veg halda megi við frjó-
seminni, ríkidæminu, á landi
og í vatni í tempraða beltinu,
sem hrörnað hefði fyrir mis-
notkun á liðnum árum. Mark-
mið ráðstefnunnar væri I stuttu
máli að rannsaka hvað vísindi
vistfræðinnar geti sagt okkur
Hringrás,
sem allt líf byggist á
Umhverfisráðstefna Nato,
sem haldin er hér á landi þessa
dagana, fjallar ! raun um eitt
veigamesta verkefni mann-
kynsins. Forseti ráðstefnunnar,
skilgreindi verkefni ráðstefn-
unnar svo:
„Þessi ráðstefna er, í vissum
skilningi, um verndun. Ekki í
þrengstu merkingu orðsins,
þegar það er notað um vernð-
un villidýra og plantna, svo
mjög sem þ>að hefur áhrif á
myndi sennilega tvöfaldast og
hugsanlega fjórfaldast, áður en
þróuninni, menntuninni og
læknavísindum tekst í samein-
ingu að koma á jafnvægi. Leið-
irnar til að leysa vandann fæl-
ust m.a. í: að taka nýtt land til
ræktunar, að nýta betur sjávar-
afurðir, ræktun nýrra plantna
og dýra, að vinna efni úr jurt-
um, sem menn eða dýr gætu
ekki nýtt nú, og með því að
breyta mataræði mannsins til
um þá þætti, sem ákvarða sam-
setningu og framleiðni vistkerf-
isins og viðbrögð þess við trufl-
un af hendi mannsins. Tilgang-
urinn er að forðast i ríkari mæli
þér eftir en hingað til að valda
tjóni í hringrás lífríkisins, og
snúa til betri vegar afleiðingum
af skaða, sem þegar væri orð-
inn.
Leitást verður við að niður-
staða ráðstefnunnar verði vel
skýrður hugmyndarammi um
það, hvern veg á að nálgast
vandamál vistfræðinnar, leita
að leiðbeiningum með almennt
gildi. Að því stefnir sú viðleitni,
sem felst í fjármunum og fyrir-
höfn, sem að baki ráðstefnu-
haldsins stendur.
Það er á margan hátt einkar
vel til fundið að halda ráð-
stefnu sem þessa hér á íslandi.
ísland hefur aðdráttarafl fyrir
vísindamenn, einkum í jarð-
fræðilegum skilningi; og hnatt-
staða landsins á „mörkum hins
byggilega heims'' skapar vist-
fræðilega sérstöðu.
íslenzkir vísindamenn sinna
margháttuðum viðfangsefnum
við að „endurbæta” lífkerfið i
islenzkri náttúru. — Enda þótt
Morgunblaðið hafi öðrum blöð-
um fremur hvatt til aðhalds og
samdráttar í opinberum kostn-
aði, vegna aðsteðjandi efna-
hagsvanda þjóðarinnar, hefur
það jafnframt vakið á því at-
hygli, hvaða þýðingu vísinda-
legar rannsóknir hafa fyrir sam-
tíð og framtið þessarar þjóðar,
einkum á sviði jarðfræði, vist-
fræði láðs og lagar, og nýtingu
innlendra orkugjafa, og að fáar
ef nokkur siðmenntuð þjóð ver
jafn litlum hluta þjóðartekna
sinna til rannsókna og íslend-
ingar, sem hafa þó til svo mik-
ils að vinna í þeim efnum.
Fagna ber umhverfisráð-
stefnu Nato og þakka forstöðu-
mönnum hennar, innlendum
og erlendum. Nart pólitískra
öfgamanna út í ráðstefnuna,
einungis af þeim sökum að
aðildarriki Atlantshafsbanda-
lagsins standa að henni, ber
vott um þá mengun hugarfars-
ins, sem hefur engu minni
hættur í för með sér en hlið-
stæð fyrirbrigði í lífríki jarðar.
IBM-skákmótið í Hollandi:
Skák
eftir JON Þ. ÞOR
Mér varð heldur hverft við,
er ég fékk í hendur skeytið
með skákunum og úrslitun-
um úr 4. umferð IBM-
mótsins i Amsterdam. Tvö
töp fyrir mönnum, sem þeir
Friðrik og Guðmundur ættu
að ráða við að öðru jöfnu. Við
skulum bara vona, að þetta
hafi verið sérstaklega slæmur
dagur og þeír félagar harðni
við andstreymið. En hér
koma skákirnar:
Hvítt Istvan Faragó (Ung-
verjal.)
Svart: Guðmundur Sigur-
jónsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6,
3. Rc3 — Bg7, 4. Bf4
(Rólegur leikur, sem hefur
það markmið að hindra eða
tefja framrás svarta e-
peðsins).
4. — 0-0, 5. Rf3 — d6,
(Hér gat svartur brugðið sér
út í Grúnfeldsvörn með 5. —
d5).
6. e3 — c6, 7. Be2 — a6,
(Boleslavski mælir með 7 —
Da5 og t'elur svartan þá eiga
auðveldara með að jafna tafl-
ið).
