Morgunblaðið - 17.07.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLI 1976
Lögmenn mótmæla skiptalöggjöfinni:
Tekur allt að 10 ár
að skipta þrotabúi
LÖGMANNAFELAG Islands
ræddi fyrir skömmu á fundi sfn-
um skiptameðferð þrotabúa og
samþykkti ályktun þar sem fjall-
að er um gang þessara mála 1
embættiskerfinu og kvarta þeir
yfir þvf að málsmeðferð á þessum
vettvangi taki sífellt lengri tfma,
m.a. benda þeir á að það taki allt
að 8—10 ár að Ijúka slfkum mál-
um. Hér fer á eftir ályktun Lög-
mannafélagsins um þetta efni:
FISKAFLI hefur verið tölu-
verður að undanförnu og margar
tegundir borizt á land, þorskur
ýsa, ufsi, karfi og lúða, einnig
stunda nokkrir bátar humar-
veiðar. Handfæraveiðar hafa
gengið vel og er vs. Haraldur með
mestan afla f dag, eða 300 lestir af
ufsa.
Skuttogarinn Haraldur
Böðvarsson hefur reynzt vel á
veiðum og hefur hann aflað 1900
lestir frá s.l. áramótum. Hann
kom í höfn í gær með 110 lestir,
mestmegnis karfa. Rauðsey
reyndi sjálfvirka beitingarvél
með góðum árangri. Linan er lögð
Ný steinefni
í malbikið
GATNAMALADEILD Reykja-
víkurborgar er nú að lagfæra
Miklubrautina og er það verk
unnið með miklu álagi til þess að
þessi mikla umferðargata teppist
sem minnst.
1 fyrrakvöld voru malbikaðir
700 metrar af annarri akreininni
og í gærkvöldi var reiknað með að
unnt yrði að malbika milli
Kringlumýrarbrautar og Háa-
leitisbrautar. Ný steinefni eru
sétt í malbiksblönduna á ákveðn-
um stöðum til þess að kanna hvort
unnt er að ná betri nýtingu á
götunum.
„Stjórn L.M.F.Í. telur að svo
mikill dráttur sé nú orðinn á
skiptum stórra þrotabúa, einkum
í Reykjaví, að ekki verði lengur
við unað.
Stjórninni er kunnugt um að
mörg stór þrotabú hafa legið hjá
embættum skiptaráðenda í
Reykjavík árum saman, jafnvel
8—10 ár, og að ekki sé sjáanlegt
að skiptum þeirra muni ljúka á
næstunni.
í sjó með 7 mílna hraða á klst.
Menn gera sér góðar vonir með
þetta veiðarfæri, raunar grisjar
llnan fiskstofnana hæfilega og
gefur ferskasta og fjölbreyttasta
fiskinn. Rauðsey getur stundað
veiðar með herpinót án þess að
fjarlægja beitingarvélina og er
raunar farin á loðnuveiðar ásamt
vs Bjarna Ólafssyni, vs Skírni og
Arna Sigurði. Skuttogarinn
Krossvik hefur verið í klössun í
Noregi og er nú væntanlegur á
veiðar hér næstu daga. Þórður
Óskarsson h.f. hefur keypt vs Kap
II. frá Vestmannaeyjum. Það skip
heitir nú Sólfari AK 170. Fyrir-
tækið á einnig von á nýjum skut-
togara bráðlega. Atvinna hefur
verið mikil og stöðug hér í bæ og
oft er unnið fram undir miðnætti,
því fiskurinn þolir illa hitann, en
fólkið tapar sólskininu.
Reykjavík
BRENDAN var kominn inn á
Faxaflóa í gær, vestur undir
Snæfellsnes og var hann þar að-
eins 12 mílur frá landi, Hellnum,
en skipverjar áætla að sigla fyrst
inn til Reykjavíkur. Kl. 9 í gær-
kvöldi var Brendan um 20 mflur
HJALTI Lýðsson, forstjóri
Stjörnublós í Reykjavík, andaðist
I gær, 76 ára að aldri.
Hjalti var fæddur á Hjallanesi í
Landsveít 2. apríl árið 1900, sonur
Lýðs bónda Árnasonar og konu
hans Sigríðar Sigurðardóttur.
Hann ólst upp á Hjallanesi á barn-
mörgu heimili en systkinin voru
tólf, tíu bræður og tvær systur.
Sextán ára að aldri hélt hann til
Reykjavíkur í atvinnuleit og réðst
sem vinnumaður hjá Emil Rock-
stað á Bjarmalandi við Laugar-
nesveg. Árið 1921 sigldi Hjalti til
Ekki er við einstaka embættis-
menn að sakast út af þessum
drætti, heldur má kenna um úr-
eltri skiptalöggjöf og mannfæð
við þessi störf.
Hér á landi annast skiptaráð-
endur, þ.e. bæjarfógetar og sýslus
menn, í Reykjavík, borgarfógetar,
skipti þrotabúa. Annars staðár á
Norðurlöndum og í öðruip vest-
rænum menningarlöndum/er sá
háttur á hafður að kröfuhafar í
þrotabúum kjósa á fyrsta skipta-
fundi sérstakan skiptaforstjóra,
oftast lögmann, sem sér um skipt-
in undir yfirstjórn skiptaráðanda.
