Morgunblaðið - 17.07.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLl 1976
27
Tony Knapp í viðtali við MbL:
„Menn eru farnir að búast
við of miklu af landsliðinu"
SPURNING HVORT VISSIR LEIKMENN VERÐA ÁFRAM í
LIÐINU EF ÞEIR BÆTA SIG EKKI
SLÖK frammistaða íslenzka knattspyrnulandsliðsins í Helsinki á dögunum
hefur vakið mikið umtal og gagnrýni. Morgunblaðið sneri sér i gær til Tony
Knapp landsliðsþjálfara og spurði um hans álit á leikunum og landsliðsmálum
yfirleitt. Kom þar m.a. fram, að hann telur sig og liðið hafa orðið fyrir
óréttmætri gagnrýni í blöðum.
— Ég vil taka það fram i byrjun, að
ég er ekkert að afsaka frammistöðu
liðsins. Hún var ekki nógu góð og ég
tók það fram á blaðamannafundi með
finnsku blaðamönnunum eftir leikinn
að ég væri ekki með neinar afsakanir,
en hins vegar væri slæmt að vera án
okkar bezta manns, Ásgeirs Sigurvins-
sonar auk Sigurðar Dagssonar og Gísla
Torfasonar Allir leikmenn íslenzka
liðsins léku undir getu og er þetta i
fyrsta skipti í þau þrjú ár, sem ég hef
verið með liðið, að slíkt kemur fyrir. Öll
lið geta átt botnleiki eins og við vitúm.
— Hitt er svo annað mál, að ég tel
að menn séu farnir að búast við of
miklu af íslenzka liðinu. Aðeins nokkr-
um vikum eftir að ísland vinnur sinn
fyrsta útisigur í nær 100 leikjum (1:0
gegn Noregi) virðist það vera þjóðar-
áfall að tapa 1:0 fyrir Finnum í
Helsinki Fyrir þremur árum hefði þetta
þótt góð frammistaða og íslenzka
landsliðið væntanlega fengið hól fyrir í
blöðunum, sem nú eru uppfull af
gagnrýni Við megum heldur ekki
gleyma þvi. aðflestir leikmenn islenzka
liðsins eru hreinir áhugamenn, á sama
tima og hver einasti leikmaður finnska
liðsins fékk greiddar 70 þúsund krónur
fyrir sigurinn í leiknum á miðvikudag-
inn.
— Finnar hafa verið i framför á
knattspyrnusviðinu á undanförnum ár-
um alveg eins og við Þeirra árangur er
svipaður og okkar Þeir hafa t.d. unnið
Sviss 1:0, tapað naumlega fyrir Hol-
lendingum 2:1 og Pólverjum 2:0 og
gert jafntefli við ítali i Róm 0 0. Eftir
að hafa séð Finna leika og fengið
upplýsingar hjá Don Revie, vissi ég að
það var ekki auðvelt að skora hjá þeim,
því þeir leika sterkan varnarleik Fram-
herjum itala tókst ekki að skora hjá
þeim og eru þeir þó metnir á rhilljarða
króna og svo er það álitinn einhver
glæpur þegar okkar piltum tekst ekki
að skora hjá liðinu mark. Ég varaði
menn við of mikilli bjartsýni fyrir leik-
inn og það var algerlega óraunhæft að
reikna með öruggum sigri eins og
sums staðar kom fram í blöðum.
— Ég sagði á blaðamannafundi eftir
leikinn að margar spurningar leituðu á
hugann eftir þessa slöku frammistöðu
liðsins og spurning væri um það hvort
vissir leikmenn yrðu áfram í landsliðs-
hópnum ef þeir bættu sig ekki í næstu
leikjum Ég vil ekki ræða þetta nánar í
blöðum, en framundan eru 3 leikir,
tveir gegn Southampton og einn gegn
Luxemburg og þá fá þessir menn tæki-
færi til að sýna hvað í þeim býr. Ef þeir
leika þá eins illa og i Finnlandi. getur
þetta orðið þeirra síðasta tækifæri
— Landsliðsnefndin hefur verið
gagnrýnd mjög fyrir að hafa ekki valið
vissa menn í hópinn og hafa þeir verið
sérstaklega nefndir Ingi Björn Alberts-
son og Hermann Gunnarsson Við höf-
um haft þá báða til athugunar og við
vorum mikið að hugsa um að velja
Inga Björn til Finnlandsfararinnar þótt
ekki yrði af því Hann er í mikilli
framför og hefur ásamt Hermanni
mikla möguleika á þvi að koma inn i
hópinn i þeim þremur leikjum sem eru
framundan En það er vist, að þau
Framhald á bls. 16
Unglingalandslið
íslands og Fær-
eyja leika í dag
UNGLINGALANDSLIÐ Islands og
Færeyja leika tvo unglingalands
leiki I dag, en leikir þessir áttu
sem kunnugt er að fara fram s.l.
þriðjudag Þá gat ekkert af þeim
orðið vegna þess að ekki var
hægt að fljúga til Færeyja í Fær-
eyjum leika landslið skipuð leik-
mönnum 14-—16 ára en á
Laugardalsvellinum leika landslið
skipuð leikmönnum 16—18 ára.
