Morgunblaðið - 17.07.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLI 1976
3
Stangveiðifélagið vill
leigja Elliðaárnar
áfram af Rvíkurborg
STANGVEIÐIFÉLAG Reykjavfk-
ur hefur óskað eftir þvf við Raf-
gnsveitu Reykjavíkur að fá
amlengt samningi félagsins frá
1974 við Rafmagnsveituna um
leigu á Elliðaánum svo og samn-
ingi um rekstur klak- og eldis-
stöðvarinnar við árnar. Raf-
magnsveitan hefur umsjón með
ánum fyrir hönd Reykjavíkur-
borgar og hefur svo verið frá því
virkjanir rafmagnsveitunnar f
ánum voru byggðar. Erindi Stang-
veiðifélagsins var lagt fyrir
borgarráð sl. þriðjudag og sam-
þykkt þar að vfsa því tii umsagnar
veiði- og fiskræktarráðs borgar-
innar.
Ragnar Júlíusson borgarfull-
trúi er formaður veiði- og fisk-
ræktarráðs og hann tjáði Mbl. i
gær að erindi Stangveiðifélagsins
yrði að líkindum afgreitt í ráðinu
fljótlegq. Ragnar kváð ekki unnt
að segja neitt um fyrir hve háa
upphæð Elliðaárnar yrðu leigðar,
en það væri stefna Reykjavikur-
borgar að verðlag á laxveiði í
Elliðaánum yrði ekki til þess að
spenna upp leigu fyrir laxveiðiár
í landinu almennt og væri það
yfirvöldum meira kappsmál að
vel væri um árnar og næsta um-
hverfi þeirra hugsað.
Ragnar sagði einnig að i veiði-
og fiskræktarráði borgarinnar
væri áhugi á því að reyna að koma
upp silungsrækt og silungsveiði í
vesturkvísl ánna og væri nú í at-
hugun hvort af því gæti orðið.
Þessi mynd var tekin á Hellu f góðviðrinu á laugardaginn var.
Spáin lofar góðu á Hellu
MBL. hafði í dag samband við
Þorgeir Pálsson, mótstjóra ís-
landsmótsins i Svifflugi á Hellu.
Veður hefur verið afar óhag-
stætt til svifflugs á Hellu alla
mótsdagana utan einn, Iaugardag.
I dag fór þó fram keppni, en þeg-
ar við töluðum við Þorgeir var
ekki útlit fyrir að um yrði að ræða
löglegan keppnisdag. Til þess að
keppnisdagur teljist löglegur,
verða a.m.k. tveir keppendur að
fljúga 25 km. Aætlað var að svífa
frá Hellu að Búrfelli í Grímsnesi
og til baka, en engum hafði enn
tekizt að komast þá leið. I dag var
hvöss norðanátt á keppnissvæð-
inu. „Við erum þó bjartsýn á helg-
ina," sagði Þorgeir, „spáin er
mjög hagstæð." „Ef illa fer með
veður, er enn hægt að framlengja
mótinu, en enginn er hér svo
svartsýnn að það hafi enn nokkuð
komið til tals,“ sagði hann að lok-
um.
Hér sjást vestur-fslenzku unglingarnir ásamt stjórnanda vinnubúð-
anna sr. Ingólfi Guðmundssyni.
í *
Handtöskum farþega er rennt á færibandi inn f nýja málmleitartækið á Keflavíkurflugvelli, þar sem
þær eru gegnumlýstar. Geislanum er sfðan varpað á sjónvarpsskerm þar sem löggæzlumenn geta séð
hvert er innihald hverrar tösku.
Nýtt málmleitartœki tekið í
notkun áKeftavíkurftugvetU
1 GÆR var tekið f notkun á
Keflavfkurflugvelli nýtt málm-
lcitartæki til þess ætlað að leita
í handfarangri farþega sem eru
á leið frá landinu. Tækið varp-
ar geisla f gegnum handfarang-
ur farþegans, sem sfðan er end-
urkastað á sjónvarpsskerm, þar
sem löggæzlumaður getur séð
hvort f farangrinum eru byssur
eða önnur vopn, sem óheimilt
er að fara með um borð f flug-
vélar. Tæki þetta er af full-
komnustu gerð og geisla-
virknin sem frá þvf stafar er
hverfandi. AUs kostar tækið
um 10 milljónir króna í inn-
kaupi, en við bætist uppsetn-
ingarkostnaður og kostnaður
við ýmsar breytingar sem gera
þurfti á húsnæði f flugstöðinni
til að koma því fyrir á hagan-
legan hátt.
Skv. upplýsingum Þorgeirs
Þorsteinssonar lögreglustjóra á
Keflavikurflugvelli mun tæki
þetta flýta mjög fyrir allri leit í
handfarangri farþega sem úr
landi eru að fara, en fram að
þessu hafa lögreglumenn orðið
aó handleita í farangri farþeg-
anna sem er tafsamt, en hið
gerð sú krafa að vopnaleit hafi
verið gerð á ölium farþegum
sem til landanna koma flugleið-
is áður en þeir lögðu af stað.
Bandaríkin, Vestur-Þýzkaland,
Danmörk og Bretland eru i
hópi þessara ríkja. Nú hefur
verið komið upp aðstöðu á borð
við þá sem í notkun var tekin i
gær á Keflavíkurflugvelli í öll-
um þeim löndum sem íslenzkar
flugvélar fljúga reglulega til og
frá. Er því gerð vopnaleij á
öllum farþegum sem um Kefla-
víkurflugvöll fara í upphafi
ferðar þeirra, hvort sem þeir
eru á leið hingað til lands eða
hafa aðeins stutta viðdvöl á
flugvellinum.