Þegar meiri háttar fyrirtæki
verða gjaldþrota í þessum löndum
taka hinir kjörnu skiptaforstjórar
við stjórn fyrirtækjanna meðan
skiptin standa yfir, annast sölu
Framhald á bls. 16
Milt helgar-
veður en
sólarlítið
„ÉG reikna með mildu veðri um
helgina, það hlýnar Hklega aftur
á Austurlandi og Norðurlandi
austanverðu eftir rigninguna þar
I dag,“ sagði Páll Bergþórsson
veðurfræðingur ( samtali við okk-
ur f gærkvöldi og hann kvaðst
búast við hlýju veðri á Suður- og
Vesturlandi án sólar, a.m.k. fram
á helgina.
1 sjónmáli
frá Reykjavfk á hægri ferð I átt
til Reykjavíkur, en vindstaðan
var þá 2—3 stig af norðaustri.
Brendan menn reiknuðu með að
koma til Reykjavíkur um miðjan
dag i dag ef veður héldist óbreytt.
Noregs til að kynna sér starfsað-
ferðir við niðursuðu og reykingar
matvæla og þegar heim kom
stofnaði hann verslun við Grettis-
götu. Hjalti varð umsvifamikill
kjötkaupmaður í Reykjavík og
rak á tímabili verslanir á nokkr-
um stöðum í borginni.
Árið 1949 eignaðist Hjalti
ásamt öðrum Stjörnubíó og var
hann forstjóri þess fram á síðustu
ár.
Eftirlifandi kona Hjalta
erElvíra Lýðsson.frá Fredrikstad
í Noregi.
MTKII, KARFALOND-
UN A AKRANESI
Akranesi. 16. Júlf.
— Júlfus.
Brendan á Faxaflóa I gærdag. Myndina tók Sigurjón Hannesson
skipherra þegar Landhelgisgæzlan flaug yfir húðbátinn í gær.
HJALTIL ÝÐSSON
FORSTJÚRILÁ TINN
Þorlákshöfn
Þorlákshöfn 25 ára:
Hátíðarhöldin
hefjast í dag
HATIÐARHÖLDIN f tilefni 25
ára afmælis Þorlákshafnar
hefjast í dag með opnun sögu-
og heimilisiðnaðarsýningar í
skólanum kl. 20. Sýningin verð-
ur opin alla næstu viku f tengsl-
um við hátfðarhöldin sem lýkur
sunnudaginn 25. júlf n.k. Aðal-
hátfðin verður n.k. þriðjudag
og verður þá haldin svokölluð
Þorláksmessa í félagsheimilinu
f Þorlákshöfn.
Á samkomunni á Þorláks-
messu mun Söngfélagið syngja.
Leikfélagið flytur leikþátt eftir
Agnar Þórðarson, Bergþóra
Árnadóttir syngur lög eftir
sjálfa sig, Ragnheiður Ólafs-
dóttir flytur frumort ljóð, Sig-
urður Þorleifsson, eini íbúi
þorpsins, sem er uppalinn á
sveitabænum Þorlákshöfn, flyt-
ur bernskuminningar, Sigur-
grímur Jónsson í Holti, sem er
vermaður frá timum áraskip-
anna, segir endurminningar frá
þeim tíma og Gunnar Markús-
son fer með ágrip af sögu stað-
arins.
Á morgun, sunnudag, verður
handknattleikur karla og kaffi-
sala í félagsheimilinu eftir kl.
15. Um kvöldið verður svo sam-
koma fyrir fullorðna þar sem á
dagskrá verða mikið til sömu
atriðin og á Þorláksmessunni á
þriðjudag. Á mánudaginn verð-
ur samkoma fyrir börn fædd
1964 og síðar. A laugardaginn
24. júlí n.k. verður dansleikur í
félagsheimilinu og hátíðinni
lýkur svo á sunnudaginn 25.
þ.m. með knattspyrnukappleik
milli heimamanna og Grindvik-
inga.
Rafmagnsveita Reykjavíkur:
5 verkfræðing-
ar segja upp
5 verkfræðingar hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur
hafa sagt upp störfum sín-
um með þriggja mánaða
löglegum fyrirvara, en
verkfræðingarnir eru í
hópi þeirra tæplega 30
verkfræðinga sem eiga nú í
launadeilum við Reykja-
víkurborg, en allir eru þeir
í Stéttarfélagi verkfræð-
inga. Hins vegar eru svo
um 10 verkfræðingar sem
vinna hjá Reykjavíkurborg
eftir launakerfi opinberra
starfsmanna og eiga þeir
ekki í launadeilum. 5 verk-
fræðingar hjá Reykja-
víkurborg eru nú í verk-
falli, 3 hjá mælingadeild og
2 hjá byggingarfulltrúa.
Kolmunna-
vinnslan
að hefjast
Hjalti Lýðsson
HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Run-
ólfur landaði f gær 16 tonnum af
kolmunna I Neskaupstað, en slld-
arvinnslan þar mun vinna aflann
til manneldis f marning fyrir
Bandarfkjamarkað. Runðlfur
hélt aftur út f gær og f samtali við
Morgunblaðið sagði Sveinn Svein-
björnsson fiskifræðingur um
borð f Runólfi, að þeir myndu nú
leita fyrir sér um sinn áður en
þeir hæfu veiðar aftur.
Björn Dagbjartsson hjá Rann-
sóknastofnun sjávarútvegsins
sagði í samtali við Mbl. í gær að
búið væri að semja um sölu á 100
tonnum af marningi til Banda-
ríkjanna og 100 tonnum af kol-
munnaskreið til Nígeríu, en til
þess að ná þessu magni úr vinnslu
þyrfti um 900 tonn af kolmunna
og kvaðst Björn því vona að þetta
væri bara byrjunin hjá Runólfi og
Framhald á bls. 16