Morgunblaðið - 17.07.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JULl 1976
Löndunarbryggjan.
NÚ ER aftur farið að vera lff í
tuskunum í Siglufirði, hin
gamla löndunarbryggja Sfldar-
bræðslu rfkisins orðin athafna-
svæði á ný eftir 10 ára hlé og
þrærnar að fyllast, að vfsu ekki
af sfld heldur loðnu.
Eitthvað eru gamalreyndir
starfsmenn þð óánægðir með
loðnuna, hún er of blandin sjó
og átu. „Þetta er bara loðnu-
súpa,“ segja þeir. „En farmur-
inn úr Gullberg VE — það cr
fyrsta flokks vara.“
Það þykir umtalsvert fyrir
norðan að nú hefur kvenfólki
loks tekist að fá atvinnu við
loðnubræðslu og vinna nú þrjár
Sveinn Jóhannesson að skammta úr þró á færibandið. „Þetta er ekta
drullusúpa," voru hans ummæli.
„Þetta er nú bara loðnusúpa".
stúlkur f skilvinduhúsi
bræðslunnar. Ein þcirra, Birna
Björnsdóttir úr Reykjavfk
segist „bara kunna vei við
starfið.“
Þeir, sem lærðu sitt fag á
gömlu góðu sfldarárunum,
keppast við að kenna ung-
viðinu. Hvernig á t.d. ungur
piltur að vita, hvenær lýsið er
orðið nægilega gott til að það
megi dæla því út í tanka eftir
að það hefur farið hringrásina f
skilvindunum?
Birna Björnsdóttir
Guðmundur Jóhannesson kennir Árna Þórðarsyni á lýsið.
Landað úr Gullberg VE.
Margeir Pétursson skrifar frá skákmótinu í Amsterdam
Oheppnin eltir bæði
Friðrik og Guðmund
j 9. umferð IBM skákmótsins f
Amsterdam gekk íslendingunum
heldur illa Friðrik Ólafsson varð
að bíta í það súra epli, að tapa
fyrir hollenzka alþjóðlega meistar-
anum Langeweg. Friðrik var reglu
lega óheppinn að tapa þessari
skák, því eftir aðeins 14 leiki
missti hann af leik, sem væntan-
lega hefði gefið honum léttunnið
tafl. Eftir það var taflið tvísýnt, en
f miklu tímahraki lék Friðrik illi-
lega af sér og sfðan gafst hann
upp, er skákin átti að fara f bið.
Lánið lék heldur ekki við
Guðmund Sigurjónsson. Andstæð
ingur hans, sovézki stórmeistarinn
Gipslis, reyndi vafasama peðsfórn,
en stóðst ekki er á reyndi. Guð-
mundi tókst þvf að snúa taflinu
sér f vil, en á mikilvægu augna
bliki tók hann ranga ákvörðun og
eftir það átti Gipslis auðvelt með
að stýra skákinni f örugga jafn-
teflishöfn.
Það blæs þvf ekki byrlega fyrir
stórmeisturunum þessa stundina.
Guðmundur er í 6— 1 2. sæti með
4Va vinning, en Friðrik í 13.—14.
sæti með 4 vinninga
Af öðrum skákum i dag er það að
segja, að efsti maður mótsins,
Korchnoi frá Sovétríkjunum gerði
jafntefli við Kurajica í langri skák,
þar sem Kurajica stóð lengst af bet-
ur Hinn reyndi ungverski stórmeist-
ari Szabo var hreinlega tekinn i
kennslustund hjá hinum unga hol-
lenzka meistara Ligterink, sem er nú
að hljóta eldskirn sína i alþjóðle'gum
stórmótum Sömu sögu er að segja
af viðureign Hollendinganna Böhms
og Donners. en þar lék sá fyrrnefndi
stórmeistarann sundur og saman i
snaggaralegri skák Hollenzki
alþjóðlegi meistarinn Ree tefldi byrj-
unina heldur naumlega gegn Júgó-
slavanum Velimirovic. enda stóð
Júgóslavinn upp frá borðinu sem
sigurvegari eftir aðems tveggja tima
tafl. Miles, sem er fyrsti enski stór-
meistarinn í skák, lagði einnig
snemma út á hálar brautir með
svörtu gegn ungverska stórmeistar-
anum Sax, sem nýtti sér það vel og
lauk skákinni með því að kóngi
Miles varð ekki forðað frá falli Eina
stórmeistarajafntefli umferðarinnar,
sem var óvenju spennandi, var milli
þeirra Ivkovs og Faragos. Það tók þá
félaga aðems hálftima að skipta
leiknum bróðurlega á milli sin
I næstu umferð, sem tefld verður
á morgun, laugardag, teflir Friðrik
Ólafsson við Kurajica með svörtu og
Guðmundur Sigurjónsson með hvitt
við Ivkov
í skákinni milli Friðriks og Lange-
wegs, sem hér fer á eftir, nær hvítur
fljótlega yfirburðastöðu í 13. leik
verða svörtum á slæm mistök, er
hann leikur b4 í stað rxd4 Hvítum
láðist að notfæra sér mistökin og
eftil' þetta verður taflið tvísýnt og
gekk mjög á tíma Friðriks og í tíma-
hrakinu urðu honum á nokkur mis-
tök, sem kostuðu hann siðan skák-
ina.