Stofnuð var stjórnskipuð
nefnd hérlendis í byrjun árs
1975 til að kanna hvaða ráðstaf-
anir væri unnt að gera hér á
landi til varnar gegn flugrán-
um. Koma málmleitartækisins
á Keflavíkurflugvelli er einn
áfangi i starfi nefndarinnar, en
náið samstarf hefur verið um
þessi mál milli nefndarinnar,
lögreglustjóraembættisins á
Keflavikurflugvelli, flugvallar-
stjórans þar og Flugleiða hf.
ISLENZKIR
SKÁKMENN
KEPPA í
FÆREYJUM
TtU fslenskir skákmenn halda I
næstu viku til Færeyja I boði
Taflsambands Færeyja og er ráð-
gert að þeir tefli tvfvegis kapp-
skákir við færeyska skákmenn og
haldi hraðskákkeppni auk þess
sem komið hefur til tals að þeir
tefli við úrvalslið Þórshafnar.
Halda skákmennirnir utan á
þriðjudag og koma aftur til lands-
ins næstkomandi sunnudag.
Skákmennirnir, sem fara til
Færeyja hafa staðið framarlega í
deildarkeppni Skáksambands ís-
lands og í förinni eru skákmenn
úr öllum landshlutum. Keppend-
ur verða þeir: Ásgeir Ásbjörns-
son, Hafnarfirði, Daði Guðmunds-
son, Bolungarvík, Gunnar Finn-
laugsson, Selfossi, Ingvar Ás-
mundsson, Reykjavik, Jóhann
Snorrason, Akureyri, Jón L.
Árnason, Reykjavík, Júlíus
Friðjónsson, Kópavogi, Pálmar
Breiðfjörð, Keflavík, Trausti
Björnsson, Eskifirði og Vagn
Kristjánsson, Reykjavík. Farar-
stjórar verða Högni Torfason,
varaforseti Skáksambands ís-
lands, og Guðbjartur Guðmunds-
son meðstjórnandi.
Vestur-íslenzkir unglingar í
þjóðræknisbúðum kirkjunnar
NOKKRIR vestur-fslenzkir
unglingar komu I gær til landsins
á vegum Æskulýðsstarfs Þjóð-
kírkjunnar og dveljast hér I einn
mánuð I vinnubúðum. Farið verð-
ur norður f land og dvalið f
Stórutjarnarskóla og unnið þar að
ýmsum verkefnum, bæði við
skólann og skógrækt f Vaglaskógi.
A kvöldin verða kvöldvökur, sem
unglingarnir sjá að nokkru leyti
um sjálf. Ráðgert er að dvelja f
þjóðgarðinum f Skaftafelli um
tfma f ágúst og vinna þar að ýmiss
konar náttúruvernd. Þá verður
ferðast um landið undir leiðsögn
kunnugra tnanna. Nokkrir
fslenskir unglingar á aldrinum
15—20 ára geta verið með þegar
unnið verður f Skaftafelli. Allur
ferðakostnaður verður greiddur
og uppihaldið en ekki er gert ráð
fyrir að unglingarnir fái greidd
laun. En mun vera hægt að láta
skrá sig f þessar vinnubúðir.
Þessar upplýsingar komu fram
i fréttatilkynningu frá Æskulýðs-
starfi Þjóðkirkjunnar og þar er
einnig greint frá sumarbúðastarf-
seminni en nú eru reknar
sumarbúðir í Vestmannsvatni og i
Skálholti. Hefur aðsókn i þær ver-
ió góó, nema hvað aðsóknin i Skál-
holt er heldur minni en oft áður
og eru enn nokkur sæti laus 19.
júlí. Á Eiðum hafa verið starf-
ræktar sumarbúðir en nú er verið
að koma upp húsnæði við Eiða-
vatn fyrir e.k. kirkjulega miðstöð,
sem einnig verða reknar sumar-
búðir i. Mörg undanfarin sumur
hafa einnig verið sumarbúðir að
Holti i Önundarfirði en af því gat
ekki orðið i ár vegna húsnæðis-
vandræða.
í næstu viku koma hingað til
lands átta ungmenni á vegum
ICYE, kristilegu alþjóðaung-
mennaskipti og dveljast hér í eitt
ár. Að þessu sinni koma skipti-
nemarnir frá Finnlandi, Svíþjóð,
Nýja-Sjálandi, 2 frá Þýzkalandi
og 3 frá Bandaríkjunum. Þá fara
13 héðan til ársdValar til Nýja-
Sjálands, Finnlands, 2 til Sviss, 3
til Þýzkalands og 6 til Bandaríkj-
anna.
Nýr æskulýðsfulltrúi er nú að
taka til starfa. Er það sr. Þor-
valdur Karl Helgason, sem var
áður farprestur á Egilsstöðum og
kemur hann i stað sr. Guðjóns
Guðjónssonar. Einnig hefur verið
auglýst laust til umsóknar starf
aðstoðaræskulýðsfulltrúa, þar
sem Jóhannes Tómason hefur
nýlega látið af þvi starfi.
Á skerminum má sjá að Iftil
skammbyssa var f horni tösk-
unnar sem rennt var f gegnum
tækið þegar þessi mynd var tek-
in.
nýja leitartæki á að geta skoðað
farangur um 800 farþega á
klukkustund. Algengt er að
300—400 farþegar fari úr landi
frá Keflavikurflugvelli á
klukkustund, en þegar mest er
fara um brottfararhlið vallar-
ins allt að 1000 farþegar á
klukkustund.
1 nokkrum löndum heims er