Morgunblaðið - 14.08.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.08.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. AGUST 1976 21 + Að undanförnu hafa dvalizt ( Svfþjóð ð vegum Norræna félagsins 14 tslendingar og hafa þeir lagt stund á sænsku- nám þar ásamt 55 Finnum. Þessi starfsemi er liður f þeirri viðleitni norrænu félaganna að auka samstarf og samtalshæfni fóiks á Norðurlöndum. I sambandi við námsferðina var haldin kaupstefna og voru tslendingarnir þar með sfna sérstöku deild þar sem þeir sýndu fslenzkar heimilisiðn- aðarvörur sem mikla athygli vöktu. Meðfylgjandi mynd sem birtist f sænsku blaði var tekin meðan á kaupstefnunni stðð. Þær sem skarta hér á fslenzkum búningi eru, t.f.v.: Jóhanna Jóhannsdóttir, Stein- unn Finnbogadóttir og Dóra Hjálmarsdóttir. Ást við fyrstu sýn + Það er einkum tvennt sem vekur mesta athygli á Ólympfu- leikum: sjálf fþróttaafrekin og brotthlaup austur-evrópskra fþróttamanna. Á Ólympíu- leikunum f Montreal á dögunum báðust þrfr fþrótta- menn frá Austur-Evrópu hælis sem pólitfskir flóttamenn og þeirra á meðal var Sergei Nemsanov, ungur sovézkur dýf- ingamaður. En eins og oft þegar karlmenn ráða ráðum sfnum og taka miklar ákvarðan- ir þá er konan ekki allfjarri. Hér birtum við mynd af ungri *úlku sem er sögð eiga mestan þátt f að Sergei kaus að verða eftir f Kanada. Hún heitir Carol Lindner og er frá Cin- cinnati f Bandarfkjunum. Loksins + Sá ágæti leikari Burt Lancaster, sem nú hefur tvö ár um sextugt, ætlar'nú loksins að láta verða af þvf að kvænast elskunni sinni, henni Jackie Boone. Sagt er að kunningjarnir hafi ekki orðið sem steini lostnir þegar þeir heyrðu tfðindin. Burt og Jackie hafa nefnilega búið saman f tólf ár. — S-Afríka Framhald af bls. 1 sinnaleiðtogans Nelson Mandela hafi verið í hópi þeirra allmörgu svertingja sem voru handteknir í dag í skyndihandtökum, sem lög- regla gerði, að því er áreiðanlegar heimildir herma. Lögregla segir að 82 hafi verið handteknir í þremur útborgum | Höfðaborgar síðan óeirðirnar brutust út á miðvikudaginn. Þá var skýrt frá því i dag að 130 lögreglumenn hefðu í dag verið fluttir flugleiðis frá Jóhannesar- i borg til Höfðaborgar. í Soweto, sem er ein af útborg- um Jóhannesarborgar, hvar kom til mikilla óeirða í júnimánuði siðast liðnum, var einnig heldur rólegt í dag enda þótt þar sé allt við það sama í skólum og nemend- ur og kennarar mæti ekki til starfa. 1 Pietersburg, sem er i 300 km. f jarlægð frá Jóhannesarborg, kveiktu nemendur tveggja blökkumannabæja í þremur skól- um og voru þar 19 ungmenni handtekin og allmargir slösuðust í átökum við óeirðalögreglu, sem kom á vettvang. Og i Weenen, sem er skammt frá Durban, reyndi hópur ungra svertingja að kveikja i byggingum, en ekki er sagt að þar hafi orðið manntjón né sérstakar skemmdir. Utanríkisráðherra Suður- Afríku sagði á pólitiskum fundi i Durban í dag að staða Suður- Afriku á alþjóðavettvangi myndi ekki komast í eðlilegt horf fyrr en kynþáttavandamálin hefðu verið leidd farsælllega til lyktar. Fjand- menn landsins hefðu reynt að not- færa sér ástandið til að vekja upp ótta og