Morgunblaðið - 17.07.1976, Side 1
28 SÍÐUR OG LESBÓK
154. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 17. JULÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Utlendingar
flýja Beirút
völdum bardaganna. Hundruð
Bandaríkjamanna voru flutt frá
Libanon i júlí og brezk bílalest
fór til Damaskus.
Jafnframt hefur bandaríska
sendiráðið, ákveðið að takmarka
starfsemi sína, fækka starfsfólki
úr 30 í 10 eða 15 og loka ræðis-
mannsskrifstofu sinni.
í Washington er sagt að í athug-
un sé að kalla heim sérlegan full-
trúa Fords forseta, Talcott
Seelye, sem var sendur til
Libanons i síðasta mánuði eftir
morðin á Francis Malloy sendi-
herra og Robert Waring við-
skiptafulltrúa.
Leiðtogar Palestínumanna
frestuðu I dag ákvörðun um þátt-
töku í fyrirhuguðum friðarvið-
ræðum í Damaskus, að þvi er
virðist vegna þess að
Sýrlendingar hafa frestað frekari
brottfiutningi hermanna.
Palestinumenn krefjast algers
brottflutnings Sýrlendinga að
minnsta kosti frá Sofar, fjallabæ
um 30 km austur af Beirút, og
sunnanverðu Sidon-svæðinu og
setja það sem skilyrði fyrir þátt-
töku í friðarviðræðum.
Palestinskur talsmaður sagði í
dag að Sýrlendingar hefðu ekki
hörfað frá Sofar og skilið eftir
framsveitir í þorpi aðeins nokkra
kilómetra austur af Sidon þegar
þeir hörfuðu burtu með lið sitt í
austur til Jezzine og Bekaa-dals.
Þó gaf hann i skyn að lágt settir
menn yrðu ef til vill sendir til
Damaskus til að undirbúa fund
hærra settra manna ef
Sýrlendingar hörfuðu frá Sofar
og Sidon.
26 bömum líklega
rænt úr skólabíl
Chowchilla, Kalifornfu, 16. júlf. Reuter.
AP.
TUTTIJGU og sex börnum sem
hurfu úr skólabfl skammt frá
Chowchilla f Mið-Kalifornfu.
hefur verið rænt að sögn lög-
reglunnar f bænum.
Foreldrar, lögreglumenn og
sjálfboðaliðar taka þátt f ftar-
legri leit sem er gerð að börn-
unum og ökumanni bflsins sem
fannst f skurði skammt frá
bænum.
Ed Bates, lögreglustjóri í
bænum sagði að eina skýringin
á hvarfi barnanna gæti verið sú
að þeim hefði verið rænt. Hann
kvað hjólför skammt frá skóla-
bílnum styðja þá kenningu.
Skólabíllinn sem fannst yfir-
gefinn án barnanna og bíl-
stjórans. Reynt hafði verið að
fela bílinn með bambusgróðri.
Hann sagði að förin væru einu
verksummerkin
Tugir þjóðvarðliða og alríkis-
lögreglumanna voru sendir á
vettvang i dag til að taka þátt i
leitinni. Börnin eru 19 stúlkur
og sjö drengir á aldrinum
fimm til 14 ára. Bílstjóri þeirra
er gamall starfsmaður skólans
sem þau sóttu.
í fyrstu var talið að börnin
hefðu horfið þegar þau voru á
heimleið úr sundlaug. Nú er
talið að bíllinn hafi flutt annan
Framhald á bls. 16
21. Ólympíuleikar nútfmans verða settir við hátíðlega athöfn á hinum nýja
Ólympfuleikvangi í Kanada. Mun Elísabet Englandsdrottning segja leikana form-
lega setta. Um 8000 íþróttamenn munu taka þátt í leikunum að þessu sinni — fleiri
en nokkru sinni fyrr.
Beirút, 16. júlí. Reuter. AP.
SENDIRÁÐ Bandarfkjanna og
Bretlands f Beirút ráðlögðu f dag
Bretum, Bandaríkjamönnum og
öðrum útlendingum að fara frá
Beirút. Bandarfska sendiráðið
skipuleggur brottflutninginn sem
ákveðið er að hefjist á þriðjudag.
Um það bil 1.000 bandarískir
ríkisborgarar eru enn í Beirút og
500 brezkir. Þeir voru tíu sinnum
fleiri áður en borgarastríðið hófst
í Líbanon í april í fyrra.