(Ath: P=Riddari, L = Biskup,
D = Drottning, T = Kóngur)
Hvítt: FriSrik Ólafsson íslandi
Svart: Langeweg Hollandi.
1 e4 — c5 2 Rf3 — e6 3 d4 —
cd4 4. pd4 — pc6 5. pc3 — a6 6.
Le2 — 66 7 Le3 — pf6 8 f4 —
Le7 9 dd2 — dc7 10 0-0-0 —
0-0 11. g4 — b5 12 g5 — pd7
13 f5 — b4 14 pa4 — pd4 15
Ld4 — dab 1 6 f6 — Ld8 17 b3
— Lb7 18 fg7 — te8 19 h4 —
Le4 20 thf 1 — pe5 21 tf4 — 1 f5
22 tdf 1 — dd5 23 pb6 — Ib6 —
1 b6 24 Lb6 — dc6 25. Ld4 —
tac8 26 1e5 — de5 27 tc4 —
dg2 28 te1 — a5 29 tc8 — tc8
30 Lc4 — dd2 31 kd2 — td8s
32. kc 1 — e4 33 te3 — kg7 34
c3 — kg6 35. Le2 — f6 36 gf6
— kf6 37. kc2 — ke5 38. tg3 —
kf4 39 cg 1 — b3 40 kc1 — td2
Hvitur gefur leikinn.
Hér fer á eftir skák Guðmundar
Sigurjónssonar og Gipslis frá
Sovétríkjunum.
Sikileyjavörn
1. e4 — c5 2. rf3 — d6 3. d4 —
cxd4 4 rxd4 — rf6 5. rc3 — a6
Najdorf-afbrigðið, en það leiðir
oftast til mjög hvassrar taflmennsku
og skemmtilegrar skákar.
6 be3 — e6 7 f4 — b5 8 e5?!
hæpin peðsfórn, eðlilega er einfald-
lega 8 a3 — dxe5 9 fxe5 — rd5
1 0 rxd5 — dxd5 11 be2 — dxe5
1 2. dd2 — bb7 13 0-0-0 — be7
Svartur hefur nú unnið peð, að
vísu nokkuð á kostnað liðsskipunar
sinnar en vafasamt er þó að hvitur
hafi fullnægjandi mótvægi fyrir peð-
ið
1 4 bf4 — dc5 1 5 rb3 — dc8 1 6
bd6! — (þetta er mun betri leið en
16 ra5 — bd5 17. be3 — rc6 og
svartur hefur vinningsstöðu, en
þannig tefldist skákin Wan der
Weide — Malich Amsterdam
1971) — dd8! (sterkur varnar-
leikur) Svartur valdar bæði biskup
sinn á el og vinnur einnig dýr-
mætan tima vegna hótunarinnar 1 7
bg5
1 7 db4 -j- bxd6 1 8 hxd6 — dg5
19 hd2 — de7 20 rc5 — 0-0 21.
hhdl — bxg2 22. rxa6 — dxb4?
(Þar með lætur Guðmundur
vinninginn renna sér úr greipum.
Eftir 22 dg5! 23 rxb8 —-
hfxb8 24 kb 1 — bd5
Nú stendur svartur óumdeilanlega
betur. Eftir uppskiptin á
drottningunum eru möguleikarnir
aðeins jafnir þrátt fyrir að svartur
hafi peð yfir vegna þess að hvitu
peðin eru hreyfanlegri.) 22 rxa6 —
dxb4 23 rxb4 — rc6 24 bxb5 —
rxb4 25 hxg2 — hxg2 26. hd7 —
ha 1 27. kg2 — hb1 28 b3 — g6
29 hf2 — rd5 30 bc6 — rb6 31
hc7 — rc8 32 kc3 Jafntefli.
Staðan eftir 9. umferð er þá
þannig.
1. KKortsjnoj 5V2 plús 1
2. — 3. Farago — Miles 5Va
4. — 5. Szabo — Boehm 5
6.—11. Guðmundur — Gipslis
— Ivkov — Velimirovic —
Ligtering — Sax 4’/2
1 2. Kurajica 4 plús 1
1 3.—14. Ree — Friðrik 4
1 5. Donner 3
1 6. Langeweg 2V2.