Hefst leikurinn klukkan 14 I dag.
LIKUR A ÞVIAÐ FORGJÖF
BJÖRGVINS VERÐI
Nýja forgjöfin ákveðin á mánudag
+ 1
Forgjafanefnd Golfsambands ts-
lands kemur saman til fundar á
mánudaginn og mun þar m.a.
fjalla um nýja forgjöf Björgvins
Þorsteinssonar, en eins og mönn-
um er í fersku minni náði hann
stórgóðum árangri á Jaðarsvellin-
um á Akureyri 1 vikunni er hann
lék 18 holurnar á 65 höggum eða
7 undir pari.
Fram og ÍBK á morgun
ÞÓTT aðeins verði einn leikur 11.
deildar keppni lslandsmótsins (
knattspyrnu nú um helgina, verð-
ur eigi að sfður nóg um að vera á
knattspyrnuvöllum landsins.
Leikin verður heil umferð I 2.
deildar keppninni, auk margra
leikja ( 3. deildar keppninni og
eins leiks ( 1. deildar keppni
kvenna.
Eini 1. deildar leikurinn sem
fer fram um helgina verður á
Laugardalsvellinum kl. 20.00 á
morgun. Mætast þá Fram og ÍBK
og má þar búast við fjörugri við-
ureign eins og jafnan er þessi lið
leiða saman hesta sína. Leik lið-
anna í fyrri umferðinni lauk með
iigri Fram, 1—0.
Á mánudagskvöld fer svo fram
á Laugardalsvellinum leikur milli
Þróttar og Akurnesinga og hefst
hann kl. 20.00. Álíta verður að
Skagamenn verði sterkari aðilinn
i þeim leik, þótt allt geti raunar
gerst. 1 fyrri umferðinni sigraði
Akranes 1—0.
Kl. 14.00 í dag fer svo fram á
Akureyri leikur sem Norðan-
menn eru sjálfsagt spenntir fyrir.
Eru það heimaliðin Þór og KA
sem mætast þar, og eins og jafnan
er þessi lið leika saman má búast
við hörkuviðureign. í dag kl.
17.00 leika á Árskógsvelli Reynir
og ÍBI og kl. 14.00 leika á Húsavík
lið Völsunga og ÍBV.
„Það er alveg ljóst að forgjöf
Björgvins lækkar a.m.k. niður í
núll og það kæmi mér ekki á óvart
að hún færi i plús einn, en það
kemur ekki í ljós fyrr en við höf-
um borið saman bækur okkar á
mánudaginn,“ sagði Ólafur
Bjarki Ragnarsson, einn nefndar-
manna þegar Mbl. ræddi við hann
i gær.
Hæsta forgjöf, sem áhugamenn
ná í golfi, er 2—3 plús, svo að ljóst
er að Björgvin Þorsteinsson er að
skipa sér á bekk með albeztu
áhugamönnum heimsins í grein-
inni. Þessi lága forgjöf Björgvins
mun auka möguleika á þvi að
hann fái að keppa á stórmótum
erlendis og einnig mun hún að
sögn Ólafs Bjarka líklega hafa í
för með sér, að islendingar fái
framvegis að vera með í svokall-
aðri heimsmeistarakeppni
(World cup) i golfi. Hingað til
hafa Islendingar ekki fengið að
vera þar með vegna þess að við
höfum engan golfmann átt, sem
verið hefur með forgjöf núll, en
islenzkir golfmenn hafa aldrei
komizt neðar en forgjöf minus
tveir.
Þess skal getið til skýringar, að
þegar golfmaður er með forgjöf
plús einn er einu höggi bætt við
höggafjölda viðkomandi golf-
manns þegar reiknaður er árang-
ur hans með forgjöf en hjá golf-
manni með mínus forgjöf er talan
dregin frá höggafjöldanum. Hing-
að til hafa allir islenzkir golf-
menn verið með mínusforgjöf, frá
2 upp i 24 högg.
Forgjafarnefndin mun á fundi
sínum á mánudaginn einnig
lækka forgjöf annarra kylfinga,
sem hafa staðið sig vel að undan-
förnu og eru i þeim hópi margir
ungir og upprennandi kylfingar
svo sem Geir Svansson, Ólafur
Ragnarsson og Sigurður Péturs-
son.
Handknattleiks-
þjálfarar
Vaxandi félag í nágrenni Reykjavíkur óskar eftir að
ráða þjálfara til starfa á komandi keppnistimabili með
2. deildarlið félagsins. Góð aðstaða. Tilboð sendist
blaðinu fyrir n.k. miðvikudag 21. júlí merkt: S —
6368.
LYMPIULEIKAR
BERLIN W
1936
*TL -
U»ú A9 6€/lA
íí/AA/TA /OSL
K/ibVú/tí-
Vfi FT/L/A. }.
/t/vt /i/r/.tA s.
ffAt /rt'sró/t tr
c* fkv/ otct
H/te\/(a^skja.