hrylling. Hann sagði að apartheidstefnan byði upp á lausnina og allt kapp yrði lagt á að framfylgja henni á réttan máta. ALLT MEÐ — Myndlist Framhald af bls. 15 lega hærra verð á mynd sem þrykkt er i um 20—30 eintök- um en þeirri mynd er þrykkt er í 200 eintökum, og þrátt fyrir það telst fyrri myndin mun ódýrari og verður jafnframt margfalt verðmeiri i tímans rás. Á þessu virðast fæstir átta sig hérlendis. Grafíkmyndir eru líka á stundum þrykktar i örfáum eintökum, myndarinn- ar einnar vegna og sérstakrar tækni, og platan siðan eyðilögð. Slikar myndraðir verða lang- samlega verðmætastar. Sýning- in á Kjarvalsstöðum er fyrst og fremst hugsuð sem dreifing listar frægra listamanna og stendur með kostum og göllum fyllilega fyrir sinu sem slík. Bragi Asgeirsson. EIMSKIP Á NÆSTUNNI FERMA SKIP V0R TIL ÍSLANDS SEM HÉR jSEGIR: - Minning Pétur Framhald af bls. 17 frumherji þeirrar stefnu sem svo rr.jög er lofuð á landi hér í dag, íslensks iðnaðar. íslendingar eru i dag ekki einungis sjálfum sér nógir um málningu heláur flytj- um við út slíkan varning og er það i rauninni ótrúleg saga. Það sann- ar að framtak, hugvit og kjarkur eru afl þess sem gera skal. Þó er það jörðin sem á sitt eilífa aðdráttarafl. Körg fjallshliðin, frjó gróðurmoldin eru fótanna föstu vinir. Þegar Pétur hafði fegrað borg og bæ, litaó gráan steininn og breytt dökkum og döprum húsum í litskrúðug og fögur híbýli, sneri hann sér til moldarinnar og hóf búskap að Þórustöðum undir Ingólfsfjalli. Þeir sem komið hafa á heimili þeirra hjóna, Rögnu Sigurðardótt- ur og Péturs í Kjarri, vita tvennt: Staðurinn var réttnefndur og gróðri fylgir skjól og hlýja. Við sem þekkjum Pétur kveðjum hann og vitum að þar er farinn maður, sem lifði ævina alla með reisn en ekki kotungsbrag. Eg votta Rögnu í Kjafri samúð mína og hans fólki. Selfossi Brynleifur H. Steingrfmsson Skeiðsfoss 1 6. ágúst Tungufoss 23. ágúst Úðafoss 30. ágúst Urriðafoss 6. sept Tungufoss 1 3. sept. ROTTERDAM: Urriðafoss 1 7. ágúst Tungufoss 24. ágúst Úðafoss 3 1. ágúst Urriðafoss 7. sept. Tungufoss 1 4. sept. FELIXSTOWE: Dettifoss 1 7. ágúst Mánafoss 24. ágúst. Dettifoss 31. ágúst Mánafoss 7. sept. Dettifoss 14. sept. HAMBORG: Dettifoss 1 9. ágúst Mánafoss 26. ágúst Dettifoss 2. sept. Mánafoss 9. sept. Dettifoss 1 6. sept PORTSMOUTH: Goðafoss 18. ágúst Bakkafoss 23. ágúst Brúarfoss 1. sept Hofsjökull 9 sept Bakkafoss 1 3. sept. KAUPMANNAHÖFN: írafoss 1 7. ágúst Múlafoss 24. ágúst írafoss 31. ágúst Múlafoss 7. sept. írafoss 1 4. sept. GAUTABORG írafoss 1 8. ágúst Múlafoss 25. ágúst írafoss 1. sept. Múlafoss 8. sept. írafoss 1 5. sept. HELSINGBORG: Grundarfoss 1 7. ágúst Álafoss 30. ágúst Álafoss 1 3. sept. KRISTIANSAND: Grundarfoss 1 8. ágúst Álafoss 3 1. ágúst Álafoss 1 4. sept. GDYNIA/GDANSK: Reykjafoss 1 4. ágúst Fjallfoss 26. ágúst Lagarfoss 8. sept. VALKOM: Fjallfoss 23. ágúst Lagarfoss 6 sept VENTSPILS: Fjallfoss 25 ágúst Kljáfoss 24. Kljáfoss 7. Kljáfoss 21 REGLUBUNDNA VIKULEGAR HR FERÐIR FRÁ: ANTWERPEN, FELIXSTOWE, GAUTABORG, HAMBORG, KAUPMANNAHC ROTTERDAM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.