Utlendingarnir eru hvattir til
að fara úr landi vegna hættu á
farsóttum, sem bætist við þá
hættu sem þeim er búin af völd-
um skotbardaga, og vegna erfiðra
og illbærilegra lífsskilyrða af
Leikamir hefjast með
eða án Afríkukeppenda
Montreal, 16. júll. Reuter. AP.
ÓLYMPlULEIKARNIR hefjast I
Montreal á morgun þótt óvfst sé
um þátttöku 16 Afríkurfkja sem
hóta að taka ekki þátt f þeim ef
Ný-Sjálendingum verður leyft að
vera með þar sem þeir keppa við
Suður-Afrfkumenn f rugby.
Afrikuríkin reyndu á siðustu
stundu að fá Alþjóðaolympíu-
nefndina til að samþykkja að Ný-
Sjálendingar yrðu útilokaðir frá
leikunum en nefndin vtsaði kröf-
unni á bug og þá hótuðu þau að
hætta við þátttöku sína þannig að
svo getur farið að aðallega verði
um Ólympiuleika hvitra manna
að ræða.
Taiwan ákvað að hætta við þátt-
töku sina í leikunum i dag og þar
með náði hámarki bitur deila
Ólympiuhreyfingarinnar og
Kanadastjórnar vegna þeirrar af-
stöðu hennar að leyfa ekki
íþróttamönnum frá Taiwan að
keppa undir nafni lýðveldisins
Kína.
Tanzanía hefur þegar ákveðið
að taka ekki þátt í leikunum og
Nígeráumenn sögðu áður en Al-
þjóðaolympiunefndin skýrði frá
ákvörðun sinni að 100 keppendur
þeirra mundu hætta við þátttöku
sína ef Ný-Sjálendingum yrði
leyft að keppa. Siðan tilkynntu
Zambiumenn að þeir mundu ekki
taka þátt og fleiri Afríkuþjóðir
geta farið að dæmi þeirra.
Leikarnir voru i alvarlegri
hættu þangað til í gær þegar
Kanadastjórn féll frá einu af
Framhald á bls. 16
Carter vongóður um
sigur í öllum ríkjum
New York, 16. jfill. AP. Reuler.
JIMMY Carter fór heim til
Georgfu í dag til að skipuleggja
kosningabaráttu sína eftir flokks-
þing demókrata f New York sem
samþykkti tilnefningu hans í for-
setaframboðið, tilnefningu Walt-
er Mondales f varaforsetafram-
• •
Oryggi hert
í S-Afríku
Jóhannesarborg, 16. júlí.
AP Reuter
VOPNAÐIR lógreglumenn voru á
verði i blökkumannahverfinu
Soweto skammt frá Jóhannesarborg
I dag og James Kruger dómsmála
ráðherra fyrirskipaði strangar örygg-
isráðstafanir.
Hvltum mönnum hefur verið bann-
að að fara til Soweto þar sem 176
biðu bana i óeirðum i siðasta mán-
uði. Yfirvöld segja að þau geti ekki
ábyrgzt öryggi hvitra manna i
Soweto.
Lógreglan I Jóhannesarborg og
Pretoria hefur einnig fengið fyrir-
Framhald á bls. 16
boðið og stefnuskrá sem er sniðin
eftir skoðunum hans.
Áður en Carter fór til Georgiu
ræddi hann við 200 flokksstarfs-
menn og hvatti þá til þess að
vinna ötullega að sigri demókrata
I nóvember. Nú hyggst Carter
leggja kosningaferðalög á hilluna
þar til í september þegar hann
veit hvort andstæðingur hans
verður Ford forseti eða Ronald
Reagan.
Ford gerir sér vonir um að fá
stuðning allra 35 fulltrúa
repúblikana i Connecticut á
flokksþinginu þegar þeir verða
valdir á morgun og auka þar með
það nauma forskot sem hann hef-
ur fram yfir Reagan. Hins vegar
gerir Reagan ráð fyrir að fá stuðn-
ing allra 20 fulltrúa repúblikana í
Utah sem einnig verða valdir á
morgun.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Carter miklu meira fylgi en
Ford og Reagan, og Carter er þeg-
ar farinn að vara stuðningsmenn
sina við því að vera of sigurvissir.
Samt sagði hann blað,ámönnum að
hann vonaðist til að sigra í öllum
Framhald á bls. 16