TA//OA/t/tt.JA -
/tlOti/A 3tss(
0//SAS A0///VÚ|
Sf/rt S€CT/\ '
/rtA ap *Aft
H't/Sr mert/f
fítA/rt J/i
S/t/n////T/
\//trieA. //iA/</<Ae/ r/t. aþ .
SsA //////f /n/f/iú /AAÓTrA/nt*/J I
------------iS/AA L.'/T/iiA/fuA 1
I S'/e*T///e; TA///J .
I a ee///s / i/A/tt -
^íro'ifrf/ ú/Ar/tr
• /« rt/i
.Ft TATÍAST I
F ’■ 4
lóefA/l LÚTt LO//H-
I TAr/SAVI 7. f?7 /n
I ÍTÓKA or/eKS , He/iS-
1 *ttt KA//A H/TtfA.
I 06 Ufit //AKS /rten
I KASttTAK.Ve»3/J />6
I K/Ttf/l , 6ÖA/AO Kftt
\oo flóatsets
ISJoAútJ SCeHHT/A.
V
r- x
I W4
SlJ
(00
fijp W 2oo m /JiAJp
| LA/Jtsrö**^
i>4 SrÓ'K/. OUfKS 7.9Ó/» , 6/J LiJTt
rhtSTÓUiT. oKfKf KÓ/tór/A*t íi»A/«
utjA. s\kK f.oL /n .
KFOA AF (»ecÞl KflTAf I rUTteVt
Ao hrneKoA vr/t«u>wwoc
stajks ao\ 'n o«rr.
CPTi/t uetK.AHA
SAC6 t OKg/JS:
O ,'Ei HAA/aa ,A9
K Ol'/Aioiote,*AAj///l
| skjlj jcaa /Jot -
S<Tm TGtT -
JAKCjn K.yK -
, P'atta ható/15 .
I ]P*ÓTTA/n€H/J
S Kr/J 6J.K.I A V
4 hjcsa Jm sJAA.r
* 06 N J) rr
3 HftPúrt q’sLLT.
Montreai
*
Stones
svartsýnn
— BANDARIKJAMENN munu
ekki vinna nema fern gullverð
laun i frjálsíþróttakeppni
Ólympfuleikanna, sagði heims
methafinn í hástökki, Dwight
Stones, í viðtali við fréttamenn I
Montreal. Sagði Stones t.d. að
hann hefði ekki tru á því að
Bandarfkjamaður myndi vinna
100 metra hlaupið. — Borzov
verður heppinn og gengur með
sigur af hólmi, sagði Stones. Þá
sagði Stones einnig það skoðun
sína að Wohlhuter myndi ekki
eiga möguleika f 800 metra
hlaupinu. í þvf myndi Mike Boit
verða sigurvegari. Það var aðeins
í hástökkinu sem Stones var full
viss um að sigurinn yrði banda-
rfskur og þá um leið sinn.
Babashoff-
Ender verður
aðaleinvígi
sundkeppninnar
MIKIÐ má vera ef hápunktur
sundkeppninnar á Ólympíuleik
unum í Montreal verður ekki við
ureign bandarfsku stúlkunnar
Shirley Babashoff og austur
þýzku stúlkunnar Korlelia Ender,
en Ifklegt þykir að þessar stúlkur
berjist um gullið f fleiri en einni
grein Báðar eru mjög sigurvissar
og hafa lýst þeirri skoðun sinni á
fundum með fréttamönnum, að
þær óttist ekki hver aðra. — Ég
er ekki komin hingað til þess að
sigra Ender, sagði Babashoff, —
ég er komin hingað til þess að
hreppa gullverðlaun. Ender sagði
hins vegar að Babashoff yrði tvi
mælalaust sinn erfiðasti and
stæðingur, þar sem hún berðist
af mikilli hörku, — ég sá það
bezt í fyrra er við kepptum i 200
metra skriðsundi, sagði Ender.
í heimsmeistarakeppninni
Cali í Columbfu í fyrra tókst
Babashoff að hreppa sigurinn við
nefið á Ender, en i landskeppn
Bandarfkjanna og Austur
Þýzkalands sigraði Ender bæði
100 og 200 metra skriðsundi og
setti heimsmet í báðum greinum
Bruch ekki með
SÆNSKI kringlukastarinn Ricky
Bruch mun ekki keppa á
Ólympfuleikunum í Montreal
Bruch hætti við Kandaförina
síðustu stundu og sagði ástæð
una vera þá að hann væri ekki f
nógu góðu formi. Bruch telur sig
ekki vera öruggan með „nema"
62 metra, og segir að þáð muni
ekki duga til þess að koniast á
verðlaunapall. Bruch var ein
Svíinn sem hlaut verðlaun í frjáls
fþróttakeppninni í Munchen
1972.
Arslanagic
til Þýzkalands
ARSLANAGIC markvörðu
júgóslavneska handknattleiks
landsliðsins sem margir hérlendis
munu kannast við leikur sfna sfð
ustu landsleiki fyrir Júgóslavfu á
Olympíuleikunum í Montreal. Eft
ir leikana mun hann halda til
Vestur Þýzkalands og leika með
liðinu Nettelstedt, en það vann
sig upp í 1. deild f fyrra.