8. 0-0 — b5, 9. Hc1 —
Rbd7, 10 Dc2 — Bb7, 11.
e4 — Da5,
(Mótspil svarts á drottningar-
vængnum verður hvorki fugl
né fiskur. Til greina kom 1 1.
— Rh5, eða 11. — bxc4,
12. Bxc4 — Rb6 ásamt
Rfd 7).
12. h3 — b4, 13. Ra4 —
e5, 14. dxe5 — dxe5, 15.
Be3 — Rxe4?
(Hér teygir Guðmundur sig of
langt. Hvítur fær óstöðvandi
sókn fyrir peðið. Gott var t.d.
15. — c5 ásamt Bc6).
16. Dxe4 — Dxa4, 17. c5!
(Rýmir c4 — reitinn fyrir
biskupinn og lokar svarta
biskupinn inni á b7).
17. — Rf6, 18. Dh4
(Sterkara en 18. Dxe5 —
Rd5 o.sv.frv.).
18. — Rd5, 19. Rg5
(Riddarinn leggur nú upp f
langt og árangursrikt ferða-
iag)
19. — h6, 20. Re4 — f5,
21. Rd6, — g5,
(Svarta peðafylkingin lítur
ógnandi út, en er þó hættu-
legri svarta kónginum en
þeim hvíta).
22. Dh5 — Bc8, 23. Bc4
— Be6, 24. h4 — f4, 25.
hgx5 — hgx5, 26. Re4!
(Nú verður fátt um varnir hjá
svarta kónginum).
26. Bf7, 27. Dxg5 — fxe3,
28. Rg3! — Ha7,
(Eða 28 — exf2+ 29. Hxf2
og svartur á enga vörn).
29. fxe3!
(Og nú bætist hrókurinn í
sóknina).
29. — Da5, 30. Rf5 —
Be6, 31. Rh6+ — Kh8,
32. Hxf8+ — Bxf8, 33.
Dxe5+ Bg7, 34. Dxe6 —
Dxc5??
(Hroðalegur afleikur, en stað-
an vartöpuð).
35. Dg8 mát.
Og þá kemur skák Friðriks.
Hvftt; H. Böhm
Svart: Friðrik Ólafsson
Colle byrjun
I. d4 — d5, 2. Rf3 — Rf6,
3. Bg5 — e6, 4. e3 — c5,
5. c3
(Colle byrjun á 1a Jóhann
Þórir).
5. — Db6!
(Friðrik hefur vafalaust ætlað
að notfæra sér að hvíti
biskupinn var farinn að heim-
an, en þessi leikur er þó
hæpinn. Öruggara var 5. —
Be7).
6. Bxf6 — gxf6, 7. Dc2 —
Rc6, 8. Rbd2 — Bd7, 9.
Be2 — f5, 10. 0-0 — Hc8,
(Svartur vill auka þrýstinginn
á miðborðið, en hvítur verður
fyrri til).
II. Hac1 — Bd6(?)
(Betra var 11. — Be7).
12. c4!
(Nú hlýtur miðborðið að opn-
ast hvitum í hag, þar sem
svarti kóngurinn verður ber-
skjaldaður).
12. — cxd4, 13. cxd5
(Ekki 1 3. c5 vegna Rb4).
13. — exd5, 14. exd4 —
Rxd4,
(Djarft teflt en Friðrik átti
fárra góðra kosta völ).
15. Dd3 — Hxc1, 16. Hxc1
— Re6, 17. g3 — f4,
(Svartur reynir mótspil, en
kóngsstaðan er of veik).
18. Dx5 — fxg3, 19. Re4!
— gxf2 +
(Eða 19 — Be7, 20. Re5
og svartur fær varla varizt
lengi).
20. Kf 1 — Ke7,
(Nú vinnur hvitur mann og
þá er eftirleikurinn auðveld-
ur).
21. Hdl — Hg8, 22. Dxd6
— Dxd6, 23. Hxd6 — Bc6
(Ekki 23. — f5, 24. Hxd7).
24. Rfd2 — Hg1, 25. Kxf2
— Hh1, 26. Bf3 — Ha1,
27. a3 — f5, 28. Hxe6 —
Kxe6, 29. Rc5+ — Ke5,
30. Rc4 — f4 og gafst upp
um leið.
Önnur úrslit í 4. umferð
urðu sem hér segir: Donner
vann Velimirovic, Ree vann
Langeweg, Ligterink — Gip-
slis jafnt., Szabó — Ivkov
jafnt., Kortsnoj —- Sax
biðsk., Milesvann Kuraica.
Staðan að loknum 4 um-
ferðum er þessi: 1. — 2.
Faragó og Miles 3 v., 3.
Ligterink 2,5 v., 4. Kortsnoj
2 v. og biðsk., 5. — 13.
Ree, Guðmundur, Kuraica,
Friðrik, Gipsils, Donner,
Szabó, Böhm, Ivkov 2 v.,
14. Velimirovic 1,5 15. Sax
1 v. og biðsk., 16. Lange-
weg 0 v.