Morgunblaðið - 17.07.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JULÍ 1976
fclk í
fréttum
Húðflúraðir til baks og kviðar
+ I Bandaríkjunum er starf-
andi klúbbur sem enginn fær
inngöngu f nema hann hafi lát-
ið húðflúra (tattóvera) sig til
baks og kviðar. Klúbbfélagar
halda þing einu sinni á ári, þar
sem menn sýna húðflúr sitt og
sjá annarra auk þess sem fjall-
að er um nýjungar í húðflúrun-
artækni. Klúbbfélagar eru
flestir karlmenn en aðeins 10
konur hafa látið innrita sig.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar á síðasta ársþingi
klúbbsins, og eins og sjá má er
ekki öll vitleysan eins f þessum
efnum fremuren öðrum.
Skilnaður í góðu...
+ Fyrst var Ron Tolsicx
aðeins hárgreiðslumaður
Raquel Welch. Síðan
kom trúlofun og allt var í
lukkunnar velstandi í
nokkur ár, eða þar til þau
skildu. En segja má að
það hafi verið „skilnaður
í góðu“ því að þau pru
enn mestu mátar og una
sér vel í návist hvors ann-
ars eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. Hár-
greiðslumeistarinn fyrr-
verandi þreytir nú frum-
raun sína sem kvik-
myndaleikari og auðvit-
að er mótleikarinn
þokkadísin sjálf, Raquel
Welch...
Frá skák-
þínginu
í Lone
Pine
MARGIR munu minnast þess
að. Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari tefldi í fyrra með
góðum árangri á öflugu skák-
móti i Lone Pine í Bandaríkjun-
um. Þetta er eitt hinna árlegu
móta þar í landi og hefur vegur
þess farið stöðugt vaxandi. Nú í
ár voru Sovétmenn i fyrsta
skipti á meðal þátttakenda, og
þeir sem Rússar völdu til
keppni vestan hafs voru ekki af
lakari endanum, tveir fyrrver-
andi heimsmeistarar, Petrosjan
og Smyslov. Ég verð að játa
fávizku mína um úrslit mótsins,
en auk þeirra kappanna voru
margir öflugir Bandaríkja-
menn á meðal keppenda, og
nafn enska stórmeistarans
Tony Miles mátti einnig sjá á
þátttakendalistanum. Hér birt-
ist nú ein skák frá mótinu. Þar
eigast við þeir James Sherwin
frá Bandaríkjunum og Tigran
Petrosjan.
eftir JÓN
Þ. ÞÓR
Hvftt: J. T. Sherwin
Svart: T.V. Petrosjan
Bogoindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3
— Bb4 +
(Þessi leikur er kenndur við
stórmeistarann Bogoljubow,
Petrosjan beitir honum alltaf
öðru hvoru).
4. Rbd2
(Annar möguleiki er hér 4.
Bd2).
4. — b6, 5. e3 — Bb7, 6. Bd3 —
c5, 7. 0-0 — 0-0, 8. a3 — Bxd2, 9.
Bxd2 — d6, 10. b4 — Rbd7, 11.
Bc3 — Dc7, 12. Hcl — Hfe8, 13.
Rh4?
(Tarrasch sálaga hefði varla
liðið vel hefði hann séð þennan
leik. Riddarinn getur varla
nökkurs staðar staðið verr en á
h4. Betra var t.d. 13. Rd2).
13. — Had8, 14. f4?
(Og ekki bætir þessi úr skáft?
Nú myndast hola á e4 og það er
Petrosjan fljótur að notfæra
sér).
14. — Be4, 15. Bxe4(?)
(Eðlilega virðist 15. Dc2).
15. — Rxe4, 16. Bb2 — Db7,
(Yfirráðin yfir skálinunni
skipta meginmáli. Takið eftir
hve illa hvítu mennirnir
standa).
17. Df3 — Rf8, 18. Hc2 — f6,
(Stingur enn betur upp í
biskupinn og hindrar framrás f
— peðsins).
19. Hdl — Hc8,
(Peðið á c4 er tilvalinn skot-
spönn).
20. f5 — cxb4, 21. axb4 — d5,
22. fxe6 — Rxe6, 23. Ilfl —
dxc4, 24. d5!?,
(Hvers vegna ekki 24. Hxc4).
24. — c3!, 25. dxe6 — cxb2, 26.
Hxb2 — Hxe6, 27. Rf5
(Til greina kom einnig 27.
b5).
27. — b5, 28. Df3 — g6, 29. Dg4
— Kh8, 30. Rd4 — He7, 31.
Rxb5,
(Gengur beint i lúmska
gildru. Nú kemst hvítur ekki
hjá liðstapi).
31. — f5, 32. De2 — Db6, 33.
Hb3 — a6, 34. Rd4 — Rc3, 35.
Dc2 — Hxe3, 36. Hxc3 —
Hcxc3, 37. Df2 — Hed3 og hvft-
ur gafst upp.
21
áMSPiiSMWiilÉ!
ALLT MEÐ
EIMSKIF
A IMÆSTUNNI
FERMA SKIP V0R
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR: l
ANTWERPEN:
Skeiðsfoss 22 júlí
Hofs|ökull 26. júl! I
Tungufoss 2. ágúst
Urriðafoss 9. ágúst
ROTTERDAM:
Urriðafoss 20. júli
Hofsjökull 27. júlí
Tungufoss 3. ágúst
Urriðafoss 10. ágúst
FELIXSTOWE:
Dettifoss 20. júlí
Mánafoss 29. júlí
Dettifoss 3. ágúst
Mánafoss 10. ágúst
HAMBORG:
' Dettifoss 22. júlí
Mánafoss 29. júlí
Dettifoss 5. ágúst
Mánafoss 12. ágúst
PORTSMOUTH: ^
Selfoss 23. júli
Bakkafoss 2. ágúst
Goðafoss 1 1. ágúst
Brúarfoss 23. ágúst
HALIFAX:
Brúarfoss 1 9. júli
KAUPMANNAHÖFN:
írafoss 20. júli
Múlafoss 27. júli
írafoss 3. ágúst
Múlafoss 10. ágúst
GAUTABORG:
írafoss 21. júli
Múlafoss 28. júli
írafoss 4. ágúst
M úlafoss 1 1. ágúst
HELSINGBORG:
írafoss 22. júli
Skeiðsfoss 2. ágúst
Álafoss 1 6. ágúst
KRISTIANSAND:
Skeiðsfoss 3. ágúst
|ÍÍT Álafoss 17. ágúst
ÞRÁNDHEIMUR:
Álafoss 30. júli
GDYNIA/GDANSK:
Fjallfoss 1 7. júli
Lagarfoss 28. júli
VALKOM:
Lagarfoss 27. júli
Skógafoss 3. ágúst
VENTSPILS:
Lagarfoss 26. júli
WESTON POINT:
Kljáfoss 26. júli
Kljáfoss 9. ágúst
REGLUBUNDNAR
VIKULEGAR HRAÐ- i
FERÐIR FRÁ:
ANTWERPEN,
FELIXSTOWE,
GAUTABORG,
HAMBORG,
KAUPMANNAHÖFN,
ROTTERDAM